Dagblaðið - 02.04.1979, Side 1
5. ÁRG. — MÁNUDAGUR 2. APRÍL 1979 — 78. TBL.
RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1 l.-AÐALSÍMI 27022.
57 ÁRA GAMALL MAÐUR
SKORINN TIL BANA
—Var í íbúð sinni ásamt 4 öðrum
Óhugnanlegt morð var framið að
Hverfisgötu 34 í gær. Þar var myrtur
á hryllilegan hátt 57 ára gamall
maður, sem bjó í íbúðinni er
verknaðurinn var framin í. Maður
fæddur 1943 — eða 36 ára — var
handtekinn en að sögn Hallvarðs
Einvarðssonar rannsóknarlögreglu-
stjóra liggur bein játning enn ekki
fyrir enda hefur nákvæm skýrsla enn
ekki verið tekin af honum, vegna
ástands hins handtekna.
Hallvarður var að venju varkár í
frásögn sinni við DB í morgun. Kvað
hann manninn hafa látizt af hnífs-
stungum og hnífristum. Hvorki vildi
hann neita né játa að fjórar aðrar
persónur hefðu verið í íbúðinni og
kvað rannsókn enn ekki staðfesta hve
löngu áður atburðurinn hafi átt sér
stað en um hann var tilkynnt. Kvað
Hallvarður rannsókn enn í fullum
gangi og vildi ekki ræða nánar um at-
burðinn.
DB hefur það eftir áreiðanlegum
heimildum að talið sé að verknaður-
inn hafi verið framinn milli kl. 4 og 5
en ekki tilkynnt um hann fyrr en um
klukkan 10 í gærkvöldi.
Er lögreglumenn komu á staðinn
var aðkoman ljót. Hinn látni mun
bæði hafa verið skorinn á kvið og
háls. Var þegar sett vakt um húsið og
rannsókn sú hófst sem enn stendur.
Ekki töldu lögreglumenn er að
komu að um tiltakanlega ölvun hafi
verið að ræða þegar komið var á vett-
vang, en þegar virtist liggja ljóst fyrir
hver framið hafði verknaðinn.
Höfðu hinn látni og sá sem grunaður
er um verknaðinn gengið afsíðis og
aðrir ekki um vitað hvað gerzt hafði
fyrrénsíðar.
í morgun var hinn grunaði bana-
maður í Síðumúlafangelsi, en kona
var í geymslu í Hverfissteini í sam-
bandi við málið.
-A.St.
Hverfisgata 34.
DB-mynd Hörður.
!
Á gangi i miðbænum.
DB-mynd Hörður.
Valdastöður Framsóknarflokksins:
Róttækar breytingar
„Fundurinn leggur áherzlu á, að
efnahagsmálin verði að vera for-
gangsverkefni Alþingis og ríkis-
stjórnarinnar þar til jafnvægi er náð.
Hallalaus ríkisbúskapur, markviss
fjárfestingarstjóm og aðhald í
peningamálum hljóta að verða
kjarnaatriði í framkvæmd hinnar
nýju efnahagslöggjafar næstu árin,”
segir í stjórnmálaályktun aðalfundar
miðstjórnar Framsóknarflokksins
sem haldinn var núna um helgina.
Breytturopn-
unartími banka
Frá og með deginum í dag
opna bankar, sem áður opnuðu
kl. 9.30 kl. 9.15. Bankar sem
lokuðu kl. 18.30 eða 19, loka
framvegis kl. 18.
Betraástand
íHarrisburg
Jimmy Carter kom með eigin-
konu sinni til Harrisburg og
skoðaði hina biluðu kjarn-
orkustöð. Fullvissaði hann íbúa
um að allt kapp væri lagt á að
ekki yrðu skaðar á fólki. Vísinda-
menn og stjórnmálamenn i
Frakklandi og Bretlandi hafa
fullyrt að ekki geti komið til
slíkra atburða hjá þeim. öryggis-'
kerfi séu öðruvísi og fullkomnari
heldur en hið bandaríska. Sjá
nánar á blaðsíðu 9. Ekki er búið
að koma í veg fyrir hættuástand í
kjarnorkuverinu í Harrisburg en
þó betri vonir en fyrir helgi um að
það megi takast fljótlega.
Margeir
vann stór-
meistarann
Pachman
— sjá bls.5
Markverðast á þeim fundi telst það
að Ólafur Jóhannesson forsætis-
ráðherra lét af embætti formanns
flokksins og var Steingrímur
Hermannsson, dómsmálaráðherra
kjörinn formaður í hans stað. (Sjá
viðtal við hann ábls. 7).
AUróltækar breytingar urðu á
ýmsum val iastofnunum flokksins.
Urðu þær hvað mestar á blaðstjóm
Tímans en málgagn flokksins hefur
að mati margra verið ákaflega
vanrækt undanfarin ár.
Þeir Ólafur Jóhannesson,
Eysteinn Jónsson og Erlendur
Einarsson viku úr blaðstjóminni, en í
hana voru kjörin: Steingrímur
Hermannsson, Magnús Bjarnfreðs-
son, Vilhjálmur Jónsson, Geir
Magnússon, Haukur Ingibergsson,
Gerður Steinþórsdóttir, Heiður
Helgadóttir, Einar Ágústsson og
Pétur Einarsson.
-HP.
I gærkvöldi kl. 19.30 lagði hin aldna kempa Öiafur Ketilsson upp i ferð frá
Umferðarmiðstöðinni til Laugavatns. Þessi ferð markaði nokkur timamót þar sem
með henni endurheimti Ólafur sérleyfi sitt á leiðinni Reykjavik-Laugarvatn frá 1. april
að telja i eitt ár, eftir að hafa barizt lengi við „kerfið” fýrir þessu leyfi.
GAJ/DB-mynd Hörður.
Mikið tjón grásleppubáta
á Húsavík — vegnahafíss
— sjá bls. 25
Ljósmyndavörum fyrir
tvær milljónir stoiið
—sjá bls.5
Belgískur togari færður
tilhafnar -sjábis.14