Dagblaðið - 02.04.1979, Síða 23
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. APRÍL 1979.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Arsenal í úrslitin
Liver-
pool og Man.Utd. leika á ný
Jafntefli Liverpool og Man. Utd. ífrábærum leik íundanúrslitum FA-bikarkeppninnar á Maine Road
,,Það er slæmt að annað þessara
liða þurfi að vera slegið út eftir leik
þeirra nú hefðu bæði átt skilið að leika
í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar.
Þetta er áreiðanlega bezti leikur, sem
leikinn hefur verið i undanúrslitum
bikarsins í áratugi,” sagði Dennis Law,
knattspymukappinn frægi, eftir leik
Livcrpool og Man. Utd. á Maine Road
Manchester — leikvelii Manchester
City — á laugardag. Leiknum lauk með
jafntefli 2—2 og skoraði Lipverpool
jöfnunarmarkið, þegar átta mínútur
voru til leiksloka. Liðin verða þvi að
leika að njju og verður sá leikur á
miðvikudag á Goodison Park, leikvelli
Everton í Liverpool. Arsenal vann hins
vegar öruggan sigur á Úlfunum, 2—0 á
Villa Park i Birmingham í hinum leikn-
um í undanúrslitum. Hefur þvi tryggt
sér sæti i úrslitum annað árið i röð.
Tapaði í fyrravor i úrslitum fyrir
Ipswich á Wembley.
Það varð strax mikil spenna í leikn-
um á Maine Road og knötturinn gekk
markanna á milli. Joe Jordan var
valinn sem miðherji i lið Man. Utd. en
ekki Andy Ricthie, sem skoraði þrjú
mörk gegn Leeds laugardaginn áður —
en Liverpool var með óbreytt lið í
sjöunda leiknum í röð, þar sem liðið
hafði aðeins fengið á sig tvö mörk —
og ekki mark i bikarkeppninni.
,,Við getum leikið frábæra knatt-
spyrnu í sumum leikjum, en í öðrum
erum við eins og ellefu einstaklingar,
sem eru að leika saman í fyrsta sinn,”
sagði Steve Coppell, háskólastúdentinn
i liði Man. Utd. nýlega — og þetta
varð einn af þeim leikjum, sem Man.
Utd. lék vel. Hafði lengstum yfirtökin
gegn hinu frábæra Iiði Liverpool — og
það segir ekki litla sögu.
En leikmenn Liverpool voru fyrri til
að ná tökum á taugum sínum og á 17.
mín. skoraði Ken Dalglish frábært
mark. „Töfrar” sögðu þulir BBC. En
aðeins 90 sekúndum síðar lá knötturinn
í marki Liverpool — fyrsta markið,
sem liðið fær á sig i keppninni. Jimmy
Greenhoff átti snilldarsendingu á Joe
Jordan, sem skallaði knöttinn í markið
án þess Ray Clemence hefði nokkra
möguleika að verja, 1—1. Jöfnunar-
mark, sem gat ekki komið á þýðingar-
meira augnabliki fyrir United.
En áfram hélt leikurinn og oft héldu
52 þúsund áhorfendur niðri í sér and-
anum af spenningi. Á 37. mín. léku
Jimmy Case og Dalglish með knöttinn
inn í vítateig mótherjanna og dómarinn
flautaði. „Vítaspyrna” hrópaði þulur
BBC steinhissa ,,ég veit ekki hvað
hefur komið fyrir. Kannski hefur
knettinum verið spymt í hönd Martin
Buchan, því dómarinn dæmdi
ákveðinn vitaspyrnu.” Leikmenn
United beinlínis æröust — mótmæltu
Alan Hansen — skoraði sitt
mark á leiktímabilinu.
fyrsta
Joe Jordan — jafnaði fyrir United
með frábærum skalla.
ákaft, og í látunum var Gordon
McQueen, miðvörður United, bók-
aður Terry McDermott tók víta-
spyrnuna — spyrnti knettinum fast
neðst á markið, en knötturinn lenti i
markstönginni og hrökk út.Bjargað í
hom. Eftir þetta atvik tvíefldust leik-
menn Manchesterliðsins og sóttu
mjög lokakafla hálfleiksins. Tókst þó
ekki að skora.
