Dagblaðið - 27.12.1977, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 1977.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Man. Utd. hafði skorað fimm
þegar Everton komst á blað!
—Everton tapaði ífyrsta skipti ífjóra mánuði. Nottingham Forest jókforustu sína íþrjú stig
„Hún fór beint til hjartans,
lexian, sem við hlutum hjá Notting-
ham Forest", sagði Lou Macari,
skozki landsliðsmaðurinn hjá
Manch. Utd. eftir stórsigur hins ðút-
reiknanlega liðs hans á Goodison
Park í Liverpool í gær. Manch. Utd.
sem níu dögum áður hafði
steiniegið á heimavelli gegn efsta
liði deiidarinnar, Nottingham For-
est, lék sér nú að liðinu, sem er í
öðru sæti í 1. deiid. Hafði skorað
fimm mörk áður en Everton komst
á blað og vann 6-2. Það var fyrsti
tapleikur Everton í f jóra mánuði —
fyrsti tapleikur liðsins í 23 leikjum.
Það voru sannarlega óvæntustu úr-
slitin í ensku knattspyrnunni í gær.
„Gegn Forest heppnaðist ekkert hjá
okkur — en nú heppnaðist aiit. Við
þurftum sannarlega á góðum sigri
að halda eftir útreiðina gegn
Forest. Maður veit aidrei hvað getur
skeð í knattspyrnu — og við ieikum
alitaf eins og bikarlið. Getum unnið
hvaða lið, sem er á góðum degi —
ifka tapað fyrir slökum liðurn",
sagði Macari ennfremur en hann
var aðalmaður United gegn
Everton.
Everton-liðið — fullt sjálfstrausts
eftir velgengni siðustu mánaða —
byrjaði betur gegn Manch. Utd. í
gær en tókst ekki að skora. Á 27.
mín. brauzt Macari i gegn og skoraði
fyrsta mark leiksins og við það fyllt-
ust bikarmeistararnir sjálfstrausti.
Gordon Hill skoraði annað mark
liðsins á 41. min. og staðan i hálfleik
var 2-0. A 54. min. skoraði Macari
annað mark sitt og fimm mfnútum
síðar sendi Trevor Ross, sem komið
hafði inn sem varamaður hjá
Everton í byrjun siðari hálfleiks, í
stað Jimmy Pearson, knöttinn 1 eig-
ið mark — aðþrengdur af Sammy
Mcllroy. A 70. min. skoraði Jimmy
Greenhoff fimmta mark Manch.
Utd. — staðan 5-0. Og markaregnið
hélt áfram. A 73. min. skoraði Bob
Lartchford fyrsta mark Everton en
Mcllroy svaraði með marki á 76.
mín. A 78. min. skoraði Martin
Dobson annað mark Everton og þar
við sat. Fleiri urðu ekki mörkin í
þessum mikla markaleik þessara
frægu Lancashireliða. Fyrsti tap-
leikur Everton frá 23. ágúst, þegar
liðið lék við Arsenal i Lundúnum,
var staðreynd.
„Þrátt fyrir að Nottingham
Forest hefur þriggja stiga forskot i
1. deild og þrátt fyrir velgengni
Arsenal siðustu vikurnar, held ég að
Liverpool sigri, þegar upp verður
staðið i vor. Liverpool er bezta
Iiðið,“ sagði Lou Macari einnig f
sigurvímunni á laugardag.
