Dagblaðið - 30.04.1976, Blaðsíða 4
4
I)A'(ilil,At)lt). KÖSTUDACUK 30. APKIL 1976.
Mjallhvít, Þyrnirós
og Öskubuska
í Þjóðleikhúsinu
Á annað hundrað nemar Listdansskólans koma fram á
nemendasýningu
Mjallhvít, Rauóhettu, Þ.vrnirós
og Öskubusku, Nemendur
skólans sem fram koma eru á
annað hundrað I hlutverkum
álfa, prinsa, dverga, kónga og
dýra. Titilhlutverkin í
ævintýradönsunum eru dönsuð
af: Sigrúnu Waage, Helenu
Jóhannsdóttur, Ingu Sigur-
jónsdóttur og Yrsu Bergmann.
Á síðari hluta danssýningar-
innar dansar íslenzki dans-
flokkurinn ungverska dansa
við tónlist eftir Brahms. Dans-
arnir eru samdir af Ingibjörgu
Björnsdóttur og Nönnu Ölafs-
dóttur. Alls eru átta stúlkur í
dansflokknum og þær eru:
Ásdís Magnúsdóttir, Auður
Bjarnadóttir, Guðmunda H.
Jóhannesdóttir, Helga Bern-
hard, Guðrún Pálsdóttir, Ingi-
björg Pálsdóttir, Nanna Ölafs-
dóttir og Ölafía Bjarnleifs-
dóttir.
Alls verða tvær sýningar, sú
síðari á þriðjudagskvöld kl. 20.
Mjajlhvit, Sigrún Waage, og dvergarnir sjö. —A.Bj.
Árleg nemendasýning List-
dansskölans verður á stóra
sviði Þjóðleikhússins á morgun
kl. 15.00. Auk nemenda skól-
ans tekur Islenzki dansflokkur-
inn þátt i sýningunni.
Dansaðir verða dansar úr
gamalkunnum ævintýrum
Öskubuska, Yrsa Bergmann.
Þyrnirós, Inga Sigurjónsdóttir. DB-myndir Ragnar Th. Sig.
Yfirlýsing Náttúruverndarróðs og FÍ:
„Tók að sér stðrf ffyrir
veiðiréttareigendur
— án þess að hafa samráð við yf irboðara sína"
I’rá samstarfsnefnd Náttúru-
verndarráðs og Ferðafélags
íslands vegna skrifa um gavslu-
störf á þeirra vegum hefur
hlaðinu borist eftirfarandi.
Arið 1973 hófu Náttúru-
verndarráð og Ferðafclag
íslands samstarf um gæslu
fjölsóttra staða i óbyggðum
landsins, þar sent Ferðafélagið
hefur sæluhús. Var húsvörðum
jafnframt falin umhirða lands
og náttúruminja í nágrenninu.
Náttúruverndarráð leggur
fram ákveðinn hluta launa-
kostnaðar en tekjur af gistingu
i skálunum og nágrenni þeirra
standa undir eftirstöðvum.
Fólki var fjÖlgað til að mæta
auknum verkefnum. og grund-
völlur skapaðist fyrir
vörslu á svæðunt. þar sem
engin var fytir. Kflir þriggja
ára reynslutima var ákveðið
sl. haust að halda s'ámstarfinu
áfram og undirrituðum falið að
annast það af hálfu umbjöð-
enda sinna.
Vegna skrifa í tveimur dag-
bliiðum untlanfarið un< g:eslu
stiirf i Landmannalauemn. þar
sem harðlega er \’eisl að s;nn
starfsnefnd Nátt úrttverndar-
ráðs og Ferðafélagsins fyrir að
þiggja ekki framar þjónustu
manns þess. er þar starfaði í
fyrra. og aðilar harðlega átaldir
fyrir, er nauðsynlegt að eftir-
farandi komi fram:
1. Gæslumenn á vegum
Ferðafélags Islands og
Náttúruverndarráðs eru
ráðnir til starfa í eitt sumar i
senn, án nokkurra fyrirheita
um endurráðningu.
