Dagblaðið - 06.01.1977, Side 14
14
l)A<;BI,Af)lf> l'IMMTi;i)A<;UK 6. JANUAK 1977.
I kringum
skjáinn
V.
r
M;m nokkur hvað birtist á
skorminuni vikuna fyrir jól?
Kins (>k í þoku, litaðri rauóum
on bláum jólaperuni. mengaðri
ilmi af ka'kún eða bústinni næs
birtast óljósar myndir á stangli,
— jólabækur, húsgögn, raf-
magnstæki, já, og svo heilir
þættir, maður lifandi. Og þegar
töfralampinn er nuddaður
koma fram nöfn og söguþræðir.
Laugardaginn 18. desember var
á dagskrá nýtt fyrirbæri,
..Hjónaspil". Fyrirmyndin
sýnist mér amerísk, ein af því
taginu þar sem fólk fær
verðlaun fyrir að svala
sjúklegri forvitni áhorfenda
um einkamál sín. Þar skemmtu
in.a. Kúnar Júlíusson og konan
hans. Rúnar, vatnsgreiddur og
strokinn. söng um Jesúbarnið.
Öðruvisi mér áður brá. En hann
hefur sjálfsagt þurft að selja
það á skifu. Það eru ósköp
geðslegir blaðamenn sem
spyrja hjónakornin. en
þátturinn er sjálfur dæmi um
ákveðna afstöðu til kynjanna
og hjónabandsi' þótt hann sé
..bara leikur". 1 fyrsta lagi er
vinningurinn fólginn í því að
vera innilega sammála um alla
skapaða hluti, — en hver er
kominn til með að segja að það
sé kjarni ektaskapar? Númer
tvö. gengið er út frá því í öllum
spurningum að húsbóndi geri
eitt. en húsmóðir ávallt eitt-
hvað annað. Húsbóndi ekur að
sjálfsögðu bílnum og það er
bónus, ef húsmóðir fær að
snerta hann. Húsmóðir kaupir
sér nýjan kjól, sem húsbónda er
ætlað að taka eftir. Ekkert var
sþurt um það hvort húsbóndi
gæti ekki haft gaman af þvi að
sýna húsmóður nýju fötin sin.
(Og i næsta þætti fékk hús-
móðir klapp fyrir að geta skipt
um dekk). Ekki er þessi kyn-
skipting í spurningavali öll að
kenna þeim. sem börðu saman
spurningarnar. blessaðar
konurnar gengust upp í þvi að
koma til móts við þessa afstöðu.
Sunnudagurinn 19. des.
virðist hvað mig snertir hafa
liðið í þokunni. nema hvað
horft var á Adams fjölskylduna
i mínu húsi. Adams yngri
virdist heldur kuldalegri á
manninn en faðirinn og kona
hans er móöursjúk í meira lagi.
Ekki lofar það góðu um rnál
fjölskyldunnar. (Og þau enda
að sjálfsögðu í sorg og sút. í
næstu þáttumLA mánudaginn
20. mátti segja að dagskráin
væru allt að því glær: íþróttir.
dagskrárkynning og enda-
sléppur þáttur um fasisma á
Ítalíu. Svo langt er um liðið að
ég vil ekki eyða krafti í að-
finnslur um smáræði. Á
BARNASPIL
þriðjudaginn var adeins lífs-
mark með sjónvarpinu, en þá
kom Brúðan. nýr krimmi eftir
Francis Durbridge, sérfræðing
í efristéttarsakamálum. Mjög
ásjálegur. Síðan hvarf mér
skermurinn miðvikudagskvöld
ið í æðislegum hlaupum eftir
óvenjulegum jólagjöfum. Þegar
flutt var dagskrárkynning
mánudaginn, skríktu þau börn
af ánægju sem ég þekki. Ekki
var það nema von, því
sjónvarpsgeislum var nær
öllum beint til þeirra um jólin.
Við fullorðna fólkið urðum að
láta okkur nægja endurteknar
fræðslumyndir, svonefnd.ar
„heimsóknir," gamlar bió-
myndir og svo botnlaust létt-
meti á borð.við skemmtiþátt
Julie Andrews. Var nú ekki
hægt að spandera á okkur svo
sem einni 5-10 ára gamalli kvik-
mynd seint að kvöldi, þegar
jólasveinninn er loks farinn og
börnin sofnuð? Þetta reyna er-
lendar sjónvarpsstöðvar að
gera, ef það er nokkur
mælikvarði á það furðuverk
sem við eigum við að búa. Ekki
fundust mér heldur allar
áherslur réttar í laginu í þeim
þáttum. sem ætlaðir voru
hórnuiii og ekki varnemavonað
þau væru komin með það á
hcilann að Palli eða Aladdin
hefðu fæðst á jólunum. ekki
friðarhöfðinginn. A aðfangadag
gengu Prúðu leikararnir af
göflunum. Efnið er ekki neitt,
en sjállsagt má hafa gaman af
látunum í lit. Svo kom
glaðningur fyrir hörnin, en
eftir átið mátti melta ósköpin
með Tónlist frá 17. öld. en það
er reynslan mín að engin tónlist
sé eins góð f.vrir meltinguna.
Þar var snilldarlega leikið, en
myndataka eins og verið væri
að mynda hljóðfæraleikarana'
leynilega í myrkviði glitrandi
furðugróðurs. A laugardag var
á boðstólum tékkneskur Don
Giovanni eftir Mozart,
vandaður að því mér fannst.
