Dagblaðið - 16.12.1978, Blaðsíða 20
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1978.
20
€
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
V, þar scni Stj<>rnubio stendur.
Vaír.glímmölluriiin Skdlur,
en pár v'ar;GHmuféla@ó
"Afniann stofnaö
hinn 15. dúsember 188S.
K Sjórn GlimiAii^Mi^ •
. - Armanns 1978 - -u
Glímufélagid Ármann 90 ára:
Stofnað
á Skelli
—túninu vestanRauðarár, þar sem nú
stendurStjömubíó
Glimufélagið Ármann varð 90 ára 1
gær. Það var stofnað af nokkrum ungum
mönnum á Skelli, túni rétt vestan við
Rauðará i Reykjavik, þar sem nú stendur
Stjörnubió. Minningarskjöldur um
stofnun félagsins hcfur verið settur á
húsið við Laugaveg — og i gær aOijúpaði
formaður Ármanns, Gunnar Eggertsson,
skjöldinn að viðstöddum ýmsum forustu-
mönnum og konum iþróttahreyfingar-
innar og Ármenningum. Við það tilcfni
flutti Ármenningurinn Þorsteinn Einars-
son iþróttafulltrúi eftirfarandi ávarp, þar
sem hann rakti aðdraganda að stofnun
Ármanns.
„Háttvirtu tilheyrendur.
Við höfum komið hér saman 15. dag
desembermánaðar á gangstétt við mal-
bikað stræti og umhverfið er steinsteypt-
ar byggingar og eftir götunum fara vél-
knúin tæki.
Tilefnið er að á þennan sama stað
fyrir réttum 90 árum söfnuðust 20—30
ungir menn til glimuæfmgar. Hér var þá
vallgróið tún og ekki sást til þéttbýlisins
Reykjavikur. Þau 3—4 hús, sem sást til
hér innra, voru meira sveit en bæjar-
hluti.
Þann 25. nóv. 1888 gekk Hclgi
Hjálmarsson, þá prestaskólanemi, i
IOGT-stúkuna Einingu og þar kynntist
hann Pétri Jónssyni blikksmið. Barst tal
þeirra brátt að glimu og að þeir gengjust
fyrir æfíngum innan stúkunnar. Fyrsta
æfíng var i templarahúsinu þann 30.
nóvember. Að hefðbundnum íslenskum
sið þótti þeim forystumönnunum, Helga
Þingeyingi og Pétri úr Þingvallasveit,
rétt að efna til glimufundar úti við og
var hann ákveðinn 15. desember og
staðurinn fenginn hjá Guðlaugi sýslu-
manni Guðmundssyni sem átti hentug-
an túnblett hér vestur af Rauðará.
Nokkrir af forustumönnum Ár-
manns gegnum árin. Talið frá
vinstri Gunnlaugur J. Briem, Þor-
steinn Kristjánsson, Jón Þorsteins-
son, Þorsteinn Einarsson, Jóhann
Jóhannesson, Gunnar Eggertsson,
núverandi formaður, og Guð-
mundur Freyr Halldórsson, við is-
lenzka fánann. Til vinstri flytur
Þorsteinn ávarp sitt.
DB-myndir Bjamleifur
'jt ^ ; * V' t LANDSLEÍK/R / HANDKNA TTLEIK Danirnir koma! Island-Danmörk í Laugardalshöllinni sunnudaginn 17. og mánudaginn 18. kl. 21. Allir í höllina, hvetjum ísland til sigurs. Áfram ísland! HSI. Forsala aðgöngumiða hefst kl. 13 á txeLson sunnudag í Laugardalshöllinni.
Austurstrœti 14 - Sími 12345 i ^ Mffl Mig
Æu rRYGGINGAR 3ðumaa 39/Sitni 82800 yisthússtræti 9 / Simi 17700 JU /IUSTURBAKKI HF M SKEIFAN3A - SÍMAR38944-30107
Mætt var á staðnum á hinum boðaða
degi.
Tekið var til við glímu. i hléi milli lota
kvaddi Pétur sér hljóðs og bar undir
glimumenn hvort eigi skyldu þeir stofna
með sér félag. Var það samþykkt. Pétur
valdi þvi nafn og stakk upp á Ármann.
Var það samþykkt með margföldu
húrra. — Ármann. Hvaðan var það
fengið?
Pétur Jónsson var fæddur og uppalinn
i Þingvallasveit. Honum mun þvi hafa
veríð kær vætturin Ármann sem bjó i
Ármannsfelli norðan Þingvalla og af er
hugnæm saga, sem greinir frá hctjudáð
um i leikjum á Hofmannaflöt og mun án
efa hafa verið Pétri kær.
Sagan greinir frá bónda sem Ármann
mætti er hann leitaði sér búsetu — en
bóndinn á aö hafa.þekkt til bans og hafa
mælt til Ármanns: „Þú færir heill.”
Þessa mun Pétur án efa hafa minnst við
nafngiftina. — „Þú færir heill.”
í dag er 30 manna félag um eina íþrótt
orðið félag rúmlega 3000 kvenna og
karla sem iðka á þess vegum 10 íþrótta-
greinar — og iðkunarstaður er eigi einn,
Skellur, túnflötur við Raúðará, heldur
dreifast þeir á fjallasvæði, laugar. hús,
velli og bátanaust — völl á það og
iþróttahús i smiöum, skiðalyftur og
skála og starfrækir heilsuræktarstöð.
Svo skal eigi þessi góða stund liða að
við minnust ekki, án þess að nöfn séu
nefnd, allra þeirra ágætu fórnfúsu
kvenna og karla sem borið hafa uppi
stjórn félagsins í heild og í deildum, og
þá eigi siður þeirra sem axlað hafa
kennslu, þjálfun og leiðbeiningar —
borið fram merki félagsins i um 40 utan-
landsferðum, fjölmörgum ferðum um
flcstar byggðir landsins, leitt fram á leik-
svæðin, vettvang húsa og lauga, hina
stóru hópa, hvatt fram úr hópnum
landsmeistara, Norðurlandameistara,
ólympiuþátttakendur og methafa. —
Hvilik störf hafa ekki verið unnin af
þegnskap. Hafí þetta fólk allt þökk okk-
ar einlæga i dag og með okkur eiga þau
sem horfín eru engu minni þátt í því að
réttlætanlegt er í dag á 90 ára afmæli
Glímufélagsins Ármanns að staður i
borginni okkar, félagsins okkar, sé
merktur félaginu.
Þið sem að þessu hafíð staðið eigið
þökk okkar einlæga.
Megi Glimufélagið Ármann ávallt
færa með sér heili fyrir einstaklinga,
borgogþjóð.
Með þessum afmælisóskum bið ég
þig, formaður Glimufélagsins Ármanns,
Gunnar Eggertsson, að afhjúpa minn-
ingarskjöld um stofnun Ármanns á
þessum stað.”