Dagblaðið - 15.12.1978, Side 20
20
TísKusmm
Óðal
föstudagskvöld
Klúbburinn
sunnudagskvöld
Frábærar nýjar
vörur frá:
• Green Green
• Miou Miou
• (satin klœðnaður)
Daily Blue
MATA HARIScrw,5lun meó
ítalskan tískufatnaó
Verslanahöllinni Laugavegi 26
Próf í endurskoðun
Ábyrgðé
öturn
okkar
skartgripum
GULL & SILFUR H/F
Laugavegi 35 - Reykjavfk
Með vísan til laga nr. 67/1976 hefur fjármálaráðuneytið
ákveðið, að höfðu samráði við prófnefnd löggiltra
endurskoðenda, að síðustu bókleg próf, endurtekningar-
próf, samkvæmt rgl. nr. 217/1953, verði haldin síðari
hluta janúarmánaðar nk. Er hér um að ræða próf í lög-
fræði, þjóðhagfræði, reikningshaldi og rekstrarhag-
fræði.
Þeir nemendur, sem rétt eiga á og hyggjast þreyta ofan-
nefnd próf, sendi tilkynningu þar að lútandi til for-
manns prófnefndar, Halldórs V. Sigurðssonar, Ríkis-
endurskoðun, Laugavegi 105, Reykjavík, fyrir 1. janúar
nk.
Fjármáiaróðuneytið,
13. desember 1978.
Laust embætti
er f orseti íslands veitir
Prófessorsembætti í almennri sagnfræöi við heimspekideild Háskóla
tslands er laust til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknarfrestur er til I5.janúar 1979.
Umsækjendur um prófessorsembættið skulu láta fylgja umsókn sinni
rækilega skýrslu um vísindastörf þau, er þeir hafa unnið, ritsmiðar og
rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf.
Menntamálaráðuneytið,
13. daMmbar 1978.
DEMANTAR - DEMANTAR
Demantshringar, demantshhlsmen, demantseymalokk-
ar, handsmlðaðir Islenzkir demantsskartgripir. Einnig
ýmist demantsskart frá þekktum enskum og hollenzkum
demantsskartgripaframleiðendum.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978.
Inspector Clouseau
enn á ferð
HoW: The Pink Panther Strikos again.
LoHcstjóri: Blake Edwards.
Kvikmyndun: Emie Day.
KBpping: Aian Jonos.
Tónlist Honry Manchini og Don Black.
Sýnignarstaöur Tónabió.
Gerð (Englandi 1976.
Aöolhlutverk:
Petar Sellers
Herbert Lom
Colin Blakety
Að öllu forfallalausu mun Peter
Sellers I hlutverki Clouseau skemmta
Reykvikingum um jólin í Tónabíói.
Flestir eru kunnugir þessari persónu,
enda hafa 3 myndir verið sýndar hér
um Clouseau og sú fimmta á leiðinni.
með þvi að hlæja að Clouseau.
Einnig virðist þrákelkni Clouseau falla
í góðan jarðveg en hann virðist gædd-
ur þeim hæfileika aö gefast aldrei upp.
r
Kvik
myndir
Saga bleika
pardussins
Bleiki pardusinn er heiti á stærsta
demanti veraldar. Heiti sitt dregur
hann af bleikum pardus sem birtist
þegar demanturinn er borinn upp að
ljósi. Hefur efni myndanna snúizt
meira eða minna um þennan demant.
Fyrsta myndin, The Pink Panther,
Clouseau og við
Síðast þegar við skildum við Clous-
eau var yfirmaður hans, C.I. Dreyfus,
kominn á geðveikrahæli. Clouseau er
nú búinn að taka við embætti hans og
hefur því hækkað í tign. Dreyfus hefur
tekið miklum framförum á geðveikra-
hælinu og á nú að útskrifast. Þegar
Dreyfus er laus ákveður hann að ryðja
Clouseau úr vegi og fá aftur gömlu
stöðuna sína. Hann hefur undir hönd-
um nýtt vopn, laser geisla, sem hann
ætlar að nota til að þvinga heiminn til
að losa sig við Clouseau og fá stöðu
hans. Clouseau veit af þessu og reynir
því af fremsta megni að hafa upp á
Dreyfusi svo hann geti ekki fram-
kvæmt fyrirætlanir sínar.