Doninn var hressilegur. Donna
Anna að springa af ástríðum.
en Leporello var helst til
daufur. Vel gerður þáttur, —
en börnin flúðu í ofboði. En svo
fengu þau eitthvað fyrir snúð
sinn i Aladdín eða Töfralamp-
anum. 1 gamla daga hafði
maður mikið gaman af þessu
austurlenska ævintýri. En
ósköp hljómar það allt
annkannalega úr dönskum
munnum, og heldur betur er
teygt úr söguþræðinum. Á
sunnudag var loks smá fútt
fyrir millibilskynslóðina, —
Rokkveita Ríkisins. gQtt nafn
— þessar tvær stofnanir hafa
a.m.k. rafmagnið sameiginlegt.
Þar skemmtu Haukar og reynt
var að lifga upp á pleisið með
glitskreytingum og Ladda.
Þátturinn var líflegur og
óþvingaður og mætti segja mér
að hann yrði vinsæll ef fram-
haldið er eftir byrjuninni.
Mirade on 34th street var „sko
sannarlega jólam.vnd", — en
frá árinu 1947 og var um þetta
leyti sýnd í tíunda sinn suður á
velli, að því er sambönd mín tjá
mér, undir rós. Á mánudag var
Aladdín enn á skrá, síðan kom
upprifjun frá Genesaretvatni.
— og Júlía Andrews. —
dauðhreinsuð. hættulaus, og
bætir meltingúna. Aumt var að
sjá Peter Ustinov taka pátt í
iðju hennar. A þriðjudag
bötnuðu málin eilítið. Líklega
eru allir orðnir dauðlciðir á
Listahátíð en varla kvartar
maður meðan þau Helgi Tómas-
son og Anna Aragno dansa.
Hvilíkur þokki. samstilling og
mýkt. Annað efni það kvöld
hvarf næstum þvi i skuggann.
en þó gerði ég skyldu mína og
sat yfir Brúðunni eftir nokkrar
pírúettur um stofuna. Siðan
brá mér að sjá Olnbogabörn í
auðugum heimi og ætla ég að
vona að fleiri hafi brugðið
þannig við. Þetta var hollur
snoppungur eftir íburð og ofát
jólanna. Þennan þátt hefði átt
að sýna á aðfangadagskvöldið
sjálft. Gieðilegt ár.
Aðalsteinn Ingólfsson
Hún er f rekasti
krakki
sem ég þekki
— segir Walter Matthau um Tatum O’Neal
„Hún er einhver óþekkasti og
mest pirrandi krakki sem ég hef
komizt í kynni við," sagði Walter
Matthau um Tatum O’Neal eftir
að þau léku saman í kvikmynd á
árinu sem leið.
Tatum er tólf ára og dóttir leik-
arans Ryan O’Neal og sló fyrst í
gegn þegar hún lék á móti föður
sínum í myndinni Pappírstungl.
„Stelpan vildi alltaf ráða öllu
og þegar ég hótaði að flengja
hana, sagði hún skælbrosandi:
„Gjörðu svo vel." Þá gafst ég
upp."
Walter Matthau sagði einnig
við þetta sama tækifæri frá þvi
hvernig hann varð gamanleikari
fyrir hreina tilviljun.
Hann hafði leikið þrjátíu og
fimm alvarleg hlutverk á Broad-
wa.v. t einu leikriti átti hann að
koma inn og segja: Eg hef setið á
hestbaki i þrjátíu og átta tima og
er alveg dauðþreyttur!
Til þess að þetta yrði allt sem
eðlilegast gerði hann hundrað
hnébeygjur og bljóp nokkrum
sinnum í kringum leikhúsið.
Þetta varð til þess að hann fékk
blóðtappa í hjartað. Læknarnir
skipuðu honum aö taka lifinu með
ró.
Skömmu síðar var honum boðið
hlutverk i kvikm.vndinni Maka-
laus sambúð (The odd couple) á
móti Jack Lemmon. sem síðar átti
eftir að slá öll vinsældamet.
NÚ LANGAR BURTON AÐ
EIGNAST BARN
Þegar Richard Burton gekk að
eiga Suzy Hunt í vetur fékk hann
ekki bara nýja og unga eiginkonu.
Hann breytti lifnaðarháttum sín-
um gjörsamlega og hefur ekki
smakkað áfengi siðan. Hann er
líka hættur að fá æðisköst og nú
kaupir hann brjóstsykur í staðinn
fyrir demanta.
Hann lærir hlutverkin sín vel
og skilmerkilega og hefur fullan
hug á því að eignast barn með
ungu konunni sinni.
Burton hefur látið þau orð falla
um Elizabeth Taylor að hún hafi
verið alveg dásamlegur félagi til
þess að fljúgast á við.
„Mér þykir enn mjög vænt um
þá gömlu," sagöi hann þegar hann
var spurður að þvi hvers vegna
hann hefði kvænzt henni tvisvar!
Kichard Burton og liin unga og lagra Suzy IIiinl.
Nicky Hilton. erfinginn að
Hilton-auðæfunum. var eigin-
maður Liz. Hjónabandiö stóð i
eitt ár.
1953 giftist hún leikaranum
Michael Wilding og átti með
honum soninn Michael en þau
skildu síðan árið 1956.
Leikstjórinn Mike Todd var
stærsta ást Liz Ta.vlors. Þau
giftust árið 1957 en hann fórst í
bílslysi ári siðar.
Fáar konur geta breytt sér jafn-’
mikið og Liz Taylor. Annan
daginn er hún þreytt og sjúsk-
uð en liinn fallegri -og gla-si-
legri en uokkru sinni fyrr.