Dagblaðið - 15.12.1978, Blaðsíða 14
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978.
BIABIB
fijálst,áháð dagblað
Útgefandc Dagblaðið hf.
Framkvœmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas Kristjónsson.
Fróttastjóri: Jón Birgir Pótursson. Ritstjómarfulitrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri ritstjóman Jó
hannes ReykdaL íþróttir Hallur Simonarson. Aðstoðarfréttastjórar Atfli Steinarsson og ómar Valdr
marsson. Menningarmói: Aflalsteinn Ingólfsson. Handrit: Ásgrimur Pólsson.
Blaflamenn: Arma Bjamason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurflsson, Dóra Stafénsdóttir, EMn Afcerts-
dóttir, Gissur Sigurflsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Hallur HaHsson, Helgi Pétursson, Jónas Haraldsson,
Ólafur Geirsson, Ólafur Jónsson. Hönnun: Guðjón H. Pólsson.
Ljósmyndn Ari Kristinsson, Ami Póll Jóhannsson, Bjamleifur Bjamleifsson, Hörflur Vilhjólmsson,
Ragnar Th. Sigurösson, Sveinn Þormóösson.
Skrifstofustjóri: ólafur EyjóHsson. GJaldkeri: Þróinn Þorieifsson. Sökistjóri: Ingvar Sveinsson. Dretfing-
arstjóri: Már E.M. Hattdórsson.
Rhstjóm Siðumúia 12. Afgreiðsla, óskriftadoild, auglýsingar og skrifstofur Þverhohi 11.
Aðalsimi biaðsins er 27022 (10 Ifnuri. Áskrift 2500 kr. ó mónufli innanlonds. i lausasölu 125 kr. eintakifl.
Setning og umbrot: Dagbiaðifl hf. Slflumúla 12. Mynda- og piötugerfl: Hlmir hf. Stflumúla 12. Prentun:
Árvakur hf. Skehunni 10.
Sullað í verðbólguna
Stjórnarsamstarfið virðist munu lifa af
sína verstu kreppu, deilurnar um skatta-
dæmi fjárlagafrumvarpsins. Hótanir
Ólafs Jóhannessonar forsætisráðherra
um stjórnarslit hleyptu skrekk í alþýðu-
bandalags- og alþýðuflokksmenn. En
ýmsu hefur verið fórnað á altari málamiðlunar stjórnar-
flokkanna.
Sýnt virðist, að einum mikilvægasta þætti fjárlaga-
gerðarinnar hafi verið fórnað, stefnunni um að hafa af-
gang á fjárlögum næsta árs. Útkoman verður verðbólgu-
hvetjandi fjárlög þrátt fyrir yfirlýsingar Tómasar Árna-
sonar fjármálaráðherra og alþýðuflokksmanna um hið
gagnstæða.
Deilan hefur verið hörð. Alþýðubandalags- og alþýðu-
flokksmenn sökuðu fjármálaráðherra um harðýðgi og að
„klúðra” málinu. Þeir höfðu talið, að sérstök skattanefnd
stjórnarflokkanna hefði átt að ganga frá skattaþættinum
í fjárlagafrumvarpinu. Til þess hefði hún verið skipuð og
nefndarmenn lagt á sig talsvert puð.
Fjármálaráðherra dvaldist erlendis, meðan skatta-
nefndin vann sitt meginstarf. í tillögum nefndarinnar
var meðal annars gert ráð fyrir skatti á skrifstofu- og
verzlunarhúsnæði, annað en matvöru- og nýlenduvöru-
verzlanir, og skattvísitölunni 151, sem þýddi verulega
hækkun á skattleysismörkunum. Nefndin var tilbúin
með þessar og aðrar tillögur um síðustu helgi, en þá kom
fjármálaráðherra óvænt fram með tillögur um hækkun
vörugjalds úr 16 í 20 prósent og mun lægri skattvísitölu
og þar með meiri skattlagningu á hina tekjulægstu.
Álþýðubandalags- og alþýðuflokksmenn höfðu enn-
fremur lagt áherzlu á töluverða lækkun sjúkratrygg-
ingargjalda hjá hinum tekjulægstu, en fjármálaráðherra
vildi ekki fallast á það.
Fjármálaráðherra gaf flokkunum tveimur síðan hálfs
annars sólarhrings frest til að ganga að tillögum sínum.
Um grundvallarágreining var að ræða, sem vel hefði
getað sundrað stjórnarsamstarfinu. Hækkun vörugjalds
fer beint inn í verðlagið, og í henni felst því kjararýrnun
hjá almennum launþegum.
