Dagblaðið - 16.12.1978, Qupperneq 6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1978.
Á 27. skoðanakönnun Dagbladsins: Eruð þér fylgjandi eða andvígur rfkisstjórninni?
Stjóm'm með öruggan meiríhhita
DEMANTAR - DEMANTAR
Demantshringar, demantshálsmen, demantseymalokk-
ar, handsmlðaðir islenzkir demantsskartgripir. Einnig
ýmist demantsskart frá þekktum enskum og hollenzkum
demantsskartgripaframleiðendum.
Ábyrgdá
öium
okkar
skartgripum
Húsgagnaverslun
Reykjavlcur hf.
Brautarholti 2'Símor 11940 — 12691
Ríkisstjórnin hefur meirihluta
landsmanna meö sér samkvæmt
niðurstöðum skoðanakönnunar sem
DB gerði um siðustu helgi á fylgi ríkis-
stjórnarinnar. Af þeim sem ekki
segjast óákveðnir styðja 59,1 prósent
ríkisstjórnina en 40,9% eru henni and-
vígir.
En t^ess ber að gæta að 34 af hverj-
um hundrað sögðust vera óákveðnir,
sem er hátt hlutfall.
Í síðustu þingkosningum höfðu
stjórnarflokkarnir 61,8 af hundraði at-
kvæða.
Þessi skoðanakönnun var gerð sam-
tímis könnun á fylgi einstakra flokka.
Sama fólkið var spurt í báðum könn-
ununum. 1 stórum dráttum má heita
að allir þeir, sem á annað borð segjast
mundu kjósa einhvern stjórnarflokk-
inn, segist styðja rikisstjómina. Þess
voru dæmi að menn segðust styðja
stjórnina en sögðust svo óvissir þegar
þeir voru spurðir hvaða flokk þeir
mundu kjósa. 1 könnuninni á fylgi
flokkanna voru 40 af hundraði ýmist
óákveðnir, kváðust „engan flokk”
styðja eða neituðu að svara spurning-
unni. Af þessum sökum er dálitill mis-
munur á niðurstöðum könnunarinnar
á fylgi flokkanna og könnunarinnar
Niðurstöður skoðanakönnunar-
innarurðu þessar:
Fylgjandi ríkisstjórninni 117 eða 39%
Andvígir ríkisstjórninni 81 eða 27%
Óákveðnir 102 eða 34%
Ef aðeins eru teknir þeir sem
afstöðutóku
verða niðurstöðumar þessar:
Fylgjandi 59,1%
Andvígir 40,9%
Fimm af nýju ráðherrunum átta. Frá vinstri: Tómas Arnason, Steingrimur Hermannsson, Kjartan Jóhannsson, Svavar
Gestsson og Hjörleifur Guttormsson.
um afstöðu til rikisstjórnarinnar, en
ekki svo að miklu skipti.
Konur f remur með
stjórninni
Ríkisstjórnin nýtur mun meira
fylgist úti á landsbyggðinni en á
höfuðborgarsvæðinu. Þá er athyglis-
vert að hlutur hennar er stærri meðal
kvenna en karla.
Þó voru fleiri konur en karlar
óákveðnar í afstöðu til stjórnarinnar.
Á höfuðborgarsvæðinu reyndust
fleiri óákveðnir en úti á landsbyggð-.
inni, basði af konum og körlum.
Ef gerður er samanburður við skoð-
anakönnun sem Dagblaðið gerði i
fyrra á fylgi við ríkisstjórn Geirs Hall-
grímssonar kemur i Ijós að þessi ríkis-
stjórn hefur nú sem stendur mun meiri
stuðning þeirra, sem telja sig fylgja
einhverjum flokki stjórnarinnar, en
ríkisstjórn Geirs. Greinilegt var af
könnuninni ifyrraað fjöldi fólks, sem
taldi sig styðja stjórnarflokkana, Sjálf-
stæðisflokkinn og Framsóknarflokk-
inn, hafði þá snúið baki við rikisstjórn
þessara flokka. Ólafia heldur sínu
nokkuð til haga.
• HH
55^
°,g vel fja>menn< #* “^tínguna til\
fl/fl uiiir * i.Qfum sarm
toða ogWn* V^fMksergetuj\
tðirtilaðW^
„GEFUM HENNIKOST A AÐ
STANDA VIÐ LOFORDIN”
„Maður styður náttúrlega aldrei
allar aðgerðir rikisstjórnar. Þessi
stjórn gerir margt ágætt, annað ekki.