Það sem gerir Clouseau svo vinsæl-
an er að hann leiðir áhorfendum fyrir
sjónir þeirra eigin hrakfarir. Hann
framkvæmir ýmsa hluti sem við ger-
um sjálf en ýkir þá svo stórkostlega að
áhorfendur geta hlegið að sjálfum sér
Baldur H jaltason
búið var að leggja drögin að I The Pink
Panther. Tókst þetta tiltæki mjög vel
og Clouseau styrkti sess sinn í hugum
áhorfenda.
Sherlock Holmes
var gerð fyrir 16 árum eða 1962. Það
var eiginlega fyrir tilviljun að Peter
Sellers skyldi fá þetta hlutverk, því
Peter Ustinov hafði verið ráðinn en
forfallaðist á síðustu stundu. Leikstjór-
inn Blake Edwards og Peter Sellers
löguðu til handritið og fullgerðu siðan
persónuna Clouseau.
Aðdragandinn að næstu mynd, A
Shot in the Dark, var sérstæður. Upp-
haflega var myndin byggð á frönsku
leikriti og hafði Peter Sellers verið ráð-
inn í aðalhlutverk. Hann var mjög
óánægður með handritið og kallaði því
Edward Blake sér til aðstoðar. Honum
leizt jafnilla á handritiö og vildi ekkert
koma nálægt myndinni. United
Artists sem framleiddu myndina voru
búnir að leggja i töluverðan undirbún-
ingskostnað og lögðu því hart að Blake
að leikstýra myndinni. Hann lét að
lokum til leiðast gegn þvi að hann
mætti endursemja handritið. Þegar
hann var að hefja verkið datt honum i
hug að nota persónuna Clouseau, sem
og Clouseau
Skömmu síðar kom Sir Lew Grade
að máli við Blake Edwards og vildi
láta hann gera sjónvarpsþætti um
Clouseau. Blake hafði lengi velt þeirri
hugmynd fyrir sér að gera fleiri mynd-
ir um bleika pardusinn en alls ekki fyr-
ir sjónvarp. Útkoman varð svo The
Return of the Pink Panther, sem yfir-
leitt hefur verið talin lélegasta myndin
i flokknum. Samt sem áður gekk hún
vel og grundvöllurinn var lagður að
The Pink Panther Strikes Again sem
sýnd verður nú um jólin.
Þessi mynd fjallar eingöngu um
uppgjör milli Clouseau og Dreyfusar
og hefur verið líkt við átökin milli
Sherlock Holmes og Moriarty. En
Clouseau aðdáendur þurfa ekki að ör-
vænta i bili um að hann hverfi af sjón-
arsviðinu því nú gengur erlendis nýj-
asta myndin, The Revenge of the Pink
Panther.
Téiknimyndahetja
Út frá myndinni af bleika pardusn-
um sem sést i demantnum hefur þró-
azt sjálfstæð teiknimyndafigúra. Hún
hefur verið notuð í upphafs- og loka-
atriðum myndanna og svo er hún
orðin sjálfstæður aðili í teiknimynd-
um, sem njóta mikilla vinsælda um all-
an heim.
Þróun og hönnun bleika pardussins
er ekki lengur í höndum Blake Ed-
wards heldur hefur Richard Williams
tekið þetta að sér ásamt Ken Harris,
einum af brautryðjendum teikni-
myndagerðar í Bandaríkjunum.
Verslið þar sem varan er góð
og verðið hagstætt
Gjöriö jólalegt meö Stjörnumálningu.
Verzliö í heildsölu — Fáið magnafslátt.
Málningarverksmiðja
Höfðatúni 4 - Sími 23480
Öll okkar málning á verksmiðjuverði