Dagblaðið - 12.10.1976, Page 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1976.
9
SÝNIR í
NORRÆNA
HÚSINU
Ragnheiður Jónsdóttir sýnir
þessa dagana grafik 1 sýningarsal
Norræna hússins. Ragnheiður
hefur numið myndlist bæði hér
heima, í Kaupmannahöfn og í
París. Hefur hún tekið þátt í fjöl-
mörgum sýningum heima og er-
lendis og á grafíkverk í söfnum í
Frakklandi, Svíþjóð, Noregi og á
tslandi. Myndin er af Ragnheiði
er hún hengdi upp verk sín fyrir
helgina.
Leiklistardeild ríkisútvarpsins:
32 ÞÝÐENDUR VINNA
FYRIR LEIKUSTAR-
DEILDINA
„Við ráðum yfir stærsta leik-
húsi landsmanna. Á sl. ári voru
leikrit flutt alls sjötíu sinnum
ineð níutíu til hundrað leikurum
undir leikstjórn tuttugu og níu
leikstjóra,'* sagði Klemenz Jóns-
son leiklistarstjóri ríkisútvarps-
ins í viðtali við fréttamenn í gær.
Leiklistardeildin hefur verið sú
deild ríkisfjölmiðla sem hefur
haft bezta samvinnu við þá dálka
blaðanna sem hafa viljað kynna
dagskrárefni fyrir lesendur sína.
Nú bryddar leiklistardeildin
enn upp á betri samskiptum er
þeir kynntu þau leikrit sem flutt
verða fram til áramóta. Klemenz
skýrði einnig frá starfseminni á
síðasta ári.
A sl. ári voru flutt leikrit eftir
fjórtán íslenzka höfunda en
meginuppistaðan i leikritaflutn-
ingi ríkisútvarpsins var flokkur
leikrita eftir norræna höfunda. í
þeim flokki voru flutt tólf leikrit.
Mikill hluti þeirra leikrita, sem
flutt eru í útvarpinu er erlendur
og er því þáttur þýðendanna stór.
Alls eru þeir þrjátiu og tveir tals-
ins.
Afkastamestu þýðendurnir
síðustu árin hafa verið þær
Torfey Steinsdóttir sem vinnur
hálft starf hjá Styrktarfélagi lam-
aðra og fatlaðra. Aslaug Árna-
dóttir sem starfar á Borgarbóka-
safninu og Asthildur Egilson sem
starfar hjá Sinfóníuhljómsveit-
inni. Leikritaþýðendur hafa nú
stofnað með sér félagsskap.
Á þessu ári verða flutt ellefu
leikrit eftir islenzka höfunda. Sjö
þessara verka hafa ekki verið
flutt áður en fjögur eru eldri leik-
rit. Alls bárust útvarpinu tuttugu
og þrjú leikrit eftir íslenzka höf-
unda.
í vetur er ætlunin að hefja
flutning á flokki tólf leikrita eftir
bandaríska höfunda og má þar
nefna rithöfunda eins og t.d.
Eugene O’Neil, Arthur Miller,
Tennessee Williams og George S.
Kaufmann.
Við gerum okkur far um að
h;> a leikritin fjölbreytt að efnis-
vaii og gerum okkur einnig grein
f.vrir því að ekki er hægt að gera
öllum til hæfis í senn en þá
verður að benda á þann mögu-
leika að velja og hafna," sagði
Klemenz Jónsson. - A.Bj.
Dagblaðið
áAust
fjörðum
Það er ekki lítið atriði f.vrir
lesendur blaðanna að fá blaðið
sitt „glóðvolgt" inn um bréfa-
lúguna. Hann Kristinn Krist-
mundsson á Egilsstöðum er
umboðsmaður blaðsins f ungu
og upprennandi plássi. Hann
sækir blaðið daglega á flugvöll-
inn á Bensinum sínum sem-
hann hefur greinilega merktan
Dagblaðinu. Síðan liggur leiðin
(á löglegum hraða þó) inn í
kauptúnið og þar fær hver sinn
pakka, útsölustaðir og blað-
burðarbörn. A Egilsstöðum
hafa sölustrákar lika selt blaðið
á götunum, rétt eins og í
Reykjavik, og er útbreiðsla
blaðsins svipuð og á Morgun-
blaðinu, blaði allra lands-
manna. Til Austfjarða á blaðið
að berast samdægurs í vetur,
svo framarlega sem tíðin
verður góð.
