Dagblaðið - 06.01.1977, Síða 12
DA(iBLAt)If). KIMMTUDAGUR 6. JANUAR 1977.
12
I
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Eþróttir
ímTTTWI
Crerand
hættur hjá
Northampton
Pal Crerand. fyrrum leikmaAur
og aðstoðarframkvæmdastjóri
Manfhester United. sagði af sér í
ga‘r framkvæmdastjórastöðu 3.
deildarliðs Northampton. Crer-
and sagði í I$BC í ga*r að hann
hefði sagt af sér stöðunni vegna
hinna liingu ferðalaga frá
Manehester til Northampton. sem
er í Miðlöndunum.
Crerand tók við stöðunni hjá
Northampton eftir að liðið hafði
unnið sig upp úr 4. deild síðast-
liðið vor. Framkvæmdastjóri
Northampton síðastliðið keppnis-
tímahil var Bill Dodgin en hann
hætti hjá félaginu.
Crerand tók við stöðunni í
haust — en liðinu hefur ekki
vegnað vel — er nú í na'stneðsta
sæti 3. deildar. A síðasta áratug
vakti lið Northampton ntikla at-
h.vgli. Undir stjórn Dave Bowen
vann liðió sig upp úr 4. deild í 1.
deild á fáum árum — var í 1.
deild 1965-66 en féll strax í 2.
deild. Síðan hefur saga
Northampton verið samfelld sorg-
arsaga — liðið féll þegar í 3. deild
og þaðan í 4. deild. En loks síðast-
liðið vor virtist birta til hjá
liðinu. það hafnaði í öðru sæti 4.
deildar. Fallhættan vofir nú yfir.
en vonandi tekst liðinu að bjarga
sér.
Crerand varð að hætta hjá
Manchester United vegna yfir-
lýsts stuðnings við IRA — hann
var lengi hjá United eftir að hafa
verið kevptur frá Celtie. Lék hér
á Laugardalsvellinum með írska
landsliðinu. Ýnisir töldu að Crer-
and væri raunverulega maðurinn
á bak við velgengni Manchester
United síðastliðið keppnistímabil
og eftir að hann fór frá félaginu
hefur United ekki vegnað nógu
vel — heldur ekki Crerand.
Bayern Munchen
dæmt íbann
Alþjóða körfuknattleikssam-
bandið sektaði frægt lið í gær.
Bayern Munehen. og dæmi liðið í
bann í Evrópukeppni í eitt ár.
Liðið sem da‘mt var í bann er
kvennalið Bayern Munehen og
sektin var um 600 þúsund krónur.
Astæðan fvrir banninu var að
kvennalið Bayern Munehen tók
þátt í svokölluðum Liljana Bon-
ehetti Cup — og Bayern komst í
8-liða úrslit- með að sigra
Southgate frá Englandi í fyrstu
umferð. En kostnaðurinn reynd-
ist óviðráðanlegur — og liðið varð
að draga sig út úr keppninni.
Þetta líkaði Alþjóða körfu-
knattleikssambandinu að vonum
illa. setti á bannið og síðan
sektina þar sem Bayern Munehen
hafði ekki næga ástæðu til að
draga sig út úr keppninni að dómi
FIBA.
Sovétmenn sterkir
Sovézkir skautamenn hafa ver-
ið sigursælir á miklu skautamóti
sem nú stendur yfir í V-
Þýzkalandi. Sovétmcnn áttu þrjá
fyrstu menn í 500 metra skauta-
hlaupi. Glympíumeistarinn
Yevgeni Kulikov sigraði á 38.27
— annar varð Alexander Safro-
nov á 38.74 — þriðji varð Andrei
Malikov á 38.88.
Sama var uppi á teningnum í
1000 metra hlaupinu — nema þar
•íigraði Malikov á 1:19.48 —
Safranov varð annar á 1:19.69 og
Kuliko\ þriðji á 1:20.74.
Eftir f.vrri daginn á mótinu í
Inzell er staðan samanlagt:
1. Kulikov 78.490
2. Safronov 78.585
3. Malikov 78.620
I keppni kvennanna hefur
Silvia Burka frá Kanada forustu
eftir f.vrri daginn. Hún hafnaði í
öðru sa-ti i 500 metra hlaupinu —
á eftir Veru Krasnova l'rá Sovét-
ríkjunum. I 1500 metra hlaupinu
sigraði (ialina Nikitina frá Sovet
— og enn varð Ittirka í öðru saúi.
