Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Qupperneq 22
22 OVHBLGARBLAÐ LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003
-
Umsjón:
Arndís Þorgeirsdóttir, arndis@dv.is
Að greina bragð með lyktarskyninu
Undrakraftur ilmsins
ILMKJARNAOLlUR: llmur losar um efni í heilanum sem vekja vellíðan og ilmkjarnaolíur eru samsettar úr mis-
munandi hormónum og vítamínum sem kalla fram margs konar mismunandi viðbrögð.
Hómópatar, meðferðarfræðingar og markaðs-
fræðingar eru að átta sig á fyrirbæri sem skor-
dýrum og dýrum er eðlisiægt að skilja -
undrakraftiilmsins
Ilmlækningar er
það kallað þegar ilm-
kjarnaolíur eru not-
aðar til lækninga. 01-
íurnar eru notaðar til
að meðhöndla bæði
líkamlega og andlega
vanlíðan og eru þær
meðal annars unnar
úr ilmandi blómum,
fræjum, trjáberki, rótum, laufi og ýmiss
konar jurtum og plöntum. Hreinar, nátt-
úrulegar iimkjarnaolíur geta verið allt að 70
sinnum kröftugri en jurtin sem þær eru
unnar úr.
Hippókrates, sjálfur faðir
læknisfræðinnar, kenndiað
ilmur hefði mikil áhrifá lík-
amlega og andlega líðan og
hefur hann því líklega verið
fyrsti talsmaður
ilmlækninga.
Vísindamenn skoða af miklum krafti mátt
ilmsins og hvaða áhrif hann hefur á mann-
lega hegðun. Þeir reyna að komast að því
hvernig best sé að nota þennan undrakraft í
markaðsskyni og hvort hægt sé að með-
höndla, með ilmmeðferð, mígreni,
minnistap og fleira.
Forn aðferð til lækninga
Menningarheimar víða um veröld hafa
notað kraft ilmsins til lækninga svo öldum
skiptir og upphaf ilmlækninga má rekja
4000 ár aftur í tímann. Egyptar til forna not-
uðu til dæmis ilmandi jurtir í nuddolíur, lyf
og snyrtivörur. Hippókrates, sjálfur faðir
læknisfræðinnar, kenndi að ilmur hefði
mikil áhrif á Iíkamlega og andlega líðan og
hefur hann því líklega verið fyrsti talsmaður
VIRKNI ILMKJARNAOLÍA
FRÍSKANDI:
Sítróna, basilíka, appelsína, piparmynta,
bergamot og tröllatré.
FYRIR HAR©:
Sedrusviður fyrir þurrt hár.
Lofnarblóm og ylang ylang fyrir venjulegt
hár.
Rósmarín og sítrónugras fyrir feitt hár.
FYRIRTÍÐASPENNA:
Sedrusviður, fennika og rómversk kamilla.
TIL SLÖKUNAR:
Lofnarblóm, myrra, kardimommur og sedru-
sviður.
FYRIR HÚÐINA:
Lofnarblóm og ylang ylang fyrir allar húð-
gerðir.
Rósmarín, gulrótarfræ, sandalviður og pipar-
mynta fyrir þurra húð.
Basilíka, tröllatré, sedrusviður, sítrónugras og
ylang ylang fyrir feita húð.
ilmlækninga. Frakkar og Englendingar byrj-
uðu snemma á 19. öld að endurvekja þessar
gömlu hefðir til
að öðlast viður-
kenningu í hinum
hefðbundna
heimi lækninga.
Ilmlækningar eru
því í senn nýjasta
tíska og gömul
rótgróin aðferð
við lækningar.
Lykt vekur tilfinningar
Það er ekki ímyndun að lykt vekji upp til-
fmningar með fólki. Ilmur losar um efni í
heilanum sem vekja vellíðan og ilmkjarna-
olíur eru samsettar úr mismunandi horm-
ónum og vítamínum sem kalla fram margs
konar mismunandi viðbrögð.
Hreinar, náttúrulegar
ilmkjarnaolíur geta verið
allt að 70 sinnum kröftugri
en jurtin sem þær eru
unnar úr.
Lyktarskyn mannfólksins er því mun
flóknara en margir halda. Tungan getur að-
eins greint bragð sem er sætt, súrt, salt og
beiskt og það er því lyktarskynið sem gerir
okkur kleift að finna mismunandi bragð af
því sem við borðum. Þannig má segja að
kvef sé versti óvinur sælkerans því sá sem
fær kvef getur átt á hættu að missa bragð-
skynið.
i
Leikkonan Esther Talia Caseystígurásvið í Listasafni Reykjavíkurí kvöld í leikritinu
Riddarar hringborðsins - með veskið að vopni. Kvenfélagið Carpur, sem erskipað
átta ungum leikkonum, annast uppsetninguna undir leikstjórn Þórhildar Þorleifs-
dóttur. Auk jpess hefur Esther, sem útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskólans,
síðastliðið vor, leikið Dilly Thors og Hermínu Hermanns ísöngleiknum Grease. Hlé
hefur verið á Grease að undanförnu en sýningar hefjast á ný innan skamms. Þá
kemur Esther Talia fram með Bang Gang á Airwaves-tónlistarhátíðinni síðar í
mánuðinum. Helgarblaðið fékk að skyggnast ísnyrtibuddu Estherar og þar var
marat forvitnileat að siá - enda seaist leikkonan vera „hálfaert snvrtifrík."
Sjúklega frískandi
„Þetta líkamskrem er í miklu uppáhaldi hjá mér.
Það kallast „Body Butter - Grape Seed.“ Ég nota
kremið alltaf eftir bað og það er sjúklega frískandi.
Vínberjalyktin er svo góð. Kremið er líka sanserað
þannig að húðin verður örlítið glitrandi - sem er alls
ekki slærnt."
Eðlilegt útlit
„Þetta krem er frá Kanebo og er alveg
frábært. Þetta er hálfgert brúnku-
krem en hefur þann kost að
vera þunnt og þvæst auð-
veldlega af. Eg nota
þetta í staðinn
fyrir
6- C
venju-
legt meik.
Kremið hefur
mjúka áferð og það
er eins og maður sé ný-
■ kominn úr sólbaði. Stund-
um nota ég það á leggina Iíka.“
Fjallalækur og gel
„Þetta er frábært hreinsigel frá Lancome sem
heitir „Gel Clarte". Ætli þetta sé ekki það krem sem
ég notað lengst enda get ég ekki án þess ver-
ið. Ég hef meira að segja notað það eftir
að hafa þvegið mér úr fjallalæk. Það
var alveg frábært."
1
Sátt við tískuna
„Augnblýanturinn
minn er frá Clarins og er fjólu-
p blár. Ég nota augnblýant og
maskara á hverjum degi og
þessi hefur reynst mér vel síðan í
sumar. Ég las í tímariti í sumar
að fjólublár væri einn af lit-
um sumarsins og í
framhaldinu _____
keypti ég blýantinn.
Mér finnst gaman að
fylgja tfskunni og þetta er
tískulitur sem ég mjög sátt við."
Hraustlegar kinnar
„Kinnaliturinn minn frá
Clinique er sá hlutur sem
alltaf er í snyrtibuddunni.
Liturinn kallast á ensku
„Mocca Pink." Ég nota
kinnalit bæði hvers-
dags og spari og þessi
hefur þann kost að
vera mjög viðráðan-
legur. Áferðin er
eðlileg og hann
virkar eins og rétt
hafl verið klipið í
kinnarnar á manni.'