Evrópumeistarar Liverpool höfðu
þá einmitt náð stigi af efsta liðinu 1
Nottingham. Það var nokkuð, sem
leikmenn Liverpool gátu ekki reikn-
að með eftir fyrstu 20 mínúturnar á
City Ground i Nottingham. Þeir
voru þá sundurleiknir af
bráðsnjöllu Forest-liði. Jimmy Case
varð að yfirgefa völlinn á 4. mín. og
kom Ian Callaghan í hans stað hjá
Liverpool. Það virtist aðeins eitt lið
á vellinum og John Robertson fór
hroðalega með Joey Jones, bakvörð
Liverpool, en hann lék vegna þess
að Alan Hansen meiddist á æfingu
fyrir leikinn. „Robertson er eins og
Best, þegar hann var upp á sitt
bezta“, sagði Denis Law, Skotinn
frægi, sem var meðal fréttamanní
BBC í Nottingham. Hann var
greinilega ánægður með þennan
landa sinn — og það voru áhorf-
endur í Nottingham lika þvi í hvert
skipti, sem Robertson fékk knöttinn
hrópuðu áhorfendur mjög. En þrátt
fyrir yfirburðina tókst Forest ekki
að skora nema eitt mark. Það var á
20. mín. að Archie Gemmill skoraði
með góðu skoti af 20 metra færi. Tiu
min. síðar jafnaði Liverpool mjög
óvænt. David Fairclough lék upp
hægri kantinn og gaf vel á Steve
Heighway, sem renndi knettinum i
markið af stuttu færi. Metaðsókn á
leiktimabilinu var í Nottingham,
47.218 áhorfendur, og þeir fengu
nóg að sjá fyrir peninga sfna. Eftir
Leikmenn Man. Utd. voru í sviðsljósinu í gær, þegar
þeir skoruðu sex mörk gegn Everton. Hér sækja þeir
Brian Greenhoff og Stuart Pearson (nr. 9) að mark-
verði Norwich, Kevin Keelan, sem hefur átt hvern
snilldarleikinn á fætur öðrum síðustu mánuðina.
markið hresstust leikmenn Liver-
pool og spenna var mikil i leik
snjallra liða. Fleiri urðu mörkin
ekki en markverðirnir, Peter
Shilton hjá Forest, og Ray Clemence
hjá Liverpool, fengu nóg að gera.
Þeir sýndu líka hvers vegna þeir
eru álitnir beztu markverðir Eng-
lands — meðal beztu markvarða
heims. Vörðu snilldarlega.
Knötturinn gekk markanna á milli
og það var nóg að gera og sjá. Undir'
lokin fékk Forest hornspyrnu eftir
hornspyrnu, en allt kom fyrir ekki
— og liðin deildu þvi stigunum.
En það er vist kominn lita á úrslitin. tími til að
l.deiid
Arsenal-Chelsea 3-0
Aston Villa- Coventry 1-1
Bristol City-WBA 3-1
Everton-Man.Utd. 2-6
Leicester-Middlesbro 0-0
Man.City-Newcastle 4-0
Norwich-Ipswich 1-0
Nottm.For.-Liverpool 1-1
QPR-Derby County 0-0
West Ham-Birmingham 1-0
Wolves-Léeds 3-1
2. deild
Bolton-Notts Co. 2-0
Brighton-Bristol Rov. 1-1
Burnley-Blackburn 2-3
C.Palace-Luton 3-3
Hull-Oldham 0-1
Mansfield-Fulham 2-1
Millwall-Tottenham 1-3
Sheff. Utd.-Orient 2-0
Southampton—Cardiff 3-1
Stoke-Charlton 4-0
Sunderland-Blackpool 2-1
3. deild
Bradford-Wrexham 2-1
Cambridge-Port Vale 2-0
Chester-Shrewsbury 1-0
Colchester-Lincoln 1-1
Gillingham-Portsmouth 0-0
Hereford-Peterbro 0-0
Oxford-Swindon 3-3
Plymouth-Exeter 2-2
Preston-Bury 4-0
Rotherham-Chesterfield 1-2
Tranmere-Sheff.Wed. 3-0
4. deild
Aldershot-Brentford 1-0
Barnsley-Crewe 4-0
Darlington-Southport 3-0
Doncaster-Scunthorpe 1-1
Grimsby-Halifax 0-0
Huddersfield-Southend 2-0
Newport-Bournemouth 3-2
Rochdale-Wimbledon 3-0
Stockport-Reading 2-0
Swansea-Torquay 1-1
Watford-Northampton 3-0
York-Hartlepool 1-0
Arsenal fór létt með Chelsea,
David Price, Graham Rix og David
O’Leary skoruðu mörkin og það kom
því ekki að sök þó miðherjarnir,
Malcolm MacDonald og Frank
Stapleton ættu mjög slakan leik —
Stapleton svo, að honum var kippt
út af og Peter Simpson settur inn á.
