Dagblaðið - 16.12.1978, Blaðsíða 29

Dagblaðið - 16.12.1978, Blaðsíða 29
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1978. 29 Á saurblöðum I báðum bökum, teikningar af höfundum. Cv AÐAlSTEíNi'J INGÓLFSSON Bók menntir Bjargvættur ungra skálda Fjölvaútgáfan gef ur út Ljóð yrkir til Islands Þau eru orðin nokkuð mörg bresku skáldin sem gist hafa Island og skrifað um það, en í þeim hópi hlýtur frú Margaret Rowntree að vera sér á parti. DB hefur borist Ijóðakver hennar sem hún nefnir „Sixty Years of Verse" og er þar kafli helgaður Íslandsdvöl hennar. Frú Rowntree, hefur aðhafst ýmislegt um dagana eins og kemur fram i formála að bókinni. Hún er menntuð sem kennari og stundaöi kennslu lengi framan af ásamt eiginmanni sinum, en siðan tók hún þátt i borgarstjórn heimaborgar sinnar, Fleetwood, og varð fyrsta konan til að gegna borgarstjóraemb- ætti þar. Var hún siðar sæmd M.B.E. orðu fyrir framlag hennar til borgar- stjórnarmála og önnur félagsstörf, en frú Rowntree virðist hafa verið óþreytandi i starfi sínu. Hún mun hafa skrifað mikið af skáldskap um dagana, sem birst hefur i timaritum í heima- högum hennar og einnig virðist hún hafa ferðast víða. Hingað til tslands mun hún oftsinnis hafa komiö og ferð- ast um á hjóli og með tjald, og vinum sinum hér tileinkar hún tslandsljóð sin i bókinni. Þau ganga flest út á náttúru- fegurð landsins: „Sweeping waves on a lonely firth / Foam on a rockbound coast / Rainbow spray from a silver foss / What shall I treasure most?" Auk þess hefur frú Rowntree ánægju af islenskum mat: „Pleasant meetings with kindly friends / Coffee and cakes and tea / Ponnakökur and cream and skyr / All will be there for me”. Frú Rowntree er einnig barngóð og eru nokkur Ijóðanna skrifuð um islensk börn og unglinga sem hún hefur hitt og að lokum þessa íslenska þáttar i Frú Margaret Rowntree á yngri árum. bókinni skrifar hún langt Ijóð um hringferð um landið og lýsir helstu viðkomustöðum. A.I. Það er alkunna að útgáfa Ijóðabóka hefur mjög dregist saman á undanförn- um árum og hefur þetta einkum bitnað á ungum skáldum sem ekki fá komið bókum sínum á framfæri nema i fjöirit- un. Það er því fréttnæmt að ein bókaút- gáfan, Fjölvaútgáfan, skuli leggja áherslu á að koma á framfæri fagurlega frágengnum kiljum með Ijóðum ungra skálda og það er ekki nema von að þeir .Fjölva-menn segi um sjálfa sig á einum stað:„Fjölva-útgáfan er að verða algert furðufyrirbæri. Að hún skuli láta sér detta í hug að gefa út Ijóðabækur, þar sem hún stendur upp fyrir haus í verð- bólguskriðunni, meðan flestir aðrir snúa sér að útgáfu reyfara og kynsprengju- bókmennta.” Forlagið hefur nú sent frá sér 5 Ijóðabækur og þær nýjustu eru Horft í birtuna eftir Þóru Jónsdóttur og Förunótt eftir Aðalstein Asberg Sigurðs- son. Eru þær báðar myndskreyttar og fallega útlítandi. Þóra Jónsdóttir hefur tvívegis áður gefið út Ijóðabækur en Förunótt er önnur Ijóðabók Aðal- steins Asbergs. Einkenni Ijóða Þóru er knappt og fágað orðaval og hún spyr margra spurninga um tilveru manneskj- unnar i hverfulum heimi. Aðalsteinn Ásberg er hins vegar stöðugt að þroska stil sinn og undirbýr nú skáldsögu. - A.I. Keppinautur Barbiedúkkunnar — heitir Amy eins og dóttir forsetans Nýjasta nýtt i Bandarikjunum er dúkka sem heitir í höfuðið á dóttur Carters forseta. Sem sagt Amy Carter. Höfundurinn er þekktur barnabóka- höfundur þar í landi, Tom McPart- land, sem sést hér ásamt brúðunni Amy. Þykir hætt við að hún verði skæður keppinautur hinnar þekktu Barbiedúkku enda engin smásmíði, um hálfur metri á hæð. Amy verður að sögn komin I hverja einustu verzl- un áður en hámarki jólakauptiðarinn- ar verður náð þar vestra. HONT BLANC er toppurinn Vissulega eru Mont Blanc pennar eilítið dýrari en aðrir pennar, en þeir eru líka í sérflokki um gæði og feg- urð. i'ást uóeins í Pennaviðgerðinni, Ingólfsstræti Skákhúsinu, Laugavegi 46 Bókabúð Helgafells, Laugavegi 100 Bókabúð Keflavíkur Bókabúð Jónasar, Akureyri / ^ 16 rX m f~ 5 ** ---

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.