Dagblaðið - 06.01.1977, Blaðsíða 13
DACilM.Atm). FIMMTUDACUK «. .IANUAK 1977.
13
Iþróttir
þróttir
Iþróttir
Iþróttir
Lögð á ráðin — Janusz Czerwinskv leggur á ráðin með þeim Axel Axelss.vni og Ólafi H. Jónssyni. DB-mynd Bjarnleifur.
Slask Wroslaw leikur
og æfir með landsliðinu!
— pölsku meistararnir koma hingað 9.-16. febrúar og æfa tvívegis á dag með landsliðinu
Þeir félagar h.já Dankersen.
Axel Axelsson og Ólafur H. Jóns-
son. hittu í f.vrsta sinn saman
jandsliðsþ.jálfarann Janusz Czer-
winsky á æfingu í gærkvöld og fór
æfingin fram í Laugardalshöll-
inni. Góð stemmning var á æfing-
unni — verkefnin Jramundan
gevsimikil og fram að B-
keppninni verður æft á hverjum
einasta degi. Janusz kom til
landsins aftur seint í fyrrakvöld
— hafði tafizt um sólarhring
milli Varsjár og Kaupmanna-
hafnar.
En Janusz Czerwinsky kom
með glaðning — pólsku
meistararnir Slask frá Wroslaw
munu dvelja hér í viku og æfa
með íslenzka landsliðinu. Pólverj-
arnir koma hingað 9. febrúar og
halda utan aftur 16. febrúar. Þeir
mun æfa og leika með landsliðinu
eins og Janusz leggur upp —
tvisvar á dag, í hádeginu og á
kvöldin. Leiknir verða 2-3
opinberir leikir. Vart þarf að
kynna Slask — liðið lék hér fyrir
sköramu við FH í Evrópukeppn-
inni og þá hreif stórskyttan
Klempel áhorfendur en auk þess
hefur liðið á að skipa einum bezta
markverði í heimi rg gífurlega
sterkum línumanni, sem raunar
kom ekki með liðinu í fyrri leik-
inn gegn FH. En í liðinu er fjöldi
landsliðsmanna.
Markmiðið er augljóst —
pólskur handknattleikur á að
verða fyrirmyndin og það þarf
sannarlega ekki að sýta —
pólskur handknattleikur er mjög
hátt skrifaður í dag. Crefnilegt er,
að Janusz leggur mikinn metnað í
að búa Island eins vel og nokkur
kos'ur er undir B-keppnina og
ætlar liðinu mikið.
Klempel lék um jólin með
pólska landsliðinu í jóiamöti i Pöl-
landi og skoraði þá 48 miirk i 5
leikjum — í haust lék hann í
Tiblisi og |>á skoraði kappinn 38
miirk i 3 leikjuin svo varnir eiga
— rétt eins og FH átti — í mikl-
'um erfiðleikum með að hemja
þennan frábæra pólska leikmann.
Arni Indriðason mætti á sína
fyrstu æfingu með landsliðinu í
gærkvöld, en Ólafur Benedikts-
son hélt til Svíþjóðar í gær-
rnorgun en kemur hins vegar
fyrir vikulokin og mun leika
pressuleikina um helgina.
Sú breyting hefur orðið á hög-
um Ölgfs, að hann mun ekki halda
til Svíþjóðar fyrr en að lokinni
B-keppninni.
Þeir Axel og Ölafur fara utan
bráðlega — Axel á laugadag en
Olafur á þriðjudag. Þeir munu
leika við Mai frá Moskvu í Mind-
en þann 23. janúar og koma strax
aftur þann 24. janúar. Einmitt
þann daginn leikur Island fyrri
landsleik sinn við Pólland og hinn
síðari þann 25. janúar. Síðan
verða landsleikir við Tékka dag-
ana 27. og 18. janúar — og munu
þeir félagar sennilega leika fyrri
leikinn. Dankersen á síðan að
leika við Gummersbach í
deildinni í V-Þýzkalandi þann 29.
janúar.
Dagana 5. og 6. febrúar eru
leikir við V-Þýzkaland hér í
Reykjavík og þá verða þeir félag-
ar einnig með. Siðari leikur Dank-
ersen við Mai verður að öllum
líkindum 9. febrúar — og er þá
meiningin að þeir félagar reyni
að koma til tslands beint og taka
þátt í æfingum með Slask — verk-
efnin eru gífurleg.
tslenzkir handknattleiksunn-
endur munu áreiðanlega standa
að baki undirbúningi íslenzka
landsliðsins — áreiðanlega má
segja að nú sé gert mesta átak
fyrr og síðar í sögu íslenzka lands-
Iiðsins til að koma tslandi á blað
með fremstu handknattleiks-
þjóðum heims. — Sá sviti, erfiði
og fórnir, sem leikmenn og
aðstandenur íslenzka landsliðsins
hafa lagt á sig mun metið að verð-
leikum af íslenzkum handknatt-
leiksunnendum — hvort heldur
tekst að koma íslandi á bekk
fremstu handknattleiksþjóða
heims eða ekki — sem við þó
vonum að verði. Óhemju fé og
gífurlegum tíma og erfiði er
fórnað.
