Dagblaðið - 16.12.1978, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 16.12.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1978. Ifr Ólafur Jóhannesson forsxtisráðherra „Fjarri lagi að stjórnin sé vinsæl” — segirGeir Hallgrímsson „Ég er nú ekki kunnugur for- sendum þessarar skoðanakönnunar og vil því ekki tjá mig um hana sem slíka,” sagði Geir Hallgrimsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins. „Ég get hins vegar sagt að ég tel það fjarri lagi að þessi ríkisstjórn njóti vin- sælda meginþorra landsmanna, en það eru varla fréttir frá mér.” - HP Geir Hallgrimsson, formaður Sjálf- stxðisflokksins „Kemur mér ekki á óvart” — segirÓlafur Jóhannesson „Þetta kemur mér ekkert á óvart, þetta er það sem ég hef heyrt hjá mönnum,” sagði Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra í viðtali við Dag- blaðið um niðurstöður skoðanakönn- unarinnar. „Þó vil ég taka fram að það er óvarlegt að taka fullt mark á svona könnunum, þó svo að niðurstöður geti verið í samræmi við raunveruleikann einu sinni, þvi það er ekki hægt að treysta þvi að fólk segi hug sinn allan I svona könnunum.” - HP Skin og skúrir skiptast á i stjórnmálunum. Hér takast þeir fast i hendur Benedikt Gröndal og Ólafur Jóhannesson. Nú er karpað um hvort á að hafa forgang, til- lögur manna Ólafs eða tillögur liðsmanna Benedikts. DB-mynd Bjamleifur Pólýfónkórínnflytur Jólaóratóríu Bachs: Lyfta huganum yfir peningakapphlaupið — kórinn sjálfur fjárhagslega illa staddur Jólarjúpurnar og rauðkálið er gott i magann — en einhvers hlýtur andinn að þurfa með á fæðingarhátíð frelsar- ans. Það finnst félögum Pólýfón- kórsins að minnsta kosti og hafa nú í margar vikur æft sig að syngja hina miklu og fögru Jólaóratoríu Bachs. Árangurinn munu Reykvíkingar og nærsveitamenn fá að heyra á tvennum tónleikum i Háskólabiói síðasta og næstsiðasta dag ársins, það er að segja þeir sem verða svo heppnir að ná I miða. Alls taka um 200 manns þátt I flutn- ingi verksins, þar af 37 hljóðfæraleik- arar. Stjórnandi er eins og áður Ing- ólfur Guðbrandsson. Einsöngvarar eru 4, Elísabet Erlingsdóttir, Sigriður E. Magnúsdóttir og Jón Þorsteinsson, sem öll hófu söngferil sinn I Pólýfón- kórnum, og Michael Rippon sem hlaut mikið lof i Italíuferð kórsins I fyrra. Konsertmeistari er dóttir Ingólfs, Rut, en af einleikurum má auk hennar nefna Kristján Þ. Stephensen, Bernard Williams, Lárus Sveinsson og Pétur Þorvaldsson. Aðgöngumiðar eru seldir hjá Eymundsson, Ferðaskrifstofunni Útsýn og Hljóðfærahúsinu. Þeir kosta 3000 krónur og fylgir þeim fallegt kort svo þeir eru tilvalin jólagjöf. Þetta er 21. árið sem Polýfónkórinn starfar og ef til vill það síðasta. Stjórn kórsins tjáði blaðamönnum á fimmtu- dag að starfinu yrði ekki haldið áfram nema hið opinbera rétti fram sína margumbiðluðu hjálparhönd og tæki þátt i kostnaðinum við raddþjálfun. hljóðfæraleikara og einsöngvara. Þeir bentu á þá staðreynd að hverjir tón- leikar Sinfóníuhljómsveitarinnar eru niðurgreiddir með um tíu milljónum króna. Þótti þeim full ástæða til að ríkið veitti kórnum einhvern fastan styrk. Máli sinu til stuðnings bentu þeir á í fyrsta lagi: að allt söngfólkið gefur sína vinnu og i öðru lagi: að listalif í landinu verður miklu fjöl- breyttara ef hlúð er að frumkvæði áhugafólks heldur en það sé takmark- að við miðstýrt ríkiskerfið. Með englasöng sínum fyrir áramót- in stefnir kórinn að því að komast inn I himnaríki, en það er líkt með himna- ríki og fjárlögum rikisins að mjög erfitt er að komast þar inn en lika litil hætta á að manni verði fleygt þaðan út aftur. IHH Pólýfónkórínn er 1 þann mund að senda frá sér tónverkið Messlas á þremur hljómplötum. Forsvarsmenn Pólýfónkórsins halda á mynd af fxðingu Krísts og prýðir hún albúm þessa mikla verks. Frá vinstri: Sigurjón Jónsson lyfjafræðingur, Bjarni Bragi Jónsson hagfrxðingur, Fríðrík Eiriksson formaður kórsins og Ingólfur Guðbrandsson stjórnandi kórsins. V DB-mynd Bjamleifur Jólapakkakvóld Síðasta skemmtikvöld Hótels Loftleiða á jólaföst- unni verður sunnudaginn 17. desember í Blóma- salnum. Kvöldið nefnum við jólapakkakvöld, því að þá verður efnt til jólapakkahappdrættis. Allir matargestir fá ókeypis happdrættismiða við inn- ganginn, og dregið verður um veglega vinninga á staðnum. — Módelsamtökin sýna tískufatnað frá Dömunni, Lækjargötu ogViktoríu, Laugavegi. Siqurður Guðmundsson leikur á Hammondorgel. Garðar Cortes syngur jólalög við undirleik Jóns Stefánssonar. Sérstök kynning verður á kristalsmunum frá Kosta Boda, Verslanahöllinni. Matseðill: Humarsupa að hætti hússins. Fylltur grísahryggur á stlfurvagni. Appelsínuundur í ábæti. Matur framreiddur frá kl. 19 en dagskráin hefst klukkan20. Borðpantanir í ámum 22321 og22322. Skammdegisskemmtun fyrir alla. Verið velkomin, HÓTEL LQFTLEIÐIR

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.