Dagblaðið - 30.04.1976, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. APRIL 1976.
Verzlunarfólk Suðurnesjum
Félagsmenn athugið, að orlofshús
félagsins í Ölfusborgum verður leigt
frá og með 1. maí nk.
Ennfremur er félagsmönnum bent á
að kynna sér utanlandsferðir á vegum
Alþýóuorlofs. Uppl. veittar á skrif-
stofu félagsins, Hafnargötu 16, Kefla-
vík, daglega kl. 16—18.
VERZLUNARMANNAFÉLAG
SUÐURNESJA.
Óskum að róða mann
vanan múrbroti
Véltœkni hf., sími 84911
TAKIÐ EFTIR
21 árs stúlku utan af landi vantar vinnu. í
Reykjavík.
Vön afgreiðslu og bakarísstörfum. Margt
kemur til greina. Uppl. í síma 83919 eftir
kl. 7.
Auglýsing
um skoðun bifreiða í lögsagnarumdœmi
Keflavíkur,Njarðvíkur, Grindavíkur og
Gullbringusýslu
fimmtudaginn 6. maí 0-1051 — -0-1125.
föstudaginn 7. maí 0-1126— •Ö-1200.
mánudaginn 10. maí 0-1201 — -Ö-1275.
þriðjudaginn 11. maí Ö-1276— -Ö-1350.
miðvikudaginn 12. maí 0-1351 — -Ö-1425.
fimmtudaginn 13. maí tí-1426— -Ö-1500.
föstudaginn 14. maí 0-1501 — -Ö-1575.
mánudaginn 17. maí Ö-1576— -Ö-1650.
þriðjudaginn 18. maí 0-1651 — -Ö-1725.
miðvikudaginn 19. mal Ö-1726— -Ö-1800.
fimmtudaginn 20. maí 0-1801 — -0-1875.
föstudaginn 21. maí 0-1876— -0-1950.
mánudaginn 24. maí 0-1951 — -Ö-2025.
þriðjudaginn 25. maí Ö-2026— -Ö-2100.
miðvikudaginn 26. maí 0-2101 — -Ö-2175.
föstudaginn 28. maí Ö-2176— -Ö-2250.
mánudaginn 31, maí Ö-2251 — -Ö-2325.
þriójudaginn 1. júní Ö-2326— -Ö-2400.
miðvikudaginn 2. júní Ö-2401 — -Ö-2475.
fimmtudaginn 3. júní Ö-2476— -Ö-2550.
föstudaginn 4. júní .0-2551- -Ö-2625.
þriðjudaginn 8. júní Ö-2626— -Ö-2700.
miðvikudaginn 9. júní Ö-2701 — -Ö 2775.
fimmtudaginn 10, júní Ö-2776— -Ö-2850.
föstudaginn 11 júní Ö-2851 — -Ö-2925.
mánudaginn 14 . júní Ö-2926— -Ö-3000.
þriðjudaginn 15 júní 0-3001 — -Ö-3075.
miðvikudaginn 16.júni Ö-3076— -Ö-3150.
föstudaginn 18 . júní 0-3151 — -Ö-3225.
mánudaginn 21 . júní Ö-3226- -Ö-3300.
þriðjudaginn 22 . júní Ö-3301- -Ö-3375.
miðvikudaginn 23 . júní Ö-3376- -Ö-3450.
fimmtudaginn 24 júní Ö-3451- -Ö-3525.
föstudaginn 25 . júní Ö-3526- -Ö-3600.
Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar sínár að
Iðavöllum 4 í Keflavík og verður skoðun framkvæmd þar
á fyrrgreindum dögum milli kl. ! 9—12 og 13.00— •16.30. Á
saraa stað og tíma fer fram aðalskoðun annarra
skráningarskyldra ökutækja s.s. bifhjóla og á eftirfar-
andi einnig við um umráðamenn þeirra.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram
fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir því að
bifreiðagjöld fyrir árið 1976 sé greidd og lögboðin vát-
rrygging fyrir hverja bifeið sé í gildi. Hafi gjöld þessi
ekki verið greidd verður skoðun ekki framkvæmd og
bifreiðin stöðvuð þar til gjöldin eru greidd.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á
réttum degi, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt
umferðarlögum og lögum um bifreiðaskatt og bifreiðin
tekin úr umfcrð, hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynn-
ist hér með öllum sem hlut eiga að málil.
Vakin er sérstök athygli á því, að auglýsing þessi
varðar alla eigendur Ö-bifreiða, hvar sem þeir búa í
umdæminu.
Bœjorfógetinn í Keflavík, Njarðvík og
Grindavík.
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu
Pefcing:
Dularfull sprenging í
sovézka sendiráðinu
— sízt til að bœta sambúð Sovétríkjanna og Kína
Kínverskir sérfræðingar
hófu í morgun rannsókn á
dularfullri sprengingu, sem
tætti í sundur hluta af hliðinu
að sovézka sendiráðinu í
Peking í gær.