Staðan hjá konunum eftir f.vrri
daginnerþví: stig:
1. Burka 88.650
2. Brindzei 89.863
3. Nikitina 90.953
Maríanne Dollis greinilega ánægð með hlutina. DB-mynd Bjarnleifui*.
— landsliðiðgegn
pressunni á föstu-
dagvalið
íslenzka landsliðið í handknatt-
leik. sem á föstudag leikur við
pressulið sem íþróttafréttamenn
munu velja. hefur verið valið — í
gærkvöld eftir æfingu lands-
liðsins. Þrír leikmenn, sem ekki
hafa verið með í undanförnum
leikjum. hafa hafið æfingar með
liðinu — Arni Indriðason Gróttu
og þeir Ólafur H. Jónsson og Axel
Axelsson hjá Dankersen. Arni
verður ekki með liðinu á föstudag
— en hins vegar þeir félagar hjá
Dankersen.
Liðið er þannig skipað:
Markverðir:
Ólafur Benediktsson Val
Gunnar Einarsson Haukum
Aðrir leikmenn:
Geir Hallsteinsson FH
Þórarinn Ragnarsson FH
Viðar Símonarson FH
Jón H. Karlsson Val
Bjarni Guðmundsson Val
Ólafur Einarsson Víking
Björgvin Björgvinsson Víking
Viggó Sigurðsson Víking
Axel Axelsson Dankersen
Ólafur H. Jónsson Dankersen
Agúst Svavarsson.
Pressuleikirnir um helgina
verða tveir — á föstudag og
sunnudag. Þorbjörn . Guðmunds
son getur ekki leikið með þar sem
hann hefur enn ekki náð sér eftii
meiðsli. Æfingar landsliðsins eru
nú mjög stífar og æfingasókn
hefur. verið með ágætum.
Ekki bara knattleikir
sem þurfa nýja tækni
- sagði Marianne Dollis, fimleikaþjálfarinn
norskihjá Gerplu
Þær voru ekki smeykar
stúlkurnar. sem voru á æfingu í
Kennaraháskólanum við heljar-
stökk eða flikk flakk undir
leiðsögn Marianne Dolles íþrótta-
kennara frá Osló í Noregi. Þarna
voru maútar 14 stúlkur sem eru i
fimleikafélaginu Gerplu úr Kópa-
vogi. Félagið hefur fengið Mari-
anne til að þjálfa sín beztu efni
frá þriðja til sextánda janúar.
Hún hefur lokið prófi frá
Iþróttakennaraháskólanum í Osló
og stundur nú framhaldsnám með
kennslu fatlaðra i huga. Hún
hefur einnig keppt fyrir land sitt.
en síðan hún settist á skólabekk
hefur hún verið leiðbeinandi þeg-
ar stundir gefast. Marianne var
hæst ánægt með stúlkurnar og
sagði að þær hefðu góða grunn-
þjálfun, en áherzlu þyrfti að
leggja á ýmis tækniatriði.
Gerpla mun vera fyrsta fim-
leikafélagið sem ræður til sín er-
lendan starfskraft til að þjálfa
fólk sitt. Aðstandendur félagsins
fóru þess á leit við Iþróttasam-
band Islands að fá hingað þjálf-
ara fyrir flokk sinn frá Noregi.
Eins og gefur að skilja er svona
heimsókn mjög vel þegin og að
sögn forráðamanna félagsins
hefur áhuginn aldrei verið eins
mikill og einmitt nú. Það iíður
varla sá dagur að ekki hringi -ein-
hver eða komitilað spyrjast fyrir
unt starfsemina. Framförin hefur
líka verið mikil í fimleikum
undanfarin fjögur til firnrn ár.
Stúlkurnar sem eru 14 ára
minnast þess þegar þær klöppuðu
fvrir þeim sem gátu farið kollhnís
á ólympíuslánni, eða gert önnur
einföld atriði. Nú leika
stúlkurnar alls konar listir sem
líkjast miklu meira þeim æfing-
um, sem t.d. Olga Korbút gerir
þegar hún bregður sér á jafn-
vægisslá.
Heimsókn fimleikaflokka er-
leiídis frá. t.d. sovezka fimleika-
fólksins í haust. hefur átt sinn
þát! í þvi. að hér hefur orðið á
mikil breyting i framfaraátt. Það
eru ekki bara knattleikarnir sem
þurfa á nýrri tækni að halda.
Framtak Gerplu er svo sannar-
lega eftirbreytni vert. -KP
Klappa saman höndunum —
Agúst Svavarsson og Magnús Sig-
urðsson klappa saman höndunum
en i bakgrunninum eru þeir Þor-
bergur Aðalsteinsson og Þórarinn
Ragnarsson.