Arsenal er nú komið í þriðja sætið
og eftir leikinn var framkvæmda-
stjóri liðsins, Terry Neil, spurður
hvort hann hefði leyst öll vanda-
málin, sem herjuðu á Arsenal
framan af leiktfmabilinu. „Já,“
sagði Neil, „það hefur tekizt og ég
er mjög ánægður með leikmenn. En
ég vona — það er jólaósk mín til
Arsetjal — að Alan Hudson verði
áfram -hjá Arsenal. Spánskt lið
hefur viljað fá hann en ég vona að
Hudson verði áfram hjá okkur.
Hann á nú við meiðsli að strfða — og
ég mun reyna að hjálpa honum á
allan hátt. Hann er snjall leik-
maður.“
Miðvörður West Bromwich, John
Wile, hefur tekið við stjórn WBA-
liðsins eftir að Ronnie Allen réðst
til Saudi-Arabfu. Strax á 2. mfn. í
Bristol skoraði Tony Brown fyrir
WBA — en sámt tapaði liðið fyrir
Bristol City. A 37. mfn. fékk Joe
Royle tækifæri til að jafna en mis-
notaði vftaspyrnu. Eftir leikhléið —
á 53. mfn. — fór Norman Hunter,
frægi kappinn hjá Leeds hér áður
fyrr, upp f sókn Bristol. Gaf knött-
inn á Gerry Gow, sem jafnaði. Á 66.
mfn. fór Hunter aftur f sóknina og
skoraði og rétt fyrir leikslok skoraði
Tom Ritchie þriðja mark Bristol-
liðsins. Áhorfendur voru rúmlega
29 þús. Bezta aðsókn hjá Bristollið-
inu á leiktfmabilinu.
Norwich komst upp I fimmta sæti
með sigri á Ipswich. 28 þúsund
áhorfertdur sáu leik þessara ná-
grannaliða og leikurinn var heldur
slakur. Versta leiktfmabil Ipswich f
sex ár. Eina mark leiksins skoraði
John Ryan. Norwich fékk vfta-
spyrnu en Paul Cooper varði frá
Ryan. Knötturinn hrökk I þverslána
i og Ryan var fljótur að átta sig. Náði
knettinum og skoraði. I leiknum
meiddist Trevor Whymark á hné —
jafnvel talinn hafa brotnað.
„Leeds er bezta lið, sem ég hef
séð leika á Englandi að undanförnu
og er betra lið nú en þegar Don
Revie stjórnaði því,“ sagði einn
fréttamanna BBC eftir leik Leeds f
Wolverhampton. Þó steinlá Leeds
þar. Fyrsti taþleikur liðsins f 10
leikjum. Fátt benti til þess framan
af að Leeds mundi tapa. Liðið lék
snilldarlega og á 16. mín. náði Joe
Jordan forustu með frábæru skalla-
marki eftir hornspyrnu. En þrátt
fyrir mikla yfirburði tókst Leeds
ekki að skora fleiri mörk og Úlfarn-
ir komu meira og meira inn í mynd-
ina. John Richards jafnaði á 62.
mfn. og rétt á eftir skoraði Normar.
Bell (Martin Patching f sumum
fréttum). Leikmenn Leeds þoldu
ekki mótganginn. Fóru að rffast inn-
byrðis og leikur liðsins hrundi. A
lokamfnútunni skoraði Richards 3ja
mark Ulfanna.
„Ég trúi þessu varla enn. Þetta er
það versta, sem ég hef séð hjá dóm-
ara,“ sagði Tommy Docherty eftir að
tveir leikmenn hans hjá Derby
höfðu verið reknir af velli f Lundún-
um f leiknum við QPR. Það skeði á
65. mfn. Derby fékk aukaspyrnu og
að venju röðuðu þeir Bruce Rioch,
Charlie George og Don Masson sér
upp til að taka spyrnuna. Eitthvað
fór úrskeiðis og þeir ætluðu sér að
taka hana aftur. Dómarinn var á
annarri skoðun og þegar Rioch,
fyrirliði skozka landsliðsins, reidd-
ist, rak dómarinn hann af velli. Það
þoldi George ekki. Spyrnti knettin-
um yfir mark QPR’og var einnig
vikið af velli. Leikmenn Derby voru
þvi nfu það sem eftir var. Tvfvegis
skoraði QPR en bæði mörkin dæmd
af. Jafntefli 0-0. Áhorfendur 18.200.
