Dagblaðið - 06.01.1977, Blaðsíða 6
0
DAíiBLAÐIÐ. FIMMTUDA(iUR fi. JANUAR 1977.
Erlendar
fréttir
REUTER
Komabarn
fórstí
Moskva:
Réttarhöld að hefjast
i má/i Helsinki-hópsins
Yfirvöld í Sovétríkjunum
hafa loks hafið réttarhöld í
máli mannréttindahóps þar í
landi, sem vakið hefur hvað
mesta athygli á baráttunni
fyrir auknum mannréttind-
um siðan hann var stofnaður
í mai sl.
Létu dómsyfirvöld þetta i
veðri vaka, er þau hófu yfir-
heyrslur yfir líffræðingnum
Yur Orlov, sem er formaður
12 manna hóps þeirra, er
halda vilja Helsinki-
samþykktinni um mannrétt-
indi til streitu.
Öeinkennisklæddir lög-
reglumenn handtóku Orlov
á götu er hann var á leið á
blaðamannafund með vest-
rænum fréttamönnum, þar
sem hann ætlaði að skýra frá
húsleitum lögreglunnar á
heimili hans og fjögurra
annarra félaga f hópnum.
Sagði Orlov fréttamönn-
um, að honum hefði verið
sleppt lausum skömmu
síðar, en nú væri búið að
höfða mál gegn honum þar
sem hann væri ákærður um
að bera út vísvitandi
óhróður um Sovétríkin.
Væri ákæran byggð á
hundruðum skjala og ann-
arra pappíra, sem lögreglan
hefði fundið við húsleitirn-
ar.
gassprengmgu
Sprenging, sem talin er
hafa orðið af völdum fljót-
andi gass, varð kornabarni
að bana og eyðilagði hús í
litlu þorpi í Skotlandi. Þetta
er fyrsta dauðsfallið sem
verður í fjölda sprenginga
sem hafa dunið yfir á Bret-
landseyjum í síðustu viku.
— Foreldrar barnsins, systir
og frændi sluppu ómeidd.
Orkumálaráð Bretlands
tilkynnti í gær, að opinber
rannsókn færi fram á þess-
um sprengingum. Meira en
50 manns hafa slasazt og í-
búðarhús, verzlanir og skrif-
stofur hafa eyðilagzt. Full-
víst er talið að sprengingarn-
ar stafi af gasleka.
Brezka gasfélagið hefur
fagnað því að rannsókn á
sprengingunum skuli fara
fram. Þar var jafnframt full-
yrt, að gashitun væri örugg-
lega ein öruggasta aðferðin
til að hita upp hús.
Kína:
Herinn tekur
aðsérstjóm
járnbrauta
Hernaðaryfirvöld hafa nú
tekið að sér stjórn járnbrautar-
umferðar í gegnum borgina
Chengchow í Kína, að sögn út-
varpsstöðvar þarlendis.
Samkvæmt fréttum frá út-
varpinu í Honan, var þetta gert
til þess ,,að styrkja stjórn járn-
brautanna í Chengchow og við-
halda byltingunni og
framleiðslunni.
Undanfarið hefur verið
óeirðasamt í Chengchow, en í
borginni mætast allar helztu
járnbrautarlínur frá öllum
'íandshlutum.
Er lausnin í nánd?
Bjartsýnn
Richard í
Mosambique
Formaður Ródesíufund-
arins í Genf, Ivor Richard
kom til Maputo á
Mosambique í gærkvöldi,
þar sem hann mun eiga við-
ræður við forseta landsins,
Samora Machel. Virtist Rich-
ard bjartsýnn á að lausn
Rodesíuvandamálsins væri
möguleg.
Tilgangur ferðalags
Richards um nokkur Afríku-
riki er að fá samningamenn
til þess að koma til viðræðna
á ný og sagði hann frétta-
mönnum, að árangur hefði
náðst síðan hann hóf ferða-
lag sitt fyrir viku síðan.
Hann sagði m.a.: ,,Ég
get séð mun skýrar fyrir
mér, hvernig við getuni náð
mun fljótvirkari árangri í
lausn deilunnar um framtíð
Ródesíu“.
Almenningur lostinn skelfingu vegna flóttanna
undanfarna daga
Enn sleppa fangar úr
fangelsum á Ítalíu
Fjórir dæmdir fangar, einn
þeirra talinn vera vinstri sinn-
aður skæruliði, sluppu út úr
fangelsinu í Pesaro á Ítalíu í
gærkvöldi.
Aðeins þrír dagar eru síðan
13 hættulegir fangar, brutu sér
leið út úr fangelsinu í Treviso
og hafa atburðir þessir orðið
tilefni mikillar umræðu um
öryggi í fangelsum þar í landi
yfirleitt.
Við flóttann í gærkvöldi not-
uðu fangarnir byssur og hnífa
og tóku þrjá fangaverði sem
gísla. Voru fangarnir sex að
tölu sem skipuðu öðrum fanga-
vörðum að opna hlið fangelsis-
ins. Tveir fanganna náðust
skömmu síðar, en fjórir komust
undan á hraðskreiðum bíl.
Einn hinna fjögurra er talinn
vera félagi í Rauðliðasveitum
,,þéttbýlisskæruliða“. Einn
þeirra sem sluppu út úr fang-
elsinu i Treviso sl. mánudag er
einnig félagi í þeim samtökum.
Fangauppþot í Mílanó í sumar: Fangarnir hafa löngum mótmælt slæmum aðbúnaði og virðist sem
ástandið sé mjög bágborið í itölskum fangelsum.
Minningarhöll Maos-formanns rís afgrunni
YTirlilsmynd yfir slaðinn þar sem minningarhiillMaos fornianns á að rísa í Peking.
Fremsl er grunnurinn undir höllina. þá minnismerki fórnarlambanna og síðan IIöll hinna
forboðn u.
Mao-höllin verður lilhiiin á þessu ári.
Erfiöleikar í
brezkri svína-
kjötsframleiöslu
Talsmaður stjórnarandstöð-
unnar um landbúnaðarmál á
brezka þinginu hefur varað
John Silkin landbúnaðarráð-
herra við því, að svínakjöts-
framleiðslan þar í landi sé í
alvarlegri hættu. í bréfi til Silk-
ins segir John Peyton að það sé
staðreynd, að framleiðendur
beikons og annars svínakjöts
eigi i vaxandi erfiðleikum
vegna aukins kjötinnflutnings
frá Danmörku og Hollandi.
Peyton bað ráðherrann um að
skýra sem fyrst frá ráðstöfun-
um ríkisstjórnarinnar vegna
þessa máls.
Danmörk og aðrar þjóðir
Efnahagsbandalags Evrópu
selja nú svínakjöt til Englands
á 200 sterlingspund tonnið. til
samanburðar kostar svínafóður
Englendinga 90 pund í inn-
flutningi hvert tonn.
Rikisstjórninni er vel kunn-
ugt um þá erfiðleika, sem
steðja að í svínakjötsframleiðsl-
unni. I október síðastliðnum
reyndi Silkin landbúnaðarráð-
herra að fá landbúnaðarráð-
herra Efnahagsbandalagsríkj-
anna að fallast á að minnka
niðurgreiðslur á svínakjöti til
útflutiiings án viðunandi ár-
angurs.