Dagblaðið - 12.10.1976, Blaðsíða 4
4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐ.JUDAGUR 12. OKTÖBER 1976.
Ýmsar staðreyndir í fjórlagafrumvarpi nœsta órs
Gæzlumenn að störfum.
Landhelgisgœzlan:
680 MILLJ-
ÓNA AUKNING
Ráögert er að ráða flugmann
og tvo flugvirkja til landhelgis-
gæzlunnar.
Kostnaður við gæzluna vex á
næsta ári um rúmar 680 millj-
ónir samkvæmt fjárlagafrum-
varpinu.
Þar af eru 155 milljónir
vegna landhelgissjóðs. Þar er
um að ræða endurgreiðslu á
láni vegna flugvélarkaupa.
—HH
Þrír nýir
tollverðir
— vegna
vopnaleitar
Hækkun rlkisframlags vegna
embættis lögreglustjóra á
Keflavikurflugvelli verður
sextíu milljónir á næsta ári. Þar
af eru nærri þrjár og hálf
vegna ráðningar þriggja nýrra
tollvarða í sambandi við nýtt
vopnaleitartæki.
—HII
Stðður
Verulegt misræmi hefur
verið á undanförnum árun
milli þess sem embætti sýslu-
manna og bæjarfógeta hafa
raunverulega e.vtt og þess sem
iveitt hefur verið á fjárlögum.
Nú á að bæta úr þessu.
Samkvæmt f járlagafrum-
varpinu nú kom í ijós að á
fjárlögum fyrir yfirstandandi
ár féll niður að veita 4,6
milljónir vegna staða sem áður
höfðu verið heimilaðar. Þarna
er um að ræða ritara á ísafirði,
'A ritara á Blönduósi, ritara á
Akureyri, 'A skrifstofumann á
Hvolsvelli og skrifstofumann á
Eskifirði.
Fjárveitinganefnd sam-
þykkti fyrr á árinu að heimila
ráðningar manna til þessara
embætta sem svaraði til 17,8
milljóna króna. Auk þess hefur
nú verið fallizt á aukningu
starfsliðs, sem nemur 16,9
milljónum, til embætta þessara.
—HH
Frœðslumál: f
ÞRIGGJA OG HALFS
MILLJARÐS AUKNING
Framlög til fræðslumála
hækka um þrjá og hálfan
milljarð samkvæmt fjárlaga-
frumvarpinu. Þar af er helm-
ingurinn vegna grunnskóla.
Aætlað er að 225 milljónir
komi frá happdrætti Háskólans
til framkvæmda við skólann og
auk þess 55 milljónir beint úr
ríkissjóði. Framkvæmdir á lóð
Landspítalans byrja i haust og
verður reist bygging fyrir tann-
læknakennslu og annað.
Kostnaður við Menntaskól-
ann í Reykjavik vex um rúmar
56 milljónir og þar af eiga tíu
milljónir að fara til kaupa á
eignum í nágrenni skólans sem
eignarnámskvöð hvílir á. Ráða
skal húsvörð við Menntaskól-
ann við Hamrahlið. Tólf millj-
ónum verður varið til að ganga
frá breytingum á nýjum húsa-
k.vnnum Menntaskólans við
Tjörnina.
Byggingaframlög til Mennta-
skólans á Austurlandi aukast
um 14 milljónir og verða 71
milljón. Þar kemur til útboðs-
verk sem vinna á næsta ár.
Heildarkostnaður við mötu-
neyti og heimavist, sem byrjað
verður á og.notuð að nokkru til
kennslu í fyrstu, verður sam-
kvæmt áætlurt 303 milljónir.
B.vggingu þessara húsa á að
verða lokið árið 1979.
Framlög til Fjölbrautaskól-
ans í Breiðholti munu nærri
þrefaldast.
Talið er að nemendum við
Flensborgarskólann. fjöl-
brautaskólann. fjölgi um
þriðjung á árinu.
Tuttugu milljónum verður
varió til að ljúka innréttingum í
húsnæði Tækniskóla íslands.
Hækkun framlaga til Iðn-
skólans í Re.vkjavik er yfir 86
milljónir. Framlag til iðnskóla
almennt vex um tólf milljónir.
Eldhús Hjúkrunarskóla Is-
lands verður lagt niður og
munu nemar þar framvegis
borða í Landspítalanum.
Fjárveiting til Leiklistar-
skóla tslands hækkar um 10
milljónir, eða 70 prósent. Þá
aukast framlög til tónlistar-
skóla mikið, eða yfir 77 milljón-
ir, sem á að verulegu leyti
rætur að rekja til nýrra laga
sem auka hlut ríkisins í kostn-
aði úr þriðjungi í helming.
Framlag til byggingar dag-
vistunarheimila hækkar um
tæpar 17 milljónir, sem er yfir
24 prósent, og verður framlagið
alls 85 milljónir.
Enn er óvíst hvað ný lög og
reglugerð um Lánasjóð ís-
lenzkra námsmanna muni kosta
og verður það eitt verkefnið,
sem bíður afgreiðslu þingsins.
— HH
Bessastaðir endurbœttir
Forsetaembættið verður á
næsta ári rúmlega 34 milljón-
um króna dýrara en í ár.
Þetta stafar aðallega af því,
að nú skal verja 29 milljónum
króna til breytinga og endur-
Gert er ráð fyrir að fimm
viðbötarholur verði boraðar
árið 1977 og verði holurnar þá
orðnar ellefu. Síðustu þrjár hol-
bota á forsetasetrinu á Bessa-
stöðum.
Rýma þarf húsið á meðan og
því er lögð áherzla á að breyt-
ingarnar verði gerðar í einum
áfanga og sem skjótast. —HH
urnar verði boraðar árið eftir.
155 milljóna verður á næsta
ári aflað til að leggja línu milli
Kröflu og Akureyrar. — HH
MEIRA í
LISTDANS
Framlög ríkisins til lista eiga
að aukast um nánast þrjátíu
milljónir á næsta ári.
Hækkun til Launasjóðs rit-
höfunda verður um tólf millj-
ónir og rithöfundasjóður
„vegna almenningsbókasafna”
hækkar um rúmar sex.
Listamannalaun hækka um
fjórar, heiðurslaun listamanna
um rúma eina og starfslaun
listamanna um eina.
Þá hækkar framlag til list-
dánsflokksins um nærri 2.5
milljónir og verður um 4,5
millj. — HH
HÚSAKAUP FYRIR
SENDIRÁÐIÐ
Ríkið telur það hafa verið
mjög hagstætt að keypt var
húsnæði fyrir sendiráðsritara i
New York.
Það ætlar að halda slíkum
kaupum áfram. Þetta kemur
fram i minni húsaleigu-
kostnaði.
Viðhald sendiráða mun á
næsta ári hækka um rúmar tiu
milljónir, aðallega vegna bre.vt-
inga á sendiherrabústaðnum í
Osló.
Kostnaður við sendiráðin er
'talinn muni vaxa um rúmar 89
milljónir. —HH
KRAFLA ÞARF SITT
Aflað verður tæpra tveggja
milljarða vegna stöðvarhúss og
véla Kröfluvirkjunar á næsta
ári samkvæmt fjárlagafrum-
varpinu.
850 milljónir af þessu eru
fjármagnsútgjöld en rúmlega
1.1 milljarður til framkvæmda.
Samsvarandi fjáröflun í ár
verður um 2,8 milljarðar.
Þá verður aflað 814 milljóna
vegna borhola og aðveitukerfa.
Fjármagnsútgjöld af þessum
lið eru 242 milljónir en kostn-
aður við framkvæmdir 572
milljónir.