Ekkert mark var skorað f fyrri
hálfleik á Maine Road f Manchester
en eftir leikhléið kom Colin Bell inn
sem varamaður hjá Man. City. Fögn-
uður hefði ekki verið meiri þó sjálf
Elísabet Bretadrottning hefði birzt
á vellinum. Fyrsti leikur Bell frá
þvi f aprfl 1976. Hann var áður
fastamaður f enska landsliðinu en
meiddist illa. Bell fór vel á stað f
leiknum og nærvera hans hafði
mikil áhrif á félaga hans í liði Man.
City. Mörkin hlóðust upp. Dennis
Tueart skoraði þrivegis — þriðja
þrenna hans á leiktímabilinu — og
Brian Kidd eitt mark. 4-0 og góður
sigur var f höfn. 45 þúsund áhorf-
endur voru í ljómandi skapi — mest
þó af þvf að sjá stjörnuna, Colin
Bell, á ný. Eftir leikinn sagði Tony
Book, stjóri City: „Bell hefur æft
mjög vel — en margir hefðu þó
gefizt upp vegna meiðslanna slæmu.
Ekki þó Colin og oftast hefur hann
æft einn.“
A versta velli á Bretlandseyjum,
Villa Park í Birmingham, gerðu
Aston Villa og Coventry jafntefli.
Sanngjörn úrslit þó svo McNaugt
ætti skot ■ f þverslá Coventry-
marksins og Jim Blyth verði nokkr-
um sinnum vel. Völlurinn mjög
slærnur — sandur og drulla og á 23.
mfn. meiddist bakvörður Coventry,
Graham Oakey, illa. Ian Wallace
náði forustu fyrir Coventry á 73.
mfn. — 15. mark hans á leiktímabil-
inu, en mínútu síðar jafnaði John
Deehan fyrir Villa. Leicester
skoraði ekki mark f 15. sinn á leik-
tfmabilinu en náði stigi gegn
Middlesbro — og Alan Curbjsley
skoraði sigurmark West Ham gegn
Birmingham á 82. mín. Fyrsta mark
hans á leiktímabilinu og annar
heimasigur WH f röð.
Efstu liðin f 2. deiid unnu örugga
sigra. Blackburn færðist i 3ja sæti
eftir sigur f Burnley. Þá koma
Brighton, sem aðeins tókst að ná
jafntefli heima gegn Bristol Rovers,
og Southampton, sem vann Cardiff
með mörkum kappanna frægu, Ted
McDougall, Alan Ball og Phil Boyer.
Efsta liðið í 3. deild, Wrexham,
tapaði óvænt f Bradford, þar sem
heimaliðið skoraði tvfvegis á tveim-
ur sfðustu mfnútum leiksins. Wrex-
ham hafði ,,átt“ allan leikinn áður.
Wrexham og Gillingham hafa 28
stig, Tranmere 27, Peterbro og Cam-
bridge 26 og Preston 25. Sheff. Wed.
er langneðst með 13 stig. í 4. deild
er Watford efst með 32 stig. Alder-
shot hefur 28, Southend 27 og
Barnsley 26 stig.
í dag verður umferð f ensku
knattspyrnunni.
