Dagblaðið - 16.12.1978, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 16.12.1978, Blaðsíða 1
4. ÁRG. — LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1978 — 282. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI27022. Þrýstihópamir helríða skipu- lagi heilbrigðismáianna — stjórnendur eiga að ráða nýtingu Geðdeildarinnar en ekki þrýstihópar rétt einu sinni—deildin ekki enn afhent til rekstrar „Hinir ýmsu þrýstihópar eru að hel- ríða öllu skipulagi heilbrigðismála á íslandi. Skipulagningu heilbrigðismála á ekki að reka á siðum dagblaðanna að undirlagi þrýstihópa, heldur á hin raunverulega þörf að ráða röðun verk- efna,” sagði Davíð Gunnarsson að- stoðarframkvæmdastjóri Rikisspítal anna i viðtali við DB í gær. Tilefni viðtalsins við Davíð var að spyrja hann hverju það sætti að til- búnar deildir innan hinnar nýju geð- deildarbyggingar á Landspitalalóðinni væru ekki nýttar og hvers vegna hverj- um sjúklingi þar væri ætlað fimmfalt pláss á við hvern sjúkling i spítalanum sjálfum, svo sem DB skýrði frá fyrir stuttu. Um það tiltekna mál sagði Davið að nú væri staðið frammi fyrir upp- byggðri geðdeild, þótt vafalaust hafi á sinum tíma mátt deila um hvort hún hafi verið rétt framkvæmd, þá með til- liti til þarfar á öðrum sviðum, og sjálf- sagt hafi sterkir þrýstihópar ráðið þar nokkru um. Varðandi stærðina sagðist hann hafa séð geðdeildir erlendis þar sem rými á’hvern sjúkling væri meira en í geðdeildinni hér, enda væri deildin einkum hugsuð sem göngudeild, en ekki legudeild. Göngudeildir eru mun plássfrekari en legudeildir miðað við sjúklingafjölda. Varðandi hugsanlegan ágreining lækna Landspitalans og Kleppsspítal- ans um samnýtingu hússins sagðist hann vera þeirrar skoðunar að ákvörðun um samnýtingu ætti stjórn ríkisspítalanna að taka, en ekki sá þrýstihópur sem ofan á yrði. Slikt hafi viðgengizt of lengi og hafi hann t.d. einhvern timann slegið þvi fram að sl. 20 ár hafi ekkert verið byggt á Landspitalalóðinni skv. fyrir- fram gerðum áætlunum, nema eldhús- byggingin. Því má að lokum bæta við að yfirstjórn mannvirkjagerðar á Landspitalalóðinni hefur ekki enn af- hent deildina til rekstrar. -GS Myndin er ekki tekin að loknum vinnudegi i matstofu nýju geðdeildar- innar, heidur hefur yfirstjórn mann- virkjagerðar á Landspitalalóðinni af einhverjum ástæðum ekki séð ástæðu til að afhenda til rekstrar þann hluta hússins, sem verið hefur fullbúinn um tfma. DB-mynd Sv. Þorm. Skoðanakönnun DB á fylgi ríkisstjómarinnar: Hverhreppir myndsegul- bandiðgóða? Nú fer hver að verða stðostur að skila inn getraunaseðlunum um jólasveininn I umferðinni Þann 22. verður dregið um það hver vinnur hinn glœsilega vinning, Philips myndsegulbandstœki fró Heimilis- twkjum sf. Sllkur gripur kostar I dug ríimlega 800 þúsund krónur, svo hér er um að rœða gott btisítag. Munið að skila seðlunum óttu — og nauðsynlegt er að skrifa inn ú seðilinn rétta svarið, eða sló hring utan um mcrkið sem við ú. Einfalt og getur gefið góðan vinn- 4 Engmn vill fara i jolaköttinn Jólasveinninn ó alltaf eitthvað Ipokanum sinum þegar hunn hittir kóta krakka, nýkominn af fjöUum. Þessijólasveinn vur ó útimarkaðinum ó Lœkjartorgi höfuðborgarinnar I gœr og útdeildi gjöfum. Ekki er að sjó annað en oð margir hafi vitjað fó staðfestingu þess aðjólakötturinn fœri ekki með sig. -DB-mynd Hörður. Oruggur meirihluti lands- manna styður ríkisstjórnina Ríkisstjómin hefur öruggan meiri- hluta landsmanna á bak við sig, þótt stjórnarflokkarnir hafi tapað nokkru fylgi siðan í þingkosningunum. Þetta sýnir skoðanakönnun sem DB hefur gert á afstöðu fólks til rikisstjórnarinn- ar. Af þeim sem tóku afstöðu með eða móti reyndust 59,1% fylgjandi rikis- stjóminni en 40,9% andvigir. Rúmur þriöjungur þeirra, sem spurðir voru í könnuninni, reyndist þó óákveðinn i afstöðu til rikisstjórnar- innar. Í ummælum, sem fólk lét fylgja svörum sínum við spurningunni, kemur fram að mjög margir telja að stjómin hafi ekki staðið sig nógu vel en rétt sé að sýna henni biðlund. Hún hafi verið svo skamma hrið við völd. Könnunin sýnir að þeir sem á ann- að borð telja_ sig fylgja einhverjum stjórnarflokknum, telja sig einnig nær allir stuðningsmenn stjórnarinnar. Þetta er annað en varð uppi á teningn- um þegar DB kannaði afstöðuna til ríkisstjórnar Geirs Hallgrimssonar i 'fyrra. Sjá bte. 6 og 7 Alþingi: Skatturá skatt ofan — sjábis.9 r-------------- I kvöld verða úrslitin ráðin t kvöld keppa Dagblaóið og Visir til úrslita i „Myndgátunni” i sjón- varpinu. Lið Dagblaðsins er við öllu búið eftir þrekæfingar og gufu- bóð. — Sjánánarábls. 37 u 7

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.