—JBP
Ákvörðun lögreglustjóra:
ee V f
OLL LAUS BILNUMER
UNDIR 10000 „FRYST
##
Nú getur enginn í Reykjavík
fengið lægra númer en 10.000 á
bíl sinn nema hann hafi til þess
fengið leyfi lögreglustjórans i
Reykjavík. Fékk Bifreiðaeftir-
lit ríkisins bréf þessa efnis
síðari hluta sumars, að þannig
skyldi málum háttað. Sem sagt
öll númer með fjögurra stafa
tölu eru „fryst" og verða ekki
látin nema með leyfi lögreglu-
stjórans.
Guðni Karlsson forstjóri
Bifreiðaeftirlitsins staðfesti í
samtali við DB að slíkt bréf
hefði borizt frá lögreglustjóra-
embættinu. Sagði Guðni að nú
sem fyrr hefðu myndazt ,,göt“ í
skrár.a víðs vegar, bæði fyrir
neðan nr. 10.000 og eins fyrir
fyrir ofan. Mætti þetta gleggst
sjá af því að hæsta númerið
væri nokkuð yfir 50.000 en
bílar í borginni væru ekki
nema um 30 þúsund.
Ef gluggað er í bifreiða-
skrána í Reykjavík kemur fljótt
í ljós að margir með lág númer
eiga ekki búsetu í höfuðborg-
inni og ættu því að láta skrá
bifreiðar sínar í öðrum um-
dæmum ef fullnægja ætti lög-
unum. Eins má sjá í skránni að
bílar ýmissa góðborgara eru
skráðir á nöfn fyrirtækja eða
félaga. Mörg þessara fyrirtækja
starfa lítið sem ekkert eða þá að
þau eiga á engan hátt neitt i
bílunum. Sú spurning vaknar
hvort þetta sé gert til að halda
lágum númerum.
Guðni Karlsson sagði að
Bifreiðaeftirlitið hefði ekkert
gert varðandi þessi mál.
Lögreglustjóri viðkomandi
umdæmis sæi um bifreiðaskrá
þess. Bifreiðaeftirlitið treysti
sér ekki til að gera neitt í þessu.
Þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir náðist ekki i fulltrúa
lögreglustjóra í gær. Var hann
ýmist ekki við eða á fundi.
—ASt.
Lögmœt kosning í Háteigspresta-
kalli ólögmœt við Dómkirkjuna
úrslit verða kunn á fimmtudaginn
Urslit prestskosninganna um
síðustu helgi verða ekki ljós
fyrr en um hádegi á fimmtu-
daginn. Frestur til að kæra
kosningarnar er þrír sólar-
hringar en að þeim loknum
getur talning atkvæða hafizt á
Bizkupsskrifstofunni.
Kosningin í Háteigspresta-
kalli var lögmæt. Þar greiddu
3327 manns atkvæði, sem munu
vera um 60 prósent af atkvæðis-
bærum mönnum í prestakall-
inu. I Dómkirkjuprestakalli var
kosningin hins vegar ólögmæt.
Alls munu tæplega 1800 kjós-
endur hafa greitt atkvæði sem
er aðeins innan við 40 prósent
þátttaka.
„Eg hygg að ástæðan fyrir
þessari dræmu kjörsókn sé
meðal annars sú að annar um-
sækjendanna hafði ekkert fyrir
því að smala fólki á kjörstað,"
sagði Öskar J. Þorláksson dóm-
prófastur er DB ræddi við hann
um kosningarnar. „Það virðist
sem slíkt þurfi að viðhafa, ef á
að koma fólkinu til að kjósa."
Öskar Friðriksson, sem
stjórnaði kosningaskrifstofu
séra Hjalta Guðmundssonar,
tók í sama strenginn. „Þetta var
ákaflega dræm þátttaka,“ sagði
hann. „Það kom nær þvi ekkert
af fólki nema við hvettum það
til að kjósa. En það má segja að
ekki hafi verið róið nema á
annað borðið og því varð kosn-
ingaþátttakan ekki næg.“ AT
ekki þreyttur,
ungi maður, á því
að ganga í fötum,
sem eru alveg
eins og allur
fjöldinn klœðist.
Um slíka fram-
leiðslu er stund-
um haft að orð-
taki, að þar séu
13 í dúsíninu. Því
ekki að koma og
velja úr 100 fata-
efnum og 100
sniðum — allt
eftir þínum sér-
staka smekk.
liltíma
KORGARÐI