Dagblaðið - 06.01.1977, Síða 24
„ENDALAUS LISTI
VERDHÆKKANA”
—segir hagf ræðingur ASÍ
HÆKKANIRNAR DYNJA YFIR:
Póstur, sími, rafmagn,
hiti og gosdrykkir r
£ tClUTnlallSa ^xr
helur v!"MröM^au'r
,„k (*r hin^ vo
LaunaloK ver61ags
ar alls en9.aaar a kaup
bartur 9rc^ ., „ k.. svo
tvrr eo '■ ,ma „a bewar
....»»J"“S‘S
»,lu , ... ha*Wku«"
U iu-nsii' i'»'KK
H Ah^onHvin'"
n,vndatn»"'
ah kv.k
‘ h.rkkuhu um
un» ^’ k V lf um
i T«b»k haWk.. w
Alenft' ha‘lK'1
WUV ««
■%zzss2~*"\.
p' „. manuftl _a riVis
„Þetta er endalaus listi,“
sagði Asmundur Stefánsson,
hagfræðingur Alþýðusam-
bandsins, í morgun um verð-
hækkanirnar sem dunið hafa
yfir. Hann sagði að hækkun á
pósti, síma, rafmagni og hita
mundi valda um eitt prósent
hækkun framfærslukostnaðar.
Að öðru leyti væri dæmið
ekki enn reiknað. „Mig furðar
mest á hækkunum pósts og
síma,“ sagði Ásmundur. Þau
gjöld hefðu nú hækkað um yfir
200 prósent síðan 1974, meðan
laun hefðu hækkað um tæplega
100 prósent og byggingarkostn-
aður innan við 100 prósent.
Asmundur sagði, að sumt af
hækkunum í skriðunni nú
hefði mátt sjá fyrir en annað
hefði komið á óvart.
-HH
Seinni hluti vetrar virðist ætla að verða vetrarlegri en sá f.vrri. I bálviðrið út af og bíleigendur komust hver til síns heima klakklaust
Loks um áramótin kom snjór á höfuðborgarsvæðinu. 1 gærdag leit að mestu. en lögreglan hafði í nógu að snúast. því margir réðu illa
út fvrir að götur borgarinnar ætluðu að teppast. í verstu hrvðjunum við bíla sína vegna hálkunnar. Skemmdir voru þó hvergi miklar.. —
gekk umferð fremur treglega. En þegar leið á daginn lognaðist DB-mynd Sv. Þorm.
Þeir fundu fyrir roki
í Eyjum í nótt
Ofsaveður gekk yfir Vest-
mannaeyjar í nótt og olli það
tjóni í höfninni sem enn er
ókannað. Tvo báta sleit upp.
Voru þetta 60-70 tonna bátar
sem Iágu innan á Nausthamri
og rak inn eftir höfninni. Rak
þá á trillur og brutu þær að
einhverju leyti, sem enn var
ókannað í morgun. Trillurnar
möruðu í hálfu kafi eftir.
Fimm eða sex aðra báta sleit
aö einhverju leyti frá bryggju
en þó ekki svo að ekki væri
hægt að bjarga niálum og festa
þá aftur. Lögreglumenn. sjó-
menn og ýmsir aðrir unnu að
björgunarstörfum í nótt. Ræsti
lögreglan út forráðamenn báta
og í morgun var komið lið að
höfninni. Mikið veður var þá
enn i Eyjum og litlu eða engu
minna en var í mestalla nótt.
Báta sleit upp
ogjárnplötur
fuku
Lögreglan var og kölluð til
þar sem heilu búntin af báru-
járnsplötum voru að fjúka.
Ekki varð vitað til skaða af
völdum foks. Tíu vindstig voru
á Stórhöfða og mun meira í
hviðum. Kóf var á og haugasjór.
-ASt.
fijálai, áháð dagblað
FIMMTUDAGUR 6. JANUAR 1977
Margeir í
18.-24. sæti
—tapaði ísíðustu
umferðinni
Hinn 16 ára gamli skákmaður
Margeir Pétursson tapaði í 13. og
síðustu umferð heimsmeistara-
móts unglinga í skák. Lék hann á
móti Campora frá Singapore.
Mótinu lauk í Groningen í
Hollandi I gær.
Mark Diesen frá Bandaríkjun-
um varð heimsmeistari unglinga
og hlaut hann 10 vinninga. í öðru
sæti varð Ftacnic frá Tékkó-
slóvakíu með 9'á vinning en í
þriðja sæti Grinberg frá Israel
með níu vinninga. Margeir lenti í
18.—24. sæti með 7 vinninga af 13
mögulegum, en alls voru kepp-
endurnir 54.
-JB
Vestanáttin
gengur niður
og sn jókoma í
fyrramálið
„Þetta er aðeins venjuleg vest-
anátt með éljaveðri," sagði
Markús A. Einarsson veður-
fræðingur þegar við spurðum
hann í morgun hvort vetur
konungur væri á næsta leiti.
„Það hefur verið hvassviðri eða
stormur við suðurströndina en
þessi vestanátt gengur niður í dag
og í kjölfarið má búast við að
hann snúist til suðvestanáttar og
búast má við snjókomu í fyrra-
málið.
Það er ekkert útlit fyrir meiri
kulda á landinu en nú þegar er,“
sagði Markús.
-A.Bj.
ÞRIR MEÐ FULLFERMI
—20 bátar byrjaðir veiðar og fleiri væntanlegir á miðin
„1 morgun hafa þrír bátar
tilkypiit sig með fullfermi en
það eru Grindvíkingur GK með
480 tonn á leiö til Siglufjarðar,
Asberg RE með 340 tonn á loið
til Siglufjarðar og Pétur Jóns-
son RE ætlaði til Raufarhafnar
með 400 tonn," sagði Andrés
Finnbogason hjá Loðnunefnd,
þegar við inntum hann eftir
gangi mála í morgun.
Það voru 10 bátar á miðunum
í nótt og allir voru búnir að fá
eitthvað en þessir þrír áður-
nefndu héldu tíl lands. Uin há-
degisbilið i gær voru 20 skip
farin til veiða svo það bætast
alla vega 10 i hóp þoirra sem á
miðunum eru. Þar var sæmilegt
veður í nótt, en undir morgun-
inn versnaði það og var komið
afleit! veiðiveður i morgun.
Arni Friðriksson tilkynnti uni
loðnu nokkuð dýpra en svæði
það seni nú er veitt á.
Eins og frarn hefur komið
hefur loðnuverð nú verið
ákveðið eftir fituinnihaldi loðn-
unnar i fyrsta sinn. Gildir verð-
ið til 30. apríl. Verðið er 6 krón-
ur miðað við 8% fituinnihald.
Loðnan er ávallt feitust í byrj-
un vertíðar, en svo fer fituinni-
haldið lækkandi þegar liðtir á.
Sú loöna sem veiðist nú er
sennilega 12-14'Y, feit og fást
því ca. 10 krónur fyrir hvert
kíló af þessari loðnu.
Byrjað var að bræða í Síldar-
verksmiðju Rikisins á Siglu-
firði i morgun. Þar hafa þrjú
skip landað og tvö eru á leið-
inni með fullfermi.
-KP