Dagblaðið - 02.04.1979, Qupperneq 22
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. APRÍL 1979.
22
(*
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Aðeins jafntefli hjá Forest
9
—Tókst ekki að sigra Bolton Wanderers á City Ground í Nottingham
Englandsmeistarar Nottinghamn
Forest misstu af tækifæri á laugardag
að nálgast Liverpool i 1. deild. Gerðu
aðeins jafntefli við Bolton, 1—1, á
City Ground í Nottingham. Forest
sótti mjög i leiknum en gekk illa við
mark mótherjanna. Woodcock og
Birtles misnotuðu auðveld tækifæri í
byrjun leiksins og á 35. min. náði
Bolton skyndisókn. Alan Gowling
skoraði. Þannig stóð, þrátt fyrlr
gifurlega pressu Forest, þar til rétt
fyrir leikslok að Trevor Francis
jafnaði.
Aðeins sex leikir voru í 1. deild á
laugardag vegna undanúrslitaleikj-
anna í bikarnum — og Everton og
Norwich léku á föstudag. Grand
National kappreiðarnar miklu háðar
í Liverpool á laugardag. Everton
náði jafntefli gegn Norwich á síðustu
stundu. Norwich komst í 0—2 með
mörkum Kevin Reeves en í síðari
hálfleiknum lék fyrirliði Everton,
Mick Lyons, sama leik. Skoraði
tvívegis og jafnaði.
ÚTBOÐ
Byggingarnefnd félagsheimilisins Hlaðir
á Hvalfjarðarströnd óskar eftir tilboðum
í eftirtalda verkhluta allt efni og vinna
innifalið:
1. Glerullareinangrun, afréttingargrind og
rakavarnarlag í samkomusal.
2. Innréttingar í samkomusal og leiksvið.
3. Afgreiðsluborð, þiljur o.fl.
Útboðsgagna má vitja þriðjudaginn 3.
apríl á teiknistofuna hf. Ármúla 6,
Reykjavík, gegn 20 þús. kr. skilatrygg-
ingu.
Æskulýðsráð
Styrkir
1. Nýjungar í starfi æskulýðsfé/aga.
Æskulýðsráð Reykjavíkur veitir nokkra styrki
til þeirra æskulýðsfélaga er hyggja á nýjungar
í starfi sínu í ár. Umsóknir um slíka styrki,
með ítarlegri greinargerð um hina fyrirhuguðu
tilraun eða nýbreytni, óskast sendar fram-
kvæmdastjóra ráðsins, Fríkirkjuvegi ll, fyrir
27. apríl næstkomandi.
2. Unglingaskipti.
Æskulýðsráð Reykjavíkur mun í ár veita
nokkurn fjárstyrk til félagshópa er fyrirhuga
unglingaskipti við útlönd sumarið 1979. Slík-
ur styrkur er bundinn því skilyrði að um gagn-
kvæma starfsemi sé að ræða, þ.e. samvinna
við erlend samtök er síðan senda unglinga til
Reykjavíkur. Upphæð fer eftir fjölda um-
sókna. Umsóknir með nákvæmum upplýs-
ingum um þátttakendur, erlendan samstarfs-
aðila og ferðaáætlun sendist skrifstofu
Æskulýðsráðs Reykjavíkur fyrir 27. apríl
1979.
Æskutýðsráð Reykjavíkur
sími 15937.
En lítum á úrslitin í deildakeppn-
inni.
1. deild
BristolCity — Birmingham 2—1
Ipswich — Man. City 2—1
Middlesbro — Tottenham 1—0
Nott. Forest — Bolton I — 1
QPR — Derby County 2—2
Southampton — Leeds 2—2
Föstudag
Everton — Norwich 2—2
2. deild
Brighton — NottsCounty 0—0
Burnley— Cambridge 1 — 1
C. Palace — Cardiff 2—0
Fulham-Charlton 3—1
Millwall—Wrexham frestað
Oldham — Newcastle 1—3
Preston — Orient 1 — 1
Sheff. Utd. — Bristol Rov. 1—0
Stoke—Blackburn 1—2
Sunderland—Luton 1—0
West Ham — Leicester 1—1
3. deild
Brentford — Blackppol 3—2
Bury — Shrewsbury 3—0
Chester — Mansfield 1—1
Chesterfield — Walsall 0—0
Exeter—Rotherham 2—0
Gillingham — Swindon 2—2
Hull City — Lincoln 0—0
Oxford — Carlisle 5—1
Peterbro — Colchester 1—2
Swansea — Plymouth 2—1
Watford — Sheff. Wed. 1—0
Föstudag
Tranmere — Southend 1—2
4. deild
Bradford — Darlington 0—0
Doncaster—Grimsby 0—1
Huddersfield — Hartlepool 2—0
Newport—Halifax 2—0
Northampton — Rochadale 1 —0
Reading — Port Vale 0—0
Scunthorpe — Crewe 0—1
Wigan — Bournemouth 1—0
Winbledon — Hereford 2—0
York City — Aldershot 1 — 1
Föstudag
Barnsley — Portsmouth 1 — 1
Stockport—Torquay 0—1
Það var mikil spenna í fallleiknum
í vesturbæ Lundúnaborgar. Derby
náði forustu með marki hins 19 ára
Crawford á 16. mín. en sex mín. síðar
jafnaði Goodard fyrir QPR.
Lundúnaliðið komst yfir á 37. min.
