Dagblaðið - 16.12.1978, Qupperneq 39
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1978.
«
Útvarp
Sjónvarp
I
r~-------------------------------------------\
BÍÓMYNDIN—sjónvarp í kvðld kl. 22.00:
TAGLHNYTINGURINN
Úr kvikmyndinni Taglhnýtingurinn; það er Pierre Clement sem er til vinstri á myndinni.
Taglhnýtingurinn (II Conformista)
nefnist ítölsk bíómynd sem sjónvarpið
sýnir í kvöld kl. 22.00. Myndin er frá
árinu 1970 byggð á sögu eftir Alberto
Moravia.
Handrit og leikstjórn gerði Bernardo
Bertolucci en með aðalhlutverk fer Jean
Louis Trintignant. Myndin er ekki við
V
hæfi barna.
Sagan hefst skömmu fyrir siðustu
, heimsstyrjöldina á Ítalíu. Ungur heim-
spekiprófessor, Marcello, er í nánu
sambandi við fasistaflokkinn. Hann er
sendur til Parisar i erindagjörðum fyrir
flokkinn og fer þá ýmislegt að koma í
ljós.
Kvikmyndahandbók okkar vildi ekk-
ert gefa upp um þessa mynd, svo við
, verðum bara að bíða og sjá hvort hún er
góð eða slæm.
Myndin stendur í einn tima og
fjörutíu og fimm mínútur og er í lit. Þýð-
andi er Kristrún Þórðardóttir.
-ELA.
_________________________________/
Útvarp
Laugardagur
16. desember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Leikfimi.
7.20 Bæn.
7.25 Ljösaskiptí: Tónlistarþáttur i umsjá Guð
mundar Jónssonar píanóleikara.
8.00 Fréttir. Forustugr. dagbl. (útdr.) Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ýmis lög að eigin
vali.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.30 óskalög sjúklinga: Kristin Sveinbjörns-
dóttir kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir).
11.20 Að lesa og leika. Jónina H. Jónsdóttir leik-
kona sér um bamatíma.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Tón-
leikar. í vikulokin. Blandað efni i samantekt
Eddu Andrésdóttur, Áma Johnsens, Jóns
Björgvinssonar og Ólafs Geirssonar.
15.30 Á grænu Ijósi. óli H. Þórðarson
framkvstj. umferðarráðs spjallar við hlustend-
15.40 íslenzkt mál. Ásgeir Blöndal Magnússon
cand. mag. talar.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Vinsælustu popplögin. Vignir Sveinsson
kynnir.
17.00 Breiðfirzkt efnL a. Viðtal við konu sem nú
er hundrað ára, Sveinn Sæmundsson talar við
Sigurrós Guðmundsdóttur frá Sauðeyjum
(Áður útv. fyrir 9 árum). b. Bjart er yfir
Breiðafirði. Stefán Þorsteinsson i Ólafsvik
flytur hugleiöingu.
17.45 Söngvar í léttum dúr. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19J30 Fréttír. Frétttaauki. Tilkynningar.
19.45 Hljómplöturabb. Þorsteinn Hannesson
kynnir sönglög og söngvara.
20.30 Á bókamarkaðinum. Umsjónarmaður:
Andrés Bjömsson. Kynnir: Dóra Ingvadóttir.
— Tónleikar.
22.05 Kvöldsagan: Sæsímaleiðangurinn 1860.
Kjartan Ragnars sendiráðunautur les annan
hluta þýðingar sinnar á frásögn Theodors
Zeilaus foringja í Danaher.
Orð kvöldslns á jólaföstu.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22:45 Danslög. (23.50 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur
17. desember
8.00 Fréttir.
8.05 Morgunandakt. Séra Sigurður Pálsson
vígslubiskup flytur ritningarorð og bæn.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.).
8.35 Létt morgunlög. Boston Pops hjjómsveit-
in leikur. Stjórnandi: Arthur Fiedler.
9.00 Hvað varð fyrir valinu? Tveir fornsögu-
þættir úr Ólafs sögu T ryggvasonar enni mestu.
Sigurður Blöndal skógræktarstjóri les.
