Dagblaðið - 06.01.1977, Side 7
I)A(ÍBI.AÐIÐ. FIMMTUIJACUR (i. JANUAR 1977.
Er nrtján þúsund tonna
olíuskip sokkið með
fullfermi og 38 manns?
Flugmenn leitarflugvéla frá
Kanada og Bandaríkjunum
hafa séö fjórar stórar olíu-
breiður á Norður-Atlantshafi
en mikil leit er nú hafin að
olíuskipi frá Panama, sem
hvarf fyrir viku síðan.
Verið er að kanna olíuna til
þess að ganga úr skugga um,
hvort hún geti verið úr olíu-
skipinu, sem er tæp 19 þúsund
tonn að stærð. Sagði talsmaður
strandgæzlu Bandaríkjanna að
ef skipið sem heitir Grand
Zenith, myndi ekki finnast í
dag, yrði að telja það sokkið.
„Við erum búnir að leita í
sjónflugi og með radar á svæði
sem er eins stórt og Nýja Eng-
land," sagði hann við frétta-
menn. „Ef við finnum ekki
skipið í dag, eru það heldur
slæmar fréttir.“
Tölvur hafa verið notaðar í
leitinni að skipinu og hafa skip
og flugvélar leitað vandlega á
258 þúsund ferkílómetra svæði
að Grand Zenith, sem var með
8.2 milljónir gallona af þungri
iðnaðarolíu innanborðs. 38
manna áhöfn var á skipinu.
I síðasta skeyti frá skipinu
sagði, að það væri statt um 60
sjómílur undan strönd Nova
Scotia og að miklir sjóar og
vindur, hefði orðið til þess, að
þeir hefðu orðið að hægja feró-
ina. Á þessum slóðum hafa olíu-
breiðurnar fundizt og er búizt
við hinu versta.
Oliuflekkir á Atlantshafi
úr oliuskipinu Arko
Merchant. sem enn er verið
að deila um. Nú hafa sézt
olíuflekkir á hafinu undan
Nova Scotia þar sem óttazt
er að olíuskipið Grand
Zenith hafi sokkið og með
þvi 38 manna áhöfn.
Enn eitt alvarlegt olíuslys
blasir því við mönnum. því
um borð í skipinu voru um
33 milljónir lítra af iðnaðar-
olíu og er alls óvíst hvort
hægt verði að bægja tjóni
því sem af henni kann að
verða frá fiskimiðum.
Óeirðum lokið á Filippseyjum
Moro-hreyfingin
sigraði — sjálfs-
st jórn í aprfl
Stjórn Filippseyja hefur
ákveðið að koma á fót
héraðsstjórn í héruðum
múhameðstrúarmanna á
suðurhluta eyjanna, sem
hluta af samkomulagi við
skæruliða þá, sem barizt
hafa fyrir sjálfstæði undan-
farin ár.
Verður heimastjórninni
komið á laggirnar eftir að
formlegur friðarsamningur
verður undirritaður ai full-
trúum ríkisstjórnarinnar og
fulltrúum Moro-
frelsishreyfingarinnar
sennilega snemma í apríl.
Segir í fréttum þaðan, að
héraðsstjórn þessi muni eiga
að fara með völd, þar til al-
rnennar kosningar verði
haldnar og sérstakt héraðs-
þingkjörið.
Jóhannesarborg:
NÁMSMENN í
S0WET0 TINAST
TILBAKA
Svartir námsmenn í út-
borginni Soweto við Höfða-
borg í S-Afríku hófu að
tínast til skólanna, eftir að
þeir voru opnaðir að nýju í
gær, en margir þeirra héldu
sig þó í burtu. Flestir þeirra,
sem ekki mættu eru úr
röðum eldri námsmanna,
sem greinilega vilja notfæra
sér þetta vopn öllu lengur.
Skólunum var lokað eftir
að óeirðirnar hófust í júní í
fyrra. Síðan það gerðist,
hafa stjórnvöld gert ýmsar
breytingar, til batnaðar, s.s.
komið á skyldunámi fyrir af-
rísk börn og nú fá yngri
börnin ókeypis skólabækur.
Andar köldu
a mdli Eþiopiu
og Súdans
Samkvæmt fréttum hafa
stjórnir Eþíópíu og Súdan hvor
um sig kallað heim sendiherra
sína til viðræðna urn versn-
andi samkomulag á milli ríkj-
anna tveggja.
Jaafar Numeiri hefur tvisvar
sinnurn sakað Eþíópíustjórn
um það að leyfa óvinveittum
hersveitum að setja á stofn
æfingabúðir við landamærin.
Sendiherra Súdans í Eþíópíu,
Taha Ayoub, fór til Khartoum
sl. mánudag, en Tadessa, sendi-
herra Eþíópiu er kominn til
Addis Ababa, þar sem her-
foringjastjórnin ætlar að
kanna, hvað hæft sé í
ásökunum Numeiris „eftir
viðeigandi leiðum”, eftir því.
sem fréttir herma.