Dagblaðið - 12.10.1976, Síða 8
8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1976.
Rjúpnaveiðitímmn hefst á föstudaginn:
Rjúpa hefur varla sézt á SV-landi
en svolítið fyrir norðan og austan
Nú ganga menn á fjöll með 40-70 þús. kr. byssu, 2000 kr. leyfi og skot á 100 kr. stk.
R.júpnaveiðitíminn hefst á
föstudaginn 15. október og
stendur til jóla. Dagurinn sem
rjúpnaveiðin hefst og næsta
helgi á eftir eru venjulega
mestu skotdagar á íslandi og
ætla má að svo verði enn. En er
svo nokkur von til að rjúpna-
veiðimenn fái rjúpu eða jafnvel
sjái rjúpu? Það er önnur og
hæpnari saga.
Samkvæmt kenningum vís-
indamanna á rjúpnastofninn að
vera nálægt hámarki í ár.
Þannig var ástandið líka í fyrra
en veiði mjög lítil. Menn gerðu
því skóna að slæmt vor 1975
hefði dregið úr viðkomunni hjá
rjúpnastofninum og tíðarfarið í
f.vrrahaust hafi dregið mjög úr
aflanum. Slíkt mætti til sanns
vegar færa en það ætti líka að
kveikja vonir um meiri veiði nú
í vetur.
DD ræddi við Garðar
Svavarsson kaupmann sem um
árabil hefur fylgzt vel með
rjúpnaveiði og keypt rjúpur
viðsvegar að af landinu.
„Menn hafa nánast ekkert
séð af rjúpum eða þá mjög lítið.
A því eru þó undantekningar.
Nokkuð hefur sézt af fugli á
Héraði og á svæðinu ofan Eski-
fjarðar og Reyðarfjarðar.
Einnig sást talsvert af rjúpu í
Þistilfirði og Vopnafirði í
sumar og leitarmenn i Þing-
eyjarsýslum hafa einnig séð
nokkuð af rjúpu," sagði Garðar.
„I Þorskafjarðarheiði hefur
frétzt um slæðing af fugli en er
sunnar dregur hefur fuglinn
nálega ekki sézt svo heitið
geti," sagði Garðar.
Garðar kvað það stórlega
athyglisvert að leitarmenn á
Holtavörðuheiði og menn sem
'gengið hafa frá Borgarfjarðar-
dölum vestur til sjávar segjast
varla hafa komið auga á fugl. í
heild er það álit . manna að
óvenjulítið sé um rjúpu, mun
minna én áður, þó erfitt sé um
að spá.
,,En þetta hefur skeð áður,“
sagði Garðar, „að lítið hafi sézt i
leitum en síðan orðið gott veiði-
haust. Rjúpan er óútreiknan-
leg. Vísindamenn hafa sýnt
góða viðleitni til rannsókna á
stofninum en þær hafa farið
fram á takmörkuðu svæði og
aðeins staðið í u.þ.b. 6 ár en
ættu þær að gefa raunhæfa
niðurstöðu þyrftu þær áreiðan-
lega að standa í 60 ár.“
Garðar taldi að veðrátta
sumarsins hefði ekki gefið
ástæðu til að fuglinn sýndi sig
mikið og gæti því verið talsvert
til af honum þó lítið hafi sézt.
Hins vegar kvaðst hann viss um
að stóraukin ágengni við veiðar
hefði markandi áhrif á stofn-
inn, vankunnandi veiðimenn
yllu spjöllum, vélsleða ætti með
öllu að banna við rjúpnaveiðar
og gera þ.vrfti átak til að fækka
vargfugli, veiðibjöllum og
hröfnum, sem gert hefðu ótrú-
legan usla hjá rjúpnastofninum
á varptímanum, svo ekki sé
talað um minkinn, sem bæði er
í varplöndunum og kominn upp
til fjalla.
DB ræddi við Bjarka Elías-
son yfirlögregluþjón og sagði
hann að eftirsókn eftir byssu-
leyfum væri mest á haustin. Nú
hefðu umsóknir um leyfi þó
verið heldur færri en undan-
farin ár. Veiði væri líka orðin
dýr. Aðeins byssuleyfið, sem í
fyrra kostaði 50 krónur, kostar
nú 2000 krónur.
