Dagblaðið - 12.10.1976, Side 12
12
DACBLAÐIÐ. ÞRIÐ.JUDAGUR 12. OKTÓBER 1976
þróttir
þróttir
íþróttir
Norðmenn
steinlágu í
byrjun gegn
Dönum
Danir sigruðu Norðmenn í
landsleik í handknattleik í
Kristiansand í Noregi með 23-19 á
laugardag eftir að hafa haft yfir-
höndina allan tímann. Staðan í
hálfleik var 12-6 fyrir Dani. Hinn
öruggi sigur Dana kom talsvert á
óvart, því þrjá af beztu leikmönn-
um danska liðsins vantaði. Þá
Flemming Ilanscn, Bent Larsen
og Henrik Jakobsgaárd.
Danir gerðu raunverulega út
um leikinn á fyrstu 10 mínútun-
um. Skoruðu fjögur fyrstu mörk
leiksins — og norska liðið komst
aldrci yfir þá slæmu byrjun.
Þrisvar í fyrri hálfleiknum höfðu
Danir sjö mörk yfir.
Þeir Tomas Pazyj og Sören
Andersen voru markhæstir í
danska liðinu. Skoruðu fjögur
mörk hvor. Hjá Norðmönnum var
Terjc Ekeberg markhæstur með
sex mörk — þrjú víti.
Kanada sigraði
Mexíkó
Kanada kom mjög á óvart er
Kanadamenn sigruðu Mexíkó
1—0 i undankeppni HM i knatt-
sp.vrnu. Mexíkö sem ávallt hefur
verið nær ósigrandi á þessu
svæði, varð fyrir miklu áfalli er
Buzz Parsons skoraði eftir 32.
minútu og virtust Mexíkóbúarnir
ekki ná sér á strik eftir það. Hinir
tæplega 18 þúsund áhorfendur
kunnu vel að meta og hvöttu sína
menn ákaft.
Þessi sigur sannar enn að
knattspyrna N-Ameríku er í
núklum uppgangi oggreinilegt að
Iið þaðan geta Mgrað sterkar
knattspyrnuþjóðir.
Hollendingar
velja gegn
N-írum
Ilollendingar hafa nú valið li'.
sitt gegn íruin á miðvikudag er
þjóðirnar mætast i undankeppni
HM í knattspyrnu. Hollendingar
leika ásamt N-írum. Belgum og
Islcndingum í riðli.
•Sjö leikmenn, sem kepptu til
úrslita við V-Þýzkaland í heims-
mcistarakeppninni í Þýzkalandi
leika gegn N-lr-im en þeir eru,
Rijsbergen Kr i, Neeskens, Jan-
sen, Haan, Kenscnhrink og
Cruyff.
En liðið á miðvikudag vcrður
skipað: Eddv Tre.vtel Feyc-
noord. Rijsbergen Feyenoord.
Ruud Krol Ajax. Ardi Van Kraa.v
PSV, Johan Neeskens Bareelona,
Arie Haan Anderlecht. Willy
Van der Kerkhof PS\, Kuúd
Geels Ajax, Rob Rensenbrink
Anderlecht. Wim Jansen Val-
encia og Johan Cru.vff Barcc-
lona.
Varamenn eru Wim
Meutstege Sparta. Willv Van der
Kuylen PSV'K. Kees Kist Ajax og
Rene van der Kerkhof PSV.
■Mikil eftirvænting ríkir nú í
London vegna landsleiks Eng-
lcndinga og Finna á morgun. Þeg-
ar hafa yfir 70 þúsund manns
keypt miða svo áreiðanlega verð-
ur uppselt á morgun.
Englendingar húast við miklu
af sínu !iði og hal'a stillt upp
sóknarliði gegn Finnunum. sem
þeir sigruðu í sumar í Helsinki
1 — 1.
Finnar komu til 1,'undúna i
ga-r og þá sagði finnski þjálfar-
inn, Aulis Rytknen. „Við getum
staðið í Englendingum. en það er
aðeins miigulegl ef leikmenn gefa
a111. já gel'a 1509,', og engin mis-
liik eiga sér stað."
Dankersen í basli með
Fram, sigraði þó 14-11
Lið Fram — ón Pólma Pólmasonar — kom ó óvart og hafði í fullu tré
við þýzka liðið nema fyrsta stundarfjórðunginn og lokakafla leiksins
—Þetta var einn af okkar
slökustu leikjum eins og á móti
Wellinghofen á dögunum. Það
gekk lítið upp hjá okkur, en ég
vona að leikur liðsins verði betri í
þeim leikjum, sem við eigum hér
eftir, sagði Ölafur H. Jónsson eft-
ir að Dankersen hafði átt í erfið-
leikum með Fram i gærkvöldi í
Laugardalshöll. Þýzka liðið
sigraði með þriggja marka mun,
14—11. Það náði þeim mun fyrsta
stundarfjórðung leiksins —
missti forskotið niður og það var
■
Hver kannast ekki við stílinn. Axel Axelsson sendir knöttinn með
þrumuskoti yfir varnarmenn. Félagi hans, Olafur H. Jónsson fylgist
með. DB-mynd Sveinn Þormóðsson.
ekki fyrr en lokakafla leiksins,
sem Dankersen-liðið seig hægt og
bítandi fram úr á ný.
Það virtist fara í taugarnar á
Þjóðverjunun — einkum þeim,
sem voru á bekkjunum — hvern-
ig dómgæzla þeirra Björns Krist-
jánssonar og Óla Olsen þróaðist.
