Dagblaðið - 12.10.1976, Side 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÖBER 1976.
7
Kína:
Ekkja Maós formanns og öll
Shanghai-mafían fangelsuð
Ekkja Maos formanns
Chiang Ching, og þrír aðrir
valdamiklir kinverskir leið-
togar hafa verið teknir höndum
í Peking, sakaðir um tilraun til
stjórnarbyltingar, samkvæmt
heimildum Rauters-
fréttastofunnar. Talsmaður
ríkisstjórnarinnar hefur enn
ekki viljað úttala sig um málið.
Samkvæmt heimildarmönn-
um Reuters var ráðamönnum í
Kína sagt frá þvi með leynd, að
Chiang Ching og þrír aðrir
félagar i hinni svonefndu
„Shanghai-mafíu“, Wang-
Hung-Wen, Chang-Chun-Chiao
og Yao Wen Yuan, hefðu verið
handtekin. Öll fjögur eru þau
talin róttækust félaga í æðsta-
ráði flokksins og komust til
valda í Shanghai, fjölmennustu
borg Kínaveldis.
Wang Hung-Wen er varafor-
maður kínverska kommúnista-
flokksins og var allt fram á
síðasta ára talinn líklegastur
eftirmaður Maos formanns.
Yao er mestur áróðursmaður
landsins.
Valdamestur þeirra fjögurra
er Chang Chun-Chiao, aðstoðar-
forsætisráðherra og helzti
stjórnmálafræðingur herja
lands'ins.
Hann er einnig í miðstjórn
flokksins og hefur oftsinnis
verið nefndur sem hugsanlegur
forsætisráðherra.
Verði handtökur þessar stað-
festar, sem ekki er talið líklegt
fyrr en eftir nokkurn tima, má
segja, að stjórn landsins hafi
verið hreinsuð af öllum vinstri
sinnuðum aðilum.
Hœgfara öfl innan stjórnarinnar verða fyrri til í valdabaráttunni
Chiang Ching, ekkja Maos for-
manns.
Chang Chun-Chiao aðstoðarfor-
sætisráðherra.
Wang Hung-Wen, varafor-
maður kommúnistafiokksins.
Erlendar
fréttir
REUTER
63 millj.
króna í
fölskum
seðlum
Lögreglan í Nissa og París
hefur handtekið níu manns, en
hjá þeim fundust sem svarar
63 milljónum ísl króna í föls-
uðum frönkum.
Mennirnir níu eru grunaðir
um að vera félagar í glæpa
flokki, sem hefur dreift fölsk
um 100 franka eðlum aó
undanförnu.
Ródesía:
Vaxandi ágreiningur um
yfirráð hers og lögreglu
Smith óbilgjarn og telur sig
hafa gert bindandi samkomulag
við Kissinger utanríkisráðherra
Svo virðist sem bilið á milli
hvítra og blakkra leiðtoga í
Ródesíu fari sífellt breikkandi,
að minnsta kosti hvað varðar
fyrirhugaða stjórnarskrárráð-
stefnu um framtíð lands og
þjóðar.
Fulltrúar þriggja stærstu
þjóðernissinnahópanna í
Ródesiu hafa krafizt þess að
stjórn hers og lögreglu verði
færð þeim í hendur á meðan
blakkir taka við stjórnartaum-
unum úr höndum minnjhluta-
stjórar Ian Smiths.
Smith hefur lýst því yfir, að
ekki komi til mála að stjórn sín
hverfi á nokkurn hátt frá því
samkomulagi, sem hann hafi
fallizt á eftir viðræðurnar við
Kissinger, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, á dögunum.
Forsætisráðherrann sagdi í
gærkvöld að hvítir menn yrðu
að hafa fulla stjórn á vörnum
landsins og lögum og reglu.
Smith vill að hvítir menn ráði
áfram her og iögregiunni:
„Kemur ekki til mála,“ segja
blökkumenn. Með Smith á
myndinni er kona hans Janet
og dóttursonur þeirra.
Friður í Líbanon?
Efasemda gœtir eftir
fundarhöldin í Shtoura
Mikilla efasemda gætir nú um
það, hvort raunverulega takist að
semja frið í Líbanon, eftir að
fiéttir berast um mikið ósætti á
fundum hinna þriggja stríðandi
aðila í þorpinu Shtoura skammt
austur af Beirút.
Eftir átta tíma samningsfund
i gær sagði Hassan Dabri-Al-
Kholi, formaður sendinefndar
Arabasamtakanna, að Sýrlend-
ingar, Líbanir og Palestínumenn
hefðu náð umtalsverðum árangri
í átt að samkomulagi. Nánari til-
Nokkuð friðvænlega þótti horfa i
horgarast.vrjöldinni í Líbanon
eftir lund deiluaðila skammt frá
Beirút í gær. Nú hafa hins vegar
flestir farið að efast um, að þar
hafi verulegur árangur náðst.
högun friðarsamkomulagsins
m.vndi verða send foringjum
hinna striðandi afla og að annar
fundur myndi verða haldinn í
dag, sagði hann seint í gærkvöldi.
En yfirvöld í Damaskus í Sýr-
landi, létu untmæli Al-Kholi sér í
léttu rúmi liggja og sögðu að
samningaaóilar myndu koma
saman í dag til þess að ræða
„deilumál sín enn frekar", sem
skilja má á þann veg, að langt sé í
land méð veruleg samkomulags-
drög.
Og enda þótt búizt væri við að
allir aðilar að fundinum í Shtoura
myndu samþykkja samkomulags-
drög var talið harla ólíklegt að
stjórnmálasamtök. bæði til hægri
og vinstri sem ekki var boðið til
fundarins, ntyndu fallast á tillög-
urnar
Skœruliðar ráðast á
sýrlenzk sendiráð
Ráðizt var að sendiráðum
Sýrlands í Róm og Islamabad
í Pakistan í gær. Voru palest
inskir hermdarverkamenn þar
að verki og vildu þeir með
þessu mótmæla aðild Sýrlend-
inga að styrjöldinni í Líbanon.
Öryggisverðir i Pakistan
skutu einn ungu ntannanna til
bana er iiann réðst gegn
sendiráðinu í lslamabad með
handsprengju í annarri hendi.
Hinir tveir voru handteknir.
I Róm réðust þrir ungir
Palestínumenn inn í sendiráð
Sýrlands, vopnaðir vélbyssum
og handsprengjum. Þeir gáfust
upp f.vrir lögreglunni einum
og hálfum klukkutíma siðar.
Þessir tveir réðust á ísraelskan farþegahóp í Istanbui í ágúst og
drápu fjóra.