Dagblaðið - 15.12.1978, Side 35

Dagblaðið - 15.12.1978, Side 35
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978. 43 Guðmundur L. Friðfinnsson: B L Ó Ð, •káldsaga. Kóputoikning: Sigurt>6r Jakobsson. Útgefandi: Abnenna bökafólagið, Rvfk, 1978. 163 bb. Skagfirski bóndinn, Guðmundur L. Friðfinnsson á Egilsá, hefur skrifað skáldsögu um refafjölskylduna, ævin- týri finnst mér réttara að kalla það, þar sem dýrin tala saman á manna- máli og ræða vandamál sem ekki til- heyra beint dýrarikinu, svo sem eitur- lyfjaneyslu unga fólksins o.fl. Annað er sameiginlegt dýrum og mönnum: öfund, ótti, þörf fyrir blíðu og samvist- ir við aðra. 1 fyrri hluta sögunnar er fjallað um refahjón á fjöllum með sex yrðlinga. Þar rikir lögmálið „að ekkert á að láta í friði sem hægt er að éta — alls ekki nokkurn skapaðan hlut. Það er lög- mál, boðorð númer eitt.” (51) sem refa- pabbi reynir að innræta börnum sínum. Og næsta lögmál, sem er”... að ráðast aldrei á þann sem er sterkari eða ykkur færari á einhvern hátt. Aðeins sá veikari á að deyja.” (51) — lýtur að þvi að læra að varast óvininn, en sá allra versti og hættulegasti er refaskyttan. RannveigG. Ágústsdóttir Truflar veiðikúnstir Einn yrðlingurinn í hópnum, Litla- Lágfóta, getur ekki samið sig að þess- um boðum. Hún truflar veiðikúnstir bróður síns svo að maríuerlan sleppur — af því henni þótti hún svo falleg. Atvikið verður til þess að litlu yrðling- arnir, sem eru í sannleika hreinir refir, Bók menntir telja föður sínum trú um að Litla-Lág- fóta sé viðrini, sennilega afkvæmi kattar og tófu. Við |jau orð lítur karl illilega til konu sinnar, þau fara að ríf- ast og á meðan flæma yrðlingarnir systur sina á brott. Síðari hluti segir svo frá Litlu-Lág- fótu þar sem hún er orðin ein og yfir- gefin, langsoltin og einmana. Hún getur ekki drepið silunginn, ekki fugl- inn, ekki músina. Loks hittir hún hryssu — en hún er of stór til að éta. Hins vegar á hryssan von á folaldi og þrátt fyrir að með þeim takist góð vin- átta, getur Litla-Lágfóta ekki látið vera að hugsa um heitt blóð þessa ófædda folalds. Á meðan á biðinni stendur nærist hún á hræi og dundar við að skoða lif stóðhrossanna, tengist enn nánari vináttuböndum við hryss- una þegar hún bjargar folaldi hennar frá bráðum bana — sefur jafnvel hjá folaldinu, kúrir þar í hlýjunni. Útskúfun En æ — þegar loks hungrið og eðlis- hvatirnar þrengja henni til að láta til skarar skriða er hryssan óðar komin á vettvang og nú er Litlu-Lágfótu út- skúfað enn á ný og komið langt fram á haust. Hennar bíður dauðdagi á fjöll- um. Sagan i heild er of löng og hefði mátt stytta að mun samtöl persón- anna, þvi þeim er gjarnt að endurtaka sig. Þá finnst mér ekki eðlilegt það slangur sem yrðlingum er lagt í munn, það gerir framsetninguna tilgerðarlega meðal annars vegna ofnotkunar. Auglýsing aftan á kápu er villandi: „BLÓÐ — Þetta nýja verk skáldbónd- ans á Egilsá er bæði áhrifamikið og ný- stárlegt í íslenzkum sagnaskáldskap. Sagan er jafnt fyrir aldna sem unga, full af húmor en undir niðri er alvar- legur tónn.” Enda þótt tekið sé fram með réttu að sagan