Talsmaður kínverska utan-
rikisráðuneytisins sagði í
morgun að verið væri að kanna
orsakir sprengingarinnar.
Hann vildi ekki staðfesta
sovézkar fréttir um að tveir
Kínverjar hefðu látið lífið í
sprengingunni.
Borgaralega klæddir sér-
fræðingar og lögreglumenn
grófu i morgun í rústum múrs-
ins umhvefis sendiráðið.
Sovézkur starfsmaður sendi-
ráðsins sagði fréttamanni
Reuters að enginn i sendiráð-
inu hefði orðið vitni að spreng-
ingunni.
,,Við vitum ekki hvernig
þetta vildi tii... þegar Kínverj-
arnir hafa lokið rannsókninni
munum við án efa fá skýrslu
Ítalía:
Moro segir af sér f stað
þess að falla á þinginu
Aldo Moro, forsætisráðherra
ellefu vikna gamallar minnihluta-
stiórnar á Ítalíu, mun segia af sér
í aag nemaeitthvaðsérstakt gerist
á síðustu stundu, er orðið getur til
að bjarga stjórninni og koma í veg
fyrir kosningar, sem gætu komið
kommúnistum í stjórn.
Sósíalistar höfnuðu í gær
beiðni Moros um málamiðlunar-
Aldo Moro ræðir við formann flokks Kristilegra
demókrata. Zaccagnini. Allar bjargir virðast
þeim bannaðar og aðeins kraftaverk getur
komið i veg fyrir að ellefu vikna gömul stjóm
þeirra falli í dag. Þá verða boðaðar kosningar i
júni — og kommunistar komast að öllum
likindum í ríkisstjórn á Ítalíu, hvað svo sem
Kissinger segir.
samkomulag við flokk hans,
Kristilega demókrata, um frestun
kosninganna.
Sósíalistar lýstu því jafnframt
yfir, að þeir muni snúast gegn
stjórninni ef atkvæðagreiðsla fer
fram um vantrauststillögu á
Moro, sem lögð verður fram í
þinginu í dag.
Minni flokkarnir svo sem jafn
aðarmenn og lýðveldissinnar,
hafa tilkynnt að þeir muni ekki
greiða atkvæði um vantrauststil-
löguna. Þetta jafngildir því, að
stjórnin sé fallin.
Ekki er þó talið líklegtað Moro
láti fella sig á þingi, heldur muni
hann einfaldlega tilkynna um af-
sögn sína. Giovanni Leone, for-
seti, á þá engra kosta völ nema að
efna til nýrra kosninga í júní.
LAUS STAÐA
Staða lœknis við heilsugœslustöð á
Þórshöfn er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. júlí 1976.
Umsóknir sendist heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu fyrir 1. júní 1976.
HEILBRIGÐIS- 0G
TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
28. apríl 1976.
þeirra um atburðinn,” sagði
hann. Sendiráðsstarfsmaðurinn
staðfesti frétt sovézku Tass-
fréttastofunnar um að tveir
Kínverjar hefðu látið lífið í
sprengingunni.
Gluggarúður og tréhurð á
múrnum umhverfis bygging-
una tættust í burtu í sprenging-
unni, sem varð nærri aðalhlið-
inu.
Samkvæmt Tass-fréttum frá
Moskvu hefur sovézka stjórnin
mótmælt atburðinum við kín-
Umhleypingasamt er í kín-
verskum stjórnmálum þessa
dagana. Herferðinni gegn Teng
Hsiao-ping er haldið áfram,
eins og þessi m.vnd af vegg-
spjaldi í Canton sýnir, og svo
bætist við versnandi sambúð
við Sovétríkin eftir sprengingu
við sovézka sendiráðið í Peking
) gær.
versk yfirvöld. Talið er víst, að
sprengingin verði ekki til að
bæta sambúð Kína og Sovét-
ríkjanna — og þótti þó ýmsum
hún nægilega slæm fyrir.
VERKAMENN
1. maí er frídagur verkamanna
í víngarði drottins eraldrei frí
En viö höldum upp á daginn með hátíðarsamkomu að
Hátúni 2 (Fíladelfíu) kl. 8.30.
SaiiiKuman er sérlega tileinkuð samhjálp hvítasunnumanna.
Umræöuefni er frelsi hins kristna í veraldlegum og and-
lcgum skilningi. Fjölbreytl og líí'leg ræðuhöld. mjög
vandaður og fjölbre-yttur söngur karlakórs og lúðrasveitar
ásamt einsöng Svavars Guðmundssonar.
Söngstjóri er Árni Arinbjarnar.
ýerkamenn, verkakonur svo og allir aðrir hjartanlega
velkomnir. Samhjálp hvítasunnumanna.