Þetta á allt eftir að koma i Ijós,” sagði
kona í Vestmannaeyjum, sem var ein
hinna spurðu í skoðanakönnun DB.
Mjög algengt var að fólk svaraði að
erfitt væri að dæma stjórnina eftir svo
stuttan valdatima. Þetta gilti einkum
um þá sem þó sögðust styðja stjórnina
„enn”.
„Hún lifir ekki af þeim gjörðum,
sem hún hefur ákveðiö og gert, en
getur enn bætt þar um og staðið sig
eins og lofað var,” sagði kona á Akur-
eyri. „Þaðer varla komin á hana nógu
góð reynsla en nógu miklu hafa þeir
lofað. Það er eins gott að þeir reyni
ekki að standa við það allt,” sagði karl
á Reykjavíkursvæðinu. „Ég er fylgj-
andi því að hún fái að reyna sig dálítið
lengur og gefa henni kost á að standa
við loforðin,” sagði karl í Reykjavík.
Svo voru aðrir sem hölluðust að
stjórnarandstöðunni. Sumir þeirra
höfðu kosið einhvem stjórnarflokk-
anna siðast. „Það skásta, sem stjórnin
hefur gert, er ekkert annað en það sem
sjálfstæðismenn ætluðu að gera. Ann-
ars er hún ónýt,” sagði kar! I Kópa-
vogi. „Litil reynsla af henni ennþá en
ekki lízt mér á það sem komið er,”
sagði kona á Reykjavikursvæðinu.
„Hún hefur ekki staðið sig nógu vel og
nú mundi ég ekki fara að kjósa hana,”
sagði karl á Akureyri. „Ríkisstjórnin
hefur svikið flest af þvi sem aðstand-
endur hennar lofuðu fyrir kosningar
og nú kysi ég Sjálfstæðisflokkinn,”
sagði annar karl á Akureyri. „Mér
finnst hún ekki takast á við vandann.
Hún stendur ekki við loforðið um
samningana í gildi,” sagði kona á
Eyrarbakka. „Bölvuð vettlingatök,”
sagði karl í Mosfellssveit.
„Allt sömu mennirnir"
Algengt var að fólk lýsti skömm
sinni á þessari ríkisstjórn, svo og þeirri
sem var á undan henni. „Ekki hefur
það batnað. Það er sama hvaða fifl eru
við völd. Alltaf kemur það niður á
þeim minni máttar,” sagði karl í
Grundarfirði. „Ég var fylgjandi henni
en hef nú snúizt gegn henni, þvi að
hún hefur aðeins sýnt að þetta er allt
sama tóbakið,” sagði karl á Reykja-
víkursvæðinu. „Ég hef ekki fundið
neinn flokk til að kjósa. Þeir segja hver
annan Ijúga, og mér sýnast þetta allt
vera sömu mennirnir,” sagði karl í
Hafnarfirði. „Þetta er sundurleitur
hópur. Ég held að þeir geti ekki komið
sér saman um nauðsynlegar aðgerðir,
sem fyrri stjórn tókst heldur ekki að
framkvæma,” sagði karl i Búðardal.
„Þeir eru eins og allir aðrir, hugsa bara
um sjálfa sig, þegar þeir eru komnir i
stjórn,” sagði kona á Húsavík. „Það
tekur því sýnilega ekki lengur að velta
fyrir sér hver stjórnar,” sagði kona á
Reykjavíkursvæðinu.
Samstarf við
verkalýðshreyfingu
Heillegastur stuðningur við ríkis-
stjórnina kom frá þeim sem nefndu að
stjórna þyrfti í samráði við verkalýðs-
hreyfinguna. Annars færi þetta illa.
„Ég held að ríkisstjórn nái betri ár-
angri þegar hún hefur verkalýðshreyf-
inguna með sér,” sagði karl á Egils-
stöðum. „Eindregið með henni því að
hún mun frekar geta stuðlað að vinnu-
friði og starfað án þess að vera trufluð
af verkföllum,” sagði kona á Dalvík.
En margir komu einnig að því að
flokkarnir heföu ekki komið samn-
ingunum I gildi.
- HH