Dagblaðið - 15.12.1978, Side 40
Frystihúsin greiði opin-
ber gjöld og lífeyris-
sjóðum með skuldabréf um
—þannig fari 75% skuldanna—sveitarsjóðirnir á Suðurnesjum virka sem
lánastof nanir fyrir f iskvinnsluna
Farið hefur verið fram á við bæjar-
og sveitarfélög á Suðurnesjum að þau
taki við skuldabréfum til nokkurra ára
sem greiðslu á skuldum hraðfrystihúsa
á svæðinu. Er þar aðallega um að
ræða aðstöðugjöld og fasteignagjöld.
Hið sama mun hafa komið til tals
varðandi skuldir við lífeyrissjóði.
Þetta mun vera ein þeirra hug-
mynda sem fram hafa komið um leiðir
til að rétta við fjárhag frystihúsanna.
Hefur þá verið gert ráð fyrir að 75%
af þessum skuldum verði greidd með
skuldabréfum. í tollögunum er einnig
rætt um að skuldir vegna opinberra
gjalda rikissjóðs yrðu meðhöndlaðar á
sama hátt.
DB er kunnugt um að Keflavíkur-
kaupstaður hefur gengizt inn á þessi
greiðslukjör. Þar mun vera um að
ræða um það bil 90 milljóna inneign
hjá frystihúsunum á staðnum en það
er ekki fjarri lagi að samsvara öllum
aðstöðugjaldstekjum ársins sem er að
líða.
Sveitar- og bæjarsjóðir munu nú un
nokkurt skeið hafa virkað sem nokk
urs konar lánasjóðir fyrir fiskvinnslu-
fyrirtækin á Suðurnesjum. Veruleg
vanskil munu vera alls staðar er þá
sama hvar borið er niður, í Grindavík,
Njarðvík, Keflavik, Garði, Sandgerði,
Höfnum eða Vogum. Alls staðar eru
erfiðleikar vegna vanskila fiskvinnslu-
fyrirtækja viðsveitarfélögin. Ástandið
mun sizt vera verra í Keflavik en ann-
ars staðar. Mörg sveitarfélaganníi
byggja meira á sjávarútvegi og fisk-
vinnslu heldur en þar er gert.
Varðandi hugmyndir um greiðslu á
opinberum skuldum frystihúsanna á
Suðurnesjum með skuldabréfum mun
hugmyndin vera sú, að þar sitji öll
fyrirtækin við sama borð. Bæði þau
sem sérstakar ráðstafanir á að gera
með til að tryggja rekstur þeirra og
einnig hin sem þá eiga að bíða eða
jafnvel aðstoða við að leggja upp laup-
ÓG.
Fékk 12 metra
járnbita
inn um rúðuna
— iKgsta mildi aó ekki varð störsiys
Liklega hcfur ökumanninum á myndinni hér að ofan heldur en ekki brugðið i brún
er járnbitar komu fljúgandi í gegnum afturrúðu bilsins og íit um framrúðuna, og
mesta mildi var að enginn skyldi vera i farþegasætinu þvi þá hefði væntanlega ekki
þurft að spyrja að leikslokum.
Atburður þessi átti sér stað á mótum Hofsvallagötu og Hringbrautar í gærmorgun.
Dráttarbil méð tengivagni var ekið austur Hringbraut. Er hann snögghemlaði við Ijös-
in losnaði hluti af farminum sem var óbundinn. Tveir 12 metra járnbitar fóru inn um
afturrúðu bilsins og út um framrúðuna eins og glögglega sést á myndinni. Ekkert slys
varð að þessu sinni en Ijóst virðist að ganga þarf tryggilegar frá slikum farmi ef ekki á
illa að fara. - GAJ
Fjöldauppsagnir hugsanlegar
Möguleiki að f lugmenn neiti að f Ijúga DC 8 vélum ef
ráðnir verða erlendir f lugmenn
9dagar
Jólasveinninn i dag, þegar niu
dagar eru til jóla, er Pétur Hjalte-
sted, hljómlistarmaður. Jóla-
sveinasérfræðingar blaðsins skirðu
Pétur „Blaðasniki”.
Hvað vill hann svo fá i jólagjöf?
„Ég verð liklega að vera nafninu
trúr,” svaraði „Blaðasníkir”. „Ég
óska mér áskriftar að Dagblað-
inu.”
DB-mynd Kristján Ingi
„Við vorum búnir að veita undan-
þágu fyrir erlenda flugmenn i stuttan
tíma,” sagði Skúli Guðjónsson formaður
félags Loftleiðaflugmanna í morgun.
„En stjórn Flugleiða hefur ekki beðið
formlega um slika undanþágu og þeir
þurfa undanþágu frá okkar stéttarfélagi
samkvæmt samningum. Stjórnin hefur
aðeins tilkynnt ráðningu erlendu flug-
mannanna án þess að tala við okkur.
