Dagblaðið - 02.04.1979, Side 11

Dagblaðið - 02.04.1979, Side 11
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. APRÍL 1979. .1 unar. Barnlaus hjón hafa gjarnan samband við þennan umboðsmann, sem síðan fer á sjúkrahús og fæðingarstofnanir og ræðir við þung- aðar konur, sem þar eru. Oft á tíðum tekst þeim af eigin frumkvæði að telja hinar verðandi mæður á að selja barn sitt fyrir þeirra milligöngu. Útskýra þeir þá fjálglega fyrir þeim erfiðleikana, sem framundan séu vegna skorts á opinberri aðstoð til þeirra eftir barnsburðinn. Að sögn sjá margar þessara mæðra síðar eftir öllu saman og reyna að komast að því hvað hefur orðið um börn þeirra. Langoftast mun slík leit unnin fyrir gíg og þær fá aldrei framar að líta barn sitt augum. Þrátt fyrir þá erfiðleika, sem ógiftar mæður og börn þeirra í Grikklandi eiga við að stríða vegna fjárhagslegra erfiðleika virðist það þó ekki höfuðorsök þess að mæð- urnar selji börn sín. Samkvæmt könnun sem gerð hefur verið á vegum griskra dagblaða þá reyndist svo að 65% þeirra mæðra sem rætt var við og höfðu selt börn sín hafa gert það vegna þeirra niðurlægingar sem þeim fannst barnsburðurinn hafa i för með sér. Að eignast barn'utan hjónabands þykir mikil skömm og hneisa í Grikklandi eins og viðar. Við könnun dagblaðanna og reyndar áður hefur komið fram að mjög erfitt er að afla haldgóðra upplýsinga um þessi mál. Mæðurnar vilja að skiljanlegum áslæðum lítið ræða málið og því síður umboðs- mennirnir, sem annast viðskiptin. Svör mæðranna munu oftast vera þau að barnið hafi dáið skömmu eftir fæðinguna eða jafnvel fæðst and- vana. í viðræðum við þá foreldra sem keypt hafa börn sögðust 70% þeirra, sem rætt var við hafa gert það vegna þess að þau óskuðu eftir að gefa barninu betra heimili og framtíð. Aðrir svöruðu því til að umhyggja fyrir hinni ógiftu móður hafi ráðið gerðum þeirra. Stjórnvöld í Grikklandi segjast nú hafa fullan hug á að koma í veg fyrir að þessi sala á smábörnum haldi áfram að dafna. Ráðagerðir eru uppi hjá félagsmálaráðuneyti landsins að endurskoða reglur um ættleiðingu þannig að verstu agnúarnir á núgild- andi lögum verði sniðnir af. Aðstoðarfélagsmálaráðherrann Anna Synodinou sagði í viðtali að þó að höfuðástæðan fyrir því aðslík barnasala fær'i fram væri sú, að mun fleiri barnlausir foreldrar væru til heldur en fjöldi þeirra barna sem hægt er að fá ættleidd. Þessi barn- lausu hjón væru tilbúin til að greiða fyrir smábarn og væru jafnvel líka tilbúin til að brjóta gildandi lög um þessi efni ef það mætti verða til þess að hið langþráða barn kæmi á heimilið. veginn í réttu hlutfalli við styrk þeirra á þingi. Þeir neituðu. Kommúnistar heimtuðu m.a. að fá innanríkisráðuneytið í sinar hendur (stjórn löggæzlunnar í landinu), viðskiptaráðuneytið svo og ráðherra- stöðu i utanríkisráðuneytinu. Þetta þótti hinum flokkunum tveimur sem ræddu við þá um myndun meirihluta- stjórnar gjörsamlega óaðgengilegt. Síðan segir Fagerholm um myndun minnihlutastjórnarinnar. ,,Það var eingöngu ósanngirni kommúnista i samningaviðræðunum sem þvingaði okkur til að stíga þetta skref (Að mynda minnihlutastjórn). Eftir á sögðu kommúnistar að hefðum við bara beðið nokkra daga i viðbót þá hefði verið unnt að mynda samsteypustjórn. Slíkt er auðvelt að segja eftir á. Við höfðum ærnar ástæður til að láta okkur gruna að til- gangur kommúnista væri að draga samningaviðræðurnar í það óendan- lega og setja síðan