9.20 Morguntónleikar. a. Tvíraddaðar hug
dettur, Sarabande og Burrée, i h-moll eftir
Johann Sebastian Bach. Ilse og Nicholas
Alfonso leika á gitara. b. Serenaða i D-dúr
fyrir flautu, Fiðlu og víólu op. 25 eftir Ludwig
van Beethoven. Eugenia Zukerman, Pinchas
Zukerman og Michael Tree leika.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Ljósaskiptí: Tónlistarþáttur i umsjá Guð
mundar Jónssonar pianóleikara (endurt. frá'
morgninum áöur).
11.00 Messa i Frikirkjunni. Prestur: Séra
Kristján Róbertsson. Organleikari: Sigurður
ísólfsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.30 Eiður og heitvinning i réttarfarí. Dr. Páll
Sigurðsson dósent flytur siðara hádegiserindi
sitt.
14.15 Arflcifð i tónum. Baldur Pálmason minnist
þekktra erlendra tónlistarmanna, sem létust i
fyrra, og tekur fram hljómplötur þeirra.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.25 Á bókamarkaðinum. Lestur úr nýjum
bókum. Umsjónarmaður: Andrés Bjömsson.
Kynnir: Dóra Ingvadóttir.
18.00 Létt tónlist: „Glataði sonurinn”, ballett-
tónlist eftir Scott Joplin i hljómsveitargerð
Grants Hossacks, sem stjórnar Festival ballett-
hljómsveitinni i Lundúnum; Michael Bassett
leikur á píanó. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.Tilkynningar.
19.30 í iðrum jarðar. Þórarinn Þórarinsson fyrr-
um skóiastjóri segir frá komu sinni til námu-
héraða í Wales.
19.55 íslenzk tónUst. a. „Lilja" eftir Jón Ásgeirs-
son. Sinfóniuhljómsveit lslands leikur; Páll P.
Pálsson stj. b. Sonorites III fyrir píanó, segul-
band og ásláttarhljóðfæri eftir Magnús
Blöndal Jóhannsson. Halldór Haraldsson,
höfundurinn og Reynir Sigurösson leika.
20.20 „Þegar Kristur heimsóttí bóndann”, smá-
saga eftír Nikolaj Leskoff. Jón Gunnlaugsson
læknir þýddi og les.
21.00 Söguþáttur. Broddi Broddason og Gísli
Ágúst Gunnlaugsson sjá um þáttinn. Fjallaö
um „lslenzka miðaldasögu" eftir dr. Björn
Þorsteinsson og „Gömlu steinhúsin á íslandi",
bók eftir Hclge Finsen og Esbjöm Hiort.
21.25 Tónlist eftír Jean SibeUus. a. „Svanurinn i
Tuonela", tónlist um finnskt söguljóð. Ung
verska ríkishljómsveitin ieikur, Jussi Jaias stj.
b. Sinfónía nr. 4 i a-moll op. 63. Konunglega
fílharmoniusveitin i Lundúnum leikur, Loris
Tjeknavorian stj.
22.05 Kvöldsagan: Sæsimaleiðangurinn 1860.
Kjartan Ragnars sendiráðunautur heldur
áfram lestri þýöingar sinnar á frásögn eftir
Theodor Zeilau um islandsdvöl leiöangurs
manna (3).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22.50 Við uppsprettur sigildrar tónlistar. Dr.
Ketill Ingólfsson sér um þáttinn.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Sjónvarp
i
Laugardagur
16. desember
16.30 Fjölgun í fjölskyldunnL Lokaþátturinn er
m.a. um ungböm, sem þarfnast sérstakrar um-
önnunar á sjúkrahúsum, þroska ungbama
fyrstu mánuðina og þörf þeirra fyrir ást og
umhyggju. Þýðandi og þulur Arnar Hauksson
læknir.
16.50 íþróttir. Umsjónarmaður Bjami Felixson.
18.30 Við eigum von á barni. Lokaþáttur. Ung-
bamið kemur heim og mikiar breytingar verða
á lifi fjölskyldunnar. Marit þykir sem allir hafi
gleymt henni. Þýðandi Trausti Júliusson.
(Nordvision — Finnska Sjónvarpiö).
18.55 Enska knattspyrnan.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Lifsglaður lausamaður. Breskur gaman
myndaflokkur. Annar þáttur. Tjaldað tíl einn-
ar nætur. Þýðandi Ellert Sigurbjömsson.