United skorar
Það sama var uppi á teningnum í
byrjun síðari hálfleiks. United sótti
og það bar árangur á 56. mín. Brian
Greenhoff sendi knöttinn í mark
'Liverpool — og spenna var gífurleg.
Ray Clemence varði tvívegis á stór-
kosdegan hátt og eftir hornspyrnu
skallaði McQueen rétt framhjá
marki Liverpool. Það var á 74. mín.
og nokkmm sekúndum síðar renndi
Dalglish sér í gegnum vörn United —
komst frír að markinu. Hinn 19 ára
markvörður Man Utd., Gary Bailey,
hljóp á móti honum. Dalgish lyfti
knettinum yfir hann — en líka yfir
þverslána. Sjálfur Dalglish í
dauðafæri en brást. Mikil mistök
McQueen, sem lét knöttinn fara
framhjá sér — og knötturinn rúllaði
beint til Datglish. Hálfri mínútu síðar
var hætta hinu megin — Steve
Coppell, sem oft lék Emlyn Hughes,
vinstri bakvörð Liverpool, grátt i
leiknum, komst frír í gegn. Átti
aðeins Clemence einan eftir en
spyrnti framhjá.
Liverpool kippti Case út af. Steve
Heighway kom í hans stað — og var
ógnandi á vinstri kantinum gegn
Jimmy Nicholl. Bailey varði vel frá
Ray Kennedy og rétt á eftir var
bjargað á marklínu Man. Utd. Sex
góð tækifæri á stuttum tíma — gífur-
leg spenna.
„United reynir allt til að gera út
um leikinn — ,,going for the kill” —
og það talsvert á kostnað varnar-
innar,” sagði Dennis Law. Það átti
eftir að hefna sin fyrir liðið. Liver-
pool fékk hornspyrnu á 82. mín.
Skallað var út úr vítateig United —
Heighway fékk knöttinn á vinstri
kanti. Lék á Nicholl og gaf fyrir. Þar
tókst Skotanum stóra, Alan Hansen,
að stýra knettinum í mark United.
2—2, fyrsta mark Hansen á leiktíma-
bilinu. Eftir markið sótti Liverpool
meira — en opin færi sköpuðust
ekki. Leiktíminn rann út og eftir
leikinn klöppuðu áhorfendur lengi
fyrir ieikmönnum. Þökkuðu j>eim
fyrir stórsnjallan leik og þulur BBC
stundi. ,,Því miður er þessum frá-
bæra leik lokið”. En liðin reyna með
sér á ný á miðvikudag.
Þau voru þannig skipuð:
Gordon McQueen lék sinn bezta leik með Man. Utd. frá þvi hann var keyptur
frá Lceds.
Liverpool. Clemence, Neal, Thomp-
son, Hansen, Hughes, Ray Kennedy,
Souness, Case (Heighway), McDer-
mott, Dalglish og Johnson. Man.
Utd. Bailey, Nicholl, Buchan,
McQueen, Albiston, Brian Green-
hoff, Mcllroy, Coppell, Jimmy
Greenhoff, Jordan og Thomas.
Flestir áttu mjög góðan leik —
Hansen, Thompson, Dalglish og
Kennedy hjá Liverpool auk
Clemence, sem varði frábærlega. Hjá
Manc. Utd. áttu Skotarnir McQueen
og Jordan, sem mjög hafa verið
gagnrýndir frá því þeir voru keyptir
frá Leeds, báðir stórleik.
Arsenal íúrslit
Arsenal tryggði sér rétt úrsUtin með
því að sigra Úlfana í slökum leik á Vflla
Park. Arsenal án Liam Brady, sem
komst ekki í gegnum upphitun fyrir
leikinn, var lengi að ná sér á strik — og
Úlfrunum tókst aldrei að ná svipuðun
leik og gegn Arsenal i defldakeppninni.
Sigruðu Arsenal þar í báðum
leikjunum.
