Dagblaðið - 30.04.1976, Page 1
2. ARG. — FÖSTUDAGÚR 30. APRÍL 1976 — 94. TBL. RITSTJÖRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2, SlMI 2702
„ER EKKIFARINN UR
MNGFIOKKNUM ENN"
— segir Albert Guðmundsson, sem gekk af fundi í þingf lokki
sjálfstœðismanna — Sjá baksíðu
Veiði- og fiskirœktarráð Reykjavíkur:
GEGN SMÁBÁTAHÖFN
VIÐ GRAFARVOGINN
„Viö teljum að verði
smábátahöfn gerð við Grafar-
vog, eins og fyrirhugað er,
kunni laxinum í Elliðaánum að
stafa hætta af því í framtíð-
inni,’’sagði Jakob V. Hafstein
vatnalíffræðingur í viðtali við
DB, en hann á sæti í veiði- og
fiskiræktarráði.
Hönnun hafnarinnar er nú
að mestu lokið og var
hugmyndin send ráðinu til
umsagnar. Að sögn Jakobs
leggst ráðið gegn hugmyndinni
og mælir með að höfninni verði
fundinn annar staður í landi
borgarinnar.
Jakob sagði a'ð saumað væri að
Elliðaánum úr öllum áttum
smátt og smátt og væri þessi
höfn ef til vill ekki versti
óvinurinn þar sem í hugmynd-
unum væri gert ráð fyrir
ströngum reglum um siglingar
báta inn og út voginn. Hins
vegar væri gert ráð fyrir við-
gerðaraðstöðu og þar sem bát-
arnir væru einnig vélknúnir,
væri alltaf hætta á olíumengun,
sem kynni að hafa áhrif á lax-
inn. Eftir því sem blaðið kemst
næst, hefur borgarráð ekki
fjallað um málið eftir að þessi
umsögn barst.
—G.S
Dauðaslys íGrindavík:
Maður fyrir vörubif reið
— sjónarvottar engir að slysinu
Dauoaslys varo 1 tlrindavik í
gærmorgun um hálftíuleytið.
54 ára gamall Hafnfirðingur,
Ingibergur Guðmundsson. varð
fyrir vörubifreið og beið bana
svo til samstundis.
Ingibergur var að vinna við
hitaveituframkvæmdir við
Staðarhraun i Gnndavik er
slysið átti sér >lað. Vörubif-
reiðin var að losa sand i götuna
og varð Ingibergur f.vrir
hrúgunni og afturhjölum bif-
reiðarinnar. Engin vitni voru
að slysimi. nema hvað bil-
sljórinn sá logiberg strax er
hann ateig .11 úr bílnum til að
kanna hvernig losunin hefði
gengið.
lngibergur Guðmundsson
var f:eddiir árið 1922. Hann
hetur eftir sig konu og nokkur
börn.
-ÁT-
Launþegar halda 1. maí hátíðlegan að vanda. Pa varpa menn frá sér
dagsins önn og fara í betri fötin, fara i kröfugöngu og gera sér
giaðan dag eftir föngum. Mvndin er tekin niðri við höfn þar sem
hafnarverkamenn voru að krækja á síldartunnur — og síðan er híft
og slakað eins og gengur.
EKKIFULL
EINING
UM 1. MAÍ
„Til þess að samstarf geti
tekizt um 1. maihátiðahöldin.
þýðir ekki að ke.vra allt niður i
krafti atkvæðamagns,” sagði
Bjarni Felixson í viðtali við
Dagblaðið. Hann er fulltrúi VR
í 1. mai-nefndinni. sem er kjör-
in af Fulltrúaráði verkalýðs-
félaganna í Revkjavík. „Hér er
um að ræða öll atriði hátíða-
haldanna. enda verða þau ekki
slitin út tengslum hvert við
annað." sagði Bjarni Hann kvað
Alþýðuflokksmennina í nefnd-
inni hafa verið tvístígandi.
ýmist setið hjá eða greitt at-
kvæði með Alþýðubandalags-
mönnum.
Aðalmálin sem fjallað er um
at 1. maí-nefndinni, hafa long-
um verið þessi: Útifundurinn
þar með talinn aðalræðumaður
eða ræðumenn. val fundar-
stjóra og dagskrá og loks Á-
varpið. Aðalræðumaðurinn á
útifundinum er Björn Jónsson.
forseti ASÍ. en fundarstjóri
verður Eðvarð Sigurðsson.
form Dagsbrúnar. Auk Björns
flytja ávörp fulltrúar BSRB pg
Iðnnemasambandsins. Bjarni
sagði að þar sem fulltrúar
Alþýðubandalagsins hefðu
troðið allar tillögur sínar.
meðal annars um ræðumann
með Birni Jónssyni. hefði hann
ekki getað skrifað undir Ávarp
I.mai hátíðahaldanna.
BS
Ekkert blað á
morgun 1. maí
Dagblaðið kemur ekki út á
morgun, 1. maí, og því er fasta-
efni laugardagsblaðsins í
blaðinu í dag. Er blaðið því
stærra en venjulega eða 28
síður.
Bridge er á bls. 12, Háaloft,
og Krummaber á bls. 13,
Krossgátan og Orðarugl á bls.
16, Skák- og vísnaþáttur á bls.
17 og útvarps- og sjónvarpsum-
sagnir eru á bls. 24, 25, 26 og
27.
Glœpofaraldur
genguryfir fsland.
Hver eru áhrif
sjónvarpsins?
Umþað fjallar Páll
Bergþórsson
veðurf rœðingur í
kjallaragrein bls. 10-11
„Telþað
fóðureitrun
sem þeir
kalla
vanfóðrun"
Sjá baksíðu
MMBLABIÐ
Dagblaðið hefur tekið upp
nýja þjónustu við auglýsendur
blaðsins. Er hún fólgin í því að
í Þverholti 2 ern veittar leið-
beiningar um almenn bílavið-
skipti. Prentaðar leiðbeiningar
liggja frammi um allan frá-
gang skjala varðandi kaup og
sölu. Þar fá menn eyðublöð
fyrir afsal og sölutilkynningu.
Bílaviðskipti