Dagblaðið - 12.10.1976, Side 2
DAGBLAÐIf). ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÖBER 1976.
Viðvörun til sjómanna:
W
LATIÐ
SILJA
EKKI PÓLITÍKUSA
HAGSMUNIYKKAR
Sigurpáll Einarsson frá
Grindavík skrifar:
Nú er orðiö ljóst að á næsta
þingi Sjómannasambands
Islands, SSÍ, verða átök um for-
mann sambandsins, þar sem tvö
formannsefni eru komin fram.
Það er Óskar Vigfússon, for-
maður Sjómannafélags Hafnar-
fjarðar. Öskar er studdur af
nokkrum sjómannafélögum
sem starfandi sjómenn ráða og
er því framboð Óskars sjó-
mannaframboð.
Heimildir (DB 6. október),
sem ekki hefur verið borið á
móti, segja að hitt formanns-
efnið sé Karl Steinar Guðnason
kennari, varaþingmaður
Alþýðuflokksins og formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur. Mun Karl Steinar
vera studdur af Birni Jónssyni
hjá ASl og Pétri Sigurðssyni
alþingismanni og er því fram-
boð Karls Steinars pólitískt
framboð.
Þeir sem vinna að málefnum
sjómanna hafa ekki farið var-
hluta af þvi að pólitíkin
hefur verið að leita að for-
mannsefni úti á landi nú sl.
vikur. Eftir þeim fréttum, sem
stöðugt berast manna á milli,
hafa málin gengið þannig fyrir
sig að þeir landskunnu póli-
tíkusar, Pétur Sigurðsson al-
þingismaður og Björn Jóns-
son forseti ASl hafa leitað
fyrir sér úti um land, en ekki
fundið neina flokksbræður í
sjómannafélögunum, sem vildu
lána nafn sitt sem formanns-
efni SSt.
Þar með var sá draumur úti
að annar hvor þessara póli-
tíkusa gæti stjórnað málefnum
sjómanna gegnum fram-
kýæmdastjóra, sem yrði ráðinn
vegna búsetu formanns fjarri
höfuðstöðvum samtakanna.
Þegar svo var komið fyrir
þeim kumpánum hafa þeir
gengið í fóstbræðralag og
sameinazt um að styðja
kennara einn suður með sjó,
sem er varamaður á Alþingi.
Kennari þessi á greiðan
aðgang inn á þing SSl sem for-
maður Verkalýðs- og
sjómannafélagsins í sinni
heimabyggð og hefur að sögn í
hendi sér atkvæði nokkuð stórs
hóps verkamanna sem sumir
hverjir vinna á Keflavíkurflug-
velli og getur með þeim at-
kvæðum ráðið hver verður
kosinn á þing SSÍ burtséð frá
hvort hann sé í nokkrum
tengslum við sjómenn eða mál-
efni þeirra.
Nú stendur sá tími yfir að
sjómannafélög um land allt
kjósa fulltrúa á þingið, sem
verður seinni partinn í þessum
mánuði. Eins og dæmið stendur
í dag er möguleiki á að þetta
pólitíska fóstbræðralag hafi í
hendi sér meirihiuta atkvæða á
þingi SSl.
Þess vegna er full ástæða til
að hvetja sjómenn til að vera
vel á verði og láta það ekki
gerast að kosnir verði menn á
þingið, sem eru tilbúnir að
selja hagsmuni sjómanna fyrir
pólitíkina. Það þarf sérstaklega
að vera vel á verði þar sem eru
fámenn félög og formenn
þeirra halda ekki fundi heldur
telji sig sjálfkjörna. Það er
ykkar sjómanna að krefjast
fundar og kjósa sjálfir fulltrúa
að ykkar skapi.
Ég trúi ekki að nokkur
ærlegur sjómaður horfi að-
gerðarlaus á það að pólitíkin sé
að ná SSl undir sig því það mun
óneitanlega bitna á kjörum sjó-
manna. Það er kaldhæðnislegt
að forseti ASl, þess sama ASl
sem lofaði sjómönnum aliri
hugsanlegri aðstoð við að hrinda
bráðabirgðalögunum, skuli
vinna að því með sínum áhrif-
um að opinber starfsmaður
verði næsti.formaður SSt og að
alþingismaður sá, sem brosandi
heiðrar sjómenn á sjómanna-
daginn, skuli styðja slíkt.
