Dagblaðið - 12.10.1976, Page 24
'
Enginn svaraði í neyðartalstöðina vegna helgarfría:
Dróttur varð á brott-
f lutningi f ólks f rá Kröf lu
Flóttavegur bormannanna lokaðist litlu eftir að þeir yfirgáfu borinn
„Miklar drunur, gufukraftur
og grjótflug mættu okkur er
við komum aó nýja gosstaðn-
um á Kröflusvæðinu, fyrstir
manna eftir að bormenn á Jötni
flúðu Kröflusvæðið, en þeir
urðu fyrstir varir nýja gossins,"
sagði Jón Illugason oddviti i
Reykjahlíð og formaður
Almannavarnanefndar á
svæðinu í viðtali við Dagblaðið.
„Okkur mætti mikið grjót-
flug og leirslettur og fylgdu
miklar drunur áköfum gos-
mekkinum, sem virtist stiga í
60—70 m hæð. Grjótflugið
lokaði veginum að bornum, sem
Jötuns-menn höfðu áður ekið
eftir á flótta sínum af svæðinu.
Af því má ráða að gosið óx eftir
að það byrjaði og Jötunsmenn
urðu varir við það,“ sagði Jón.
„Við vorum þrir saman og
gátum lítið séð í belgmyrkri
næturinnar utan það sem sást í
geislaflóði bílljósanna. Grjótið
sem gufumökkurinn þeytti í
loft upp var að mestu hnefa-
stórir steinar og sumir stærri
og einnig fylgdu leirslettur.
Ekki töldum við þorandi að
fara nær nýja hvernum en í
u.þ.b. 70 m fjarlægð.
Það var um kl. 4.30 sem bor-
menn á Jötni urðu varir við
nýja gosið. Þeir gerðu aðvart í
Kröflubúðir og flúðu af staðn-
um og komust akandi eftir veg-
inum frá bornum til búðanna.
Þessi vegur lokaðist litlu síðar.
Almannavarnanefndin í
Reynihlíð fékk þegar tilkynn-
ingu um hvað gerzt hafði. Hún
náði hins vegar ekki talstöðvar-
sambandi við Kröflubúðir strax
og hófst þvíækki brottflutning-
ur þegar í stað.
Jón Illugason sagði að ástæða
tafanna á talstöðvarsambandi
væri vafalaust sú að aðeins
voru mættir um % hlutar starfs-
liðs eftir helgarfrí. Meðal
þeirra sem ókomnir voru voru
nokkrir yfirmenn sem eru
lykilmenn við neyðarútkall.
„Þessi þáttur varðandi tafirnar
verður kannaður og fyrirbyggt
að hann geti endurtekið sig. Að
því leyti var þetta gos góð
æfing,“ sagði Jón.
Klukkan um 8.40 dró mestan
kraftinn úr nýja gosinu, en af
og til gaus hverinn upp og
sendi stróka upp í loftið og
fylgdu þeim sem áður leir-
slettur og grjótflug.
—ASt.
Óprúttið
símagabb
Öprúttinn náungi brá á
heldur lúalegan leik í morg-
un. Hann hringdi til höfuð-
stöðva Almannavarna og
kynnti sig sem starfsmann
flugstjórnar. Kvaðst hann
eiga að flytja skilaboð frá
flugvél jarðfræðinganna
yfir Kröflusvæðinu á þá leið
„að þeir sæju „létt gos“ á
svæðinu og eitthvað væri að
ske norðuraf, sem þeir
myndu nú athuga“. Sá sami
hringdi í útvarpið og til-
kynnti um „stórgos" á svæð-
inu.
Ekki þarf að lýsa hve lúa-
legur svona símaleikur er og
furðulegt að til skuli fólk,
sem til slíks leiks grípur.
— ASt.
Það var fjölmenni á Hótel Reynihlíð í morgun.eða sénnilega nálægt
200 manns, sem gefur ekkert eftir góðum viðskiptadegi þar að
sumariagi. Menn létu fara vel um sig og biðu þess að verða kallaðir
til Kröflu aftur. DB-mynd: Arni Páil.
frfálst, nháð datfblað
ÞRIÐJUDAGUR 12. OKT. 1976
Ketkrókur ó ferð
Hangikjötsrúllur, gómsæt
dósavara og sitthvað fleira
var komið í poka og tilbúið
til brottflutnings og væntan-
lega til neyzlu er lögregluna
bar að garði í Kjötbúð
Tómasar að Laugavegi 2 í
nótt um klukkan tvö.