Stundum er það svo að stjórn Flug-
leiða virðir félag okkar ekki viðlits. Það
gæti þvi farið svo að Loftleiðaflugmenn
neituðu að fljúga DC-8 vél Flugleiða ef
ráðnir verða erlendir flugmenn. Það er
þó vonandi að ekki komi til þess. Flug-
þjálfun á DC-10 tekur 6—8 vikur. Eftir
áramótin verður aðeins ein DC-8 þota
éftir hjá Flugleiðum og á hana þarf um 9
áhafnir. Áhafnir i félagi Loftleiðaflug-
manna eru hins vegar 30.
Það er því eðlilegt að Félag Loftleiða-
flugmanna vilji ekki að flugmenn Flug-
félagsins gangi inn í þeirra stöður,
meðan þeir eru með sérsamninga við
Loftleiðir. Þegar vélum fækkar svona
Loftleiðamegin eru starfstækifærin fá og
atvinnan i hættu. En það er greinilegt að
hinn gamli forstjóri Flugfélags íslands
ræðurferðinni.
Það er ekki útilokað að gripið vérði til
fjöldauppsagna flugmanna Loftleiða.
Það hefur gerzt áður í svipuðum tilfell-
um. Við fengum t.d. heldur betur að
kenna á sameiningunni, er 10 Loftleiða-
flugmönnum var sagt upp, en menn
ráðnir hjá Flugfélaginu, en Loftleiða-
menn þóttu ekki gjaldgengir þar.”
Flugleiðaflugmenn funduðu kl. 10 í
morgun með forstjórum Flugleiða, en
fréttir hafa ekki borizt af þeim fundi.
- JH
SÍS tekur umboðslaun
af niðurgreiðslunum
SÍS tekur umboðslaun af niður-
greiðslum og útflutningsuppbótum á
búvörum en ekki bara söluverðinu.
Þetta kom fram í svari Steingríms Her-
mannssonar landbúnaðarráðherra við
fyrirspurn frá Albert Guðmundssyni
(S)á Alþingiígær.
Albert sagði I ræðu, að þetta væri
hneyksli. Með þessu væri SÍS að taka
umboðslaun af skattpeningum þjóðar-
innar. SÍS hefði fengið stórar upp-
hæðir I slíkum aukagreiðslum, sem
annars hefðu lækkað verð vörunnar
eða hækkað verð til bænda. Hann
gagnrýndi þingmenn, sem kölluðu sig
fulltrúa bænda en gættu í rauninni
hagsmuna „auðhrings”.
Albert bað um upplýsingar um,
hversu miklar upphæðir væri um að
ræða.
Nokkrar umræður spunnust. Vil-
mundur Gylfason (A) tók meðal ann-
ars undir við ræðu Alberts og kallaði
þetta furðulegt siðleysi. -HH
frfálst, óháð dagblað
FÖSTIIDAGUR 15. DES. 1978.
Kringlumýrarbraut:
Dauðaslys í
umferðinni
í nótt
Sá hörmulegi atburður varð
laust eftir miðnætti að 18 ára
piltur varð fyrir bifhjóli á Kringlu-
mýrarbraut með þeim afleiðingum
að hann beið bana.
Tildrög slyssins voru þau, að
stóru bifhjóli var ekið suður
Kringlumýrarbraut og lendir á
manni rétt norðan við Sigtún og
skammt frá gangbraut. Hlutar sem
höfðu brotnað af hjólinu við
höggið voru rúma 3 metra norðan
gangbrautarinnar. Maðurinn sem
varð fyrir hjólinu lá hins vegar um
21 metra sunnan gangbrautarinn-
ar þannig að ljóst er að hann hefur
kastazt u.þ.b. 24 metra með hjól-
inu. Hann var látinn þegar komið
var með hann á sjúkrahús. Öku-
maður bifhjólsins, sem er 21 árs,
lenti á Ijósastaur 35 metra fyrir
sunnan gangbrautina og er mikið
slasaður. - GAJ
„Það er
vindur
íþeim”
—segirÓlafur
Jóhannesson
„Það er vindur i þeim,” sagði
Ólafur Jóhannesson forsætisráð-
herra er.DB bar undir hann fréttir
af flokksstjórnarfundi Alþýðu-
flokksinis i gær, þar sem samþykkt-
ar voru tillögur í efnahagsmálum I
29 liðum með 27 atkvæðum gegn
niu og greint er frá á öðrum stað
hér í blaðinu.
„Ég er ekki hissa á, að einhverjir
þeirra hafi verið á móti þessu. Fólk
er almennt orðið þreytt á þessum
vinnubrögðum þeirra og alþýðu-
flokksmenn verða sjálfum sér
verstir með þessu áframhaldi,”
sagði Ólafur ennfremur. • HP
Þjófaráferð
ínótt
Rannsóknarlögreglunni bárust
nokkrar kærur um þjófnað og inn-
brot í morgun. Á Öldugötu 54
hafði verið stolið 90 þús. krónum.
Einhver gleðskapur hafði verið I
húsinu og einhverjir gestanna
þakkað fyrir sig með því að hafa á
brott með sér fyrrgreinda peninga-
upphæð. Þá var segulbandstæki
stolið úr bíl við Þórsgötu, brotizt
inn i vinnuskúr við Kringlumýrar-
braut og einnig var brotizt inn á
dagheimili á Hagamel 55. Ekki var
vitað hvort einhverju var stolið á
tveim siðasttöldu stöðunum.- GAJ