2. Gæslumaður Landmanna-
lauga sl. sumar var ekki
endutTáðinn vegna ýmissa
atriða, sem ábótavant þótti
um starf hans. Þar á meðal
hefur h'ahti ekki samið yfirlit
um störf sín eða gert ábend-
ingar um þau vandamál,
sem fylgja gestakomum. og
tillögur til úrböta. Skýrslur
gæslufólksins eru mikilvæg
undirstöðugögn fyrir undir-
búning aðgerða • til náttúru-
verndar og stuðnmgs við úti-
vist á viðkomandi svæðum.
3. Þá hefur maðurinn gerst
sekur um óafsakanlega fram-
komu við trúnaðarmann
Ferðafélags íslands, og er
það eitt sér fullkomin ástæða
til að leggja umsókn hans til
hliðar.
4 Virðingarverð er viðleitni
gæslumannsins til að kæra
lögbrot og gæta hagsmuna
veiðiréttareigenda. Allar full-
yrðingar um að uppljóstrun
veiðiþjófnaðar sé ástæðan til
að starfið var veitt öðrum er
skáldskapur einn og alrangt
það sem hann leggur fram-
kvæmdastjóra Náttúru-
verndarráðs í munn urn það
atriði.
5. Gæsluniaðurinn tók að
sér störf fyrir veiðiréttar-
eigendur án þess að hafa sam-
ráð um það við yfirboðara
sína. Kkki var honum meinað
að selja veiðileyfi jafnhliða
öðrum störfum. Hinsvegar var
honum tjáð að tæplega væri
slíkt kurteisi við vinnuveit-
anda.
6. Hvorugt dagblaðanna hafði
samband við Kerðafélagið eða
Náttúruverndarráð um þetta
mál fvrir birtingu greinanna,
né hafa þau gert það þegar
þetta er skrifað.
Kevkjavík. 2S. april, 1976.
í samstarfsncfnd uni fjölsótta
ferðamannastaði,
Jón ísdal,
Arni Reynisson
Stuðlar að gönguferðum
í óspilltu umhverfi
A sl. ári var félagið Útivist
stofnað og var markmið félagsins
að stuðla að útivist fólks í hollri
og óspilltri náttúrunni. Félagið
hefur gengizt fvrir stuttum
helgarfet'ðum og skipulagt ýmsar
gönguleiðir út frá höfuðborginni.
Einnig hefur félagið gengizt fyrir
lengri ferðum.
Nú hefur Útivist gefið út sitt
fyrsta ársrit, sem er mjög vandað
að allri gerð, skreytt með mörgum
og fallegum myndum. Umsjón
með útgáfunni hafði Einar Þ.
Guðjohnsen framkvæmdastjóri
félagsins og Jón I. Bjarnason.
í ritinu er m.a. ferðasaga eftir
Hallgrím Jónasson um vetrarferð
i Þórsmörk. Jón 1. Bjarnason
skrifar grein um dvöl á Vatna-
jökli. Gisli Sigurðsson skrifar um
skemmtilegar gönguleiðir út frá
Hafnarfirði og þá sérstaklega um
Selvogsgötu. Jón I. Bjarnason
skrifar grein er hann nefnir Fyrir
neðan heiði og lýsir hann þar
leiðinni frá Reykjavik um
Lækjarbotna að Hellisheiði og
nokkrum leiðum og gönguslóðum
út frá Suðurlandsveginum og
nágrenni hans.
Þá eru greinar um félagsmál.
sagt frá aðdraganda að stofnun
félagsins. Forsiðumynd er úr
fyrstu Utivistarferðinni en það
var gönguferð á Keili farin 6.
apríl 1975. tekin af Einari Þ.
Guðjohnsen.
Formaður Utivistar er Þór
Jóhannsson.
—A.Bj.
\MÉBIABIB lýsingablaðið
Það gerist alltaf eitthvað
Elfa Björk borgarbókavörður — IVleð bókabíl í Breiðholtið — Börn ó bókasafni —
aprilgetraun — Stórkostlegt púðateppi — Ullarvörur fró Alafossi — Indianapolis