Dagblaðið - 15.12.1978, Blaðsíða 36
44
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978.
Brúður
sem gráta, margar gerðir. Verðfrákr. 7.300.-
Einnig bráður sem hlœja og skríða.
Póstsendum samdægurs
LEIKFANGAVER
Klapparstíg 40. - Sími 12631.
JUn jjf 3°* viöiurkíínRH
varahluta- og viðgerðarþjónusta
í Austurveri, Háaleitisbraut 68,
sími 84445 og 86035
HH a ’jf-h-a-
AUSTURVERI
Háaleitisbraut 68
frá heimsþekktum fyrirtækjum, svo sem frá Zanussi, kæli- og frysti-
skápa, frystikistur, uppþvottavélar, þvottavélar, þurrkara, gufu-
gleypa, ennfremur ryksugur, rakatæki, brauðristar, straujárn, hrað
suðukatla, háfjallasólir og m.m.fl.
j ;! ♦ ♦
Heimilis-eldavélin
frá Rafha er landsþekkt
islenzk framleiðsla.
Frá stofnnn fyrirtækisins
1936 hafa verið fram-
leiddar yfir 60.000 eida-
vélar. Um tvær gerðir af
sambyggðri vél er að ræða.
Gerö HE fyrir sökkul, og
gerð E frístandandi i 90 cm
borðhæð. Hægt cr að fá
vélina með klukkubaki.
Ennfremur eldavélasett.
40
ÁRA
REYNSLA
2ja ára ábyrgð á eldavélum.
6 litir
Ennfremur seljum við:
RAFMAGNSHEIMILISTÆKI
Bylting á áfengisvandamálinu?:
Rónarnir horfnir af
götum borgarinnar
„Jú. Það hefur orðið hrein bylting á
þessu frá því sem var fyrir nokkrum
árum og það er gleðilegt að fólk skuli
taka eftir því,” sagði Bjarki Elíasson
yfirlögregluþjónn, er DB spurði
hannhvort rónarnir væru að hverfa af
götum borgarinnar.
Bjarki sagði að hér væri ekki
neinum einum aðila að þakka heldur
miklu fremur því að tekizt hefði mjög
góð samvinna með þeim aðilum sem
með þessi mál fara, og á 2—3 siðustu
árum hefði orðið miklu meiri skiln-
ingur á vanda þessara manna en
nokkru sinni fyrr. Ekki mætti heldur
gleyma því að vistunarrými hefði auk-
izt til mikilla muna á allra siðustu
árum. Ýmsa aðila mætti nefna sem
lögreglan hefði átt mjög góða sam-
vinnu við um þessi mál, s.s. Jóhannes
Bergsveinsson, yfirlækni áfengismála,
og Félagsmálastofnun, sem rekur gisti-
skýlin. Síðan mætti nefna Samhjálp
með Hlaðgerðarkot, þá Gistiheimilið á
Ránargötu 6, Risið i Hamarshúsinu,
en þar er samstarfshópur manna sem
þannig hefur staðið á fyrir. Þá mætti
ekki gleyma SÁÁ með heimili sín i
Reykjadal og Sogni í Ölfusi. En fyrst
og fremst væri hér um að ræða gjör-
breytta afstöðu almennings til þessara
mála.
Hilmar Helgason hjá SÁÁ sagði að
gjörbreyting hefði orðið á þessum
málum en þetta hefði gerzt það hægt
að almenningur virtist ekki hafa gert
sér grein fyrir breytingunni. Það væri grotna niður og flestir þeirra væru nú
nú liðin tíð að þessir menn þyrftu að orðnir nýtir þjóðfélagsþegnar. -GAJ
ÞARSEM
ERNIRNIR DEYJA
eftir Loub Masterson
Sérstök jólaútgáfa á einni af beztu
bókunum um Morgan Kane. Jóla-
glaðningur fyrir alla Morgan
Kane-aðdáendur.
ÞREFALDUR MORGAN
KANE!
Verð kr. 4.000.-
RAGNARÚK
eftir Jan Bjerkehind
Ógnvekjandi skáldsaga sem gerist
á íslandi:
• Átök i Reykjavík.
• Skotbardagi í Hverageröi.
• Eldsumbrot i Kötlu.
• . . . .
Skemmtilega skrifuð bók — hröð
atburðarás.
Verð kr. 4.760.-
TIMEX
HEIMSFRÆGU ÚRIN - 60 GERDIR
1 ÁRS ÁBYRGÐ. PANTIÐ í
SÍMA 50590 EÐA BRÉFLEGA
Kr. 12.750 Kr. 11.380
$73104* 556122*
Kr. 11.850 Kr. 11.380 Kr. 11.850
527201* 553215 526201*
Kr. 12.300 Kr. 10.900 | *
527211 * j 503425 JK
Kr. 11.485
2337I2
ÚR-VAL
PÓSTSENDUM
MAGNÚS GUÐLAUGSSON
STRANDGÖTU 19 - HAFNARFIRÐI
„Þörfin á
hlutlausu
alþjóðlegu
hjálparmáli”
„Félagið fagnar aukinni um-
,ræðu um mannréttindi og vaxandi
skilningi á mikilvægi þeirra fyrir
einstaklinginn og heildina. í því
sambandi bendir félagið á að einn
snarasti þátturinn í mannréttind-
um er rétturinn til samskipta við
annað fólk. Sá réttur takmarkast
af tungumálakunnáttu viðkom-
andi einstaklinga, því samskipta-
réttur manna, sem skortir sam-
eiginlegt tungumál til að ná sam-
bandi hver við annan, er litið
nema nafnið tómt. Eftir að tækni
til ferðalaga og fjarskipta hefur
mjög auðveldað samband milli
fjarlægra staða hefur þetta orðið
mun ljósara en áður, og þörfin á
hlutlausu alþjóðlegu hjálparmáli
verður því æ berari og brýnni með
ári hverju.” Þannig segir m.a. í
ályktun um mannréttindamál sem
Esperantistafélagið Auroro í
Reykjavík gerði á fundi sínum 7.
des. en alþjóðlega esperanto-sam-
bandið gengst fyrir sérstakri mann-
réttindaviku meðal aðildarfélaga ■
sinna nú í desember.
-GAJ .
Sr. Bernharður
ráðinn blaðafulltrúi
þjóðkirkjunnar
Séra Bemharður Guömundsson
hefur verið ráðinn blaðafulltrúi
þjóðkirkjunnar, en starfið var aug-
lýst með umsóknarfresti til 20.
nóv. sl. Sr. Bernharður var eini
umsækjandinn um starfið. Hann
var starfsmaður útvarpsstöðvar
Lútherska heimssambandsins í
Addis Ababa frá 1973 til 1977.
Undanfarið ár hefur sr. Bern-
harður dvalizt í Bandaríkjunum
við nám i fjölmiðlun. Hann mun
taka til starfa frá næstu áramót-
um. - GAJ