Dagblaðið - 02.04.1979, Blaðsíða 25

Dagblaðið - 02.04.1979, Blaðsíða 25
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. APRÍL 1979. 25 -• .W'. v"\. . .J?*-*1**^* •• ->'''' , _J£.v mx'BF?*1 11 W!j2r_. Hafísinn fyrir Austurlandi: DB-mynd Einar Ólason Orðinn uppáþrengjandi —við Neskaupstað ,,Jú. fsinn er farinn að gerast frekar uppáþrengjandi hér og er kominn alveg inn í fjarðarbotn,” sagði Skúli Hjalta- son, fréttaritari DB á Neskaupstað er blaðið hafði samband við hann í gær. „Togarinn Birtingur var lengi að þræða hér siglingaleiðina út fjörðinn í dag vegna íssins. AUur megin inn- fjörðurinn er orðinn fullur af ís. Ut- fjörðurinn er auður en svo er ísspöng við hafsbrún. Við höfum áður séð einstaka jaka úti á firðinum en það hefur ekki verið neitt að ráði fyrr en í dag,” sagði Skúli að lokum. Á laugardagsmorgun kom mikiil is inn Seyðisfjörð en siglingarleið var þó alltaf fær að sögn Jóns Guðmunds- sonar fréttaritara DB á .Seyðisfirði. Aðfaranótt sunnudagsins hvarf svo allur ísinn aftur, hafði rekið út fjörðinn þá um nóttina. -GAJ- I v" A. td, L. i ;, x Sigluvíkin á útleið frá Siglufirði i miklum hafís. DB-mynd Bjarni Árnason. Húsavík: Mikið tjón grásleppubáta „Bátarnir héðan voru á sjó í gær og fyrradag. Þorskveiðibátarnir náðu sínum netum en þeir sem eru á grá- sleppunetum hafa tapað miklu af netum og þannig orðið fyrir verulegu tjóni,” sagði Ásmundur Bjarnason, fréttaritari DB á Húsavík. „Þrír bátanna hér eru farnir suður og koma ekki fyrr en ísinn er alveg far- inn. Höfnin hér er lokuð þó að höfnin sjálf sé laus við ís. En þegar litið er yfir flóann þá er hafís inn með Kinnarfjalli og út í miðjan Skjálfandafióa. Annars hefur ísinn rokkað til og frá undan- farna daga. Er kannski kominn inn á morgnana og farinn á kvöldin,” sagði Ásmundur aðlokum. Svipaða sögu er að segja af Siglu- firði. ísinn kemur þar og fer. Lítill is var þar í gær en heilmikill í fyrradag. Tveir Siglufjarðartogaranna, Stapavík og Sigluvík voru i gær fastir vestan við Horn og hugðust snúa til Reykjavíkur. Hins vegar hafði Stálvíkinni gengið vel frá Homi. -GAJ- SEIG ER SELMA Snemma beygist krókurínn. Hún er falleg þessi mynd frá Vestmannaeyjum, tekin i lognbliðu. Gg Ijósmyndarínn er aðeins 6 ára, Selma Ragnarsdóttir. Pabbi hefur kannski hjáipað örlítið við að stilla myndavélina, en Selma hefur siðan smellt af. Og árangurínn er góður. Nuerkomiðað DAS húsinu! Breiðvangi 62 Hafnaríirði Söluverömæti um 30 milljonir krona. Dregiö verður í 12. flokki 3. apríl. Nú má enginn gleyma aö endurnýja. Verö á lausum miöum er kr. 8.400.- H5

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.