Dagblaðið - 16.12.1978, Qupperneq 25
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1978.
25
N
Bók
menntir
una lifi. En slikt lífsmark sést lítt í
samtiðinni sem er reyrð niður á klafa:
Þeir sem stóðu forðum lausum fótum
í frjórri óvissunni
standa nú föstum fótum í trénaðri trú
og hampa dúsu kenninganna.
Þú stjórnar þessu ekki lengur.
Freyr.
Loki er minn guð
Þótt Freyr standi sem tákn lifs og
framvindu er Guðbergur of vitsmuna-
legur höfundur til að geta látið sér
nægja að hylla hann. Þvi er hér þri-
vegis skotið inn einkennilegri orða-
súlu, leik með nöfn goðanna Njarðar,
Freys og Laufeyjar, en endar svo: Loki
er minn guð.
Loki er sem sé guð undirhyggju og
bragðvísi, raunverulega er það hann
sem lifgar sköpunina með vélum
sínum, höggormur i aldingarði. En
það er til marks um bragðvísi Guð-
bergs að hann leggur ekki frekar út af
þessu, lætur sér nægja að skjóta þess-
ari yfirlýsingu að lesandanum. En
hlutverk Loka i listinni er kannski það
sem úrslitum ræður. Þvi tengist hin
undirförula hugsun:
Formleysi verður
að formi
Flateyjar-Freyr er tilraunatexti eins
og annað sem Guðbergur Bergsson
hefur sett saman. Verk hans lifa í
þeirri sundrung, tvísýnu, óvissu og
lausung formsins sem hann hefur
stundað. Þetta allt er blátt áfram for-
senda fyrir höfundarverki hans. Og ég
held að þessi bók bendi til að Guðberg-
ur sé síður en svo i stöðnun. Miklu
fremur finnst mér að texti hans sé hér
gæddur nýrri spennu, nýrri undir-
hyggju, nýrri bragðvisi. Sjálft hið goð-
fræðilega táknmál bókarinnar er til
þess fallið að rýna undir yfirborðið,
bak við orð og tákn:
orðlaus þögn er innsti þáttur gleði
heimkynni málsins hugsun
er þar í sköpun
formleysi verður þar að formi
litleysið að lit.
Freyr
gliman við unað þagnarinnar
tekur engan enda
fremur en löngun mannsins
' til að horfa og skynja
skilja og verða til
gegnum visku augans.
Hún verður til i kviksandi.
Freyr
þaðer að lifa í tvísýni eyrans
og augans og að geta séð
með eyranu-auganu-munninum-
hendinni-nefinu-tungunni: allt'
skal vera tvisýnt eins og maðurinn.
Hins vegar er háskinn:
gælur háskans og gleði
öryggislauss lífs.
Þetta er blátt áfram fagur og djúp-
sær skáldskapur, lýrik sem ýmsum
mun koma á óvart frá svo harðsvíruð-
um byltingarmanni stíls og hug-
mynda. En tilvitnunin birtir kannski
dýpsta einkenni í verkum Guðbergs:
Næmleika, róttækni í glímu við orðið,
heiminn og fjötraða vanahugsun. Allt
þetta má sjá i Ijóðfórnum þeim sem
hann nú hefurfærtFlateyjar-Frey.
Jóhannes Páll annar páfi með pólskan hatt sem nokkrir landa hans, sem komu til
Rómar, afhentu honum að gjöf.
Leikrit eftir
páfa frumf lutt
—var leikstjóri við leikhús í Krakov
Jóhannes Páll annar páfi verður
varla kallaður einn hinna ungu og
upprennandi penna sem leggja fyrir
sig leikritun en þrátt fyrir það mun
ítalska útvarpið frumflytja verk eftir
hann á næstunni. Leikritið samdi páfi
fyrir tuttugu árum,þá biskup í Krakov
i Póllandi.
Leikritið fjallar um ástir og vanda-
mál tveggja hjóna og börn þeirra.
Nafn leikritsins mun vera Verzlun
gullsmiðsins. Leikstjóri verður pólsk
kona, Alexandra Kurczab, en hún var
áður leikari við sama leikhús í Krakov
og núverandi páfi starfaði sem leik-
stjóri áður en hann hóf prestsþjón-'
ustu.
-ÓG. ,
Borópennasett í
„ONYX STEINI"
/ hvítu, brúnu
og grænu.
PAIIar nánari k
upptýsingar;
PE N N A VIÐGERÐIN
Intjólfsstráeti 2, simí 13271
FYRSTA FLOKKS
GJÖF SEM GLEÐUR
M JT m m ma grm * *
Jolagjofm / ar