Dagblaðið - 16.12.1978, Side 38
Þátturinn er klukkustundar langur og
þýðandi er Óskar Ingimarsson.
ELA
Karl Ingalls kemur með óvæntan gest heim i þættinum á morgun.
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1978.
Dagur
höfrungsins
Skemmtileg og spennandi bandarísk
Panavisionlitmynd með George C. Scott
og Trish van Devere
Islenzkur texti
Endursýnd kl. 3,5,7,9 og 11.
salur
Makleg málagjöld
Afar spennandi og viðburðarík litmynd,
með Charles Bronson og Liv Ullmann.
Íslenzkur texti. Bönnuð innan 14 ára.
Endursýnd kl. 3,05, 5,05, 7,05, 9.05 og
11,05.
■salur
Kóngur í New York
Sprenghjægileg og fjörug ádeilukvik-
mynd, gerð af Charlie Chaplin. — Ein-
hver harðasta ádeilumynd sem meistari
Chaplin gerði.
Höfundur, leikstjóri og aðalleikari:
Charlie Chaplin.
Sýndlkl. 3,5,7,9 og 11.
salur
Varist vætuna
Sprenghlægileg gamanmynd með Jackie
Gleason.
íslenzkur texti.
Endursýnd kl. 3.15 5.15, 7.15, 9.15 og
11.15.
GAMLA BIO
flMlMTS
99
VETRARBORN
VI
0RN
Ný, dönsk kvikmynd gerð eftir verð-
launaskáklsögu Dea Trier Mörch.
Aðalhlutverk: Ann-Marie Maxj
Hansen, Helle Hertz, Lone Kellermann.
íslenzkur texti
Sýnd kl. 5,7 og9.
Siöustu sýningar
Flóttinn til Nornafells
Barnasýning kl. 3.
HAFNARBIO
, ROBIRT M.SHEHMANp,^,„
1S 1
KRISTOFFERSON
CONVOY
I! ERNEST
fnrffl
Afar spennandi og viðburðarík alveg ný
ensk Panavision-litmynd, um mjög
óvenjulegar mótmælaaðgerðir.
Myndin er nú sýnd víða um heim við
feikna aðsókn. Leikstjóri Sam
Peckinpah.
Islenzkur texti.
Bönnuðbörnum.
Sýnd kl. 4.50,7,9.10 og II .20.
Kviksvtymlir
LAUGARDAGUR
AUSTDRBÆJARBlÓ: Klu Klux Klan sýnir klærn v
ar, aðalhlutverk Richard Burton og Lee Marvin, kl. 5,
7og9,bönnuöinnan 16ára. ,
GAMLA Bló: Sjá auglýsingu.
HAFNARBÍÓ: Sjá auglýsingu.
HAFNARFJARÐARBÍÓ: Carrie, aðalhlutverk John
Travolta,kl. 9.
HÁSKÓLABtó: Bróðir minn Ljónshjarta, kl. 5 og 7. /
LAUGARÁSBlÓ: ökuþórar, kl. 5 og 11. Roosterl
Cogburn, aðalhlutverk John Wayne og Katharine
Hepburn, kl. 7 og 9.
NÝJA BlÓ: Þrumur og eldingar, kl. 5,7 og 9, bönnuð
innan 14ára.
REGNBOGINN: Sjá augíýsingu.
STJÖRNUBÍÓ: Ævintýri popparans, aðalhlutverk^,
Robin Askwith, Anthony Booth, Sheila White, kl. 5,
7,9 og 11, bönnuð börnum.
TÓNABÍÓ: Þrumufleygur og léttfeti, aöalhlutverk.
Clint Eastwood, Jeff Bridges, George Kennedy, kl. 5,
7.10og9.20.
SUNNUDAGUR
AUSTURBÆJARBlÓ: Klu Klux Klan sýnir klærn-
ar, aðalhlutverk Richard Burton og Lee Marvin, kl. 5,
7 og 9, bönnuð innan 16 ára.
GAMLA BÍÓ: Sjá auglýsingu.
H AFNARBÍÓ: Sjá auglýsingu.
HAFNARFJARÐARBÍÓ: Carrie, aðalhlutverk John
Travolta,kI. 9.
HÁSKÓLABÍÓ: Bróðir minn Ljónshjarta, kl. 5 og 7.
