Dagblaðið - 30.04.1976, Qupperneq 28
„ER EKKIFARINN ÚR
HNGFLOKKNUM ENN"
— segir Albert Guðmundsson, sem gekk af þingf lokksf undi Sjálf stœðisf lokksins
Albert Guðmundsson, þing-
maður Reykvíkinga, yfirgaf
þingflokksfund ojálfstæðis-
manna sl. miðvikudag með
þeim ummælum að hann gæti
ekki sagt fyrir um það hvenær
hann sæti slíkan fund aftur.
Dagblaðið spurði Albert
Guðmundsson' þess, hvort þetta
þýddi, að hann hefði sagt sig úr
þingflokknum.
„Til þess hefur ekki komið
enn,” sagði Albert, en vildi
ekki að öðru leyti tjá sig um
fundinn.
t snörpum umræðum utan
dagskrár i efri deild Alþingis í
fyrradag um samningana við
Vestur-Þjöðverja sagði Albert
Guðmundsson, að hann teldi
ófyrirgefanlegt af ríkis-
stjórninni að nota ekkert af
þeim vopnum, sem hún hefði i
höndum. Hann kvaðst á sínum
tíma hafa lagi áherzlu á, að
bókun 6 kæmi lil framkvæmda
um leið og samningarnir voru
undirritaðir.
„Það var ekki grundvöllur
f.vrir þvi á þeim tíma. Eg tjáði
þessum samningum mitt lið,
þrátt fyrir það, vegna þess að
það hvarflaði ekki að mér eitt
augnablik. að kæmi þessi
bókun 6 ekki til framkvæmda
innan þessara 5 mánaða, sém
samningstímabilið náði yfir, þá
yrðu þessir samningar áfram í
gildi.”
Albert lýsti vonbrigðum
með, að forsætisráðherra, Geir
Hallgrímsson, skyldi mæla
fyrir því, að við ættum nú að
bíða eftir skýrslu vestur-þýzku
stjórnarinnar um, hvað henni
hefði orðið ágengt i viðleitni
sinni til að fá bókun 6 tekna til
framkvæmda. Minnti Albert á
bréf, sem utanríkisráðherra
hafði skrifað varautanríkis-
ráðherra V-Þýzkalands, þar
sem segir m.a.:
„Rikisstjórn íslands væntir
þess að fá upplýsingar jafn-
óðum um viðleitni ríkisstjórnar
Sambandslýðveldisins Þýzka-
lands í þessu efni.”
,,Ef íslenzka ríkisstjórnin
hefur ekki lengið að fvlgjast
með málum og málaleitan
þýzku rikisstjórnarinnar
jafnóðum, eins og fram kemur í
þessu bréfi, þá hefur eitthvað
farið úrskeiðis og vantar
eitthvað í myndina.
Hér stendur í þessu bréfi, að
ríkisstj. Isl. vænti þess að fá
upplýsingar jafnóðum. Og á
lokastundu bíðum við eftir því
að fá að vita, hvað hefur skeð.
Þetta eru vinnubrögð, serh ég
get hreinlega ekki sætt mig
við,” sagði Albert Guðmunds-
son.
A þingflokksfundi.sem
haldinn var að loknum þessum
umræðum, veittist Guðmundur
H. Garðarsson. alþm.
harkalega að Albert fyrir af-
stöðu hans. Guðmundur kvaðst
ekkert skulda Albert og væri
því ekki hræddur við hann.
Mun Albert hafa talið að slík
ummæli væru utan við efnisat-
riði málsins, sem um var rætt,
enda ekki auðskilin án frekari
skýringa. Kvaðst Albert ekki
sitja undir slíkum ræðum og
gekk af fundi þingfl.. en
fundurinn hélt áfram af engu
minni hörku en áður.
-BS-
Engin nagkidekk eftir 1. maí:
Munum fylgja því strangt ef tir nú
— segir Óskor Ólason yfirlögregluþjónn
„Við verðum mun harðari nú
en áður í að framfylgja því að
menn skipti yfir á sumarhjól-
barða fyrir 1. maí og eftir þann
dag verður strangt eftirlit haft
með því,” sagði Óskar Ólason
yfirlögregluþjónn í morgun.
