Dagblaðið - 16.12.1978, Blaðsíða 40
Háfskip hf. kærir fyrr-
verandi forstjóra sinn
—fyrir „meint fjármálamisferli, skjalafals og aðra misbeitingu”
Stjórn Hafskips hf. hefur kært fyrr-
verandi forstjóra félagsins, Magnús
Magnússon, fyrir fjármálamisferli,
skjalafals og aðra misbeitingu. Kæran
barst Rannsóknarlögreglu ríkisins i
gær — og þá um leið sendi stjórn Haf-
skips hf. frá sér fréttatilkynningu um
kæruna.
Hallvarður Einvarðsson, rann-
sóknarlögreglustjóri ríkisins, staðfesti i '
samtali við fréttamann blaðsins i gær-
kvöld að kæran hefði borizt sér, en
kvaðst að öðru leyti ekkert um hana
geta sagt. DB gerði ítrekað árangurs-
lausar tilraunir til að ná sambandi við
Magnús í gær.
í fréttatilkynningu stjómar Haf-
skips hf. segir að að ósk núverandi
framkvæmdastjóra félagsins hafi að
undanförnu „farið fram úttekt á
ýmsum bókhalds- og rekstrarþáttum
félagsins. Við þá úttekt komu i Ijós
vafasöm atriði, er gáfu tilefni til sér-
stakrar rannsóknar af hálfu félagsins.
Þeirri frumrannsókn er nú lokið að
mestu leyti og byggir stjórn félagsins
kæru sína til Rannsóknarlögreglu
ríkisins á henni. Er hér um að ræða
meint fjármálamisferli, skjalafals, auk
annarrar misbeitingar. Var svo komið
að stjórnendur félagsins töldu sig, að
itarlega athuguðu máli, ekki eiga ann-
arra kosta völ en að ofangreindum
aðilum væri falin rannsókn þessa
máls.
Magnús Magnússon lét af störfum
forstjóra hjá félaginu í nóvember
1977, en hefur átt sæti i stjórn félags-
ins.”
í fréttatilkynningunni segir að
meint brot Magnúsar hafi ekki beinzt
að viðskiptamönnum félagsins, við-
skiptabanka eða öðrum samskiptaaðil-
um Hafskips. „Á þessu stigi verður þó
ekki annað séð en að fjárhagslegir
hagsmunir félagsins verði tryggðir i
þessu máli,” segir þar.
Siðan segir: „Það er von stjómar
Hafskips hf. og framkvæmdastjóra að
mál þetta fái hiaða meðferð og að við-
skiptamenn félagsins og aðrír sam-
skiptaaöilar þess láti félagið, nú á við-
kvæmum tima, ekki gjalda þess að
hafa gengið hreint til verks i máli
þessu.”
-ÓV
„Eitt er
víst að
alltaf
verður
Ógurlega verður gaman þá!
Krakkarnir eru spenntir, það er
verið að velja jólatré fjöLskyldunn-
ar i ár. Ekki má draga það mikið
lengur ef menn vilja fá gott tré,
þ.c.a.s. þeir sem ekki eru þegar
búnir að fá sér tré eða eiga gott
gervijðlatré.
*
DB-mynd Hörður
Sjónvarpið fær 18 milljónir
fyrir auglýsingar um helgina
Fyrir auglýsingar helgarinnar
(laugardag + sunnudag) fær sjónvarp-
ið greiddar hvorki meira né minna en
10.228.800 kr. Fyrir kvöldið i gær
verða hins vegar greiddar heilar
7.838.200 kr. og er það langdýrasta
kvöldiö á þessu ári hjá sjónvarpinu. auglýsingin er fyrir bamabækur frá Ið-
Auglýsingar helgarinnar eru alls unni, 135 sekúndur, en auglýsingamar
rúmur klukkutími á lengd eða 3871 tvær frá Emi og örlygi eru 115og90
sekúnda, 64.5 mínútur. Er þetta sekúndur. Til samanburðar má geta
lengsti auglýsingatími sem sjónvarpið þess að gosdrykkjaauglýsingarnar eru
hefur nokkru sinni tekið upp. Lengsta 1 minúta hver.
Hver auglýsingaminúta í sjónvarpi
kostar 140þúsund krónur. Sjá nánar
um heimsókn DB á auglýsingadeild í
blaðinu á þriðjudag.
