Dagblaðið - 06.01.1977, Blaðsíða 9
DAC'iBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. JANUAR 1977.
r
Ovenjumikið vatn
íMarkarfljóti
Bændur í V-Eyjafjallahreppi i
Rangárvallasýslu muna ekki eftir
jafnmiklu vatni í Markarfljóti um
margra ára skeió og var í fljótinu
í fyrradag.
„Það er rétt, ég man ekki eftir
svona miklu vatni i fljótinu
lengi,“ sagða Jón Kjartansson í
Eyvindarholti í samtali við DB.
„Það var líklega meira fyrir
nokkrum árum þegar gerði hlaup
og hrundi úr innsta hausnum í
Steinsholti ofan í jökullónið.“
Jón sagðist helzt geta sér þess
til að ástæðan fyrir þessu mikla
vatni í fljótinu væri hlýindin og
rigningin þar eystra á sunnudag
og aðfaranótt mánudagsins.
„Við höfum að visu ekkert at-
hugað þetta," sagði Jón, „en það
er enginn vafi á því að þetta var
með því mesta sem verður i Mark-
arfljóti."
-OV
Pjetur Maack
framkvæmda-
stjóri
Tónabæjar
Pjetur Þ. Maack hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Tóna-
bæjar frá og með áramótum að
telja. Hann kemur í stað Ömars
Einarssonar sem nú gegnir stöðu
fulltrúa framkvæmdastjóra
Æskulýðsráðs Reykjavíkur.
Borgarráð staðfesti ráðningu
Pjeturs í stöðu framkvæmda-
stjóra sl. þriðjudag en Æskulýðs-
ráð Reykjavíkur hafði áður sam-
þykkt að ráða hann.
Pjetur Þ. Maack er nýútskrifað-
ur guðfræðingur. Hann hefur um
nokkurra ára skeið starfað laus-
ráðinn í Tónabæ og að auki verið
einn af frammámönnum ung-
mennastarfs Rauða kross íslands.
Hann er 27 ára gamall.
-ÖV
1965- 2. FL.
1966- 2. FL.
1968-1. FL.
1968- 2. FL.
1969- 1. FL.
1970- 2. FL.
1972-1. FL.
20.01.77-20.01.78
15.01.77-15.01.78
25.01.77-25.01.78
25.02.77 - 25.02.78
20.02.77 - 20.02.78
05.02.77 - 05.02.78
25.01.77-25.01.78
KR. 176.169
KR. 149.830
KR. 122.702
KR. 116.049
KR. 86.649
KR. 58.583
KR. 48.285
INNLAUSNARVERÐ *)
FLOKKUR INNLAUSNARTlMABIL 10.000 KR. SKÍRTEINI
Talía féll ofan á (amerískan) bíl:
SKEMMDIR
ÓRTÚLEGA
LITLAR
Líklega verður það ekki af
amerísku bílunum skafið að allf
frá því að Henry Ford datt niður á
T-módelið af Fordinum sínum
hafa bílar frá Ameríku þótt
traustlega byggðir. Það sannaðist
i gær þegar það óhapp varð við
Austurver að risastór talía féll
niður úr krana ofan á bíl,
amerískan. Eins og myndirnar
sýna hefur fallið verið mikið og
talían lent á bílnum af miklu afli.
En sjá, skemmdirnar voru hreint
ekki svo miklar. (DB-myndir Sv.
Þorm.)
Breytingar á hegningarlögum:
Hámarkssekt
fimm milljónir
„Það merkasta í þessum
breytingum er tvímælalaust
sektarákvæðið, breytingin á há-
markssekt i fimm milljónir,"
sagði Jón Thors, deildarstjóri í
dómsmálaráðuneytinu og ritari
hegningarlaganefndar, í sam-
tali við DB um breytingar á
hegningarlögum sem sam-
þykktar voru á Alþingi fyrir
jól.
Samkvæmt gömlu ákvæðun-
um var hámarkssekt 30 þúsund
krónur með vísitölu frá 1948.
Að sögn Jóns hafa dómstólar
túlkað þá grein, 50. grein al-
mennra hegningarlaga, á þann
veg að ekki væri hægt nema að
þrefalda upphæðina en með
breytingunni nú má sekt ekki
vera hærri en fimm milljónir,
„nema heimild sé til þess í öðr-
um lögum," eins og segir í
greininni.
„Það hefur ekki reynt á þetta
fyrir hæstarétti," sagði Jón
Thors, „en héraðsdómarar hafa-
túlkað þetta á þennan veg, þ.e.
að hægt sé að þrefalda sektar-
upphæðina eins og hún var í
lögunum frá 1940 með breyt-
ingunum frá 1948.“
-ÓV
[ DAGBLAÐIÐ er smáauglýsingablaðið ]
AUGLÝSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERDTRVGGDRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓDS
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðla-
banka íslands, Hafnarstræti 10, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin
Reykjavík, (janúar 1977.
P) SEÐLABANKI ÍSLANDS