Dagblaðið - 16.12.1978, Page 22
22
í /»
TIMEX
HEIMSFRÆGU ÚRIN - 60 GERÐIR
1 ÁRS ÁBYRGÐ. PANTIÐ Í
SÍMA 50590 EÐA BRÉFLEGA
Kr. 11.850 Kr. 11.380 Kr. 11.850
52720)* 553215 52620)*
Kr. 12.300
5272)1*
Kr. 10.900 Í41
503425 Jk
Kr. 12.750
573)04*
Kr. 11.380
556122*
Kr. 11.500'
26551)
Kr. 12.750
276751
Kr. 12.750|
: 27679I !
Kr. 11.485
23.3712
w PÓSTSENDUM
IQ If A| MAGNÚSGUÐLAUGSSON
Ull'VfliL STRANDGÖTU 19 - HAFNARFIRÐI
Kópa vogsbúar!
Jó/agföfin
hans er
gjafakassi frá
Heildverilun
‘^étur'^éturóóon l\l\
Suáurgnta I4 Simar 2-1 0-20 og 2-51 -07
myndir
XW
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1978.
Warren Beatty
fer á kostum
'..... 11 1
Háskólabíó f rumsýnir í dag
jólamyndina
Heaven Can Wait
HeW: Heaven Cen Wait
Leikstjórar Warren Beatty og Bucfc Henry
HandHt: Elaine May og Warren Beatty
KHkmyndun: William A. Fraker
KUpping: Robert C. Jones og Don Zimmerman
Tónlist Dave Grusin
Framieidd i BandaHkjunum 1977
Aöalhlutverk:
Werren Beatty
JuHe Christie
Jemes Mason
Dyan Cannon
Buck Henry
Heaven Can Wait má meö sanni
kallast Warren Beatty mynd. Hann
framleiddi myndina, skrifaði handritið
að hluta, tók þátt i leikstjórn og lék
aðalhlutverkið.
Heaven Can Wait er byggð á sam-
nefndu leikriti eftir Harry Segall. Árið
1941 var gerð kvikmynd eftir þessu
sama leikriti og nefndist hún Here
Comes Mr. Jordan. Leikstjórinn þá var
Alexander Hall. Nýja myndin er oft
ranglega tengd annarri með sama titli
sem Ernest Lubitsch gerði 1941. Þótt
efniviðurinn sé ekki mjög ólíkur þá
eiga þessar myndir ekkert sameigin-
legt.
Staðgengill
Heaven Can Wait fjallar um
iþróttamanninn Joe Pendleton. Hann
lendir í umferðarslysi og þegar hann
rankar við sér er hann á leiö til himna.
Joe reynir að koma fylgdarliði sinu í
skilning um að hans hinsta stund hafi
ekki verið runnin upp. Það tekst
loksins þegar erkiengillinn Mr. Jordan
staðfestir að fyldarliðið hafi aðeins
álitið umferðarslysið banvænt og því
hafi timi hans ekki verið kominn.
Þegar komið er með Joe aftur til
jarðarinnar kemur i Ijós að búið er að
brenna jarðneskar leifar hans, svo nú
eru góð ráð dýr. Reynt er að finna
staðgengil sem tekst að lokum. Er það
miljónamæringur að nafni Leo Farns-
worth. Joe tekur við líkama hans á
slæmum tima þvi konan hans og ritari
eru að undirbúa tilraun til að myrða
hann.
Út frá þessum punkti I sögunni
lendir Joe sem Farnsworth í miklum
ævintýrum sem óþarfi er að rekja hér
nánar. Eins og lesa mátti er hér um að
ræða hreinræktaða gamanmynd sem
að visu er með rómantisku ívafi. Efnið
býður uppá skemmtilega útfærslu sem
leikstjórunum tekst að notfæra sér. Þó
telja kunnugir að myndin fylgi forvera
sínum of mikið eftir.
Undrabarnið
Warren Beatty
Warren Beatty er ekki ókunnur
kvikmyndahúsagestum. Segja má að
hann hafi orðið heimsfrægur á mynd-
inni Bonnie og Clyde sem hann fram-
leiddi sjálfur 1967. Þar fór hann meö
aðalhlutverk ásamt Fay Dunaway.
Áður hafði hann leikið í nokkrum
BaldurHjaltason
kvikmyndum án þess að slá í gegn. Má
þar m.a. nefna myndina Mickey One
sem sýnd var í sjónvarpinu fyrir
nokkru og leikstýrð af Arthur Penn.
Næsta stórvirki hans var Shampoo
1975 sem Hal Asby leikstýrði en
Beatty framleiddi og lék aðalhlutverk
l. Siðan lá leiðin að Heaven Can Wait.
í þeirri mynd nýtur Beatty aðstoðar
margra ágætismanna. Buck Henry
hefur lengi verið í fremstu röð hand-
ritahöfunda í Bandarikjunum. Hann á
m. a. að baki sér handritin að The
Graduate, Catch 22 og Day of the
Dolphin. Einnig hefur hann leikið
töluvert og sást fyrir skömmu i
myndinni The Man Who fell to Earth.
Rekinn úr starfi fyrir
fjórtán ára verkfallsbrot
Þrjátíu og tveggja ára gamall starfs- var nýlega rekinn að kröfu verkaiýðs- fyrir fjórtán árum gerzt verkfalls-
maður i vefnaðarfyrirtæki í Bretlandi félags sins. I Ijós kom að hann hafði brjótur. Sextán ára gamall og þá ný-