áróðursvél sína í gang samhliða viðræðunum. Einn af samningamönnum þeirra sagði hreint út að það skipti ekki nokkru máli þótt viðræður drægjust á langinn vikutíma eða meira. Við sáum ekki á hinn bóginn, að það þjónaði neinum tilgangi að teygja stjórnar- kreppuna í það óendanlega.” Hljómar kunnuglega Minnir þetta ekki svolítið á sitt- hvað sem verið hefur að gerast og gerzt hefur hér á landi? Um samsteypustjórnina sem var við völd áður en minnihlutastjórn jafnaðarmanna tók við segir Fager- holm: „ Efnahagsstefna þeirrar stjórnar hlaut að teljast afskaplega veik. Það var útilokað að samræma hin ólíku sjónarmið innan stjórnar- innar. Einn daginn var gefið eftir við einn flokkinn, næsta dag var látið undan kröfum annars flokks.” Hljómar þetta ekki kunnuglega? Fagerholm greinir frá þvi að jafn- skjótt og jafnaðarmannastjórnin hafði tekið við, hafi kommúnistar byrjað hatrammar árásir á stjómina vegna stefnu hennar í utanríkis- málum. Tilgangurinn var að sverta finnsku ríkisstjórnina í augum ríkis- stjórnar Sovétríkjanna, hins volduga granna i austri. Síðan segir orðrétt: „Þeir höfðu * - staðreyndir fram að færa — stjón„.i var varla byrjuð að starfa, þegar áróðurs; «>rferðin fór af stað — en skortur á slaðreyndum hefur aldrei staðið finnskum komm- únistum fyrir þrifum.” Gæti nú ekki verið aðsvo háttaði einnig til víðar? Á þessum árum kölluðu finnskir kommúnistar sig „folk demo- kratena”. íslenzkir kommúnistar hafa löngum falið sig bak við nöfn í svipuðum dúr. Nú síðast Alþýðu- bandalagið eða Folk Alliansen eins og þeir kalla sig á Skandinavisku. En nafnið breytir engu þeir eru samir við sig og hugsunin sú sama. Skylt er að visu að láta það koma fram að aðeins lítill hluti þeirra sem styðja Alþýöu- bandalagið eru kommúnistar, hitt er fólk, sem blekkt hefur verið til fylgis við flokkinn, m.a. á grundvelli Kjallarinn ERurGuðnason rómantískrar þjóðernisstefnu. En staðreyndin er sú að sanntrúaðir kommúnistar ásamt með fáeinum tækifærissinnum og pólitískum flökkusveinum hafa aila tið haldið um stjórnvöl Alþýðubandalagsins allt frá því að það var stofnað. Það var þessum ástæðum fyrst og fremst, .em stjórnarmyndunarviðræðurnar í vumar gengu svo hægt sem raun bar vitni. Og það er líka af þessum ásatæðum að stjórnarsamstarfið að undanförnu hefur verið svo brösótt ■.em alþjóð veit. Og það er einnig af þessum ástæðum sem það er grund- vallarspurning hvort yfirleitt sé hægt að vinna með Alþýðubandalaginu, og víst er að það gera menn aðeins af þeirri illu nauðsyn að i skjóli úrelts skipulags og gamals valdakerfis hefur Alþýðubandalagið óeðlileg itök í forystuliði íslenzkrar verkalýðshreyf- ingar. Um raunveruleg ítök Alþýðu- bandalagsins í íslenzkri verkalýðs- hreyfingu veit hins vegar enginn, þar eru hlutföllin áreiðanlega önnur en að því er varðar ítök Alþýðubanda- lagsins i forystusveit ASÍ. EiðurGuðnason alþingismaður Stórslysaakstur lögreglunnar y niður alla löggæslu gagnvart ölvun við akstur. Nú kann að vera að þú og þeir sem eru á svipaðri skoðun séu að því komnir að spyrja, er þá ekkert hægt að gera til þess að fækka ölvun- arslysum? Látum ölvaðan mann í f riði Það sem Einar leggur áherslu á i sambandi við hraðakstur ölvaðs ökumanns, hræðslan við að vera tek- inn, er rétt. Að vegna hræðslu vegna lögbrots síns grípur ökumaðurinn stundum til hraðaksturs, sem aftur veldur stundum ótímabæru slysi. Meðal sumra þjóða þekkist sú regla gagnvart ölvun við akstur að ölvun við akstur er leyfð, svo lengi sem ölvaður ökumaður ekki veldur óhappi. Löggæslan er í framkvæmd þannig að ölvaður ökumaður hefur leyfi til þess að aka heim, en lögreglan skiptir sér ekki afþvínema að því leyti að sjái hún ofurölvi öku- mann sem virðist á leið með að aka bíl sínum, þá er reynt að koma í veg fyrir það, t.d. með því að bjóða þess í stað heimakstur eða að útvega bil. Lögreglan vinnur m.