Á staðnum var óvelkom-
inn gestur, sem inn hafði
komizt á þann hreinlega liátt
að mölbrjóta rúðu í aðalhurð
verzlunarinnar. Það athæfi
og ferðir mannsins í búðinni
vöktu athygli og lögreglan
var fljót á staðinn. Hún
kannaðist vel við hinn óvel-
komna, „gamall kunningi"
eins og sagt er. —ASt.
Stóra hassmálið:
Einn laus i gœr
„Það er ekki hægt að
segja annað en að rannsókn-
in gangi vel, hún hefur að
vísu gengið heldur hægt, en
vel þó,“ sagði Snorri
Sigurjónsson, lögreglu-
maður í fíkniefnadeild
lögreglunnar,
Einn fjórmenninganna,
sem setið hafa í gæzluvarð-
haldi að undanförnu, var lát-
inn laus um hádegið í gær.
Hann hafði setið í gæzlu-
síðan 17. september, þegar
nokkurt hassmagn fannst á
heimili hans.
Snorra kvaðst ekkert geta
sagt enn um magnið, sem
málið snérist um, það færi
frekar vaxandi en hitt, en
augljóslega væri málið mjög
umfangsmikið. —ÖV
Gufumökkurinn gerir
frekari borun ómögulega
— þegar frystir verður mökkurinn að snjó
„Þegar ég kom þarna kl. 6.15
morgun fékk enginn að fara
nn á svæðið við Kröflu," sagði
Ásmundur Bjarnason fréttarit-
ari Dagblaðsins á Húsavík.
„Þarna var mikil gufa og var
mér sagt, að þarna spýttist upp
leir og drulla, en engar myndir
var hægt að taka af framan-
greindum ástæðum,“ sagði
Ásmundur, sem kom fyrstur
fréttamanna á staðinn i morg-
un.
,,Eg hefi engan tíma haft til
að veröa hra'ddur um borinn,“
sagði ísleifur Jónsson, verk-
fræðingur hjá Jarðborunum
ríkisins í viðtali við DB í
morgun. Isleifur sagði, aö mikil
gufa kæmi frá holunni, sem
þeytti leirnum upp úr sér. Af
þeirri ástæðu kynni að verða
erfitt að vinna við frekari
borun þar sem Jötunn er að
verki í 60—70 metra fjarlægð.
„Þegar frystir, verður þessi
gufa að snjó, sem veldur lát-
lausri snjókomu þarna ef þessu
heldur áfram,“ sagði Isleifur.
Hann sagði, að jarðborinn Jöt-
unn væri 4—500 milljóna króna
verðmæti með öllu, sem born-
um fylgir. BS.
Dagblaðið hefur höfðað
meiðyrðamál gegn
Guðjóni Styrkárssyni
Lögmaður Dagblaðsins, Skúli
Pálsson hrl., afhenti i morgun
stefnuvottum til birtingar
stefnu á hendur Guðjóni
Styrkárssyni. þar sem krafizt er
relsingar og ómerkingar ýmissa
ummæla hans um Dagl>laðið i
yfirlýsingu, sem birtist i
Morgunltlaðinu á laugardaginn.
Stelnandi er Jónas Kristjáns-
son ritstjóri fyrir hönd Dag-
blaðsins.
t „Herskipaíhlutun verð-
> ur ekki endurtekin
— en víljum víð „gagnkvœma samninga" víð Breta eftir 1. des.?
Við verðum að gera upp við
okkur, hvort við viljum til
skamms tíma semja um, að
Bretar fái að veiða hér eitthvað
áfram, gegn því, að við fáum að
veiða í Norðursjó og við Græn-
land. Ef vió viljum halda þess-
um veiðum okkar, verðum við
að láta eitthvað á móti. Þetta
kom fram á kjördæmisfundi
Geirs Hallgrímssonar forsætis-
ráðherra í Skiphóli í Hafnar-
firði i gærkvöldi.
Forsætisráðherra sagði, að
mikill árangur hefði náðst í
landhelgismálum. Allar þjóðir,
sem hér hefðu veitt, hefðu i
raun viðurkennt 200 mílurnar.
Veiðar Breta eftir 1. desember
gætu ekki orðið nema i sam-
komulagi við íslenzk stjórn-
völd. „Herskipaihlutun verður
ekki endurtekin,“ sagði for-
sætisráðherra.