„Heppni að við lýstum leiknum á
Maine Road,” sagði Pathe Feeney hjá
BBC, sem fylgdist með leiknum á Villa
Park í sjónvarpi. Ekkert mark var
skorað í fyrri hálfleik en á 50. min.
tókst Frank Stapleton að skora fyrir
Arsenal. EUefu min. fyrir leikslok
guUtryggði svo Alan Sunderland, sem
áður lék með Úlfunum, sigur Lundúna-
liðsins. öruggur sigur — en greinilegt
að Arsenal verður að gera miklu betur i
úrsUtaleiknum á Wembley fyrst i mai ef
liðið ætlar að tryggja sér þar sigur. En
án Liam Brady er Arsenal aðeins
skuggi þess liðs, sem það getur verið.
Tapaði þó ekki án hans nú — en hefur
tapað fimm leikjum af átta án Brady í
IdeUd. .hsim.
Einum færri og markvörð-
urinn handleggsbrotinn!
— Aberdeen varð fyrir miklum áföllum lokakaf la urslitaleiks skozka deildabikarsins.
Rangers skoraði þá tvívegis og sigraði 2-1. Celtic tapaði í úrvalsdeildinni
Glasgow Rangers hafði heppnina
með sér, þegar liðið sigraði Aberdeen
í úrslitaleik skozka deildabikarsins
2—1 á Hampden Park á laugardag.
Sigurmark Rangers var skorað
þremur mínútum eftir að venjulegur
leiktími var runninn út — og síðasta
stundarfjórðungínn lék Aberdeen
einum færri, auk þess, sem mark-
vörður liðsins var illa slasaður.
Fyrri hálfleikur leiksins var slakur.
Lítið sem gladdi augað — cg fá tæki-
færi. Ekkert mark skorað en í þeim
siðari varð spenna mikil.
Aberdeen náði forustu, þegar
Duncan Davidson skoraði gott mark
á 58,mín. en Rangers tókst að jafna á
79. mín. Bobby Clark, markvörður
Aberdeen, lá þá meiddur á vellinum,
þegar Alex MacDonald sendi knött-
inn í markið. Óttazt að hann væri
handleggsbrotinn en Clark vildi ekki.
yfirgefa leikvöllinn. Lék til loka og
gat aðeins notað annan handlegginn.
Fjórum mín. síðar rak dómarinn
miðvörð Aberdeen, Doug Rougvie,
af vellinum fyrir brot á Derek John-
stone, þegar knötturinn var hvergi’
nálægt. Leikurinn var harður — sex
aðrir leikmenn bókaðir. Aberdeen
lék því með 10 mönnum síðasta
stundarfjóröunginn — og á 93.mín.
tókst Colin Jackson, elzta leikmanni
Rangers, miðverði, að skalla
knöttinn í mark eftir hornspyrnu
McLean. Aberdeen gerði
örvæntingarfullar tilraunir til að
jafna þaö, sem eftir var leiksins.
Dómarinn flautaði ekki af fyrr en sex
mínútur voru komnar fram yfir
venjulegan leiktíma, enda miklar
tafir vegna þeirra atburða, sem
höfðu átt sér stað í leiknum.
Fjórir leikir voru háðir í úrvals-
deildinni og þar tapaði Celtic fyrir
Hibernian í Edinborg, 2—1. Dundee
Utd. sigraði neðsta liðið Motherwell
með naumindum í Dundee og hefur
nú fimm stiga forustu á Rangers.
Hefur hins vegar tapað þremur
stigum meir en Rangers — og tveimur
stigum meir en Celtic.
Úrslit urðu þessi.
DundeeUtd.— Motherwell 2—1
Hibernian — Celtic 2— 1
Morton — Partick — Hearts St. Mirren 2—2 3-1
Staðan er nú þannig: Dundee Utd.28 14 7 7 41—29 35
Rangers 24 11 8 5 32—22 30
St. Mirren 27 12 5 10 37—30 29
Hibernian 27 9 11 7 33—31 27
Morton 28 9 9 10 40—44 27
Aberdeen 25 8 10 7 43—26 26
Celtic 22 10 5 7 33—24 25
Partick 25 9 7 9 27—26 25
Hearts 24 6 7 11 32—46 19
Motherwll 27 4 5 18 23—62 13