þegar Mick Walsh skoraði í sínum
fyrsta leik fyrir QPR — kom frá
Everton í skiptum fyrir Peter Eastoe
á fimmtudag. Staðan í hálfleik 2—1
en Gerry Daly jafnaði fyrir Derby á
51. mín. Dæmt var mark af Stan
Bowles vegna rangstöðu nokkru
síðar, sem margir töldu að hefði verið
rangur dómur, og það kann að
reynast QPR dýrt.
Dýrlingarnir sóttu mjög gegn
Leeds í fyrri hálfleik en Leeds
skoraði í raunverulega sinu eina
upphiaupi — John Hawley. Þannig
stóð þar til á 79. mín. að Waldron
jafnaði fyrir Southampton og
skoraði aftur mínútu síðar með skalla
eftir hornspyrnu. Fyrr á leiktímabil-
inu hafði hann aðeins skorað þrjú
mörk. Hawley jafnaði fyrir Leeds
rétt fyrir leikslok. Hollendingurinn
Geert Meijer, sem Bristol City keypti
frá Ajax á fimmtudag, skoraði eftir
aðeins fimm mín. gegn Birmingham.
Síðan bætti Chris Garland öðru
marki við. Geddis og Burgley komu
Ipswich í 2—0 i fyrri hálfleik en
Barry Silkmann, sem Manch. City
keypti frá Plymouth i síðustu viku,
minnkaði muninn í 2—1 í síðari hálf-
leik. Proctor skorað^ sigurmark
Middlesbrough gegn Tottenham á 30.
mín.
Efstu liðunum i 2. deild—nema
Crystal Palace og Sunderland —
gekk heldur illa á laugardag. Stoke
tapaði á heimavelli fyrir Blackburn.
Annar tapleikur Stoke á heimavelli
á fjórum dögum. Brighton tókst ekki
að sigra Notts County, sem lék sinn
áttunda leik án taps. Hefur hlotið 13
stig af 16 mögulegum en þessi loka-
sprettur Nottingham-liðsins hefur
sennilega komið of seint. Rolston
skoraði sigurmark Sunderland — en
Pop Robson jafnaði fyrir West Ham,
þegar langt var liðið á leikinn á
Upton Park. Henderson skoraði fyrir
Leicester. Þá vann Newcastle loks —
fyrsti útisigur liðsins síðan í
desember.
í 3. deild er Watford efst með 48
stig. Swansea .hefur 45 stig. Gilling-
ham og Shrewsbúry 44 stig. í 4. deild
er Reading efst.með 49 stig. Grimsby
hefur 48, Aldershot 46, Wimbledon
og Wigan 45 stig.
Staðan i 1. og 2. deild er nú
þannig:
1 . deild
Liverpool 30 21 6 3 63—1 1 48
Everton 33 15 14 4 45 —29 44
WBA 28 18 6 4 57—27 42
Nott.For. 29 13 14 2 41 — 18 40
Arsenal 32 15 9 8 50—32 39
Leeds 32 14 11 7 57—41 39
Man.Utd. 30 13 8 9 49—50 34
Coventry 34 I 1 12 11 42—56 34
Norwich 34 7 19 8 46—47 33
Tottenh 32 11 11 10 34—46 33
A. Villa 29 10 12 7 38—28 32
Ipswich 32 13 6 13 41—39 32
Southmt. 31 10 11 10 36—36 32
Bristol C. 34 11 9 14 38—44 31
Middlbro 33 11 8 14 47—44 30
Man.City 31 8 12 11 43—40 28
Bolton 31 9 8 14 41—55 26
Derby 33 9 8 16 36—55 26
Wolves 31 9 5 17 29—53 23
QPR 33 5 11 17 33—53 21
Birmingh 32 5 5 22 28—59 15
Chelsea 32 4 7 21 31—70 15
2. deild
Brighton 35 19 8 8 57—30 46
C.Palace 33 14 16 3 42—21 44
Sunderl 34 17 10 7 54—37 44
Stoke 34 15 13 6 47—29 43
West Ham 31 15 9 7 61—30 39
Notts. Co. 32 12 12 7 43—45 38
Orient 35 14 7 14 45—42 35
Fulham 32 12 10 10 41—35 34
Burnley 31 12 10 9 45—43 34
Preston 32 9 14 9 45—46 32
Cambr. 34 9 14 11 41—43 32
Leicester 32 9 13 10 36—35 31
Charlton 34 10 10 14 54—58 30
Newcastle 30 12 5 13 25—32 29
Bristol Rov. 31 10 9 11 40—50 29
Luton 33 11 6 16 48 —46 28
Wrexh. 27 9 8 10 32—26 26
Sheff.Utd. 31 7 10 14 34—49 24
Oldham 31 7 10 14 30—54 24
Cardiff 31 9 6 16 36—62 24
Backburn 31 5 9 17 30—56 19
Millwall 28 6 5 17 26—44 17
SEKONIC
Ljósmæiar
Œ) audio
technica
Pickup
Heyrnartól
Flnlux
Litsjónvörp
\m
FISHER
Hljómtæki
OcaSIIMA
Myndavélar
Astra Music
Útvarpsklukkur
SUnPflK
Flöss
Kvikmyndatöku
Ijós og
Sýningartjöld
MAGNON
Kvikmynda
sýningavélar
HOYfl
Ljósmynda
filterar
Þrifætur
GINO
Ljósmynda
töskur
MallorY
Rafhlööur
SPECTRUM
Sjónvarps
leiktæki
ZENITH
ZORKI — KIEV
MYNDAVÉLAR
SUPER ZENITH
Sjónaukar
SJÓNVARPSBÚÐIN
BORGARTÚN118 REYKJAVÍK SÍMI27099
STEREO - FERÐAKASS-
ETTUTÆKI MEÐ ÚTVARPI
LW - MW - FM - SW.