Enn á ný fóru þeir af stað, sem fyrir hvern mun vilja
varðveita stjórnarsamstarfið. Þegar fulltrúar Alþýðu-
bandalags og Alþýðuflokks fluttu á ríkisstjórnarfundi
hverja ræðuna af annarri gegn tillögum fjármálaráð-
herra, sleit forsætisráðherra fundinum í fússi og nefndi,
að „stutt leið” væri til Bessastaða og stjórnarslita.
í þessari stöðu lögðu alþýðubandalagsmenn mest upp
úr að varðveita hina sundruðu stjórn og létu nokkrum
klukkustundum síðar undan hótunum Ólafs.
Alþýðuflokksmenn leituðu á meðan að smugu, til að
ágreiningurinn sprengdi ekki stjórnarsamstarfið, og
drógu í land með mótmæli við tillögur fjármálaráðherra,
óljósum orðum.
Því virðist, þegar þetta er skrifað, sem stjórnin muni
enn lafa. Vörugjaldið hækki í 18 prósent, skattvísitalan
verði 150, skattur verði lagður á skrifstofu- og verzlunar-
húsnæði og sjúkratryggingargjald lækkað í 1,5% hjá
hinum tekjulægstu. Þetta samsull á að geta bjargað
stjórninni, en í öllu baslinu eru að koma út úr dæminu ill
fjárlög, sem hella olíu á eld verðbólgunnar.
Fyrir landsmenn er þetta þungamiðjan. Ríkisfjármál-
in hafa undanfarin ár verið stærsta orsök verðbólgunnar.
Þau munu verða það áfram.
Stórveldin hafa
góðar tekjur af
vopnasölunni
— Bandaríkin, Sovétríkin, Bretland og Frakkland eru
helztu „sölmenn dauðans”, með níu tíundu af vopnasölu
til þriðja heimsins
Bandaríkin og Sovétríkin eru lang-
stærstu vopnaframleiðendur og
seljendur til þriðja heimsins i dag.
Fulltrúar þessara þjóða sitja um þessar
mundir á fundum i Mexico City,
höfuðborg Mexico. Þar eru ræddar
hugsanlegar leiðir til að takmarka
eitthvað á sölu vopna til landa i Asiu,
Afríku og Suöur-Ameriku. Kunnugir
telja að þessar viðræður hafi gengið
allvel. Aftur á móti hefur verið bent á
að samkomulagi risaveldanna tveggja,
Bandarikjanna og Sovétríkjanna, þurfi
alls ekki að fylgja nein trygging fyrir
því að vopnasala til rikja í þessum
heimsálfum dragist neitt saman.
Komi þar til að í hvert sinn sem
Bandaríkjamenn eða Sovétmenn séu
af einhverjum ástæðum tregir til að
selja og afhenda vopn til einhvers ríkis
séu vopnasalar frá Bretlandi og
Frakklandi óðara komnir að bjóða
vöru sína.
Ljóst dæmi um þetta er Suður-
Ameríka. Raunar munu fulltrúar
risaveldanna, sem sitja á fundunum í
Mexico City, hafa byrjað að ræða
vopnasölu til ríkja þar. Talið er líklegt
að tiltölulega auðvelt verði að ná sam-
komulagi milii ríkjanna um
takmörkun á vopnasölu þangað.
Hvorugt risaveldanna hefur neinn sér-
stakan áhuga á að efna til neinna óláta
i þessum heimshluta. Ráðamenn
beggja eru líklegast guðsfegnir á
meðan þar er sæmilegur friður.
En verið var að ræða um vopna-
sölufíkn Breta og Frakka. í dag mun
málum þannig háttað að evrópskir
vopnaframleiðendur selja sjö tíundu af
öllum þeim vopnum sem til Suður-
Ameríkulandanna fara. Þeir komust
fyrst inn á markaðinn þegar Banda-
ríkin reyndu að draga úr vopnasölu
þangað um miðjan síðasta áratug.
Fram til þess tíma höfðu þeir haft
algjöra einokun á vopnasölu til Suður-
Ameríku. Þau voru treg til að
afhenda ríkisstjórnum Suður-Ameríku-
rikjanna hljóðfráar herþotur. Perú var
neitað um Northorp F—5A herþotu
frá Bandaríkjamönnum, en Frakkar
voru þá ekki seinir á sér að bjóða sínar
ágætu Mirage-þotur og Perústjórn var
fljót til og keypti. Síðan komu önnur
riki á eftir, Brasilía Venezuela og
'Argentína.
Þykir vopnaframleiðendum í
Bandaríkjunum þetta gott dæmi um
það að einhliða takmarkanir stjórn-
arinnar í Washington tryggi siður en
svo takmörkun vígbúnaðar. Telja þeir
einnig litlu breyta þó Sovétríkin bætist
þar við.
Helzti Ijóður á ráði hinna síðast-
nefndu í augum ráðamanna í Washing-
ton hvað varðar vopnasölu til Suður-
og Mið-Amerikuríkjanna er afhending
á MIG—23 herþotunum til Kúbu.