sé full af húmor (sem ég kann kannski ekki að meta til fulls, svo sem DYR OG MENN þetta samtal milli yrðlinganna: „Hvað ertu svo sem að pípa? Hver heldurðu að vilji svona prumphænsni?” Vambi gaf Rófulang allt annað en bróðurlegt auga. „Víst skal hún vilja og trallala. Sæt er svísan og trallala,” hélt Rófu langur áfram..Ferlegt er fjörið og tr...” „Það er ég sem ætla að trúlofa mig og éta lifur og hjarta og þefa af kafloðnu skotti. Skutlan er beinlinis óð i mig og hafðu það.” (43), — mætti ætla af kápuáritun að hér væri um að ræða alvarlegt, dramatískt verk þar sem örlög byltast og blóðið rennur. Átakanleg saga Hitt er svo að nokkru rétt að dýra- ævintýri hafa ekki verið fyrirferðar- mikil í íslenskum skáldskap (e.t.v. vegna náins sambýlis bændaþjóðar við dýr). En því þá ekki að auglýsa skáld- verkið undir réttum fána? Útgáfufor- lag, svo fínt sem AB, má vara sig á svona villandi merkingum. Lesandi hættirað trúaþeim. En þrátt fyrir galla, sem mér finnst vera á verkinu, verður sagan á köflum bæði trúverðug og átakanleg. Það er satt hjá AB að „undir niðri er alvar- legur tónn” og hefði hann átt að fá að njóta sín betur í verkinu, því þann tón hygg ég skáldinu eiginlegan. Hitt er uppgerð. í gegnum glensið skynjum við djúpa samúð með þessu útigangs- dýri sem rétldræpt er hvar sem til þess næst — enda þótt það muni vera elsti innflytjandi landsins eins og framkem- ur í bókinni. I þessu sambandi vil ég benda á þriðja og fjórða kafla en þar er sagt frá umsátri tófubana um greni. Frásagan er lögð í munn refamömmu og verður eðlileg og áhrifamikil meðal annars af þvi að hún er laus við mis- skiliðgötumál. Næmar náttúrulýsingar Frásögnin af Litlu-Lágfótu, þegar hún er orðin ein og kannar háfjöilin, ber vott um næmt auga fyrir náttúru: „Hregg síðsumarsins hafa gengið ber- fætt um heiðina en þó stigið þungt til jarðar ..” (147). Dýrunum er lýst af samúð og nokkru glensi: „Stóðið rásar ... Fimi og léttleiki langdegisins er að nokkru horfinn úr fasi þeirra og þung- lamaleg rassaköst komin i staðinn. Mataröflun er stunduð af sömu kost- gæfni og fyrr og mörfullur kviður er kominn i staðinn fyrir sál og ástir, sem naumast eiga sér lengur pláss í öllu þessu spiki." (147). Einnig kemur fram að tófur eru í eðli sínu félagsverur og það sem rekur Litlu-Lágfótu til að gerast vinkona hryssunnar er ekki aðeins leynd von um blóðuga bráð heldur öllu fremur þörfin fyrir félagsskap og vináttu. Þetta er engin morðsaga — eins og búast má við af titli og auglýsingum — heldur dýrasaga, sögð af manni sem ann dýrum — jafnvel þeim sem leggj- ast á ævistarf hans. Rannveig G. Ágústsdóttir. FJOLVA UTGÁFA b‘ svarta Ijóðabókin rp • • I vo upprennandi ljóðskáld Nýi tíminn í Ijóðabókum Fagurlega hannaðar og myndskreyttar Athugið að þúsundir Ijóðelskra kvenna og karla meta Ijóðabók mest allra gjafa Fjöivi, m er það skeifunni 8, svart, maður sfmi 3.52.56 4UQySlNG*Sm«NHfj| Staður hagstæðm stóríiuikaupa Kjöt, mjólk, brauð, pakkavörur og niðursuðuvörur. Pappírsvörur, kerti-leikföng og gjafavörur. .STEKKJARBAKKI

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.