Hann sagði að lögreglan hefði
yfirleitt verið liðleg við menn,
sem teknir voru á nagladekkj-
um eftir 1. maí og gefið þeim
kost á að mæta daginn eftir á
sumardekkjum, en misnotkun
manna hafi leitt til þess að það
sé ekki lengur hægt. Nú verða
bílar stöðvaðir og færðir í port
lögreglustöðvarinnar, en eig-
endum gefinn kostur á að
sækja sumardekkin og skipta
um á staðnum. Þetta verður
fyrst um sinn en síðan verður’
sektum beitt.
Það var greinilegt á hjól-
barðaverkstæðunum í morgun
að menn. eru almennt lög-
hlýðnir, því þar voru biðraðir
bíla og mikill handagangur í
öskjunni við dekkjaskiptingar.
—G.S.
Mynd: Bjarnleifur
„Ég er nú sóttur
við Guð og meim"
— segir Björn á Löngumýri, sem mun
tvíbaða f é sitt
„Ég er nú sáttur við Guð og
menn og fer norður í dag,”
sagði Björn Pálsson bóndi á
Ytri-Löngumýri í viðtali við DB
í morgun, en hann var þá
staddur á Hótel Borg.
Björn vildi ekki fjölyrða um
málið, en sagði að ákvörðun
Halldórs E. Sigurðssonar frá í
gærmorgun væri að lögum og
myndi hann fara eftir þeim,
„maður brýtur ekki lög”, sagði
hann.
Björn sagði að ekki væri
kláðavottur í fé sínu og dró í
efa að kláðamaur hafi fundizt á
kind frá honum í sláturhúsinu
á Blönduósi sl. haust, en þrátt
fyrir það myndi hann halda tví-
böðun áfram, sem hann sagðist
þrátt fyrir allt vera kominn
langt með.
Björn ræddi við land-
búnaðarráðherra i gær, vegna
ákvörðunar síðarnefnda, en
ekki vildí Björn tíunda nánar
hvað hafi falizt í henni, málinu
væri lokið. —G.S
Irfálst, úháð dagblað
EÓSTUDAGUR 30. APRÍL 1976.
USA: Fiskblokk hœkkar
Karfinn
kominn í
sama verð og
þorskurinn
Fiskblokk á Bandaríkja-
markaði hefur nú hækkað
um 7 til 8% og þannig hefur
þorsk- og ýsublokkin
hækkað um 5 cent og eru nú
í 75 centum blokkin, en
blokkin er enskt pund. Þá
hefur það gerzt að karfa-
blokkin er komin upp í sama
verð, en það hefur ekki gerzt
óralengi, ef þá nokkurn-
tímann. Ekki er á þessu stigi
unnt að segja til um hvort
hér er um tímabundna
sveiflu að ræða eða mark-
vissan stíganda eins og í
hinum flokkunum.
Þá er steinbítsblokkin
einnig komin í 75 cent og
ufsablokkin hækkaði úr 46
centum í 52 cent. Skv. upp-
lýsingum Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna urðu
þessar hækkanir fyrir tveim
dögum. Þess má geta að
lokum að blokkarsala okkar
til Bandaríkjanna mun
nema 20 til 25% heildar
fisksölu okkar þangað.
—G.S.
Everton í brotojárn
— dólgshœttinum á
íslandsmiðum lokið
Brezki togarinn Everton
mun ekki framar angra ís-
lenzku landhelgizgæzluna
því fyrr í mánuðinum yar
hann seldur í brotajárn og
er nú byrjað að rífa hann.
Everton var 18 ára gamall
gufutogari. eða yngri en
margir dísiltogarar, og 884
tonn að stærð. Everton var
gerður út í Grimsby og hefur
mikið komið við sögu á ís-
landsmiðum vegna land-
helgisbrota. —G.S.
