Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Page 57
:
LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 TILVERA 77
Sjötíu ára
Hannes Kristján Gunnarsson
lagermaður hjá RARIK í Stykkishólmi
Hannes Kristján Gunnarsson,
lagermaður hjá RARIK í Stykkis-
hólmi, Áskinn 7, Stykkishólmi,
verður sjötugur á morgun.
Starfsferill
Hannes fæddist í Efrihlíð í Helga-
fellssveit og ólst þar upp við öll
almenn sveitastörf fram yfir
fermingu. Hann var í farskóla að
Skildi í Helgafellssveit en flutti með
fjölskyldu sinni í Stykkishólm 1948,
stundaði þar nám við Gagnfræða-
skólann í Stykkishólmi og lauk það-
an landsprófi. Hann lærði síðan
bifvélavirkjun, lauk sveinsprófi í
þeirri grein og öðlaðist síðan meist-
araréttindi 1963.
Hannes stundaði bifvélavirkjun
til 1987 jafnfram ýmsum öðrum
störfum. Hann og Karl Torfason
festu kaup á fyrstu traktorsgröfunni
sem kom til Stykkishólms 1963 og
gerðu þeir út vinnuvélar til 1972.
Hannes vann einnig við akstur og
viðgerðir hjá Bifreiðastöð Stykkis-
hólms frá 1965 og 1972 keypti
hann, Áskell, tvíburabróðir hans,
og Höskuldur Höskuldsson, flutn-
ingabíla Bifreiðastöðvar Stykkis-
hólms og starfræktu það fyrirtæki
til 1976 er þeir seldu það. Hannes
átti þó flutningabíl áfram og sinnti
fjár- og hrossaflutningum til 1987
auk þess sem hann starfaði hjá
Þórsnesi hf. við akstur og viðhald
bifreiða og tækja 1976-87.
Hannes hóf störf sem iagermað-
ur hjá RARIK í Stykkishólmi 1987 og
gegndi síðan því starfi.
Hannes æfði og keppti í íþróttum
með ungmennafélaginu Snæfelli í
Stykkishólmi. Hann sat í stjórn
Snæfells um árabil og í stjórn Hér-
aðssambands Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu.
Hannes spilaði í Lúðrasveit
Stykkishólms í þrjátíu og fimm ár
og var formaður Lúðrasveitarinnar
í fimm ár. Auk þess söng hann í
Kirkjukór Stykkishólmskirkju í
þrjátíu og átta ár.
Seinni árin hefur sauðfjárrækt og
hestamennska verið helsta tóm-
stundaiðja Hannesar.
Fjölskylda
Hannes kvæntist 8.11. 1958
Hrefnu Þorvarðardóttur, f. 18.9.
1936, húsmóður. Hún er dóttir Þor-
varðar Einarssonar, bónda í Stykk-
ishólmi, og Sigurborgar fónsdóttur,
húsfreyju og verkakonu sem bæði
eru látin.
Börn Hannesar og Hrefnu eru
Sigurborg Kristín Hannesdóttir, f.
15.12. 1959, verkefnastjóri hjá Alta;
Gunnar Hannesson, f. 28.10. 1963,
vélvirki, búsettur í Reykjavík en
sambýliskona hans er Guðrún
Hjartardóttir og eru dætur þeirra
Freyja, f. 8.4. 1991, og Arna Ösp, f.
28.5. 1995; Lárus Ástmar Hannes-
son, f. 15.7. 1966, kennari og tamn-
ingamaður, búsettur í Stykkishólmi
en eiginkona hans er María Alma
Valdimarsdóttir og eru börn þeirra
Hrefna Rós, f. 27.10. 1994, Halldóra
Kristín, f. 5.4. 1997, Anna Soffía, f.
3.6. 1999, og Valdimar Hannes, f.
20.2. 2003.
Systkini Hannesar: Jóhanna Þór-
unn Gunnarsdóttir, f. 8.3. 1924, d.
2.12. 1972, verslunarmaður og hús-
móðir en sambýlismaður hennar
var Guðmundur Gunnarsson bif-
reiðastjóri; Njáll Gunnarsson, f.
24.12.1925, d. 19.3.1989, stýrimað-
ur og skipstjóri í Stykkishólmi, var
kvæntur Ástu Ólafsdóttur en þau
skildu og var sambýliskona hans
Hrefna Stefánsdóttir; Vigdís
Gunnarsdóttir, f. 21.11.1929, bóndi
og verkakona í Stykkishólmi og í
Grundarfirði en maður hennar er
Kristján Torfason, bóndi og sjó-
maður; Ragnhildur Kristjana
Gunnarsdóttir, f. 4.4. 1932, hús-
móðir í Grundarfirði en eigimaður
hennar er Elís Gunnarsson, sjó-
maður og bóndi; Áskell
Gunnarsson, f. 12.10. 1933, d. 18.7.
1994, vélstjóri og bifreiðastjóri í
Stykkishólmi en kona hans var
Guðrún Ákadóttir verkakona.