Staðan er nú þannig:
1. deild
Nottm. For. 21 14 4 3 39-13 32
Everton 21 11 7 3 44-24 29
Arsenal 21 11 5 5 28-16 27
Liverpool 21 10 6 5 29-16 26
Norwich 21 9 8 4 23-23 26
WBA 21 9 7 5 32-25 25
Man. City 21 10 4 7 40-23 24
Leeds 21 8 8 5 33-28 24
Coventry 21 9 6 6 34-32 24
A. Villa 20 8 5 7 24-21 21
Derby 21 7 7 7 26-27 21
Ipswich 21 7 7 7 21-23 21
Man. Utd. 20 8 3 9 31-32 19
Middlesbro 21 6 7 8 20-28 19
Bristol C. 20 6 6 8 26-25 18
Wolves 21 6 6 9 26-32 18
Chelsea 21 5 7 9 15-25 17
Birmingham 21 6 4 11 26-32 16
West Ham 21 4 6 11 21-32 14
QPR 21 3 8 10 21-33 14
Newcastle 20 5 2 13 25-38 12
Leicester 21 2 7 12 8-34 11
2. deild
Bolton 21 14 4 3 37-19 32
Tottenham 21 12 6 3 42-18 30
Blackburn 21 11 6 4 32-24 28
Brighton 21 10 7 4 31-21 27
Southampt. 21 11 5 5 30-20 27
Blackpooi 21 9 5 7 31-26 23
Sheff. Utd. 21 9 5 7 33-31 23
Charlton 20 9 5 6 35-34 23
C. Palace 21 7 8 6 32-27 22
Luton 21 8 5 8 32-27 21
Stoke 21 8 5 8 25-24 21
Sunderl. 21 6 8 7 35-34 20
Oldham 21 6 8 7 24-27 20
Fulham 21 7 5 9 31-26 19
Hull 21 5 8 8 19-20 18
Orient 21 5 8 8 23-27 18
Notts. Co. 21 5 7 9 26-34 17
B. Rov. 21 4 8 9 26-41 16
Mansf. 21 5 5 11 28-37 15
Millwali 21 2 10 9 18-29 14
Cardiff 20 4 6 10 20-43 14
Burnley 21 4 4 13 18-38 12
Jóhannes Eðvaldsson — tapaði
jólagjöfunum en fékk beztu jóla-
gjöfina, þegar hann skoraði.
J0HANNES SK0RAÐISIGUR-
MARK CELTIC Á AÐFANGADAG
— Það var erfitt að eiga við
leikmenn Dundee Utd. á iaugar-
dag á Parkhead, leikvelli Celtic.
komu með það eitt greini-
í huga að ná jafntefli — og
léku mjög stffan varnarleik.
Komu bókstaflega ekkert fram.
Þetta virtist lengi vel ætla að
heppnast, því Ceitic gekk illa að
brjóta niður vörn Dundee-liðsins.
Það var ekki fyrr en á 82.mín. —
átta mínútum fyrir leikslok — að
mér tókst að skora. Fékk háa
sendingu inn í vítateiginn og
skallaði i mark. Fallegt mark,
sagði Jóhannes Eðvaldsson, þegar
Dagblaðið ræddi við hann f gær.
Þetta var eina og sigurmark
leiksins.
— Við vorum með sama lið og
áður — nákvæmlega sama lið og í
jafnteflisieiknum, 3-3, gegn St.
Mirren. Ein breyting var gerð í
leiknum. Poul Wilson kom í stað
Alfie Conn — og Dowie, ungur
piltur, hefur tekið stöðu Frank
Monro, sem farinn er til Úlfanna
aftur, sem miðvörður. Ég var
framvörður eins og að undan-
fjörnu og líkar sú staða vel, sagði
Jóhannes ennfremur.
Einhver hreyfing í sambandi
við veru þína á sölulista Celtic?
— Nei, síður en svo. Celtic vill
greinilega ekki ieyfa mér að fara
og markaðurinn í Evrópu lokaðist
vfða 10. desember — til dæmis f
Þýzkalandi. Það komu einhverjar
fyrirspurnir til Celtic í haust frá
Vestur-Þýzkalandi í sambandi við
mig m.a. frá Dettmar Cramer. En
það voru engar ábyggilegar frétt-
ir og datt strax uppfyrir. Nú er
aðeins hægt að fara milli félaga á
Englandi og Skotlandi en ég hef
ekki áhuga á því. Stefni á megin-
landið eins og ég hef sagt þér
áður, sagði Jóhannes.
Leikið var á Skotiandi á að-
fangadag en ekkert á 2. í jólum
eins og á Englandi. Rangers fékk
heldur betur skeli í Aberdeen —
tapaði 4-0 — en hefur þó enn
þriggja stiga forustu á Aberdeen,
sem er í öðru sæti, og hefur Ieikið
einum leik minna. Annars urðu
úrslit þessi á aðfangadag.
