Dagblaðið - 12.10.1976, Qupperneq 23
Þetta er kápumyndin af bókinni Herra Zlppó og þjófótti
skjórinn. Kannski verður lestur þessarar sögu til þess að Leik-
brúðuland sýnir verkið.
Útvarp kl. 21,00 í kvöld:
Frumsamin soga
eflír Kef Ivíking
Útvarp kl. 21,50: Ljóðalestur
Höfundurinn prófessor
og doktor í A-Berlín
Sveinn Bergsveinsson les ljóð
eftir sjálfan sig í útvarpinu kl.
21.50 í kvöld.
Sveinn er prófessor og
doktor í málvísindum við
háskólann í Austur-Berlin þar
sem hann hefur dvalizt um
þrjátíu ára skeið. Hann hefur
nú nýlátið af störfum vegna
aldurs. Sveinn hefur lagt stund
á ritstörf í tómstundum sínum
og bæði kvæði og smásögur
eftir hann hafa birzt í
tímaritum.
Sveinn flutti nýlega
háskólafyrirlestur hér heima
og fjallaði hann um
stíleinkenni Egilssögu. í
fyrirlestrinum hallaðist Sveinn
að því að höfundar Eglu hefðu
getað verið tveir.
Sveinn Bergsveinsson kemur
að jafnaði til íslands á sumrin
og dvelur hér í nokkrar vikur.
-A.Bj.
Sjónvarp kl. 20,40 í kvöld:
Loksins er
McCloud
kominn
oftur
Loksins, íoksins kemur
McCloud í heimsókn á ný en
sjónvarpsáhorfendur eru
áreiðanlega farnir að sakna
hans og orðnir hálfþreyttir á
Columbo viku eftir viku.
McCloud er á dagskránni i
kvöld kl. 20.40 að loknum
fréttum og auglýsingum.
Þátturinn í kvöld heitir Kúreki
í paradís. Þýðandi er Krist-
mann Eiðsson. _A.Bj.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐ.JUDAGIJR 12. OKTÓBER 197fi.
Sigurður er maður um
miðjan aldur og er hann hús-
vörður i íþróttahúsi i Keflavík.
liann hefur eitthvað fengizt við
ritstörf og í nýjasta hefti Sam-
vmnunnar er saga eftir hann.
Útvarp í kvöld kl. 23,00: Á hljóðbergi
URVALSKAFLAR
ÚR PÉTRIGAUT
Höfundur sögunnar A
annarri Golgatahæð sem er
á dagskrá kl. 21.00 í útvarpinu í
kvöld er Sigurður N. Brynjólfs-
son. Les höfundur sjálfur sögu
sína.
A annarri Golgatahæð hefur
ekki hirtzt á prenti eða verið
flutt (ipinl)erlega áður.
—A.Bj.
Þátturinn Á hljóðbergi er á
dagskrá útvarpsins kl. 23.00 í
kvöld. Umsjónarmaður þáttar-
ins er Björn Th. Björnsson.
Eins og jafnan áður er efni
þáttarins mjög athyglisvert en í
kvöid verða flutt þrjú fræg
atriði úr Pétri Gaut eftir
Henrik Ibsen. Eru það leikarar
við norska þjóðleikhúsið sem
flytja, þau Tore Serelcke,
Alfred Maurstad og Eva Prytz.
Pétur Gautur hefur verið
sýndur bæði á fjölunum í Iðnó
og í Þjóðleikhúsinu. Fyrsti
íslenzki leikarinn, sem lék
Pétur Gaut, var Lárus Pálsson
og lék þá Gunnþórunn
Halldórsdóttir Asu. Það var
árið 1944 og leikritið var frum-
sýnt í Iðnó. Þýðingin var eftir
Einar Benediktsson. Síðan var
leikritið sýnt árið 1963 í Þjóð-
leikhúsinu og þá voru það
Gunnar Eyjólfsson og Arndís
Björnsdóttir sem fóru með hlut-
verk Péturs og Ásu.
Gunnar Eyjólfsson lék Pétur
Gaut í sýningum Leikfélags
Húsavíkur á sl. vetri.
—A.Bj.
Gunnar E.vjólfsson og Arndís Björnsdóttir í hlutverkum sínum l Pétri Gaut í ÞJóðleikhúsinu. Þeim
þótti takast mjög vel upp.
„Sagan er eftir Nils Olof
Franzén sem er sænskur. Hann
var áður dagskrárstjóri við
sænska útvarpið en er nú
hættur því og vinnur við
aætlanagerð hjá útvarpinu
Franzén hefur samið margar
bækur en þetta er sú eina sem
ég hef lesið eftir hann. Húri er
einstaklega falleg í klassískum
stíl um hina algjöru tvi-
skiptingu hins illa og hins
góða.“
Þetta sagði Hólmfríður
Gunnarsdóttir sem bæði þýðir
og les söguna „Herra Zippó og
þjófótti skjórinn" í Morgun-
stund barnanna.
Höfundur sf'junnar er
ákafur áhugamaeur um lOnlist
enda er sagan brúðuleikhús-
uppfærsla, af Þjófótta skjón-
um óperu Rossinis.Hólmfríður
kynntist Franzén persónulega
og varð það til þess að hann
sendi henni þessa bók sem hún
þýddi svo og las fyrir börnin
sín, þeim og henni til mikillar
ánægju. Hún sagði að hún
hefði verið að hvetja Hallveigu
Thorlacíus, eina af þeim sem
eru með brúðuleikhúsið hér, að
s. tja þetta stykki upp og vonaði'
að lestur sögunnar yrði jafnvel
til þess.
Söguþráðurinn er sá að
Zippó, litli maðurinn á Norður-
Ítalíu, færir þessu óperu upp.
Hann hefur búið brúðurnar til,
en þær eru lifandi. Það veit
hins vegar enginn fyrr en það
óhapp hendir að ein brúðan
hnerrar á sviðinu. Þá koma
vondu mennirnir og stela brúð-
unum og lenda þær í hinum
mestu hörmungum.
—EVI
Útvarpið í fyrramálið kl. 8,45:
Morgunstund barnanna
HERRA ZIPPÓ OG
ÞJÓFÓTTISKJÓRINN"