Foreldrar Hannesar voru Gunnar
Hannesson, f. 3.7. 1899, d. 20.11.
1934, bóndi í Efrihlíð í Helgafells-
sveit, og Soffía Guðmundsdóttir, f.
13.11. 1899, d. 6.1. 1987, húsfreyja
og bóndi.
A
Ætt
Gunnar var bróðir Maríu, móður
Hannesar Jónssonar sendiherra,
föður Hjálmars sendiherra. Gunnar
var sonur Hannesar, skipstjóra f
Stykkishólmi Andréssonar, sjó-
manns í Saurlátri Andréssonar, b. í
Knarrarhöfn, bróður Steinunnar,
langömmu Gunnars, föður Árna,
fyrrv. alþm. Andrés var sonur
Hannesar, b. í Knarrarhöfn, bróður
Brynjólfs, langafa Sigurbjargar,
langömmu Svavars Gestssonar
alþm., og ömmu Friðjóns Þórðar-
sonar ráðherra. Hannes var sonur
Andrésar, b. á Á á Skarðsströnd
Hannessonar. Móðir Andrésar var
Ingibjörg Jónsdóttir, systir Þórdís-
ar, langömmu Jóns forseta.
Móðir Gunnars var Jóhanna Þór-
unn Jónasardóttir, b. á Helgafelli
Sigurðssonar, og Ástríðar Þor-
steinsdóttir.
Soffía var dóttir Guðmundar, b. í
Jónsnesi í Helgafellssveit Bjarna-
sonar, og Ólínu Árnadóttur.
Hannes og Hrefna bjóða ættingj-
um og venslafólki til fagnaðar að
Skildi í Helgafellssveit laugard.
11.10.
Sextíu ára
Höfuðstafír
Umsjón: Ragnar Ingi Aðalsteinsson
Netfang: ria@ismennt.is
Þáttur
98
í dag byrjum við á sléttubandavísu. Höfundur er samkvæmt mín-
um heimildum Jónas Þorsteinsson án þess að ég viti nánari deili á
honum. En vísan er góð og á vel við þegar haustrigningarnar eru
skollnar á og dag fer að stytta:
Fellur tíðin ekki enn
eftirlýða högum.
Gellur hriðin mögnuð, menn
mega kvíða dögum.
Næsta vísa er eftir Svein í Elivogum. Um tilefni hennar skal ekki
fjölyrt hér en í rauninni skýrir hún sig sjálf:
Langa vegi haldið hef,
hindrun siegið frá mér,
til þín dregist torveld skref
til að deyja hjá þér.
Margar góðar vísur hafa orðið til þegar hagyrðingar eru að mæra
átthaga sína og æskustöðvar. Páll á Skeggjastöðum orti:
Þegar leysist lífsins band
og Ijósið h verfur sýn um
eiga vildi égAusturland
undir svæfli mínum.
Og Helgi Valtýsson gerði vfsu sem hefur nánast sömu rímorðin:
Trauðla raknar tryggðaband
treyst íraunum mínum.
Aldrei gleymist A usturland
útlaganum sínum.
Og nú er rétt að taka upp léttara hjal. Helgi Zimsen var að velta því
fyrir sér hvernig Hallgrímur Pétursson hefði komist að orði ef hann
hefði verið að yrkja heilræðavísur sínar í dag. Helga finnst líklegast
að það hefði hljómað einhvern veginn svona:
Sýru, hass og heróín,
háskasveppi, kókaín,
sprittið, tóbak, spítt og vín
spara skaltu vina mín.
Ég rakst nýlega á vísu sem ég veit ekki hver orti né um hvern, en
eftir því sem ég best veit þá er hún ekki um mig þó að einhvern tfma
hefði það sjálfsagt átt ágætlega við:
Ragnar þreyttur rekur hjörð
um reginfjöll og dali.
Aldrei fannst á okkar jörð
óprúttnari smali.
Við endum í dag á vísu eftir Hákon Aðalsteinsson. Þetta kallar
hann Haust við Kárahnúka:
Sölnar lauf á breiðum bala
blöðin fella víðirunnar
þar sem leika lausum hala
lýs í hári Fjallkonunnar.
Áttatfu ára
Friðgerður Pétursdóttir
Jón Gunnar Jónsson
fyrrv. bóndi á Skarði í Dalasýslu
útgerðarfrú í Ólafsvík
Friðgerður Pétursdóttir útgerð-
arfrú, Brautarholti 26, Ólafsvík, er
sextug í dag.
Starfsferill
Friðgerður fæddist í Tröð í Bol-
ungarvfk en ólst upp í Meiri-Hlíð í
Bolungarvík. Hún stundaði nám
við Héraðsskólann í Reykjanesi við
ísafjarðardjúp og við Húsmæðra-
skólann að Laugalandi i Eyjafirði.
Friðgerður hefur starfað mest við
eigin rekstur, einkum við útgerð
auk þess sem hún hefur starftækt
blómabúð í Ólafsvík í sjö ár.
