Dagblaðið - 16.12.1978, Page 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1978.
5
Heitavatnsskortur á Blönduósi:
Heita vatnið snarminnkar
— bor kemur í janúarlok
—eins gott að ekki kólnar mikið
„Þetta veröur ekki virkilega slæmt
fyrr en gerir almennilegan kuldakafla.
Þá gæti okkur orðið kalt en hlýindin
að undanförnu hafa bjargað okkur,”
sagði Hilmar Kristjánsson oddviti á
Blönduósi í samtali við DB í gær.
Þar í plássinu skortir nú verulega
heitt vatn vegna mikillar minnkunar
vatns úr borholum hitaveitunnar á
staðnum. Síðan i ágúst hefur vatns-
streymið minnkað úr 28 sekúndulitr-
um i 22. Þörfin er 28 litrar. Heima-
menn telja sig örugga með að leysa
vandamálið með því að bora nýja holu
hjá þeim tveimur, sem fyrir eru nýttar
á Reykjum við Reykjabraut.
„En við fáum ekki bor fyrr en i
fyrsta lagi i lok janúar,” sagði Hilmar
Kristjánsson. „Við höfum fengið vil-
yrði fyrir bornum Narfa á Akureyri.
Miðað við þetta fáum við ekki nóg
heitt vatn fyrr en í fyrsta lagi í byrjun
marz. Við bíðum bara og vonum.
Til að spara vatn á Blönduósi hafa
6—10 stærstu húsin á staðnum verið
kynt með olíu að undanförnu og ann-
ast hitaveitan málið. Kynditæki hafa
ekki verið tekin úr mörgum húsum á
Blönduósi — og reyndar hafa ekki öll
hús þar ennþá fengið hitaveitu. Meðal
húsa sem hituð eru upp með olíu 1
heitavatnsskortinum eru sjúkrahúsið,
skólarnir, elliheimilið og bókhlaðan.
Verður fjárhagslegt tjón sveitarfélags-
ins augljóslega verulegt vegna þessa
ástands. •ÓV.
Næturfjólan, sem jörðin geymdi lifandi.
UÓSMYNDAÞJÓNUSTA
KLAPPARSTÍG 16 - SÍMI 14044
Auglýsinga- og iðnaðarljósmyndir.
Barna- og fjölskyldoljásmyndir.
BrúSkaups- og fermingarljósmyndir.
Myndir trá ÍsJandi — London — Parls
fyrir útgefendur og fil veggskreyfinga
Lokað 22. des. til 5. janúar.
springur út í
bakgarði við
Njálsgötu
„Jörðin geymir meira lifandi en
kartöflurnar á Ragnheiðarstöðum og
Bæjarskerjum,” sagði gömul kona við
Njálsgötu I Reykjavík, sem hafði sam-
band við blaðið vegna frétta af kartöflu-
uppskeru i desember.
„Þetta er afgamalt hús sem ég bý i
hérna viö Njálsgötuna. Því fylgir stór
lóð, þar sem eru alls lags blóm á sumrin.
Ég get nú lítið gert nema aö rölta á milli
og horfa á blómin. En svo var það fyrir
viku siðan að ég var úti i garði og ætlaði
að brjóta þar stöngul af dauðu blómi. Þá
tók ég eftir þvi að komnir voru knúppar
á blómið og i gær hafði það sprungið út.
Þetta er næturfjóla, fjölært blóm. Litirn-
ir eru fallegir, en ekki eins skærir og á
sumrin, enda vantar sólskinið,” sagði
viðmælandi okkar i gær.
-ÓV.
Gamla konan við Njálsgötuna hlúir að
næturfjólunni sinni.
DB-myndir Höröur.
Loksins á /s/andi
Margar tegundir sjónvarpstækja á einum stað.
Eigum meðalannars eftirtaidar tegundir:
HITACHI Japönsk 20” 448.000L-
Salora Finnsk 22”-26” Verðjfá 454.200.-
Luxor
Swedish Quality
Luxor—Sœnsk
22”-26” Verð frá 446.000.-
Japönsk
18”-20”
Verð frá
390.000.-
ITT
ITT— V-þýzk
20”-22”-26”
Verð frá 445.000
SPARIÐ SPORIN
Verzlið þar sem úrva/ið er. Látið fagmenn leiðbeina ykkur.
SJONVARPSMIÐSTOÐIN
MIÐSTÖÐ SJÓNVARPSVIÐSKIPTANNA
NÆG BÍLASTÆÐI
VIÐ ERUM ISIÐUMULA 2 SÍMINN OKKAR ER
y; IK l