Dagblaðið - 06.01.1977, Síða 1
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
:i. AR(i. — FIMIVITUDAGUR 6. JANÚAR 1977 — 4. TBL.
RITSTJÖRN SÍÐUMÚLA 12, SIMI 8:{J22. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA. ÞVERHOLTI 2. SÍMI 27022.
Lögmaður Hauks Guðmundssonar um sakbendinguna:
VIRÐIST VERA HREINT
RÉTT ARHNEYKSLI
—óhæfa að rannsaka meint lögbrot með öðru lögbroti
— Mér virðist það vera hreint
réttarhneyksli, þegar verið er að
rannsaka meint lögbrot lögreglu-
manna á rannsóknarferðum með
því að framkvæma önnur brot á
sörnu lögum um meðferð opin-
berra mála, sem mér er ekki
kiinnugt um að jafnvel athafna-
sömustu rannsóknarlögreglu-
menn hafi treyst sér til að notá
hingað til, sagði Jón E. Ragnars-
son hrl, lögmaður Hauks Guð-
mundssonar, er blaðið ræddi við
hann í morgun um lögmæti sak-
bendingarinnar, sem framkvæmd
var i Keflavík um daginn.
Jón hélt áfram: Þarna hlýtur
dómsmálaráðuneytið að verða að
gefa skýringu á umboðsbréfi sinu
til Steingríms Gauts, setudómara,
óg valdsviði hans gagnvart lög-
regluyfirvöldum í Keflavík og
Njarðvík.
Taldi hann framkvæmd þeirrar
sakbendingar, sem hann hefði
frétt af, hreina lögleysu. Sagði
hann að sér skildist að sak-
bendingin hafi farið fram sem
einföld lögreglurannsókn en ekki
dómsrannsókn, þótt dómari hafi
til hennar kvatt. Dómari ætti
fyrst að setja sakadónt. Síðan að
k.vnna sér röðina sem úr er valið
og bóka vendilega um það. Þar
næst að velja úr þeim sem frammi
standa. Þetta muni ekki hafa ver-
ið gert og að honurn skiljist, sé
óljósí hvort sakbendingin hafi
farið fram á vegum rannsóknar-
lögreglunnar í Reykjavík, Kefla-
vík eða setudómarans.
Þá benti hann á að hvorki
Haukur né hann sjálfur, sem lög-
maður hans, hafi verið látnir vita
og gefinn kostur á að vera við-
staddir, eins og vera bæri. Né
heldur hafi konu Hauks og
skylduliði hans, er boðað var, ver-
ið bent á að það þyrfti ekki, skv.
89. grein laga um meðferð opin-
berra mála, að taka þátt i slíkum
leik.
Ef sagt er að Kristján og Hauk-
ur noti ekki réttar aðferðir, hélt
Jón áfram, er farið að taka í
hnúkana. Sakbending er eitt við
kvæmasta sönnunargagn sem um
getur verið að ræða, þar sem
áreiðanlega er skylt að boða
meintan sakborning og lögmann
hans. En þarna virðist allt hafa
farið fram á vegum lögreglu-
stjóraembættisins í Keflavík. sem
í raun hefur verið svipt völdum í
þessúm málum með skipun setu-
dómara, eð^ á vegum ginhvers'
öljóss aðila.
Hvernig væri að dómsmálaráð-
herra gerði heyrum kunnugt um-
boð setudömarans og hvað er að
gerast þegar þetta svokallaða
handtökumál, eins og Schuts-
málið á' sínum tíma, fær hreina
forgangsmeðferð en önnur sam-
bærilcg mál, eins og t.d. kæra
Hauks og Kristjáns, vegna skrifa
Tímans á sínum tíma, liggja i lág-
inni. Hver ræður þarna hraðan-
um? Skjót úrslit dómsmála eru
sögð réttlæti, en óréttlætið tíminn
sem þau taka. Eg tel að döms-
málaráðherra og ríkissaksóknari
verði að tjá sig um ofangreind
ummæli, sagði Jön að lokum.
-G.S.
Það er hugur i fleiri sjómönn- andi verður hún betri en tvær horninu. Sveinn Þormóðsson koma netunum um borð i Stíg-
um en loðnusjómönnunum. þvi þær síðustu sem voru hvor ann- tók þessa mynd vestur á anda.
netavertiðin er að hefjast. Von- arri iélegri, a.m.k. á suðvestur- Granda í gær er verið var að -G.S.
HVERJU SPAIR
VÖLVAN UM 77????
—bls. 17
Hámarkssektin fer upp í
5 milljónir _bls9
Talfa fén ofan á
bifreiö, sá amerfski
hafði öllu betur
- bls. 9
Olíuskipmeð
33 millj. lítra af
olíu sokkið?
— erl. fréttir bls. 6-7
FALSARA SLEPPT
ÍREYKJAVÍK
-TEKINNÍ
HAFNARFIRÐI
Avísanafalsarinn sem fjórir
menn handsömuðu á Hlentm-
torgi, eftir að hann hafði gert
tilraun til að selja 95 þúsund
króna falsaða og stolna ávísun,
gengur nú laus. Hann var yfir-
he.vrður af lögreglu og rann-
sóknarlögreglu. Hann játaði að
hafa falsað ávísanirnar en
kvaðst jafnframt hafa fundið
þær i veski á götu. Þessi saga
hans var tekin trúanleg og
skýrslufærð í Reykjavik.
1 Hafnarfirði eru
rannsóknarlögreglumenn á
annarri skoðun. Þeir vita að
ávísununum var stolið frá fvrir-
tæki í Hafnarfirði. Þeir hafa
„falsarann" grunaðan um
þjófnaðinn og hafa sterkan
grun um að maðurinn sé sekur
um fleiri brot. Þegar þetta blað
keniur fyrir augu lesenda mun
ávisanafalsarinn sennilega
kontinn undir lás og slá hjá
lögreglunni i Hafnarfirði. -ASt.