LAUGARÁSBÍÓ: ökuþórar, kl. 5 og 11. Rooster
Cogburn, aðalhlutverk John Wayne og Katharine'
Hepburn.kl. 7 og9.
NÝJA BÍÓ: Þrumur og eldingar, kl. 5,7 og 9, bönnuð
innan 14 ára.
REGNBOGINN: Siá auelvsineu.
STJÖRNUBÍÓ: Ævintýri popparans kl. 7, 9 og 11.
Viðerumósigrandikl. 5.
TÓNABÍÓ: Þrumufleygur og léttfeti, aðalhlutverk
Clint Eastwood, Jeff Bridges, George Kennedy, kl. 5,
7.10oe9.20.
MYNDGÁTAN—LOKAÞÁTTUR—sjónvarp kl. 21.10:
Enn á ný keppa síðdegis-
blöðin og nú til úrslita
I kvöld kl. 21.10 er á dagskrá sjón-
varpsins síðasti þáttur getraunaleiksins
Myndgátan. Nú eru fjögur blöð dottin
út úr keppni, en þau tvö sem stigahæst
voru úr síðustu keppni halda áfram í
kvöld og keppa til úrslita.
Það eru síðdegisblöðin, Dagblaðið og
Vísir, sem etja kappi saman i kvöld. 1
undanúrslitum var Vísir með 76 stig en
Dagblaðiðmeð65.
Það verður því án efa spennandi að
fylgjast með keppninni i kvöld og sjá
hvort liðið verður sterkara. Stigagjöf í
þættinum er þannig: Fyrir hverja al-
menna spurningu er gefið 1 stig, fyrir
hverja rétta samstæðu 1 stig og fyrir
rétta myndgátu eða málshátt eru gefin
fimm stig.
Fyrir hönd Dagblaðsins keppa þeir
Ómar Valdimarsson og Jóhannes Reyk-
dal ogfyrir hönd Visis keppa þeir Kjart-
an Sveinsson og Sæmundur Guðvins-
son.
Stjórnendur Myndgátunnar eru sem
fyrr Ásta R. Jóhannesdóttir og Þorgeir
Ástvaldsson. Umsjónarmaður er Egill
Eðvarðsson. Myndgátan er tæplega
klukkustundarlöng.
ELA
Tilbúnir ( slaginn. DB-mennirnir Ómar Valdimarsson og Jóhannes
Reykdal eru ekki árennilegir. DB-mynd Höröur
Hvaö notar þú, sprautu eöa hláturgas?
HÚSIÐ Á SLÉTTUNNI—sjónvarp kl. 16.00 á morgun:
Óvæntir endurfundir
Fjórði þáttur um Húsiðá sléttunni er
á dagskrá sjónvarpsins á morgun kl.
16.00 og nefnist þátturinn Óvæntir end-
urfundir.
i þriðja þætti gerðist það helzt að
haglél eyðilagði hveitiuppskeru Ingalls-
hjónanna og margra annarra í sveitinni.
Karl Ingalls verður því að fara að leita
sér að vinnu fjarri heimili sínu.
Hann fær starf i grjótnámu, en það er
bæði erfitt og hættulegt. Annar vina
hans þar, Peters sprengjustjóri, hefur
lofað konu sinni að hætta þessu starfi en
áður en til þess kemur ferst hann á vo-
veiflegan hátt.
Karólína Ingalls fær fjölda kvenna í
lið með sér og þeim tekst að bjarga því
sem bjargað verður af uppskerunni með
því að nota ævagamlar aðferðir.
1 þættinum á morgun er sagt frá því er
Karl er kominn til annarrar borgar. Þar
hittir hann gamlan félaga, Edward, sem
fram kom I fyrsta þætti og var þá svo
góður við fjölskylduna.
Að sjálfsögðu verða miklir fagnaðar-
fundir er Karl kemur með hann heim og
Lára verður mjög glöð að sjá gamla vin
sinn aftur sem hún hélt að hún fengi
aldrei framaraðsjá.
Edward flyzt til þeirra og fer að vinna
i myllunni. Þeim finnst hann einmana
og ákveða að kynna hann fyrir konu.
Fyrir valinu verður póstmeistarinn í
bænum, en það er kona á bezta aldri.
Henni lízt nú ekkert of vel á hann i
fyrstu en þaðbreytist.