Dagblaðið - 16.12.1978, Side 36
36
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1978.
Hja Jólatrésmarkaðinum
ClmViiim: 11 Nœgbílastœði. jé
oKanunni n sm39770.
Jolaskraut, jolagreinar
Greinar á leiði
Stormkerti
^Fagurlega
skreyttar
greinar á leiði
Það bezta er
aðeins nógu
gottfyrir .
þig VC
Þjónusta
— öllum trjám
pakkað í nœlonnet
Verið ekki uti i
fclír kuldanum. Komið í bjartan
Wr 500ferm sal og veljið jólatré frá
Jólatrésmarkaðinum Skeifunni 11
norðurendi. Opið til kl. 10 alla daga vikunnar
Hvað vantar hana?
Auövitaö
náttkjó! og slopp
Q/fimmm
G/æsibæ — Sími 83210
SAMA-
STAÐIIR
í TILVERUNNI
BÆ(UR
mAlfríðar
EINARSDÚTTUR:
ÚR SÁLAR-
KIRNUNNIOG
Málfrlður Einarsdóttir.
„Ímínum augum eru þessar tvær bœkur
hennar með ánœgjulegri tíðindum í bók-
menntaheiminum.” Jóhann Hjálmars-
son (Morgunblaðinu).
Bókaútgáfan
JbL Ljóðhús
LAUFÁSVEGI4, REYKJAVÍK.
PÓSTHÓLF 629 - SÍM117095
—
Jólatré
Laugardaginn 16. þ.m. kl. 16.30 verður
kveikt á jólatrénu í Keflavík en tré þetta
er gjöf frá vinabæ Keflavíkur, Kristian-
sand í Noregi. Fulltrúi norska sendiráðs-
ins mun afhenda tréð. Barnakór Bama-
skólans í Keflavík mun syngja undir
stjórn Hreins Líndal og jólasveinar
munu koma í heimsókn.
Dregið hefur verið í jóladagatalahappdrætti
Kiwanisklúbbsins Heklu fyrir dagana 9.—15.
des. hjá borgarfógeta. Upp komu þessi númer:
Vinningar óskast sóttir til Ásgeirs Guðlaugs-
sonar, sími 74996.
Myndin að ofan er af hertogafrúnni
sjálfri en fyrir neðan er mynd af leikkon-
unni sem leika á hana i framhaldsflokki í
sjónvarpinu.
Hertogafrúin
birtir bréf in
frá kónginum
Hertogafrúin af Windsor, ekkja her-
togans af Windsor, sem áður var Ed-
ward áttundi konungur Bretlands,
hyggst birta opinberlega bréf sem fóru
þeirra á milli. Með því ætlar hún að
sanna að hún hafi ekki verið ástkona
hans áður en þau gengu í heilagt hjóna-
band, er hann hafði sagt af sér konung-
dómi.
Lögmaður frúarinnar, frú Suzanne
Blum, segir að bréfin verði gefin út
innan árs og hefur verið ráðinn sagn-
fræðingur til að ritstýra bókinni. Frú
Blum sagði nýlega að fólk yrði mjög
hissa þegar það uppgötvaði hve miklar
blekkingar hefðu verið hafðar i frammi i
þessu máli. Edward áttundi sagði af sér
konungdómi til að giftast Wallis Simp-
son árið 1936 þar sem valdaaðilar í Bret-
landi töldu ekki fært að konungur Breta-
veldis gengi að eiga konu af ótignum
ættum, sem auk þess var tvískilin.
Þrettán ára
stal strætó
til að heim-
sækja
frænku
Darryll, þrettán ára pjakkur i San
Francisco, fékk skyndilega óviðráðan-
lega löngun til að heimsækja frænku
sina, sem býr i New York. Þar á milli
eru nokkur þúsund kílómetrar, svo nú
var úr vöndu að ráða, enda skotsilfur
piltsins af skomum skammti. En hann
fann brátt lausnina. Hún virtist líka ein-
föld i fyrstu. Darryll gekk upp í fyrsta
strætisvagn sem hann kom að og — ók
af stað.
Þetta þótti eiganda bifreiðarinnar og
lögreglunni ekki nógu gott. En þá var'
eftir að stöðva bifreiðina og handsama
hinn unga ökumann. Það tók átta lög-
reglumenn með nokkrar bifreiðir drjúga
stund að afgreiða málið og stöðva bif-
reiðina, sem þá var komin eitt hundvað
og áttatíu mílur frá upphafsstaðnum.
„Gerið það ekki handtaka mig, ég er
ekki neinn glæpamaður,” hrópaði hinn
þrettán ára gamli ævintýramaður, þegar
hann hoppaði út úr strætisvagninum.
„Hann stóð sig býsna vel við akstur-
inn,” var hið eina sem lögreglan vildi
láta hafa eftir sér um málið.
ÓG