,Það er tilgangslítið fyrir okkur
að vera að leika hér ef við fáum
slíka dómgæzlu áfram," sagði
þjálfari liðsins, Vitmoir Arsenije-
vic. Það kann að vera, að Fram
hafi eitthvað hagnazt á dómgæzlu
þeirra Óla og Björns, en þó varla
svo, að það hafi verið einhver
afgerandi þáttur í þróun leiksins.
Að visu fékk Axel Axelsson, sem
nú lék gegn sínum gömlu félögum
í Fram að kæla sig tvívegis.
Fyrst í tvær mín. og síðan fimm
— og einnig voru tveir aðrir leik-
menn Dankersen settir í tveggja
mín. leikbann hvor. Leikmenn
þýzka liðsins leika fastar — en
þetta var nokkuð harðneskju-
legt gagnvart Axel. Leikmenn
Fram sluppu við brottrekstur.
Það var ekki stór handknatt-
leikur, sem liðin sýndu — en
Fram-liðið stóð sig þó mun betur
en hægt var að reikna með fyrir-
fram þar sem bezti maður liðsins,
Pálmi Pálmason, gat ekki leikið
vegna meiðsla. Leikmenn Fram
léku yfirvegað og einkum var
ánægjulegt f.vrir liðið hve Jens
Jensson náði góðum árangri með
sínu nýja liði. Ilann lék áður með
Armanni. Þá átti Guðjón Er-
lendsson stórgóðan leik í marki
Fram. Það bar ekki mikið á þeim
Axel og Ólafi i leiknum — nema
hvað Olafur náði sér vel á strik
lokakafla leiksins, þegar hann fór
af línunni. En það hlýtur að vera
erfitt fyrir þá að leika hér heima
og þá einkum í fyrsta leik, þegar
taugarnar eru kannski ekki alveg
ílagi.
Framan af var leikurinn þóf-
kenndur og aðeins tvö mörk skor-
uð fyrstu níu mínúturnar. Kramer
skoraði fljótlega fyrir Dankersen
— Arnar Guðlaugsson jafnaði
fyrir Fram, en áður hafði guð-
rnundur Sveinsson misnotað víti.
Eftir 16 mín. var staðan orðin
4—1 fyrirDankersenog Fram átti
í erfiðleikum að finna leiðina í
mark mótherjanna.
Strax í byrjun s.h. náði Jens
forustu fyrir Fram og það var í
fyrsta og eina skiptið, sem Fram
hafði yfir. Busch jafnaði, en
Arnar misnotaði víti og Danker-
sen komst yfir 7—6. Þá jafnaði
Andrés úr víti 7—7, en Danker-
sen komst tveimur mörkum yfir
um miðjan álfleikinn. Tvívegis
var fjögurra marka munur, 13—9
og 14—10, en Andrés skoraði
siðasta mark leiksins úr víti eftir
að leiktíma var lokið.
Þýzki landsliðsmaðurinn bern-
hard Busdch var drjúgur í marka-
skoruninni í gær — skoraði átta
rnörk. Þrjú þeirra úr vítum.
Waltke skoraði tvö, en þeir
Ólafur, Axel, Becker og Kramer
eitt mark hver. Hjá Fram var
Andrés markhæstur með 5 mörk
— þrjú víti — Jens og Arnar
skoruðu tvö mörk hvor, Guð-
mundur Sveinsson og Árni
Sverrisson eitt mark hvor. hsím.
Allt hrundi hjá Bayern
þegar Maier meiddist!
— Bekcenbauer átti að gœta Fishers en hann skoraði f jögur mörk
Hin furöulegu úrslit á
Olympíuleikvanginum í
Múnchen á laugardag, þcgar
Bavern tapaði á heimavelli með
0-7 fyrir Schalke í Bundeslígunni
hafa vakið gífurlega athvgli. A
þessum sama velli og Franz keis-
ari Beckenbauer fvrir tveimur
árum hlaul sína mestu sæmd,
þegar Vestur-Þjóðverjar urðu
RITSTJÓRN:
HALLUR
SiMONARSON!
heimsmeistarar, varð hann nú
f.vrir mestu niöurlægingu á leik-
ferli sínum. Leikmaður Sehalke,
sem hann átti að gæta, Fiseher.
lék sér að keisaranum og skoraði
fjögur mörk.
Beckenbauer átti nijög slakan
leik, en aðalástæðan til þess hve
tapið var stórt var sú. að Sepp
Maier slasaðist í leiknum og átti í
miklum erfiðleikum eftir það. Þá
hafði Schalke skorað tvívegis.
Baýérn sent varamann sinn inn á
— Danann Kjeld Seneca. Rétt á
eftir. pieiddist svo Maier — en
varð að standa í markinu til leiks-
loka. Rúmlega 50 þúsund áhorf-
endpr trúðu varla sínum augum.
þegar Schalke skoraði og skoraði
og Bayern hlaut sitt versta tap.
Líð Bayern, Evrópumeistarar
þrjú síðustu árin, var í algjörri
upplausn í lokin. Þar stóð ekki
steinn yfir steini. Auk Fischer
skoruðu þeir Erwin Kremers,
Abramczik og Dubski f.vrir
Schalke.
Svíarnir tveir i liði Bayern.
Conny Thorstensson og Björn
Andersson léku ekki nteð Bayern
að þessu sinni vegna leiks Svía og
Svisslendinga í heimsmeistara-
keppninni — og var þar skarö
fyrir skildi hjá Ba.vern.
Franz Beckenbauer
leikinn gegn Schalke
— var illa
I |\n .'rin cb ir Bomnii l'lvjaiuli
; glicpainanninn.