Lilja setti
íslandsmet í
Svíþjóð
Lilja Guðmundsdóttir,
hlaupakonan góðkunna í ÍR, hljóp
1500 rnetra á 4:32.0 mín. á móti í
Svíþjóð nú fyrr í vikunni. Það er
tveintur sekúndum botra en
íslandsmet hennar á
vegalengdinni — og hún nálgast
nú mjög ólympíulágmarkið á
vegalengdinni.
EG TEL bAn FnnilRFITP IIN sFIUI — sagði bóndinn
f w í Fíf Iholti í viðtali
ÞEIR VI SU KALLA VANFI >ÐRUN við Dagblaðið
„Það sem dýralæknir og
ráðunautur nú kalla vanfóðrun,
tel ég vera fóðureitrun eða ein-
hverja aðra pest. Eg tel veikina
stafa af lélegum heyjum, m.a.
heyjum sem ég keypti frá
Tannastöðum,” sagði Baldur
Stefánsson bóndi í Fíflholti i
Borgarfirði í viðtali við blaðið.
Fé hans var að úrskurði full-
trúa sýslumanns flutt frá
heimahögum sínum á laugar-
dag fyrir páska og ástæðan
sögð: „vanfóðrun”.
„Eitt vil ég leiðrétta i frétt
Dagblaösins i gær,” sagði
Baldur. „Upp á bilana voru
taldar 194 ær en ekki 150 eins
og þið sögðuð, og skilja mátti að
margar hefðu horfiö á einhvern
hátt.Hér voru 224 sauðkindur i
húsum í vetur, þar af um 30
hrútar og gemlingar. Þrjár
kindur voru skotnar, en ekki
þegar átti að flytja þær, heldur
fvrr. Þau er fullkomið samræmi
milli Ijólda ánna sem brott
voru fluttar og skattframtals-
ins.”
Baldur ságði aö hey hefðu
veriö slæm. Sauðféð fékk sömu
gjiif og fvrri ár og 200 griimm jif
fóðurblöndu á dag að auki. „Eg
varð aldrei heylaus og aldrei
skorti fóðurblöndu. Ekki sýkt-
ust nema um 50 kindur. Þær
voru hafðar sér og fylgdist
ráðunautur með þeim og fóður-
blöndugjöf til þeirra. Dýra-
læknir sá aldrei allar ntínar
kindur. aðeins þær sjúku. Vi'ik-
in hefur staðið stuttan tíma.
Dýralæknir og ráðunautar
komu og skoðuöu bústofninn. í
fjósi eru 25 kýr. Þeim gáfu þeir
beztu meðmæli og kváðu þær
betur útlítandi en víðast gerðist
i héraðinu. að sögn Baldurs. En
er ráðunautur fylgdist með
sjúkti ánum gaf liann Balilri
bónila í skyn að færi hann ekki
í einu og öllu eftir fyrirmælum,
yrði hann dæmdur frá skepnu-
haldi eins og bóndinn að Hey-
nesi.
Laugardag fyrir páska var ég
kvaddur til sýslumanns. llann
mæltist til að ég le.vfði brott-
flutning fjárins. Eg hef ekki
amast við því. Féð er i góðs
manns höndum að Hömrum.
Eg tel hins vegar að betrta
hefði verið að féð væri heima.
Þeir hefðu átt að hjálpa ntér til
að finna orsök eitrunarinnar og
með útibeit i blíðu síðustu daga
má ætla að féð hefði náö sér,”
sagði Baldur.
„A h:e hér i nágrenninu
drápust um 20 kindur í vetur og
kýr voru í hættu. Þar var ekk-
ert aðhafzt af vfirvöldum.
Ég hef verið bóndi hér síðan
1943 eða i 33 ár og var þar áður
í sveit. Aldrei hefur nokkuð
slíkt hent fé i mínum meðför-
um. Trúi þvi hversem villað nú
allt í einu eigi sér stað vanfóðr-
ttn á fé minu at' kæruleysi. Hey
og fóðurblöndu hefur ekki
skort. En það er eitthvað að ef
fóöriö ekki nytist skepnunum.”
Baldur Stefánsson er 57 ára
og býr i Fíflholti ásamt konu
sinni og 22 ára syni. —ASt.