Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Síða 32
30 DV HELCARBLAÐ LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 Þau misstu allt Ekki löng saga - Veikindasaga Hrafnhildar Lífar var í sjálfu sér ekki löng. Það má lesa um það í skýrslum að 30. apríl komu foreldrar hennar með hana til Barnalæknaþjónustunnar í Domus Med- ica en þá hafði hún verið með hita í sólar- hring. Þá sáust merki um dreifðar húðblæð- ingar á fótum. Skoðun leiddi ekkert alvarlegt í ljós og var talið að um veirusýkingu væri að ræða en vegna húðblæðinganna var haft samband við barnadeild Landspítalans og samið um að þangað mætti koma með Hrafnhildi ef henni versnaði. Þangað komu foreldrar hennar með hana daginn eftir, þótt henni hefði ekkert versnað, og við komu þangað var hún hitalaus, með hor í nös og svolítið bar á hósta. Næstu íjóra daga var hún spræk og frísk en veiktist að kvöldi 6. maí og var með hita og hósta. GETUM EKKI HÆTT: Þau Baldur og Sóley segja að ekki komi til greina að setja verðmiða á dóttur sína og eru því ekki á höttunum eftir skaðabótum frá heiðbrigðiskerfinu heldur segjast vilja fá viðurkenningu á því að mistök hafi orðið. Þau segjast ætla að eignast annað barn. Dauði lítils barns er án efa einhver sorglegasti atburður sem venjulegt fólk getur hugsað sér. Sóley Sævarsdóttir og Baldur Svavarsson misstu einkadóttur sína úr bráðri heilahimnubólgu í maí sl. Pau telja að röð mlstaka í heilbrigðlskerf- inu hafi leitt til dauða hennar. Hrafnhildur Líf Baldursdóttir fæddist 10. október 2001 og var fyrsta og eina barn for- eldra sinna, Baldurs Svavarssonar og Sóleyjar Sævarsdóttur. Hún hefði orðið tveggja ára í gær ef hún hefði lifað. Hún veiktist af bráðri heilahimnubólgu 8. maí sl. og var flutt lífvana á Landspítalann þann 9. maí. Þrem dögum seinna, þann 12. maí, var hún lögð í fang föð- ur síns og slökkt á öndunarvél og tækjum. Hrafnhildur var úrskurðuð látin fáum mínút- um síðar, kl. 14 þann dag. Þetta sorglega mál hefur verið í fréttum undanfarna viku vegna rannsóknar embættis landlæknis á því. í frumdrögum álitsgerðar embættisins eru sett spurningarmerki við viðbrögð heilbrigðisstarfsmanna í nokkrum tilvikum og talið að bæta þurfi vinnulag við meðferð símtala utan úr bæ til heilbrigðis- stofnana á borð við Landspítala og Lækna- vakt en fyrir tilviljun eru ekki til upptökur á símtölum foreldra Hrafnhildar við Lækna- vaktina þótt fyrirtækið segist hafa tíu ára reynslu í upptöku slíkra sfmtala. Ekki er held- ur til afrit af símtali þeirra við bráðamóttöku Landspítalans. Helgarblað DV gekk á fund foreldra Hrafn- hildar þar sem þau búa á fjórðu hæð f blokk við Hátún. Þetta er sama blokkin og var not- uð í kvikmyndinni Englar alheimsins, stein- grá að utan og kuldaleg. Það er eitt og annað í íbúðinni sem minnir á Hrafnhildi Líf; mynd- ir af henni á ýmsum aldursskeiðum, leikföng og ýmislegt dót sem fylgir litlum börnum hvar sem þau fara. En hér er ekkert barn lengur, aðeins minningar. Vaknaði alltaf brosandi Baldur er þrítugur vörubílstjóri, Sóley er 23 ára starfsmaður á leikskóla. Þau hafa verið saman í 5 ár og í sambúð í 3 ár. Þau sitja þétt saman í sófanum og rifja upp. - Hvernig barn var Hrafnhildur Líf? „Hún var lífsglöð ung stelpa sem vaknaði alltaf brosandi og sagði oft hæ við okkur þeg- ar hún opnaði augun á morgnana. Hún var heilsuhraust og laus við öll vandamál nema hvað hún var fædd með svokallað æðaæxli í efri vörinni sem þurfti læknisaðgerðir til að fjarlægja og hún var búin að fara í tvær leysi- aðgerðir til þess. Helgina sem hún dó átti hún að fara í leysi- geisla á laugardeginum. Hún var mjög hörð af sér. Það var búið að segja okkur að börn gætu grátið í marga daga eftir svona aðgerðir en hún skældi í klukkutíma eftir leysiaðgerð- ina og gat kysst mann á kinnina þótt vörin á henni væri fimmföld af blöðrum,“ segir Bald- ur og flettir myndaalbúmum með myndum af dóttur sinni. „Hún var afskaplega gott barn sem gerði allt með okkur og fólk sagði við okkur að við vissum ekki hvað væri að eiga barn því við þurftum aldrei að hafa neitt fyrir henni. Hún