Dagblaðið - 15.12.1978, Blaðsíða 1
4.ÁRG. — FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978 — 281. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMl 27022.
/ ~ '
Alþyðuflokkurinn stillir
stjórninni upp við vegg
— setur samþykkt á f rumvarpi um aðgerðir gegn verðbólgu sem skilyrði fyrir stuðningi við f járlagaf rumvarpið
„Við viljum ekki, að þetta verði úr-
slitakostir, en við ætlum með þessu að
gera tilraun til að fá menn til að hugsa
um efnahagsvandann fyrir 1. marz,”
sagði Karl Steinar Guðnason (A) i
morgun. „Það dugir ekki lengur að
krukka sífellt I launasamninga án
nokkurra annarra aðgerða."
Alþýðuflokksmenn samþykktu á
flokksstjórnarfundi sínum í gærkvöldi
að setja eins konar úrslitakosti fyrir
áframhaldandi stjórnarsamstarfi.
Samþykkt var með 27 atkvæðum gegn
9, að frumvarp, sem fjórir þingmenn
flokksins leggja fram um aðgerðir
gegn verðbólgu, skuli afgreitt á þingi
áður en fjárlagafrumvarpið verður af-
greitt ella muni alþýðuflokksmenn
ekki styðja framgang fjárlagafrum-
varpsins.
Lagt f yrir ríkis-
stjórnina í dag
Sumum þingmönnum flokksins
þótti of mikið „úrslitakostabragð” að
þessari samþykkt, og greiddu Magnús
H. Magnússon, Bragi Níelsson, Eiður
Guðnason og Gunnlaugur Stefánsson
atkvæði gegn henni, þótt þeir lýstu sig
samþykka stefnu frumvarpsins, sem
kratar munu leggja fram. Benedikt
Gröndal hafði sig lítið i frammi og sat
hjá.
Höfundar frumvarpsins eru Vil-
mundur Gylfason, Árni Gunnarsson,
Finnur Torfi Stefánsson og Jón Baldv-
in Hannibalsson. Þar eru aðgerðir
gegn verðbólgu I 29 liðum. Þar er gert
ráð fyrir 3% niðurskurði rekstrar-
gjalda ríkisins frá því sem segir i fjár-
lagafrumvarpinu. Fjárveitingar til
opinberra framkvæmda skuli skornar
niður um 10%. Ríkjsbákninu verði
haldið innan við 30% af þjóðarfram-
leiðslunni.
Ákveðnar hömlur skulu settar á
niðurgreiðslur. Þá megi heildarfjár-
festing næsta ár ekki verða meiri en
24,5% af þjóðarframleiðslunni, sem
þýðir verulegur niðurskurður fjárfest-
ingar. Fjárfestingunni verði beint í
framleiðniaukandi aðgerðir.
Markaðir tekjustofnar verði af-
numdir og renni beint í ríkissjóð. Með
því á að draga úr sjálfvirkni í kerfinu,
meðal annars í stuðningi við landbún-
aðinn.
Þá verði kjarasáttmála komið á
laggirnar með samkomulagi ríkis og
verkalýðshreyfingar.
Sem fyrr segir hitnaði í kolunum við
umræður flokksstjórnarmanna. Auk
þeirra, sem fyrr eru sagðir hafa stutt
frumvarpsgerðina má nefna Jóhönnu
Sigurðardóttur, Braga Jósepsson og
Braga Sigurjónsson.
Eggert Þorsteinsson vildi miðla
málum með því að fela þingflokknum
að móta drögin og boða siðan aftur til.
flokksstjórnarfundar. Tillaga Eggerts
varfelld.
Magnús H. Magnússson lagði.til, að
fjárlögin yrðu rædd áfram þrátt fyrir
drög að frumvarpinu, sem sýnilega
yrðu samþykkt. Tillaga Magnúsar var
felld með 27 atkvæðum gegn 18. Alls
sátu 46 flokksstjórnarmenn fundinn.
Samþykkt var, að frumvarpsdrögin
skyldu ráðherrar Alþýðuflokksins
leggja fram á fundi ríkisstjórnarinnar í
dag. Kann svo að fara, að lífdagar
ríkisstjómarinnar ráðist af því sem þar
gerist.
BS/HH
Erhættviðað
verkfræði-
kunnáttu hraki
á íslandi?
— sjónarmið
Júlíusar Sólnes
á bls. 41
Bjóða40%
lækkun á bruna-
bótaiðgjöldum
— en eruekki aðfara
íiðgjaldastríð
— sjá bls. 10
„Sólarlanda-
draumur”
yngstu
borgaranna
í glugganum speglast „sólar-
landadraumur” yngstu borgar-
anna. Miklu heldur vildu þeir fá
að láta greipar sópa um leik-
fangaverzlunina en að flatmaga
á sólarströnd. Þessi hópur stóð
fyrir utan skrautbúinn sýningar-
glugga. Þeim fannst þetta eins
og ævintýraheimur þegar þau
töluðu um hvað þau vildu fá i
jólagjöf í ár.
DB-mynd Kristján Ingi
Undirskriftasöfnun
á Nesinu:
Ríkið kaupi
Nesstofu
— sjábls.41
Listahátíðin:
Ekki 14
milljóna
ágóði,
heldur
milljón
króna tap
— sjá bls. 8
STYÐUR ALMENNINGUR STJÓRNINA?
— sjá niðurstöður skoðanakönnunar DB í blaðinu á morgun
Brauð handa
hungruðum
heimi
-sjábls.8