Dagblaðið - 12.10.1976, Síða 5
I)ACBI.AÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1976.
Bygging
þjóðar-
bókhlöðu
hefst
Framlög til byggingar
þjóöarbókhlöðu eiga aó vaxa
um nærri 36 milljónir á næsta
ári samkvæmt fjárlagafrum-
varpinu. Verða framlögin þá
alls 50 milljónir.
Gert er ráð fyrir að b.vrjunar-
framkvæmdir við byggingu
bókhlöðunnar geti byrjað
næsta ár.
Aætlun um kostnað við bygg-
inguna er til þar sem gert er
ráð fyrir, að heildarkostnaður-
inn verði um 1,8 milljarðar.
—HH
125 millj-
ónirtil
geðdeildar
Hundrað tuttugu og fimm
milljónum verður á næsta ári
varið til byggingar geðdeildar
Landspítalans. Þar er meó talin
göngudeild á fyrstu hæð.
Tuttugu crg átta milljónir eiga
að fara til rannsóknarstofa,
þrjátíu milljónir til símstöðvar,
tuttugu og ein milljón til rönt-
gentækja. -
Fimmtán milljónir eiga að
renna til lokafrágangs við ný-
byggingu fæðingardeildar og
jafnmikið til endurbóta á
gömlu fæðingardeildinni.
Tuttugu milljónir fara til
endurbyggingar gamla
spítalans á Kleppi og greiðslu
skulda. A Vífilsstöðum fara
tuttugu milljónir til að ljúka
b.vggingu barnaheimilis.
12,8 milljónum verður varið
til Kristneshælis. Tuttugu
milljónir fara til byggingar
vinnuskála við heimilið að
Gunnarsholti.
—HH
Margmilljorða
aukning
vegna
trygginga
Hækkun á útgjöldum ríkisins
vegna tryggingamála er talin
muni verða um 3,4 milljarðar á
næsta ári. Þá er aukning á
rekstrargjöldum ríkisspítal-
anna ekki meðtalin.
Bein framlög ríkisins til al-
mannatrygginga, slysa-,
lífeyris- og sjúkralrygginga,
vaxa um 2,4 milljarða.
Daggjaldakostnaður rikis-
spitaianna er þó ekki meðtalinn
i þessum tölum. Hann er
áætlaður um 4,4 milljarðar og
er aukningin því meiri sem
þeirri tölu nemur. Ætlunin er
að taka ríkisspitalana undan
daggjaldakerfinu og fjármagna
rekstur þeirra beint með fjár-
liigum. Einnig á að fá fram
meira eftirlit með útgjöldum
spítalanna en verið hefur og
samræma betur yfirstjórn og
1'járhagsábvrgð í rekstrinum.
—IIH
»ar
5
Átta hókarlar í lögn...
— og þorrablótin njóta góðs af
Fyrir þremur dögum lögðu
þeir lóð sína fram undan svo
kölluðum Bakkahöfða sem er
sunnarlega á Tjörnesi. Beittu
þeir hnísuspiki á 10 öngla.
Ekki höfðu þeir miklar
áhyggjur af veiðarfærum
sínum enda vanir því að draga
línuna með nokkurra daga
millibili.
En í gærdag fóru að berast
fréttir af því að hákarlslifur
flyti um allan sjó í námunda við
lögn þremenninganna.
Nokkrir menn hér á Húsavík
hafa haft það sér til dundurs
undanfarin ár að leggja há-
karlalóð út með Tjörnesinu og í
Skjálfandaflóanum. Heldur
hefur veiðin verið treg, fram að
þessu en það hljóp heldur betur
á snærið hjá þeim Einari Jóns-
syni, Pálma Héðinssyni og
Heiga Héðinssyni í gær.
sinum að mestu óskemmdum
í land. enda er hann ætlaður til
verkunar handa sælkerum sem
ekki geta hákarlslausir verið á
þorranum.
Stærð hákarla er mæld á
þann hátt að miðað er við magn
lifrar og gáfu þessir 8 ca :iA
tunnu lifrar hver. Abj.
Brugðu þeir þá við hart og
títt, -og drógu línu sína, — og
viti menn, 8 — átta hákarlar
höfðu ætlað að gæða sér á
hnísuspikinu með þeim af-
leiðingum að nú féllu þeir í
hendur mannanna. Reyndar
sáu félagarnir þess greinileg
merki að tveir höfðu bitið á til
viðbótar en rifið sig lausa og
voru þeir, og kannski fleiri
félagar þeirra teknir til við að
éta þá sem fastir voru í önglun-
um. Það er víðar hart barizt en í
mannheimum á þessum síðustu
og verstu tímum.
Félagarnir þrír komu þó feng
Myndin er af Einari Jónssyni frá Móbergi þar sem hann er að skera hákarl á Húsavíkurbryggju fyrir
nokkru.
Sýnishorn af
jeppum
Dodge Kamcharger ’74,
tilboð.
Range Rover ’74, 2,7 millj-
ónir.
Cherokee Chief '76, 3,4
milljónir.
Wagoneer ’74, 2,4 milljónir.
Wagoneer ’73. 1750 þús.
Wagoneer '71, 1450 þús.
Bronco Ranger ’74, 2,2
milljónir.
Bronco 6 cyl. ’74, 1800 þús.
Bronco '66. 700 þús.
Bronco '66. 450 þús.
Blazer ’74 með öllu, 2,6
milljónir.
Land Rover dísil '75, tilboó.
Land Rover dísil '71, 1,050
þús.
Willy's Jeepster '68, 680
þús.
Rússajeppi '59 (góður bíll),
tilboð.
Ásamt fjölda annarra
jeppa og fólksbíla.
Bílamarkaðurinn
Grettisgötu 12-18.
Sími 25252
PsCTL
Bilaleigan Miðborg
Senickinntal 1-94-92
GERIST
EIGINN
TÍSKU
TEIKNARI
YF/fi
100
ÚRVAIS
FATAEFM
tUtíma
KORGARÐ