ö.o. þannig að ölvaður ökumaður veit að hann má aka bíl sinum heim en samt sem áður er hann undir þeirri pressu einni, að ölvaður ökumaður sem veldur slysi er tekinn í rétti, harðari tökum en aðrir ökumenn ef slys hefur orðið. Það sem er að okkar umferðarlög- um er aðallega það að allir ökumenn eru gerðir jafnvitlausir eða allir jafn- ábyrgðarlausir. Ljóst er að margir ökumenn aka ölvaðir og sennilega er mesta hættan fólgin í ótimabærum hraðakstri, sem einatt á sér stað vegna þess að ölvaður ökumaður vill flýta sér heim til þess að vera ekki tekinn af lögreglu, hvort sem er ein- kennisbúinni eða án búnings. Tökum því ekki ölvaðan ökumann nema hann hafi valdið óhappi, en dæmum hann þá harðaren aðraökumenn. Hraðakstur Ef íslenskar umferðareglur yrðu i þessa átt þá er farið að nálgast að hætta líka hinum vitlausu hraða- mælingum og sektum vegna þeirra. Ef tekið er dæmi þá má rétt athuga hraðamælingai lögreglu á Hring- braut vestan viðTjorn. Á þeim vegar- kafla má aðeins aka á 50 km hraða, en í þurru veðri og góðu skyggni er engin goðgá að aka þarna á a.m.k. 70 km hraða. Sé dæmi tekið af þjóð- vegi þá hefur lögregla sést taka hraðamælingu á þjóðveginum norðan að við Staðarskála i Hrúta- firði. Se lit.i umferð þá er það enginn hraði þ,> ökumaður sé á t.d. 90 km hraða á þeim vegarkafla, svo fremi að hann hafi hægt á bilnum þegar komið er á svæði gangandi um- ferðar viðskálann. 1 báðum þessum tilfellum hafa margir ökumenn sætt þeirri súru reynslu að vera teknir fyrir of hraðan akstur þó svo að vissulega hafi akstur þeirra alls ekki stofnað neinum í hættu heldur einungis verið meiri en alltof strangar reglur mæla fyrir um. Mörg lík dæmi mætti nefna víðs vegar um landið og t.d. skal það enn nefnt að á Reykjanesbraut á leið úr Breiðholti þá er við góð akstursskil- yrði engin goðgá þó ökumaður sé á t.d. 70 km. hraða. Flestir aka þar á þeim hraða og algengt er að ekið sé þar á 80 km hraða og þykir engum mikið, séu skilyrði góð. í íslenska umferðarmenningu vantar líklega fyrst og fremst það að ökumönnum sé treyst til þess að meta sjálfir hvað sé rétt og rangt, miðaðvið aðsræður. Rétta aðferðin varðandi öku- hraðann væri hugsanlega sú að miða á hverjum vegi við tiltekinn hraða en láta svo ökumenn sjálfa um það hvort nákvæmlega væri farið eftir honum. Sé enn eitt dæmi tekið þá má segja að 80 km hraði sé alveg nóg á Suðurlandsvegi þegar mikil umferð er um veginn, en þegar einn bíll er á ferð í björtu og þurru veðri og fátt annarra vegfarenda þá er 80 km reglan fásinna en 100 km hraði engin ósköp. Þessu skal lokið með þeim orðum að trúlega eru umferðarlög okkar fyrst og fremst röng að því leyti að í þeim virðist alls ekki reiknað með þvi að nokkur sé fullorðinn og sýni ábyrgð í samræmi við það. Kristinn Snæland £ „Trúlega eru umferöarlög okkar fyrst og fremst röng aö því leyti aö í þeim virðist alis ekki reiknaö meö að nokkur sé fulloröinn og sýni ábyrgð í samræmi viö það.”

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.