2I.I0 Myndgátan. Getraunaleikur. Lokaþáttur.
Stjórnendur Ásta R. Jóhannesdóttir og Þor-
geir Ástvaldsson. Umsjónarmaður Egill
Eðvarðsson.
22.00 TaglhnJtingurinn (U comformista). Itölsk
bíómynd frá árinu 1970, byggð á sögu eftir
Alberto Moravia. Handrit og leikstjórn
Bemardo Bertolucci. Aðalhlutverk Jean Louis
Trintignant. Sagan gerist á Ítalíu og hefst
skömmu fyrir síðari heimsstyrjöld. Marcello
nefnist ungur heimspekiprófessor. Hann er i
nánu sambandi við fasistaflokkinn og er
sendur til Parisar í erindagerðum flokksins.
Myndin er ekki við hæfi barna. Þýðandi
Kristrún Þórðardóttir.
23.45 Dagskrárlok.
Sunnudagur
17. desember
16.00 Húsið á sléttunnL Fjórði þáttur. óvæntir
endurfundir. Efni þriðja þáttar: Haglél eyði-
leggur hveitiuppskeru Ingallshjónanna og
margra annarra í sveitinni, og Karl Ingalls
verður að leita sér atvinnu fjarri heimili sínu.
Hann fær starf i grjótnámu, en það er bæði
erfitt og hættulegt. Annar vina hans þar,
Peters sprengistjóri, hefur lofað konu sinni að
hætta þessu starfi, en áður en til þess kemur
ferst hann voveiflega. Karólína Ingalls fær
fjölda kvenna I lið með sér, og þeim tekst að
bjarga því sem bjargað verður af uppskerunni
með þvi að nota ævagamlar aðferðir. Þýðandi
óskar Ingimarsson.
17.00 Á óvissum tímum. Breskur fræðslu-
myndaflokkur. Fjórði þáttur. Nýlenduhug-
myndin. Þýðandi Gylfi Þ. Gíslason.
18.00 Stundin okkar. Kynnir Sigriður Ragna
Sigurðardóttir. Stjórn upptöku Ándrés
Indriðason.
Hlé.
20.00 Fréttlr og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá. V
20.40 Lagaflokkur eftir Ragnar Björnsson.
Halldór K. Vilhclmsson syngur lög við ljóð
eftir Svein Jónsson. Ragnar Bjömsson leikur á
pianó. Stjóm upptöku Rúnar Gunnarsson.
21.05 Gagn og gaman. Starfsfiæðsluþáttur.
Finnbjörg Scheving fóstra og Ragnar Karlsson
flugvirki lýsa störfum sínum. Spyrjendur
Gestur Kristinsson og Valgerður Jónsdóttir.
Stjórn upptöku örn Harðarson.
22.05 Ég, Kládlus. Sjöundi þáttur.Drottning
himinsins. Efni sjötta þáttar: Tiberius verður
keisari að Ágústusi látnum. Germaníkusi er
byrlað eitur. Agrippina, ekkja hans, sver að
koma fram hefndum á morðingjunum,
Gnaeusi Piso, landstjóra á Sýrlandi og
Plasínu, eiginkonu hans. Tíberíus er talinn I'
vitorði með moröingjunum, og hann lætur til .
leiðast að setja á sviö réttarhöld til að hreinsa
sie af öllum grun. Áður en dómur er
kveöinn yfir PLócr honum gefinn kostur á að
svipta sig lifi og deyja þannig mcð sæmd.
Hann hikar við en kona hans rekur þá rýting
i brjóst hans. Þýöandi Dóra Hafsteinsdóttir.
22.55 íþróttir. Umsjónarmaður Bjami Felixson.
23.30 Að kvöldi dags. Séra Magnús Guðjónsson
biskupsritari flytur hugvekju.
23.40 Dagskrárlok.
39 '
SEGULLAMPAR
TIL JÓLAGJAFA ^
VERÐ KR. 4770 OG 5420
MYNDLAMPAR
TIL JÓLAGJAFA
BARNALAMPAR
TIL JÓLAGJAFA
15 TEGUNDIR
PÖSTSENDUM
LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL
m LJÓS & ORKA
Jjj Sudurlandsbraut 12
SB sími 84488