Geir Hallgrímsson sagði, að
Efnahagsbandalagið mundi
taka ákvörðun 17.—18. október
um hvort það tæki 200 mílna
landhelgi. Ekki væri unnt að
semja við bandalagið um
veiðiheimildir f.vrr en eftir það.
Aðildin að Atlantshafsbanda-
laginu hefði tryggt sjaifs-
ákvörðunarrétt okkar, sagði
ráðherra, og við hefðum notað
þann rétt til útfærslu.
Hann sagði, að verðbólgan
hefði þokazt í rétta átt en engan
veginn nægilega. Þess vegna
sendi forsætisráðherra í gær
bréf til stjórnmálaflokka og
helztu hagsmunasamtaka, þar
sem óskað var eftir skipun
nefndar til að reyna að stemma
stigu við verðbólgunni.
„Bónorðsför“
Sigurgeir Sigurðsson, bæjar-
stjóri á Seltjarnarnesi, gagn-
rýndi þessa nefndaskipun, svo
seint fram komna. Hann sagði
að hún minnti á bónorðsför
Hermanns Jónassonar, þá for-
sætisráðherra, til Alþýðusam-
bandsþings haustið 1958.
Vinstri stjórn Hermanns féll í
þann mund, þegar ASÍ hafnaði
tilmælum hans. Geir Hallgríms-
son andmælti þessari skoðun
Sigurgeirs.
Friðþjófur Þorgeirsson
spurði hvort dómsmálaráð-
herra ætti ekki að vikja úr emb-
ætti. þar sem hann hefði hlotið
dóm fyrir meiðyrði. Forsætis
ráðherra sagði, að dómsmála
ráðherra hefði ekki verið
dæmdur fyrir nein afglöp í
starfi. Þorgeir Ibsen sagði, að
með möguleikum manna til að
skjóta sér undan skatti væri
verið að „afsiða“ þjóðfélagið.
Forsætisráðherra minntist þá á
nokkrar breytingar, sem fyrir-
hugaðar eru á skattalögum.
Tvö núll af krónunni?
Forsætisráðherra sagði,
vegna spurningar frá Sveini
Ölafssyni, að hann vildi gjarn-
an, að unnt yrði að fella núll
aftan af krónunni, „frekar tvö
en eitt“. En verða þyrfti víðtæk
samstaða, ef það yrði gert, svo
að almenningur sannfærðist, að
breytingin táknaði tímamót.
Nokkuð var rætt um slátur-
hússmál Eyjólfs Konráðs Jóns-
sonar aþingismanns, hótun
hans um „að skjóta hrút“. For-
sætisráðherra lagði í því sam-
bandi áherzlu á, að menn færu
að lögum og virtu lýðræðis-
skipulagið.
Þetta var.ll. fundur forsæns-
ráðherra á þessari yfirreið hans
yfir kjördæmin. —HH
Hrœðsluvíti
— var nýi kverinn við Kröflu nefndur á
níunda timanum í morgun
„Nú er búið að gefa nýja
hvernum nafn. Þeir voru að
segja i talstöðinni nafn hans.
Hann heitir héðan í frá
Hræðsluvíti Þið fáið nafnið
fyrstir blaða,“ sagði Birgir
Fanndal vélstjóri sem svaraði í
síma jarðfræðinganna á Kröflu-
svæðinu kl. 9.30 í morgun. Rétt
áður hafði Birgir lýst fvrir
okkur. að gufu- og loirhverinn
nýi virtist sakleysislegur í
morgunbirtunni á tíunda
tímanum.
Bormennirnir sem voru að
störfum á Jötni í nótt he.vrðu
lítiö sem ekkert í fyrstu til nýja
hverfsins, en hann gerði vart
við sig hjá þeim meö því að
senda leirslettur og grjót lang-
leiðina til þeirra en þeir voru
u.þ.b. 60 metra frá nýja gos-
staðnum. Þeir óku síðan á brott
en skömmu siðar lokaðist sá
vegur allri umferð og kl. 9.30
var óakfært að bornum.
Strax og birti gengu menn i
sveig frá veginum og komust að
bornum. Er gos úr hvernum
minnkaði gengu Jötuns-menn
úr skugga um. að borinn var
heill og virtist óskemmdur með
öllu, sagði Birgir. —At.