Flýg ég um loflin blá — madti hugsa sér að Jón H. Karlsson dreymdi um en undir handarkrika Jóns er
Bjiirgvin Bjiirgvinsson. þá Viggö Sigurðsson. síðan Kristján Sigmundsson. Þorbjörn Cuðnuindsson.
Cunnar Kinarsson og loks Janusz Czerwinskv. DB-mvnd B jarnleifur.
l.deildarliðin
huga að
þjálfurum
ísienzku 1. deildarliðin í knatt-
spyrnu hafa sum þegar ráðið til
síii þjálfara fyrir keppnistíma-
bilið 1977. Ljóst er að íslenzkir
þjálfarar eru aftur farnir að
koma inn á markaðinn í 1. deild í
auknum mæli.
Þegar hafa fjögur lið ráðið tii
sín þjálfara — íslandsmeistarar
Vals hafa ráðið Youri Ilichev,
Víkingar hafa ráðið Billy Hay-
dock. ÍBV hefur ráðið George
Skinner. Allir þessir menn voru
með liðin í fyrra — Keflvíkingar
og FH-ingar hafa ráðið til sín
ístenzka menn — Keflvikingar
hafa ráðið Hólmbert Friðjónsson
og FH-ingar Þóri Jónsson.
Blikarnir hafa enn ekki ráðið
þjálfara en líklegt er að Þor-
steinn Friðjónsson verði áfram
með liðið — hvað Fram snertir þá
hafa þeir verið að leita hófanna
hjá Tony Knapp en nú upp á
síðkastið hjá Antoni Bjarnasyni.
Akurnesingar og George Kirby
hafa staðið í bréfaskiptum — og
hefur Kirby, sem gerði svo mikið
f.vrir Skagamenn, lýst áhuga sín-
um á að koma.
Þór hefur hug á að fá Reynolds
aftur en hann þjálfaði liðið þegar
það ávann sér rétt til að leika í 1.
deild í haust er liðið sigraði Þrótt
2-0. Þá er aðeins KR eftir og þar
eru hlutirnir óljósir — KR-ingar
hafa staðið í sambandi við aðila
erlendis en enn er óljóst hvað úr
verður — liklegt þó að erlendur
þjálfari taki við liðinu í sumar.
Benfica missti
dýrmætt stig
Þrír leikir fóru fram í 1. deild í
Portúgal i gærkvöld. Benfica
missti óvænt stig til Beira Mar —
og Sporting hefur því nú náð 6
stiga forustu. En lítum á úrslitin í
Portúgal:
Beira Mar—Benfica 2-2
Portimonense—Varzim 2-1
Sporting—Academico 2-0
Staðan er nú í Portúgal eftir 12
umferðir: Sporting Lisbon 23
stig. — Benfica 17 — Porto 16 —
Setubal 15 — Estoril 13 —
Boavista 12 — Academica 12 —
Varzim 12 — Braga 11 —
Belenenses 11 — Guimares 11 —
Leixoes 10 — Beira Mar 8 —
Montijo 7 — Portimonense 7 og
lestina rekur Atletico með 6 stig.
Heilt lið rekið
af leikvelli!
Það varð heldur en ekki uppi
fótur og fit þegar Uruguay og
Ecuador mættust í landsleik í
knattspyrnu í Montevideo i
Uruguay á þriðjudag. Hvorki
__tleiri né færri en 11 ieikmenn —
já ellefu leikmenn voru reknir af
leikvelli. Það er allt lið Ecuador!
Leikurinn var mjög harður og
grófur — og voru Ecuadormenn
sýnu verri. Þegar markvörður
Ecuador braut illa á einum
sóknarmanni Uruguauy sá dóm-
arinn sér þann kost vænstan að
reka manninn af leikvelli. — Nú.
— ekki olli það svo miklum vand-
ræðum. Leikurinn hófst að nýju
— þá hóf línuvörðurinn skyndi-
lega að veifa flaggi sínu af
miklum ákafa — ástæðan — einn
af leikmönnum Ecuador hafði
sagt eltthvað óviðurkvæmilegt við
línuvörðinn. Dómarinn rak
manninn útaf — þetta vildu aðrir
leikmenn Ecuador ekki sætta sig
við — þ.vrptust um dómarann
með miklum látum — svo
miklum að dómaranum þótti væn-
legast að reka þá alla níu af leik-
velli.
Þvi var enginn leikmaður
Ecuador eftir til að ljúka leikn-
um — Uruguay sigraði með eina
markinu i leiknum — hverju svo
sem það skipti.