Hinrik Hermannsson í
Vesturröst sagði að byssur væri
hægt að fá frá 18 þús. krónum
upp í 150 þúsund og þar yfir en
algengasta verðið væri 40—70
þúsund. Skot kosta frá 45
krónum stykkið og allt að rúm-
lega . 100 kr. stykkið. Hinrik
kvað góða sölu hafa verið í
byssum til gæsaveiða, en byssu-
sala til rjúpnaveiða væri varla
kominn í hámark. „íslendingar
kaupa aldrei fyrr en á síðustu
stundu," sagði hann. „En það er
áreiðanlegt að ísl. veiðimenn
útrýma ekki stofninum. Fyrst
hægt var að flytja út 3—400
þúsund rjúpur á árunum milli
1920—30 verður henni ekki
útrýmt nú því mikið skortir á
að svo mikið sé veitt,“ sagði
Hinrik. —ASt.
Rjúpur í litskiptum miili sumars og vetrar.
Athugasemd við athugasemd
— frá Kennarafélagi M.H.
Laugardaginn 2. október birtu
dagblöðin Þ.jóðvil.jinn og Dag-
blaðið fréttir af viðbrögðum
kennara Menntaskólans vió
Hamrahlíð gegn mistökum i
launagreiðslum til þeirra. Mið-
vikudag 6. okt. og fimmtud. 7. okt.
birtu sömu blöð athugasemd frá
Höskuldi Jónssyni ráðuneytis-
st.jóra varðandi þennan frétta-
flutning. í greinargerð ráðu-
neytisstjórans koma fram nokkur
villandi atriði sem við sjáum
okkur tilneydd að gera okkar at-
hugasemdir við.
1. Höskuldur Jónsson segir:
„Þegar ljóst var, að eigi var
unnt að greiða öll laun er gjald-
féllu 1. október í gegnum kerfi
skýrsluvéla voru þeim kennur-
um, er launakröfur áttu, greidd
áætluð laun af fé í vörslu
skólans." — Ekki verða þessi
orð skilin öðruvísi en svo að
brugðið hafi verið við, þegar ir
þetta var l.jóst. Hi<’ rétta er að
fyrstu svör Laum ieildar :áðu-
neytisins (gefin í síma) voru á
þá leið að þessi laun fengjust
greidd eftir hálfan mánuð! Það
var fyrst þegar ljóst var að
kennarar legðu niður vinnu
sína, feng.ju þeir eigi greidd
laun, sem bráóabirgðalausn
ráðuneytis kom til umræðu.
2. Ráðuneytisstjóri virðist víkja
allri sök á herðar skrifstofu
Menntaskólans við Hamrahlíð.
Það mun honum jafn ljóst og
öðrum er við skólastörf fást og
til þeirra þekkja að margar
ástæður geta legið til þess að
skilum gagna frá skólum seinki.
Hins vegar er það ráðuneytið
sem ábyrgð ber á að laun séu
greidd samkvæmt samningum,
og þvkir okkur hart aðgöngu ef
sl.rifstofuvélamenningin getur
opphafið gildi þeirra. Ráðu-
neytisstjórinn tók og margsinnis
nam umræddan dag að ábyrgð-
in væri ráðuneytis og ekki
annarra.
3. Látið er í það skína að við
höfum gert kröfur um yfir-
vinnugreiðslur fyrir vinnu í
september. Þetta er rangt, enda
tekið fram í upphafi viðræðn-
anna við Höskuld Jónsson 1.
október að okkur væri ljóst að
þau laun væru eigi gjaldfallin.
Hins vegar gerðum við athuga-
semdir við að þesskonar vinna
hefði eigi verið greidd hluta-
ráðnum kennurum vegna ágúst-
mánaðar. Ilefðu þau laun átt
að vera g.jaldfallin tyrsta virkan
dag eftir 15. september. Er
kennurum sem öðrum lítill
akkur i að eiga laun, sín lengi
ógreidd við núgildandi verð-
bólgu.