Friðgerður og fjölskylda hennar
voru-búsett í Bolungarvík til 1995,
Þá fluttu þau til Ólafsvíkur og hafa
búið þar síðan.
Fjölskylda
Friðgerður giftist 25.12. 1966
Magnúsi Snorrasyni, f. 29.7. 1946,
sjómanni. Hann er sonur Hildi-
mars Snorra Backman, sjómanns í
Bolungarvík, og Þorbjargar Jónínu
Magnúsdóttur verkakonu þar en
þau eru bæði látin.
Börn Friðgerðar og Magnúsar
eru Pétur Hlíðar Magnússon, f. 3.2.
1965, hleðslustjóri í Danmörku en
kona hans er Bellis Vagelius og eiga
þau fimm börn; Þorbjörg Jónína
Magnúsdóttir, f. 30.10. 1966, skóla-
liði í Þorlákshöfn en maður hennar
er Vaidimar Bjarnason og eiga þau
þrjú börn; Jón Ólafur Magnússon,
f. 19.10. 1967, forstjóri í Kópavogi
en kona hans er Jóhanna Eyjólfs-
dóttir og eiga þau tvö börn; Árnþór
Magnússon, f. 11.7. 1970, skipstjóri
í Ólafsvík; Fjóla Rós Magnúsdóttir,
f. 28.10. 1981, nuddnemi í Ólafsvík
en maður hennar er Ævar Rafn
Þrastarson.
Systkini Friðgerðar: Hálfdán
Ólafur Pétursson, f. 23.3. 1947,
verkamaður í Hafnarfirði; Jón
Guðni Pétursson, f. 23.3. 1947,
skipstjóri í Bolungarvík; Jónas Sig-
urður Pétursson, f. 26.11. 1948,
skipstjóri á Grænlandi; Elísabet
María Pétursdóttir, f. 30.12. 1949,
leikskólaleiðbeinandi f Bolungar-
vík; Fjóla Pétursdóttir, f. 23.12.
1957, skrifstofustjóri í Noregi.
Foreldrar Friðgerðar: Friðrik Pét-
ur Jónsson, f. 21.3. 1921, d. 12.8.
1995, bóndi og síðar útgerðarmað-
ur í Bolungarvík, og Fjóla Ólafs-
dóttir, f. 10.6. 1922, bóndakona og
fiskverkunarkona í Bolungarvík, nú
í Þorlákshöfn.
Friðgerður og Magnús taka á
móti gestum í Félagsheimilinu
Klifi, Ólafsvík, laugard. 11.10. kl.
19.00.
Jón Gunnar Jónsson, fyrrv. bóndi
á Skarði í Dalabyggð, er áttræður í
dag.
Starfsferill
Jón Gunnar fæddist í Stykkis-
hómi og ólst þar upp. Á unglingsár-
unum var hann við póstafgreiðslu
og sendisveinn hjá Tómasi Möller í
Stykkishólmi og var í fiskvinnslu
hjá Sigurði Ágústssyni í Stykkis-
hólmi. Hann vann við byggingar-
vinnu hjá Slippnum í Stykkishólmi,
var í vegavinnu hjá breska setulið-
inu í Hvalfirði og var síðan aftur í
fiskvinnslu hjá Sigurði Ágústssyni f
Hólminum.
Jón hóf búskap á Skarði 1941 og
var bóndi þar til 1992.
Fjöiskylda
Eiginkona Jóns var Ingibjörg
Kristrún Kristinsdóttir, f. 7.12.
1924, húsfreyja á Skarði, nú látin.
Hún er dóttir Kristins Indriðason-
ar, hreppstjóra og bónda á Skarði,
og Elínborgar Bogadóttur Magnu-
sen húsfreyju.
Sonur Jóns Gunnars og Ingi-
bjargar Kristrúnar er Kristinn B.l.
Jónsson, f. 28.11. 1944, hlunninda-
bóndi og lögregluþjónn á Skarði en
kona hans er Þórunn Ásta Hilmars-
dóttir, f. 19.5. 1944, hlunninda-
bóndi sem auk þess starfrækir dún-
hreinsistöð og eru börn þeifr^
Hilmar Jón Kristinsson, f. 12.4.
1965, rekur dúnhreinsistöð, Bogi
Kristinsson Magnusen, f. 8.8. 1970,
byggingafræðingur, og Ingibjörg
Dögg Kristinsdóttir, f. 24.7. 1981,
tannsmíðanemi.
Systkini Jóns Gunnars: Pétur
Jónsson, nú látinn; Guðríður Jóns-
dóttir, nú látin; Anna Pálína Jóns-r
dóttir; Gísli Berg Jónsson; Sigríður
Hjaltalín Jónsdóttir; Sveiney Jóns-
dóttir; Pálmi Jónsson; Sigurborg
María Jónsdóttir.
Foreldrar Jóns Gunnars voru Jón
Rósman Jónsson, sjómaður í Ási í
Stykkishólmi, og Magðalena Svan-
hvít Pálsdóttir húsmóðir.