Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Síða 28
28 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003
FJÖLDAMORÐINGINN CHARLES MANSON: Réttarhöldin yfir Manson vöktu mikla athygli á Seyðisfirði enda lengi
verið á sveimi saga um að hann hafi verið þar eitt sumar skömmu eftir 1960. Þegar myndir af Manson tóku að
birtast í fjölmiðlum sannfærðust margir Seyðfirðingar um að þarna væri á ferð sami maðurinn og hafði staðið á
söltunarplani Haföldunnar nokkrum árum fyrr.
Siðprúði
fjöldamorðinginn
Fjöldamorðinginn Charles Manson varhandtek-
inn í desember 1969 ásamt nokkrum fyigjend-
um sínum fyrir morðið á leikkonunni Sharon
Tate og fjölda annarra.
Morðið á Tate þótti einstaklega grimmi-
legt, ekki síst í ljósi þess að leikkonan var
komin átta mánuði á leið þegar morðið átti
sér stað og að hún var stungin tæplega fimm-
tíu sinnum með stóru eggjárni. Málið vakti
grfðarlega athygli í Bandaríkjunum og þjóðin
fylgdist grannt með réttarhöldunum. Þrátt
fyrir að Manson hafl ekki drepið neinn með
eigin hendi var hann dæmdur til dauða en
dómnum síðar breytt í ævilangt fangelsi án
möguleika á náðun. Margir fylgjendur hans,
meðlimir í svonefndri Manson-íjölskyldu,
voru einnig dæmdir í langa fangelsisvist fyrir
sinn hlut í morðunum og öðrum ofbeldis-
verkum.
Þrátt fyrir að vera veikur á geði - eða ef til
vill þess vegna - hafði Manson ríka útgeislun
og átti auðvelt með að ná til fólks og sann-
færa það um ágæti skoðana sinna. Hann
safnaði fljótlega í kringum sig söfnuði sem
leit á hann sem trúarleiðtoga og fór í einu og
öllu eftir því sem hann sagði - hvort sem það
fólst í að ræna eða drepa saklaust fólk.
Manson á Seyðisfirði
Réttarhöldin yftr Manson vöktu einnig
mikla athygli á Seyðisftrði enda lengi verið á
sveimi saga um að hann hafi verið þar eitt
sumar skömmu eftir 1960. Þegar myndir af
Manson tóku að birtast í fjölmiðlum sann-
færðust margir Seyðfirðingar um að þarna
væri á ferð sami maðurinn og hafði staðið á
söltunarplani Haföldunnar nokkrum árum
fyrr.
Sagan um komu Mansons til Seyðisíjarðar
er einstaklega lífseig og skýtur alltaf upp koll-
inum annað slagið. Fyrir ári gerði hópur fólks
stutta heimildamynd, Siðprúði fjöldamorð-
inginn, sem íjallar um meinta dvöl Mansons
á Seyðisfirði, á námskeiði í kvikmyndagerð í
tengslum við Listahátíð ungs fólks á Austur-
landi.
í myndinni er rætt við fimm Seyðfirðinga
sem allir eru sammála um að Manson hafi
verið í sfld á Seyðisfirði einhvern tíma
snemma á sjöunda áratugnum. Viðmælend-
urnir - Hrefna Sveinbjörnsdóttir, Jóhann
Sveinbjörnsson, Þorgeir Sigurðarson, Guð-
rún Katrín Árnadóttir og Arnbjörg Sveins-
dóttir - eru ekki á sama máli um hvaða ár
Manson á að hafa verið á Seyðisfirði en árin
1963 til 1966 eru öli nefnd í því sambandi.
Viðmælendurnir eru ekki heldur á einu máli
um hvar hann bjó eða hversu margar konur
voru í slagtogi með honum. Allir eru þó sam-
mála um að Manson hafi komið vel fyrir, ver-
ið kurteis og siðprúður.
Lífseig þjóðsaga
Þó að sagan um dvöl Mansons á Seyðisfirði
sé skemmtileg og sannorðir og vandaðir ein-
staklingar tilbúnir að leggja nafn sitt við hana
verður hún þó að teljast vafasöm og í besta
lagi lífseig þjóðsaga.
Ekki skal dregið í efa að maður sem líktist
Charles Manson í útliti hefur unnið í sfld á
Seyðisfirði f upphafi sjöunda áratugarins og
ekki ólíklegt að hann hafi heitið Charles. Eng-
inn sem haft var samband við hefur þó verið
tilbúinn að staðfesta að eftirnafn hans hafi
verið Manson.
Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá
The Charles Manson Research Committee er
Manson fæddur árið 1934 og hefur því verið
um þrítugt árin sem hann á að hafa dvalist á
Seyðisfirði. í júní 1960 var Manson dæmdur í
tíu ára fangelsi fyrir að rjúfa skilorð og vitað
er að hann sat í The Federal Penitentiary
tukthúsinu á McNeil-eyju í Washington-fýlki
til ársins 1966 sem útilokar að hann hafi
komið á Seyðisfjörð á þeim árum. Skýrslur
sýna einnig að hann komst reglulega í kast
við lögin í Bandaríkjunum á árunum 1967 til
1969 sem rennir enn frekari stoðum undir þá
kenningu að dularfulli maðurinn á Seyðis-
firði hafi ekki getað verið Charles Manson.