4. Ráðuneytisstjóri virðist telja
að við eigum að standa i for-
undran og þakkarvímu, þar sem
ekki verði meiri mistök við
launagreiðslur en raun beri
vitni, eða að hans sögn aðeins í
21% tilvika, við skóla okkar (sjá
athugasemd hans). Þetta hlut-
fall teljum við raunar harla
óeðlilegt, og það er sannast mála
að vart mun nokkurt okkar
minnast þess launagreiðsludags,
þegar öll laun frá vinnukaup-
anda okkar hafi verið rétt reikn-
uð og greidd. Einkanlega þekkja
allir kennarar til öngþveitis
kringum fyrstu launagreiðslur á
haustin. Ef ráðuneytisstjóri
heldur að við vænum hann og
starfsfólk deildarinnar um léti
og ómennsku, er ekki úr vegi að
minna á að hið gagnstæða var
margtekið fram á fundi okka_r
með honum 1. okt. Jafnframt
var deildinni þá færð kveðja frá
kennarafundi með ósk um að
hún mætti dafna og eflast að
starfsliði, en við vitum að margt
af því leggur nótt við dag í störf-
um sínum. Hins vegar er lítil
von úrbóta ef ráðuneytisstjóri
telur í alvöru að allt sé í lagi,
bara ef vitleysunum fjölgi ekki.
5. Við sjáum fulla ástæðu til að
taka undir þá ósk ráðuneytis-
stjóra að blaðamenn kynni sér
sem best starfsemi launadeild-
ar, ekki síst þar sem ríkisvald án
sérstakrar starfsmannadeildar
mun nú m.jög fátítt, ef ekki út-
dautt, utan íslands. Lýsum við
okkur einnig reiðubúin að veita
blaðamönnunum allar þær upp-
lýsingar sem vera kynnu í okkar
fórum um störf deildarinnar.
6. Að lokum lýsum við þvi yfir að
okkur er öldungis fyrirmunað
að sjá hvað það kemur málinu
við að (flestir) stundakennarar
þiggi laun annars staðar fyrir
aðalstarf. Við höfum hingað til
haldið aó ætti að greiða mönn-
um laun fyrir vinnu sína samt.
Virðingarfylist.
Kennarafélag Menntaskólans
við Hamrahlíð.
Framhaldsleikrit i útvarpinu i vetur:
Fyrst börnin - þó fullorðnir
Þegar vetrardagskrá út-
varpsins hefst nú með vetrar-
komu á að taka til flutnings
framhaldsleikrit fyrir börn og
unglinga. Er það „Skeiðvöllur-
inn“ eftir ástralskan höfund
og gerist leikurinn þar. Þýð-
andi er Hulda Valtýsdóttir.
Leikritið er í fjórum þáttum og
er Þórhallur Sigurðsson leik-
stjóri.
Einnig er í ráði að endur-
flytja framhaldsleikrit fyrir
börn sem flutt voru fyrir
10—15 árum en ekki hefur
enn verið ákveðið hver þau
verða.
• Eftir áramót er áætlað að
taka til flutnings framhalds-
leikrit fyrir fullorðna og nefn-
ist það „A man born to be
king“. Leikritið er í 12 þáttum
og fjallar um ævi og starf Jesú
Krists. Höfundur er Dorothy
L. Sayers en Ra.vmond Rikes
hefur gert útvarpshandritið.
Þýðandi er Vigdís Finnboga-
dóttir.
Leikstjóri verður Gísli Hall-
dórsson og mun hann byrja að
æfa leikinn um miðjan nóvem-
ber. Hefur þetta leikrit vertð
flutt i mörgum löndum við
miklar vinsældir áheyrenda.
Flutningur framhaldsleikrits-
ins er ráógerður á sunnudög-
um. A.Bj.
dHHM
Nýkomið glœsilegt úrval af
íslenzkum alullargólfteppum
Mesta Btaúrval sem sézt hefur af íslenzkum gólfteppum.
Teppi, sem eru hentug ú íbúðir, skrífstofur og stigaganga.
Einnig þríþœttur lopi ó verksmiðjuverði.
SELJUM I HEILUM RULLUM A LÆGRA VERÐI
OPIÐ TIL KL. 10 í KVÖLD
Verksmiðjusalan
TEPPIHF.,
Súðarvogi 4, símar 36630 — 30581