DS
Alþýðuflokkurinn skildi
eftir smugu (
—fjárlagaaf greiðslu haldið áf ram
)
Orðalag flokksstjórnarályktunar
Alþýðuflokksins er þannig skilin af öll
um ráðherrum rikisstjórnarinnar, að
unnt sé að afgreiða fjárlög án þess að
frumvarp krata til laga um jafnvægis-
stefnu í efnahagsmálum hafi hlotið
samþykki Alþingis. Svo kunni að fara
að það frumvarp verði tekið til af-
greiðslu samhliöa því að lánsfjáráætl-
un verði lögðfram.
Virðist því ekkert því til fyrirstöðu
að önnur umræða fjárlaga byrji í dag,
þrátt fyrir þau þáttaskil sem virtust
liggja í loftinu eftir flokksstjórnarfund
Alþýðuflokksins í fyrrinótt.
Orðalag ályktunarinnar gefur það
svigrúm sem nægir-til þess að á hana
er ekki litið sem úrslitakosti af hálfu
Alþýðuflokksins i stjórnarsamstarf-
inu.
„Þessi afgreiðsla er sammæli allra
ráðherra rikisstjórnarinnar,” sagði
Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra
er hann lýsti því i umræðum utan dag-
skrár á þingi hver háttur verður á
hafður um gerð fjárlaga og þeirra laga
sem fjallað verður um samtimis þeim.
Ólafur kvað ætlað að afgreiða tekju-
öflunarfrumvörp fyrir jól eða fyrir ný-
ár, ef fjárlagaafgreiðslan dregst. Þá
verður og fjallað um og afgreidd lög
um félagslegar umbætur i samráði við
launþegasamtökin.
„Stundum hefur tekizt og er æski-
legt að láta lánsfjáráætlun fylgja af-
greiðslu fjárlaga. Oftar hefur lánsfjár-
áætlun verið afgreidd siðar, enda fer
hún ekki til samþykkis á Alþingi,”
sagði Ólafur.
1 ályktun sem Sighvatur Björgvins-
son, form. þingflokks Alþýðuflokks-
ins, las upp og samþykkt var i flokks-
stjórn hans i fyrrinótt segir meðal ann-
ars:
Flokksstjórnin leggur áherzlu á að
núverandi stjórnarflokkar afgreiði
frumvarp til laga um jafnvægisstefnu í
efnahagsmálum og samræmdar að-
gerðir gegn verðbólgu.
Fram er tekið að rikisvaldið verði að
hafa frumkvæöi til þess aö ná árangri i
verðbólgumálum. Þess vegna verði
ekki gengið frá fjárlögum og lánsfjár-
áætlun fyrr en þessi stefna hefur verið
mörkuð.
BS.
frjálst, óháð dagblað
LAUGARDAGUR 16. DES. 1978.
„Við erum
ekki til um-
ræðuumað
!■ r «3« «•
i— segja afgreiðs
menn íáfengis
verzlunum
, „Við viljum að það komi skýrt fram
|að við erum ekki til umræðu um að
opið á Þorláksmessu,” sagði Ragnt
Pétursson, trúnaðarmaður afgreiðslu
manna í áfengisverzlunum í samtali við
Dagblaðið. En í DB i gær var sagt frá
að til tals hafi komið að hafa áfengis-
verzlanir opnar á Þorláksmessu þrátt
fyrir að hana beri nú upp á laugardag.
„Við vitum að Jón Kjartansson vill
hafa opið," sagði Ragnar. „En þetta er
laugardagur og það er okkar frídagur og
við látum hvorki Jón Kjartansson né
dómsmálaráðuneytið segja okkur fyrir
verkum með það. Það kemur hreinlega
ekki til greina af okkar hálfu að hafa
opið á þessum frídegi okkar.”
- GAJ
Jólasveinn dagsins, þegar aðeins átta
dagar eru til jóla, er Jón L. Árnason
skákmeistari. Jólasveinafræðingar
blaðsins gáfu honum nafnið Hrókaþeyt-
Og Hrókaþeytir var spurður hvað
hann vildi i jólagjöf.
„Allar skákir gefnar eftir þetta,”
glettist Jón, en bætti svo við: „í alvöru,
þá vil ég fá tafl og spil I jólagjöf."
DB-mynd Bj.Bj.