svaf frá átta til átta og vaknaði mjög sjaldan á næturnar." Örlagarík heimsókn í Domus Daginn eftir, 7. maí, fóru Baldur og Sóley með Hrafnhildi aftur til læknis í Domus. Við skoðun er henni lýst sem hressilegri og sprækri en talið var að hún hefði bólgu og sýkingu í kinnholum og ennisholum og var sett á sýklalyf. „Það vantar svo mikið ílíf okkar að það er eins og það hafi stöðvast fyrír fimm mán- uðum og sé enn þá á pásu. Það vantar allt." „Hún vaknaði daginn eftir og sýndist vera eðlileg en svo settist hún í sófann og kveink- aði sér og ældi nokkrum sinnum og var með mikinn hita. Við fórum síðan með hana aftur upp í Domus þennan dag kl. 11. Læknirinn lýsti upp í munninn á henni þar sem hún lá í fangi móður sinnar, hún ældi á biðstofunni bæði fyrir og eftir skoðun. Hann sagðist ætla að skipta um sýklalyf en sagði okkur að hafa samband við bráðamóttöku ef henni versn- aði og sendi okkur svo heim eftir fimm mín- útna skoðun," segir Sóley sem fór með Hrafnhildi ásamt tengdamóður sinni í skoð- unina. í skýrslu læknisins segir að engra húð- blæðinga hafi orðið vart í þetta sinn og eng- inn stífleiki í hnakka hafi greinst. Þetta segja foreldrarnir að sé hreinlega ósatt. Þetta er ósatt „Þetta er að öllu leyti ósatt. Hann athugaði aldrei hvort hún væri hnakkastíf því hún lá í fangi mömmu sinnar allan tímann. Honum var bent á nýjar húðblæðingar á hálsinum á henni sem lágu upp í andlitið en hann sagði að þetta væri út af uppköstunum. „Þegar við sögðum að það væru til upptökur á öllum sím- tölum sem við áttum við sjúkrahúsið og Læknavaktina, sagði hún: „Þær munu týnast." Við treystum auðvitað læknunum en það segja allir læknar og hjúkrunarfólk sem við höfum talað við að læknirinn hefði átt að taka hana þegar inn í skoðun. Barnið lá með 40 stiga hita í fangi móður sinnar og var alveg ómöguleg," segir Baldur. „Ég kom heim úr vinnu klukkan þrjú þenn- an dag og ég hafði aldrei séð hana svona. Ég lagði hana frá mér meðan ég fékk mér að borða og hún lá algerlega hreyfingarlaus eins og í móki," segir Baldur. „Svo hringdi ég upp á Læknavakt um kvöldmatarleytið og sagði þeim að barnið væri með 40 stiga hita og þar sagði hjúkrun- arfræðingur mér að gefa henni stíl. Eg sagði að þeir virkuðu ekki og þá sagði hún að þeir ættu ekki að virka en ég skyldi bara bíða og sjá. Ég hringdi síðan á bráðamóttöku Land- spítalans um klukkan átta um kvöldið og þar fékk ég sömu svörin og á Læknavaktinni, að gefa henni stíl og bíða. Um nóttina vaknaði hún og tók um eyrað á sér og kveinkaði sér," segir Sóley móðir hennar. Hætti að anda Um morguninn um sexleytið vaknaði litla fjölskyldan og þá var Hrafnhildur Líf sljó og andstutt. Móðirin hringdi á Læknavaktina og var þá sagt að það gæti tekið um tvo tíma að fá lækni heim. Sóley skellti þá símanum á Læknavaktina og hringdi strax á bráðamót- tökuna og sagðist vera að koma með barnið þegar í stað því það væri svo fölt. Sá sem varð fyrir svörum sagði að hún gæti vel komið með barnið strax en það væri annað barn þegar á leiðinni til þeirra. „Mamma hennar var að klæða hana í sokkabuxurnar þegar hún missti meðvitund og hætti að anda. Ég var frammi og heyrði hræðilegt óp og hljóp inn og fór þegar að blása í hana lofti en fann alltaf að hjartað sló og síðan hringdum við strax á sjúkrabíl og þeir komu fljótlega." Við komuna á sjúkrahúsið var Hrafnhildi gefið raflost til að koma hjartslætti af stað og hún var sett í öndunarvél og allt gert til þess að viðhalda lífi hennar en ljóst var að héðan af varð ekki aftur snúið. „Við höfum séð gögn þar sem kemur fram að þetta hafi verið vonlaust frá upphafi og við fengum aldrei góðar fréttir á spítalanum þótt við lifðum alltaf í voninni. Okkur var alltaf sagt að þetta liti ekki vel út og hún hefði orð- ið fyrir miklum heilaskaða," segir Baldur. Það var síðan 12. maí sem slökkt var form- lega á vélum sem héldu Hrafnhildi Líf á ein- hvers konar lífi og hún var lögð í fang föður síns. „Það var búið að segja okkur að það gæti tekið um hálftfma og það gætu fýlgt einhverj-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.