Það er einhver pólitísk
ástæða fyrir því að pólitísk öfl
sameinast til að koma I veg
fyrir að sjómenn sjálfir geti
stjórnað sinum samtökum, nú
þegar nauðsyn er á að sjó-
menn efli og styrki sín samtök.
Það er samdóma álit fjöl-
margra að til þess að SSl geti
gegnt hlutverki sinu verði að
veljast forysta, sem er í tengsl-
um við sjómenn og sem sjó-
menn geti treyst. Ef pólitíkin
kemur sínum lepp í forystusæti
SSÍ, þá er örugglega úti um
sambandið því að þau sjó-
mannafélög, sem sjómenn ráða,
hafna að öllum líkindum aðild
að slíku skrípi sem SSl yrði á
eftir. Sjómenn, það er ykkar að
hindra pólitísku öflin, sem
stjórna mörgum sjómanna-
félögum, í ao selja hagsmuni
ykkar.
Sigurpáll: Sjómenn í þelm félögum, sem ekki er stjórnað af pólitikusum, munu að öllum líkindum hafna aðild að SSl, veljist pólitisk
forysta þar á þinginu eftir nokkra daga.
Það gengur oft i11 a að ná í stóru kallana í þjóðfélaginu og þannig
reyndist cinmitt bréfritara að ná í þá Eðvarð Sigurðsson og
Guðmund .1. Guðmundsson.
Stjórn Dagsbrúnar:
Einn var uti, annar var í kaffi —
sá þriðji f ó
Svavar Pálsson skrifar:
Hvernig er það með þá
stjórnarmenn í Dagsbrún? Eru
þeir í sífelldum feluleik við
sjálfa sig og aðra? í síðastlið-
inni viku gerði ég árangurs-
lausar tilraunir þrjá daga í röð
til að ná sambandi við einhvern
ábyrgan aðila hjá Dagsbrún.
Alltaf fékk ég þær upplýsingar
að Eðvarð Sigurðsson væri er-
lendis, Guðmundur J. Guð-
mundsson væri á fundi og
Iialldór Björnsson væri í kaffi.
Hvílik ósköp!!
Hvernig væri nú að við
félagar, sem höfum staðið að
þessu félagi i mörg ár. færum
alvarlega að hugsa um að kjósa
launaða stjórn til 4 ára í einu?
Hvernig væri að hætta að
þiggja góðmennsku Eðvarðs
Sigurðssonar alþingismanns
f.vrir ólaunaða stjórnun Dags-
brúnar, með öllum þeim
þægindum sem það veitir
honum? Hvernig væri að við
reyndum einu sinni að eiga
ó fundi!
ekkert kaffi á brúsanum þegar
Guðmundi J. Guðmundssyni
þóknast að líta inn næst?
Hvernig væri að við félagar
reyndum að standa vörð um
menn eins og Halldór, þó hann
sé oft í kaffi, og mann sem
hefur reynzt okkur Dags-
brúnarfélögum frábær maður í
starfi, stjórnað öllum þeim
auðæfum sem við höfum safnað
saman og eru líklega orðin um
100 milljónir króna.
A ég hér við Sigurð
Guðgeirsson sem hefur staðið
vörð um lifeyrissjóði okkar og
öll peningamál okkar og farizl
það einstaklega vel úr hendi.
Hvernig væri því, félagar, að
við fengjum þessa menn til að
taka að sér forystuna í félagi
okkar en hættum að þiggja það
fyrir góðmennsku sakir að hafa
ólaunaðan starfskraft sem for-
mann okkar? Eða hvernig ei
það, félagar, höfurn við ekki
efni á að launa forvstumönnum
okkar? Þeir yrðu þá e.t.v. við
öðru hverju ef það væri gert.
Raddir
lesenda