Aberdeen-Rangers 4-0
Celtic-Dundee Utd. 1-0
Partic-Ayr 4-1
Hibernian-Motherwell 2-1
St. Mirren-Clydebank 2-0
, Jóhannes varð fyrir þvf óhappi
tveimur dögum fyrir jói að
brotizt var inn í nýjan bil háns,
(Passat, og jólagjöfum, sem
hann hafði keypt, stolið. Talsvert
var skrifað um það mál daginn
eftir í skozku blöðin — en
Jóhannes hefur ekki enn fengið
gjafirnar aftur. En hann var þó
imjög ánægður í gær. Sagði, að
markið, sem hann skoraði gegn
‘Dundee hefði verið bezta jóla-
gjöf, sem hann gat. fengið
einmitt skorað á aðfrngadag.
Staðan S úrvalsdeildinni skozku
<*r nú þannig:
Rangors
Abardesn
Partick
Oundea. litd.
Celtic
St. Mirren
Hiber.'ian
Motherwall
Ayr
Jlydebank
Rosemarie Ackermann, bezti
íþróttamaðurinn íEvrópu!
— samkvæmt skoðanakönnun pólsku f réttastof unar PAP
Austur-þýzka stúlkan, Rose-
marie Ackermann, fyrsta konan,
sem stökk yfir tvo metra í há-
stökki, var kjörin bezti íþrótta-
maður Evrópu 1977 i skoðana-
könnun, sem gerð var af pólsku
fréttastofunni PAP og 23 frétta-
stofur í Evrópu tóku þátt í. Úrslit
í könnuninni voru gerð kunn i
gær.
Rosemarie, sem vann afrek sitt
að stökkva tvo metra í Austur-
Berlfn 26. ágúst, hlaut 209 stig
samtals — af 230 mögulegum.
Hún var í efsta sæti á listunum
hjá 10 fréttastofum. I öðru sæti
varð heimsmeistarinn f kapp-
akstri, Austurríkismaðurinn Niki
Lauda — en hann var langt á eftir
Rosemarie Ackermann. Þetta er i
tuttugasta skipti, sem PAPgengst
fyrir slíkri skoðanakönnun og
sigurvegarinn frá í fyrra, Nadia
Comaneci, rúmenska fimleika-
konan snjalla, var nú ekki meðal
tíu beztu.
Listinn var annars þessi:
1. Rosemarie Ackermann,
Austur-Þýzkalandi, heimsmet-
hafi í hástökki, 209 stig.
2. Niki Lauda, Austurríki,
heimsmeistari í kappakstri, 137
stig.
3. Vladimir Yashchneko, Sovét-
ríkjunum, heimsmethafi í há-
stökki, 134 stig.
4. Ingemar Stenmark, Svíþjóð,
heimsmeistari í alpagreinum á
skíðum, 120 stig.
5. Björn Borg, Svíþjóð, Wimble-
don-meistari i tennis, 95 stig.
6. Irena Szewinska, Póllandi,
heimsmethafi f 200 og 400 metra
hlaupi kvenna, 85 stig.
7. Marlies Oelsner, Austur-
Þýzkalandi, heimsmethafi i 100
metra hlaupi kvenna, 81 stig.
8. Vasily Alexeyev, Sovétríkj-
unum, heimsmeistari í yfirþunga-
vigt í lyftingum, 62 stig.
9. Lise-Marie Morerod, Sviss,
heimsmeistari í alpagreinum
kvenna á skíðum, 51 stig.
10. Janusz Peciak, Póllandi,
heimsmeistari í nútíma fimmtar-
þraut, 38 stig.
Loks íslenskt
Beróu þaó samanvió hrökkbrauö til sömu nota. Vittu hvort hefiir vimiiiiginn.
Rúgkex meó osti,
(t.d. kúmenosti).
Rúgkex meó smjöri. Rúgkex meó sHd og eggi. Rúgkex meó kæfa.
KEXVERKSMIÐJAN FRÓN