Dagblaðið - 06.01.1977, Síða 15
l)A(iBI.At)It). KIMMTUUAC5UR 6. JANUAR 1977.
Karímennimir í lífí Liz
Taylor eru margir ==T
Elizabeth Taylor
er nú komin í sitt sjö-
unda hjónaband.
Hún er nú 44 ára
gömul, andlitið er
farið að láta á sjá og
sumir telja hana
helzt til holduga.
Þrátt fyrir það er
hún enn ein af mest
aðlaóandi konum
veraldar. Þó hún
valdi oft hneyksli
tekur fólk henni
bara eins og hún er,
því hún er hlý í við-
móti og ósvikin. Hún
er hin eilífa kona.
Stundum hagar hún sér eins
og kjáni og oft hneykslar hún
fólk. Hún er til með að hátta
hjá 10 karlmönnum, hverjum á
eftir öðrum en þegar því er
lokið er hún ennþá sú kona sem
flesta heillar og flestir öfunda.
í stuttu máli sagt: Hún er Eliza-
beth Taylor.
Nú hefur hún gift sig á ný.
Það var í sjöunda skipti og i
þetta sinn er það hinn 49 ára
gamli John Warner, fyrrver-
andi flotamálaráðherra Banda-
ríkjanna. Hann er hennar sjötti
eiginmaður, þvi hún giftist
Richard Burton tvisvar.
og gleði þessa heims, sem
konur reyna oft á tíðum, sem
ekki hefur hent Liz Taylor,
annaðhvort í hennar einkalifi
eða á hvíta tjaldinu.
Aldurinn hefur sett sín mörk
á hana, en það gerir hana ekki
minna kvenlega.
Um þessar mundir vinnur
hún að upptöku á myndinni A
little night music í Vín. Ein-
hver sjúkleiki hefur hrjáð hana
undanfarnar vikur og segja
læknar það vera inflúensu, en
margir óttast að það sé alvar-
legra. Oft hefur hún verið lögð
inn vegna krabbameinsein-
kenna og sjálf hefur hún viður-
kennt að óttast þennan sjúk-
dóm. Að þessu leyti er hún ekki
frábrugðin öllum öðrum konum
i heiminum.
Milli hjónabandanna með Burlon var l.iz með hilasalanuni Ilenry
Wynberg. hann hélt að þau adluðu að fara að gifta sig, en eins og
margir aðrir varð hann fyrir vonhrigðum.
Aðeins eitt hjóna-
bandanna var langt
Flest hjónabanda Liz Taylor
hafa varað stutt. Frá þessu er
aðeins ein undantekning,
hjónabandið með Richard Burt-
on. Það stóð í 10 ár, frá
1963—1973, og þrátt fyrir að
þau séu enn á ný skilin eftir
annað hjónabandið sem stóð í
eitt ár, elska þau hvort annað
ennþá. En þau geta bara ekki
búið saman. Skapsmunir þeirra
l'alla ekki saman, hann flýr á
náðir flöskunnar en hún leggst
í móðursýki.
Burton hefur nú fundið sér
annan förunaut, fyrirsætuna
Susan Hunt, sem áður var gift
ensku kappaksturshetjunni
Jaines Hunt. og l.iz er gengin í
hjónaband með flotamálaráð-
herranum fyrrverandi.
Þreyttari og sjúkari en nokkru sinni áður berst Liz af öllum
kröftum við að ljúka hlutverki sínu ..A little night music“.
Ellimörkin sjást greinilega.
Söngvarinn Eddie Fischer varð
hinn fjórði í röðinni en hún
hafði þegar hitt Burton áður en
hún skildi við hann.
Hún hefur reynt allt
Jafnvel þær milljónir aðdá-
enda sem hún á um allan heim
geta ekki reiðzt henni fyrir
þann lífsmáta sem hún hefur
tamið sér.
Karlmenn eiga þann leynda
draum að þeir megi einhvern
tima hitta kvenmann sem líkist
henni. Bandarískar konur á
aldrinum 30 til 60 ára dá hana
og elska, því hún er tákn
þeirra.
Það er erfitt að nefna þá sorg
Nú er Liz hamingjusöm með nýjasta eiginmanni sínum. John
Warner. og er ekki annað að sjá en aðdáunin og kærleikurinn séu'
gagnkvæm.
Þrátt fyrir að Liz og Burton séu nú skilin öðru sinni. er enginn vafi
á að ást þeirra á sér enn djúpar rætur. Þau geta bara ekki búið
saman.
I.iz og Burton kynntust fyrst við töku stórmyndarinnar Kleópiitru
1962. Þessi mynd er l'rá því þau giftu sig i annað sinn og þá i Afriku
■irið 1975.