Þrátt fyrir að menn hafi farið mannavillt og
útilokað sé að umræddur maður hafi verið
Charles Manson er þeirri spurningu enn
ósvarað hver þessi siðprúði tvffari
fjöldamorðingjans hafi verið. kip@dv.is
Man vel eftir
Charles Manson
„Ég man vel eftir Charles Manson og er al-
veg sannfærður um að þetta hafi verið hann,“
segir Jóhann B. Sveinbjörnsson, bæjargjald-
keri á Seyðisfirði og fyrrverandi lögreglumað-
ur. Jóhann hóf störf sem bæjargjaldkeri á
Seyðisfirði árið 1963, tuttugu og níu ára gam-
all, sama ár og sögusagnir herma að Manson
hafi eytt sumrinu á Seyðisfirði.
Fékk lánaða hitaplötu
„Mig minnir að þetta hafi verið sumarið
1963 og ég vil taka fram að ég kynntist hon-
um ekki mikið. Charlie, eins og hann var kall-
aður, vann í sfld hjá Haföldunni og vakti
nokkra athygli í bænum fyrir sítt hár og að yf-
irleitt voru tvær erlendar stúlkur með hon-
um. Manni fannst hálfpartinn eins og hann
ætti tvær konur.“
Jóhann segist muna vel eftir Manson þótt
hann hafi svo sem ekki átt mikil samskipti við
hann og að það hafi í raun ekki verið neitt
sérstakt við hann. „Það var ekki fyrr en eftir
að Manson komst í fréttir að fólk fór að rifja
upp sögur um honum." Að sögn Jóhanns bjó
Manson í tjaldi lungann úr sumrinu ofan við
fjarðarþorpið undir Bjólfinum og mætti það-
an f vinnuna. „Þegar fór að líða fram á haust
og farið var að kólna fékk hann inni í herbergi
f verbúðinni og í framhaldi af því kom hann
til mín upp á bæjarskrifstofu og bað mig að
lána sér eldunartæki eða rafmagnshita-
plötu.“
Jóhann segir að það hafi hist svo vel á hjá
sér að hann hafi verið með tveggja hellna
hitaplötu í kjaflaranum heima hjá sér sem
bróðir sinn hafi átt og það hafi verið komin
„skjónuhefð" á hana. „Eg gat því lánað Man-
son helluna en bjóst svo sem ekki við að fá
hana aftur. Það kom mér því á óvart þegar
Charlie kom með helluna upp á skrifstofu til
SEYÐISFJÖRÐUR: Manson bjó í tjaldi ofan við fjarðar-
þorpið undir Bjólfinum lungann úr sumrinu en fékk
inni í verbúðinni eftir að fór að kólna um haustið.
HITAPLATAN: Jóhann B. Sveinbjörnsson, bæjargjald-
keri á Seyðisfirði og fyrrverandi lögregluþjónn, lánaði
manni, sem hann er sannfærður um að hafi verið
Charles Manson, hitaplötu svo að hann gæti eldað sér
mat. Jóhann segir að Manson hafi komið vel fyrir og
verið prúður í framkomu.
mín og skilaði henni skömmu áður en hann
fór, óskemmdri og allt.“
Aðspurður segist Jóhann telja að Manson
hafi dvalið á Seyðisfirði í fjóra eða fimm mán-
uði. „Lungann úr sumrinu og fram á haust."
Prúður og kurteis
Jóhann segir að eftir morðið á Sharon Tate
hafi birst myndir af Manson í fjölmiðlum og
að þá hafi margir Seyðfirðinga kannast við
hann. „Hann var búinn að vera hérna svo
lengi.“ Að sögn Jóhanns höfðu menn fyrir
austan á orði að Manson hefði verið róleg-
heitamaður og prúður. „Hann var meðal-
maður á hæð, rétt undir hundrað og áttatíu
sentímetrum, dökkur yfirlitum, með skegg og
sítt hár.“ Jóhann segir að Manson hafi verið
barngóður og börnin í bænum laðast að hon-
um við tjaldið.
Þegar Jóhann er spurður hvort aldrei hafi
læðst að honum efi um að þetta hafi í raun og
veru verið Charles Manson segir hann svo
ekki vera. „Ég er nokkuð viss um að þetta sé
satt og margir á Seyðisfirði eru sannfærðir
um að Charlie hafi í raun og veru verið
Charles Manson.“ kip@dv.is
SÍLDARSÖLTUN Á SEYÐISFIRÐ11962: Sögusagnir herma að fjöldamorðinginn Charles Manson hafi unnið f síld á
Seyðisfirði sumarið 1963. Þegar myndir af Manson birtust í fjölmiðlum eftir morðið á SharonTate þóttust margir
Seyðfirðingar kannast við manninn sem staðið hafði á söltunarplani Haföldunnar nokkrum árum fyrr.