Hafa þeir nokkrar áhyggjur af að fá
jafnfullkomin drápstæki nánast alveg
inn á gafl.
Þrátt fyrir þessa tregðu Banda-
ríkjanna til vopnasölu til afmarkaðra
heimshluta, eru þau stærst á því sviði
svo sem mörgum öðrum. Er þá átt við
vopnasölu til ríkja í Asíu, Afríku og
Suður-Ameríku. Bandaríkin hafa 38%
af markaðinum en síðan koma Sovét-
?—'«.. ........
Að græða krónuna
Psoriasís
styrkhæft
Á alþingi er nýlega komið fram
frumvarp til laga þess' efnis að
psoriasis sjúklingar skuli njóta styrks
til lækningaferðalaga til sólarlanda.
Þingmenn úr öllum stjórnmála-
flokkum bera frumvarp þetta fram og
má af því ætla að þetta sé eitt þeirra
mála sem flestir geta orðið sammála
um. Eins og áður hefur verið getið í
Dagblaðinu hafa psoriasis sjúklingar
orðið að greiða allan kostnað við lækn-
ingarferðir úr eigin vasa á sama tima
og sjúklingar með margvíslega aðra
sjúkdóma hafa notið opinberrar fyrir-
greiðslu. Psoriasis sjúklingar hafa sem
áður segir ekki notið sambærilegra
styrkja, enda hafa lækningarferðir
þeirra þá sérstöðu að einungis er um
það að ræða að sjúklingurinn þarf að
komast í sólböð í sólarlöndum, en slíkt
fellur gjarnan undir lúxus hjá almenn-
ingi og sjúklingurinn kemur að sjálf-
sögðu ekki til baka með reiknmga frá
læknum eða sjúkrahúsum.
Sár
samanburður
V.
Innan Tryggingaráðs hefur örlað á
þeirri hugsun að psoriasis sjúklingar
séu ekki sambærilegir ýmsum öðrum
hópum sjúklinga sem njóta styrks til
utanfarar; þeir hafa þannig verið settir
skör lægra og ekki þótt styrkhæfir.
Vegna þess að vissra sárinda gætir
þegar samanburður er gerður á mögu-
leikum ólíkra hópa sjúklinga ti! lækn-
inga er vert að það sé athugað að
ávallt þegar hagsmunahópar berjast
fyrir bættum kjörum, þá er vitnað til
sambærilegra hópa sem hafa náð
lengra. Þeir sem þykir samanburður-
inn sár ættu fremur að vera stoltir yfir
því að hafa náð þeim árangri að vera
þannig í fararbroddi að aðrir geti bent
á þá til fulltingis sínum málum. Tals-
mönnum hópa sem skemur eru á veg
komnir með réttindamál sin er afar
mikils virði að geta vitnað til braut-
ryðjenda.
Hlutur þingmanna
Hinir ágætu þingmenn, sem flytja
frumvarpið um stuðning við psoriasis
sjúklingana, hafa tekið afstöðu í
greinargerð með frumvarpinu um
tvennt, sem orkar tvímælis.
Annars vegar er að í greinargerð
áætla þeir, með hjálp lækna, tölu
væntanlegra styrkþega 60 til 70 og
hins vegar gera þeir ráð fyrir styrk sem
nemi 50 prósent kostnaðar við þriggja
vikna dvöl í sólarlöndum.
Min skoðun er sú að hvort tveggja
sé mjög vanreiknað, jafnvel vanhugs-
að.
Læknar telja 60 til 70 sjúklinga
þurfa utanfarar við og byggja það á
tölu þeirra sem fá meðferð á sjúkra-
húsi hér á ári. Rök má færa að þvi að
tala sjúklinganna sé verulega hærri og
einkum þá af þeim ástæðum að sumir
sjúklingar leita sér sjálfir lækninga nú
þegar með sóiarlandaferðum og svo
vegna þess að margir sjúklingar ganga
með psoriasis á háu stigi án þess að
leita sér lækninga á sjúkrahúsi vegna
þess hve lækningin, tjöruböðin, þykir
erfið og leið á ýmsan hátt, auk þess
sem hún endist oft illa eða stutt.
Að græða á
sjúklingum
Sá þátturinn, „rausnin” sú að rétta
sjúklingi 150 þús. kr. um leið og verið
er að spara sjúkrahússkostnað að upp-
hæð 640 þús. kr. til 1,2 millj. kr., er
svo dæmalaus að ástæða er til þess að
athuga það nánar.
í greinargerð frumvarpsins er bent á
að psoriasis sjúklingur þurfi 3 til 5
vikna meðferð á sjúkrahúsi og hver
dagur kosti 30 til 35 þús. kr. eða alls
Kjallarinn
Jóna Jónsdóttir